Morgunblaðið - 18.05.2015, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2015
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
www.veislulist.is Skútan
PINNAMATUR
Pinnamatur
Þú getur lesið allt um pinnamat
og aðra rétti á heimasíðu okkar
Pinnaborðin fyrirútskriftinaeruöllafgreiddá
einnota veislufötumtilbúiðbeintáborðið. Val
er umnokkrar
útfærslur á pinnaborðum sem hægt er að sko
ða á heimasíðu okkar ásamt útskriftartertum
.
FYRIR ÚTSKRIFTINA
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvað
a tíma dags veislan
er og hversu lengi hún á að standa. Vinsælt fy
ri útskriftarveisluna er
tíu eininga pinnaborð og fá útskriftartertum
eð.
„Það er merkilegt að þessar fram-
kvæmdir séu farnar af stað því Vals-
menn geta ekki verið í góðri trú með
þessar framkvæmdir,“ segir Friðrik
Pálsson, annar formanna Hjartans í
Vatnsmýrinni. Hann segir Vals-
mönnum kunnugt um skipulags-
reglur Reykjavíkurflugvallar frá
2009 sem eru í gildi og þar er skýrt
kveðið á um að ekki megi byggja á
hindrunarfleti flugvallarins. „Í öðru
lagi er áhættumatsferlinu ekki lokið
og einn af þeim sem var hent út úr
nefndinni hefur sent alvarlega
ábendingu um málsmeðferðina til
innanríkisráðuneytisins og í þriðja
lagi hefur Rögnunefndin ekki lokið
störfum. Það voru skýr fyrirmæli frá
innanríkisráðuneytinu til ISAVIA að
ekkert yrði gert sem myndi hrófla
við neyðarbrautinni fyrr en nefndin
hefur lokið störfum og ákvarðanir
teknar í framhaldi af tillögum nefnd-
arinnar,“ segir hann.
Brynjar Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Valsmanna, segir
framkvæmdir á áætlun og er verið
að leggja framkvæmdaveg sem er
aðkoma að öllum byggingarlóðum á
Hlíðarenda og skiptir í sundur
íþróttasvæði Vals og uppbygging-
arsvæðinu. Áætluð verklok á fram-
kvæmdaveginum eru 15. nóvember
næstkomandi og hefst vinna við lóðir
á svæðinu hugsanlega í sumar, segir
hann en byrjað verður á svæðinu
sem hefur ekkert með flugvöllinn að
gera, segir Brynjar og á við svæðið
sem er næst Hlíðarenda.
Valsmenn leggja framkvæmdaveg
Mögulega hafist
handa við lóðafram-
kvæmdir í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir Friðrik Pálsson, hótelhaldari á Rangá og annar formanna Hjartans í Vatnsmýrinni, segir ótrúlegt að framkvæmdir séu hafnar á Hlíðarenda.