Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Fjölmiðlafræðingurinn Jón Aðalsteinn Bergsveinsson vinnurhjá almannatengsla- og ráðgjafarfyrirtækinu Cohn & Wolfe.„Við erum mikið í því að veita fyrirtækjum ráðgjöf, fjöl-
miðlaráðgjöf, hjálp í stórum og smáum krísum og í samskiptum við
starfsfólk og almenning.“ Jón Aðalsteinn var lengi blaðamaður á
Fréttablaðinu og Viðskiptablaðinu auk fjölda tímarita á borð við
Bleikt og blátt, Tölvuheim og Brimfaxa, tímarit smábátaeigenda.
„Það sem kom mér á óvart hjá Cohn & Wolfe er að ímyndin af al-
mannatengli er önnur en starfið raunverulega er. Við hugsum um
hag neytenda og veitum mun meiri aðstoð en margir halda. Það má
segja við séum milliliður fyrirtækja og neytenda.
Utan vinnu nýt ég tímans með fjölskyldunni og reyni að fara á
listasýningar en það mætti vera mun meira af því. Fór síðast á sýn-
inguna Nýmálað 2 sem er núna í gangi á Kjarvalsstöðum, en við
eldri sonurinn hjóluðum þangað saman. Ég hef frá æsku verið bóka-
ormur. Fyrir utan allar bækurnar um almannatengsl er ég að lesa
skáldsöguna American Pastoral eftir Philip Roth. Ég hef skokkað
reglulega eftir að ég varð fertugur og er nú í betra formi en ég var
fyrir fertugt.“
Sambýliskona Jóns er Auður Sigurðardóttir, táknmálstúlkur hjá
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra. Synir þeirra eru Eysteinn Auðar
Jónsson 10 ára og Ísleifur Auðar Jónsson 7 ára.
„Ég hef aldrei farið í kröfugöngu á afmælisdaginn, en alltaf talið
fánana, bjó á Selfossi þegar ég var krakki, á annarri hæð í blokk, sá
þaðan yfir stóran hluta bæjarins og taldi alltaf fánana sem var
flaggað. VR er með hlaup á Klambratúni í tilefni dagsins og mig
langar að taka þátt í því og draga strákana mína með í það.“
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson er 44 ára
Feðgarnir Jón Aðalsteinn ásamt sonum sínum, Eysteini og Ísleifi.
Telur ennþá fána
á afmælisdaginn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Helgi Hrannar Traustason er þrítugur
í dag. Hann ólst upp á Syðri-Hofdölum
í Viðvíkursveit, býr á Hofsósi og er
húsasmíðameistari. Sambýliskona
hans er Vala Kristín Ófeigsdóttir
grunnskólakennari. Þau eiga þrjú
börn.
Árnað heilla
30 ára
Akureyri Ástrós Anna fæddist 1. maí
2014 kl. 6.38. Hún vó 2.920 g og var
49 cm löng. Foreldrar hennar eru
Signý Sigurmonsdóttir og Gunnar
Árni Magnússon.
Nýr borgari
A
nna fæddist í Reykjavík
1.5. 1985 og ólst upp í
Vesturbænum: „Ég átti
nú víst heima í Breið-
holtinu fyrstu fimm ár-
in en man eiginlega ekkert eftir því.
Síðan fluttum við í rauðu blokkina
við Kaplaskjólsveginn, beint á móti
KR-stúkunni, og þar ólst ég upp
fram á fullorðinsár. Ég var því KR-
ingur í húð og hár eins og reyndar
allir KR-ingar eru, byrjaði ung að
æfa fótbolta og handbolta með KR
og ætlaði aldrei í önnur lið.
Ég keppti með KR í knattspyrnu
til 19 ára aldurs og lék nokkra
meistaraflokksleiki og æfði og
keppti í handbolta í KR frá sex ára
aldri og þar til ég varð 10 ára. Þá
hætti ég í handboltanum og ætlaði
að leggja fótboltann fyrir mig. Ég
byrjaði svo aftur í hanboltanum 13
ára en þá hafði KR lagt handbolt-
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir handboltakempa – 30 ára
Fjölskyldan Finnur Ingi, Fanndís Hera og Anna Úrsúla skoða kynngimagnaða altaristöflu Baltasars í Flateyjarkirkju.
Handboltaútlagi frá KR
sem fór í Gróttu og Val
Enn eitt markið Anna Úrsúla skorar gegn Stjörnunni fyrir skömmu síðan.
EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Heildverslun með lín fyrir:
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
83
ÁRA
Rúmföt, handklæði, sængur, koddar
og annað lín fyrir ferðaþjónustuna
- hótelið
- gistiheimilið
- bændagistinguna
- heimagistinguna
- veitingasalinn
- heilsulindina
- þvottahúsið
- sérverslunina