Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Hálsmen
29.900
Hálsmen
14.900
Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | Sími 551 4007skartgripirogur.is
Eyrnalokkar
14.900
Hringur
16.900
Hálsmen
17.900
Ný skartgipalína
Hringur
17.900
Hringur
29.900
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú mátt aldrei freistast til þess að
sniðganga lögin þótt þér sýnist það geti
einfaldað hlutina. Beittu þinni víðfrægu
staðfestu og fylgdu henni eftir.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhver þér eldri og reyndari gefur
góð ráð í dag. Nú er komið að því að sinna
þessum málum og leiða þau til lykta.
Reyndu að vinna meira í einrúmi eftir því
sem líða tekur á daginn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að forðast að eyða of
miklum peningum þegar fjárútlát eru ann-
ars vegar. En gættu þess vandlega að flýta
þér ekki um of; það gæti haft hörmulegar
afleiðingar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Margir eru þeir sem tala upp í eyr-
un á þér. Hafðu hugfast að það sjá ekki all-
ir hlutina í sama ljósi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú vera að drukkna í alls
kyns misvísandi upplýsingum. En það má
búa sig undir eitt og annað til þess að vera
viðbúinn þegar uppákomurnar dynja yfir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst það skylda þín að deila
vitneskju þinni með öðrum. Láttu ekki hug-
fallast heldur gakktu æðrulaus til verks.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú bregst kröftuglega við umhverfinu
um þessar mundir. Reyndu að fá aðra til
að sjá þína hlið á málinu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hugsanlegt er að þú þurfir að
horfast í augu við mátt tiltekins hóps í dag.
Reyndu ekki að fela mistökin heldur bættu
úr þeim með bros á vör.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er góður tími til að gera
áætlanir varðandi starfsframa þinn. Kyrr
og friðsæll hugur ryður veginn fyrir lífs-
máta sem er bæði einbeittur og innihalds-
ríkur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur réttlætt allt sem þú
hefur tekið þér fyrir hendur síðastliðnar
tvær vikur og hugsanlega verður ætlast til
þess af þér. En það að vilja er ekki sama
og að framkvæma.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Tilfinningar þínar til vinar gætu
breyst á næstu vikum. Láttu það gerast og
árangurinn mun koma þér skemmtilega á
óvart.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki vænlegt til árangurs að
blanda of mörgum inn í málin. Sættu þig
við það, þótt erfitt sé, og taktu til hendinni
við þau nýju verkefni sem bíða þín.
Ingólfur Ómar Ármannsson sendimér fallegt Vorljóð til birtingar
í Vísnahorni:
Á mosabreiðu merlar döggin hrein
morgunsólin risin er á ný,
Kátir þrestir flögra grein af grein
og gróðurmoldin angar frjó og hlý.
Ég heyri loftsins villta vængjaslátt
um vangann leikur golan mjúk og þýð,
Í lautu niðar lækjarsytra kátt
og litfríð blómin skreyta dal og hlíð.
Geislar sólar gylla bláan sæ
glettin báran hjalar þíðan óð,
Vorsins komu glaður fagnað fæ
fuglar syngja Drottni ástarljóð.
Davíð Hjálmar Haraldsson orti á
þriðjudaginn og skrifaði í Leirinn
þetta skemmtilega erindi um „líf og
dauða á lóðinni“ og lét pistil fylgja,
sem því miður er ekki pláss fyrir
hér í Vísnahorni:
Safnast dýrin mörg á mína lóð,
minna þau á smáa, frónska þjóð.
Fundinn mola gleypir hver sem getur.
Maðkur, gaukur, mávur, þröstur, hrafn;
misleitt er það villidýrasafn.
Bjóðist færi hver þar annan etur.
Páll Imsland skrifaði síðbúnar
sumarkveðjur í Leirinn á laugar-
dag:.
Hann Láki oft spilaði ping pong
og á pjátur hann lék undir sing song,
en á síðkvöldum gráum
í sófanum bláum
spilaði’ hann sparlaka ding dong.
Sigurlín Hermannsdóttir kallar
þessa limru (Leir)tilvistarkrepp-
una:
Ég veit ekki neitt hvað ég vil
og veit ennþá síður hvað skil.
Eitt veit ég þó
(þótt varla sé nóg)
ég veit fyrir víst ég er til.
Þessi limra kallast á við limruna
„Fríháls“ eftir Þorstein Valdimars-
son:
Ég aðhefst það eitt sem ég vil
og því aðeins að mig langi til.
En langi þig til
að mig langi til –
þá langar mig til svo ég vil!
Hér kemur svo önnur limra eftir
Þorstein: „Daglæti“.
Frænku dreymdi’ að hún dæi úr slagi.
Og þetta’ er dæmi af grófara tæi. –
ekki um slag til baga
heldur baga af slaga. –
Banamein frænku varð slagi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorljóð, tilbrigði og
tilvistarkreppa
Í klípu
HANN HUGSAÐI MEÐ SÉR AÐ ÞETTA VÆRI „CATCH-
22“. EKKI Í HEFÐBUNDNUM SKILNINGI, EN Í ÞESSU
STARFI LÆRIRÐU AÐ FYLGJA EÐLISÁVÍSUNINNI.
JAFNVEL ÞÓTT HÚN SÉ ALGJÖRT FÍFL.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, ÍMYNDAÐU ÞÉR AÐ ÞÚ HAFIR
KRÓAÐ AF SKÓGARBJÖRN OG HANN
HLEYPUR INN Í YFIRGEFIÐ HÚS.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að muna að kyssa
hana ekki þegar hún er
nýbúin að mála sig.
ÞAÐ ER ERFITT AÐ FYLGJA
ÖLLUM BREYTINGUNUM Í
HEIMINUM
ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ BYRJA Á BREKKUSÖNGNUM...
ÞÚ ÆTTIR AÐ GERA
ÞAÐ SEM ÉG GERI
LÁTA EINS OG
ÞÆR HAFI
ALDREI GERST
ÉG SKIL
ÞIG
15 VORU HANDTEKNIR Í RASSÍUNNI.
HANDTÖKUHEIMILD HEFUR VERIÐ
GEFIN ÚT Á SJÖ TIL VIÐBÓTAR
Gaman, er fyrsta orðið sem kemurupp í hugann eftir viðburði
fyrrakvöldsins, þar sem bar hæst að
KR tryggði sér Íslandsmeistaratit-
ilinn í körfubolta karla annað árið í
röð og í 14. skipti í sögunni. Árangur
„strákanna okkar“ gladdi einnig Vík-
verja og hann sýndi sjálfur gamla
takta með því að stökkva en ekki
hrökkva þegar færið gafst, minnugur
þess að sókn er besta vörnin og tæki-
færið gefst bara einu sinni.
x x x
Ungir sem aldnir fylgdust spenntirmeð viðureign bestu körfubolta-
liða landsins á Sauðárkróki og spenn-
an þar var heldur meiri en í Laug-
ardalshöll, þar sem „strákarnir
okkar“, íslenska landsliðið í hand-
bolta, fóru enn einu sinni á kostum,
unnu serbneska landsliðið með 16
marka mun og virðast vera á hrað-
ferð í úrslitakeppni Evrópumótsins í
Póllandi í janúar á næsta ári.
x x x
Lafmóður Víkverji hefur ekki leng-ur taugar í eins mikla spennu og
stefndi í fyrir norðan og lét sig því
vanta á keppnisstað, en fylgdist með
í sjónvarpinu og á spjaldtölvunni.
„Fjórði leikhluti er hafinn og nú er að
duga eða drepast fyrir Tindastól,“
skrifaði sérfræðingurinn á netið.
Ekki var minnst á hvað KR þyrfti að
gera til þess að verja titilinn en um
leið fékk Víkverji nettilboð sem hann
gat ekki hafnað og gekk frá pöntun á
meðan KR sigldi örugglega framúr.
x x x
Leikmenn eru margir góðir í körfu-bolta. Fyrir úrslitarimmu KR og
Tindastóls sagði þjálfari Njarðvík-
inga eftir að hafa fallið úr keppni á
móti Vesturbæjarstórveldinu að
margir KR-ingar gætu stolið fyr-
irsögnum hér og þar. Friðrik Ingi
Rúnarsson taldi síðan upp hvern
leikmanninn á fætur öðrum, sem
gæti gert gæfumuninn, en nefndi
ekki Michael Craion, einn besta
mann KR. Að leik loknum í fyrra-
kvöld var hann valinn besti maður
úrslitakeppninnar. Til hamingju
Michael Craion og til hamingju KR.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Einn er Guð. Einn er og meðalgang-
arinn milli Guðs og manna, mað-
urinn Kristur Jesús sem gaf sjálfan sig
til lausnargjalds fyrir alla. Það var
vitnisburður hans á settum tíma.
(Fyrra Tímóteusarbréf 2:5-6)