Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Sími 511 8090 • www.yndisauki.is
Dukkah er frábært með brauði, salatinu,
grillaða grænmetinu, á kjúklinginn og fiskinn
og með nýgrilluðu lambakjöti
Dukkah frá Yndisauka
ómissandi í matargerðina
Dukkah er blanda af möndlum, hnetum, sesamfræjum og
sérvöldu kryddi. Blandan er upprunnin í Egyptalandi og
var upphaflega notuð með brauði sem fyrst er dýft í góða
ólífuolíu og svo í dukkah.
Dukkah fæst íHagkaupum,Melabúðinni, Fjarðarkaupum,
Mosfellsbakaríi, Kjöthöllinni,Nóatúni,Garðheimum,
Miðbúðinni og Bakaríinu viðBrúnnaAkureyri.
reiðubúnir að fjárfesta í Kaupþingi.
Hreiðar Már og Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður bank-
ans, hefðu aftur á móti verið mikið
erlendis í aðdraganda bankahruns-
ins til þess að kynna bankann og afla
fjárfesta.
Spurt út í söluhlið viðskiptanna
Ingólfur sagði að þegar komið
hefði að ákvörðunum um umfangs-
mikla sölu á bréfum í Kaupþingi
hefði frumkvæðið ekki alltaf verið
Kaupþings. Þegar komið hefði að
ákvörðunum um verð kvaðst hann
hafa ýmist tekið þær sjálfur, ef hann
kom að þeim, eða yfirmenn hans en
ákvarðanir hans hefðu verið bornar
undir yfirmenn. Ingólfur sagðist
ekki hafa verið í viðskiptum við neina
viðskiptavini bankans í Lúxemborg.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, gaf engin
fyrirmæli um að halda uppi verði á
bréfum í bankanum, samkvæmt því
sem fram kom í skýrslutöku af Ing-
ólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings á Íslandi, á áttunda degi
aðalmeðferðar stóra markaðsmis-
notkunarmáls Kaupþings fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær.
Ingólfur sagðist ekki vita til þess
að slík fyrirmæli hefðu verið gefin af
Hreiðari Má, þegar verjandi Hreið-
ars, Hörður Felix Harðarson, innti
hann eftir því. Hreiðar gaf hvorki
fyrirmæli um opnunartilboð né lok-
unartilboð né um viðskipti í kauphöll
svo að Ingólfur vissi til.
Þeir Ingólfur og Hreiðar eru báðir
á meðal ákærðra í málinu en sak-
sóknari telur að samið hafi verið um
stór viðskipti um kaup á bréfum í
Kaupþingi í aðdraganda hrunsins til
þess að halda verði bréfanna uppi.
Kom ekki að lánveitingum
Ákæran í málinu hefur í raun tvær
hliðar, kaup- og söluhlið. Mikið hefur
verið spurt út í kauphlið málsins að
undanförnu, en í gær hóf saksóknari
að spyrja meira út í söluhlið málsins,
þar sem ákært er fyrir að bankinn
hafi losað sig við bréfin með því að
lána félögum með lítið eða neikvætt
eigið fé fyrir kaupum á hlutabréfum í
bankanum.
Við skýrslutökuna í gær ítrekaði
Ingólfur fyrri málflutning um að
hann hefði ekki tekið ákvarðanir um
stór viðskipti með bréf Kaupþings
nema með samþykki yfirmanna
sinna. Þá hefði hann hvergi komið að
lánveitingum vegna kaupa á bréfun-
um og ekkert vitað á þeim tíma
hvernig þau væru fjármögnuð. Ing-
ólfur lagði áherslu á að starfssvið
hans hefði verið innanlands, á Ís-
landi, og hann hefði tekið þátt í því
að finna innlenda aðila sem væru
Söluhliðin skoðuð
Morgunblaðið/Golli
Markaðsmisnotkun Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings, gaf ekki fyrirmæli um að halda uppi verði á bréfum, að sögn Ingólfs.
Ingólfur Helgason, fyrrv. forstjóri Kaupþings á Íslandi,
vissi ekki hvernig kaupin á bréfum voru fjármögnuð
Stóra markaðsmisnotk-
unarmál Kaupþings
» Saksóknari hóf í gær að
spyrja meira út í söluhliðina.
» Ingólfur sagðist ekki hafa
komið að lánveitingum við sölu
á eigin bréfum í bankanum.
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Ísfélag Vestmannaeyja telur að
verði makrílfrumvarp sjávar-
útvegsráðherra samþykkt óbreytt,
sé ekki verið að fara eftir skýrri
niðurstöðu sem fram kemur í áliti
umboðsmanns Alþingis. Þetta kem-
ur fram í umsögn félagsins um
frumvarpið sem skilað var inn til
nefndasviðs Alþingis. Telur félagið
að nota hefði átt aflareynslu frá
öðru tímabili til þess að ákveða
kvótann. Árið 2008 var veiði á mak-
ríl takmörkuð við heildarafla og
öðluðust skip veiðireynslu á næstu
þremur árum. Árið 2011 ákvað ráð-
herra að ráðstafa aðeins hluta af
heildaraflanum til skipanna sem
höfðu veiðireynslu, með reglugerð.
Komst umboðsmaður Alþingis að
þeirri niðurstöðu árið 2012 að sú
ráðstöfun ráðherra, að hlut-
deildasetja ekki makrílinn frá árinu
2011, væri ekki í samræmi við lög
þar sem skipin sem stunduðu veið-
ar á árunum 2008-2010 voru talin
hafa uppfyllt skilyrði um samfellda
veiðireynslu.
Höfðuðu viðurkenningarmál
Ísfélagið hefur stefnt íslenska
ríkinu til viðurkenningar á bóta-
skyldu vegna ákvörðunar ráðherra
og byggir félagið málið meðal ann-
ars á niðurstöðu umboðsmanns.
Í greinargerð með frumvarpi
sjávarútvegsráðherra er fjallað um
stefnu félagsins vegna meintrar
rangrar úthlutunar í makríl. Segir
þar að fyrirséð sé að málarekst-
urinn muni taka nokkur ár ef nið-
urstaða héraðsdóms verður borin
undir Hæstarétt en niðurstöðu í
málinu er að vænta í maí.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimaey Ísfélagið vísar í umsögn sinni til álits umboðsmanns Alþingis.
Ekki farið eftir
skýrri niðurstöðu
Vilja að miðað sé við annað tímabil
Píratar fengju 30% atkvæða ef
gengið yrði til kosninga nú og stuðn-
ingur við ríkisstjórnina hefur minnk-
að, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.
Þá hefur Björt framtíð tapað miklu
fylgi á kjörtímabilinu.
Frá þessu var greint í fréttum
RÚV í gærkvöldi og má sjá könnun
Gallup í heild sinni á vef RÚV.
Fylgi Pírata hefur aukist um 8%
frá síðasta mánuði og hefur tvöfald-
ast síðan í febrúar.
Tæp 8% segjast ætla að kjósa
Bjarta framtíð. Fylgi flokksins hefur
minnkað um 3% milli mánaða, hann
hefur tapað um tveimur fimmtu
hlutum af fylgi sínu á tveimur mán-
uðum og hefur ekki mælst með jafn-
lítið fylgi á kjörtímabilinu.
Tæp 23% segjast ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, fylgið hefur
minnkað um 2% og hefur ekki mælst
minna á kjörtímabilinu. Fylgi Sam-
fylkingarinnar minnkaði jafnmikið
og mælist nú 14%. Flokkurinn hefur
ekki mælst með minna fylgi síðan í
júlí 2013.
10% myndu kjósa Framsókn
Litlar breytingar eru á fylgi ann-
arra flokka á milli mánaða, eða 0,5 –
0,7%. Tæp 11% segjast ætla að kjósa
Vinstrihreyfinguna grænt framboð,
10% Framsóknarflokkinn og rúm-
lega 4% aðra flokka en þá sem nú
eiga sæti á Alþingi.
Könnunin var gerð 8. – 29. apríl.
Spurt var hvaða flokka fólk myndi
kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag
og hvort væri líklegra að viðkomandi
kysi Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern hinna flokkanna. Þá var spurt
um stuðning við ríkisstjórnina.
Heildarúrtakið var 4.192.
Morgunblaðið/Golli
Píratar Frá stofnfundi Pírataflokksins í nóvember 2012. Síðan þá hefur
flokknum vaxið fiskur um hrygg og mælist nú með mest fylgi allra flokka.
Fylgi Pírata
hefur tvöfaldast