Morgunblaðið - 18.05.2015, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2015
✝ Hörður Sverr-isson fæddist á
Ólafsfirði 28. ágúst
1940 og lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
3. maí 2015.
Foreldrar hans
voru Sverrir Árna-
son, f. 22.7. 1920,
d. 4.7. 2001, og
Andrea Gíslína
Jónsdóttir, f. 29.8.
1923, d. 4.7. 1991. Fóstur-
foreldrar voru foreldrar Sverr-
is: Ágústa Gunnlaugsdóttir, f.
1.8. 1895, d. 13.11. 1995 og Árni
Valdimarsson, f. 2.9. 1896, d.
2.9. 1980. Systkini Harðar eru:
1) Ingólfur, f. 1943, 2) Árni, f.
1944, 3) Ágústa, f. 1946, 4)
Ragnar, f. 1949, 5) Ólafur, f.
1951, 6) Gunn-
laugur, f. 1952 og
7) Guðný, f. 1956.
Eiginkona Harð-
ar var Sigríður
Jónsdóttir lækna-
ritari og ættleiddu
þau tvo drengi: Jón
Halldór, f. 4.10.
1969, d. 16.3. 2006
og Hjörleif, f. 26.3.
1972. Hörður og
Sigríður slitu sam-
vistum.
Hörður lauk sveinsprófi í raf-
virkjun og starfaði lengi í þeirri
iðngrein auk þess að starfa í
skíðalöndunum í Bláfjöllum,
Oddsskarði og Hlíðarfjalli.
Úför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 18. maí
2015, og hefst kl. 13.30.
Hörður var elstur okkar
systkina og fæddist í Ólafsfirði
daginn áður en móðir okkar,
Andrea Gíslína, náði 17 ára aldri.
Þá stóð faðir okkar, Sverrir, á
tvítugu og lítill drengur kominn í
heiminn en þau höfðu þá ekki
stofnað heimili. Því tóku afi og
amma í Ólafsfirði Hörð í fóstur.
Þar naut hann mikillar um-
hyggju og taldi sig einlægt vera
Ólafsfirðing enda undi hann hag
sínum vel á þeim fallega stað tíu
fyrstu æviárin en þá fluttu afi og
amma til Akureyrar.
Á Akureyri bjuggu þau fyrstu
árin í Ránargötu 10 en við hin
systkinin sjö og foreldrar í sömu
götu númer 16. Að loknu gagn-
fræðaprófi fór Hörður í siglingar
á Fellunum. Hann sagði okkur
frá miklum ævintýrum í hafnar-
borgum meginlandsins og enn er
í minni frásögn hans af breskri
hljómsveit í Hamborg sem spil-
aði að mestu eigin lög. Þeir köll-
uðu sig Beatles og bróðir fullyrti
að þeir yrðu frægir í fyllingu
tímans. Hann reyndist sannspár.
Síðan lauk Hörður sveinsprófi
í rafvirkjun og starfaði við iðnina
á Akureyri þar sem hann kvænt-
ist Sigríði Jónsdóttur og stofn-
uðu þau saman myndarlegt
heimili. Þau ættleiddu tvo
drengi, Jón Halldór og Hjörleif.
Sá fyrrnefndi lést árið 2006. Þau
Sigríður slitu samvistir og Hörð-
ur hélt suður og starfaði þar í
nokkur ár við iðn sína og á skíða-
svæðum Bláfjalla.
Þá flutti hann að Hvammi við
Reyðarfjörð þar sem hann undi
sér við ræktun og veiðar í firð-
inum auk þess að starfa við raf-
virkjun á Eskifirði. Sambýlis-
kona Harðar í Hvammi lengst af
var Gunnhildur S. Ásmundsdótt-
ir. Hann stundaði þar fjölbreytt
ræktunarstarf og var hugmynda-
flug hans og atorka með miklum
ólíkindum. Sjórinn fyrir framan
fullur af fiski, alifuglarækt,
svínaeldi í smáum stíl auk rækt-
unar blóma og nytjajurta. Þarna
var Hörður kóngur í ríki sínu og
líf hans í hádegisstað. Á vetrum
kenndi hann ungu fólki á skíði í
Oddsskarði en hann þótti ein-
stakur á því sviði.
Í Hvammi hélt hann upp á
fimmtugsafmæli sitt og veitti af
mikilli rausn og eingöngu afurðir
af búinu og úr sjónum. Gamla
hlaðan var gerð upp og skreytt
með amboðum, netum og veið-
arfærum. Var svo dansað fram á
nótt við dynjandi harmoníkuspil.
Engin önnur afmælishátíð þolir
samjöfnuð við þessa.
Eftir Hvammsárin starfaði
Hörður árum saman við skíða-
svæðið í Hlíðarfjalli. Hann lét
þess oft getið hin síðari ár að
nauðsynlegt væri að reisa mynd-
arlega vörðu á brún Hlíðarfjalls
til að laða fólk þangað upp. Hún
myndi auk þess kallast á við
Menntaskólavörðuna uppi á
Vaðlaheiði og saman yrðu þær
vökuvörður bæjarins. Síðan var
þessari hugmynd fylgt eftir og
hlaðin fimm metra há grjótvarða
sem fékk nafnið Harðarvarða.
Hún er nú þegar orðin eitt af
kennileitum við Akureyri og tog-
ar til sín göngufólk eins og stefnt
var að.
Hörður var góður sagnamaður
og þegar hann komst á flug var
oft hlegið svo mikið að biðja
þurfti um hlé á frásögninni til að
fólk næði andanum. Hann gaf út
tvo bæklinga með nokkrum þess-
ara sagna og hafa þeir víða farið.
Síðustu árin átti bróðir við
mikla vanheilsu að stríða. Þótt
hann gerði sér glögga grein fyrir
alvöru veikindanna hvarflaði
aldrei að honum að láta undan
síga; þvert á móti efldist hann
við hverja raun og hló hugur í
brjósti að koma hugmyndum sín-
um í framkvæmd. Nú er stóri
bróðir okkar fallinn frá og við
sitjum eftir hljóð og minnumst
góðs drengs með virðingu og
þakklæti.
Blessuð sé minning hans.
Ingólfur Sverrisson.
Nú er elsku stóri Hörður far-
inn í sumarlandið. Þar hittir
hann alla farna ættingja og vini.
Það var alltaf gaman að hitta
st. Hörð þegar við fórum á
Hængsmót, við heimsóttum
hann og stundum bauð hann
okkur í bíltúr um Akureyri og
næsta nágrenni. Þegar hann
kom á Skagann þá hittum við
hann.
Við þökkum honum hjartan-
lega fyrir alla vináttuna, um-
hyggjuna og góðsemina í okkar
garð. Við munum aldrei gleyma
honum, hann á stað í hjarta okk-
ar. Blessuð sé minning góðs vin-
ar og frænda.
Ég bið þig, góði Jesús,
að vera hjá mér í nótt,
gef ég heyri orð þín:
Vinur, sofðu rótt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Emma Rakel og Guð-
mundur Örn (Addi).
Hörður Sverrisson
✝ ValgerðurStefánsdóttir
fæddist á Akureyri
4. febrúar 1934.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
7. maí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Stefán Árnason og
Helga Stephensen.
Bróðir Valgerðar
er Ólafur Stefáns-
son, f. 1932.
Valgerður giftist 1955 Vil-
hjálmi Árnasyni frá Vopnafirði,
f. 20. apríl 1933. Þau eignuðust
Helgu, f. 1956, og tóku í fóstur
Gunnar Snorra Valdimarsson,
f. 1966. Helga er gift Sigurjóni
Gunnarssyni og eiga þau þrjá
frá Bandaríkjunum. Valgerður
eyddi æskuárum á Akureyri í
foreldrahúsum en árið 1958
fluttu þau Vilhjálmur til
Reykjavíkur og rúmum áratug
síðar í Kópavog, þar sem þau
bjuggu næstu 36 árin. Síðustu
árin bjuggu Valgerður og Vil-
hjálmur í Sóleyjarima 3 í
Reykjavík, þar til nú nýverið
að þau fluttust á hjúkrunar-
heimilið Eir í Grafarvogi.
Framan af var Valgerður
heimavinnandi en haustið 1979
hóf hún störf á skrifstofu
Kennaraháskóla Íslands þar
sem hún vann í 18 ár. Val-
gerður var listakona í hönd-
unum og liggur eftir hana mik-
ið af fallegum hlutum;
útsaumur, glerlist, skartgripir
o.fl. Hún naut þess einnig að
ferðast, bæði innanlands og ut-
an, í góðum félagsskap fjöl-
skyldu og vina.
Útför hennar verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag, 18.
maí 2015, kl. 13.
syni: 1) Vilhjálmur,
f. 1974, giftur
Agnesi B. Bergs-
dóttur. Börn
þeirra eru Bergur
Þorgils og Hulda
Valgerður. 2)
Gunnar Ásgeir, f.
1975, giftur Vig-
dísi Þórisdóttur.
Synir þeirra eru
Pálmi Hrafn og
Árni Valur. Synir
Gunnars og Kolbrúnar Smára-
dóttur eru Daði Már og Daníel
Breki. Dóttir Vigdísar er Sig-
rún Amina Wone. 3) Stefán, f.
1983, giftur Hönnuh O’Connor
frá Bandaríkjunum. Þau eru
búsett í Boston. Unnusta Gunn-
ars Snorra er Jill Marie Gideon
Ég er ein þeirra sem urðu
þeirrar gæfu aðnjótandi að kynn-
ast Valgerði Stefánsdóttur, eða
ömmu Lölu eins og hún var kölluð
af fjölskyldu sinni. Stuttu eftir að
ég kynntist Gunnari manninum
mínum kynnti hann mig fyrir
ömmu sinni. Ég fann að honum
þótti mikið til hennar koma. Val-
gerður hafði verið heilsuveil alveg
frá barnsaldri en lét veikindin
aldrei stoppa sig. Já, hún var
kjarnakona sem gafst aldrei upp.
Þrátt fyrir að hún væri sárlasin oft
á tíðum og alveg uppgefin þá lét
hún það ekki stöðva sig, vildi alltaf
vera með og var hrókur alls fagn-
aðar á mannamótum.
Mér er minnisstætt eitt skipti
þegar hún kom í afmæli til sonar
okkar. Við búum á þriðju hæð í
blokk og upp skyldi hún komast
þótt hún ætti erfitt með gang.
Pálmi sonur okkar hljóp með stól
á móti henni svo hún gæti sest nið-
ur á milli skrefa. Uppgjöf var ekki
inni í myndinni, hún ætlaði upp til
að fagna afmælinu með fjölskyld-
unni.
Amma Lala var stolt af fjöl-
skyldu sinni og vissi fátt skemmti-
legra en að hitta hópinn sinn. Í síð-
asta skiptið sem við heimsóttum
hana á Eir sagði hún við starfs-
mann sem var að stússast inni hjá
henni „sjáðu hvað ég er rík“ og
benti á barnabörnin sín. Stoltið
skein úr augum hennar og vænt-
umþykjan var svo augljós. Börnin
mín fundu þessa væntumþykju
hennar og þeim leið vel í návist
hennar. Við áttum góða stund með
henni þennan dag, borðuðum
súkkulaði og hún spurði út í dag-
legt líf okkar og barnanna. Þegar
við kvöddumst göntuðumst við og
hún hafði að vanda eitthvað fallegt
að segja við mann og um mann.
Mér leið vel þegar ég kvaddi
ömmu Lölu þennan dag og þótt
hún væri mikið veik óraði mig ekki
fyrir því að hún myndi svo skjótt
kveðja þennan heim.
Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast ömmu Lölu. Ég
mun ávallt minnast hennar með
væntumþykju, virðingu og hlý-
hug. Blessuð sé minning þessarar
einstöku konu.
Vigdís Þórisdóttir.
Amma mín er dáin, eitthvað sem
ég gat ekki ímyndað mér að myndi
nokkurn tíma gerast. Hún sem var
búin að vera mikið veik nánast alla
sína ævi og alltaf staðið upp úr
veikindum sínum með bros á vör
þrátt fyrir að útlitið hafi oft verið
svart. Hún fór í gegnum öll sín
veikindi á þrjóskunni einni saman,
og er óhætt að segja að hún hafi
komist nokkuð langt á henni.
Amma sinnti sínu hlutverki af
alúð og við barnabörnin fengum
algjöra toppþjónustu og fé-
lagsskap frá ömmu. Mér hefur
alla tíð þótt mikið til ömmu koma
og það var víst svo þegar ég var á
leikskólanum að leikskólakennar-
arnir vildu fá að hitta þessa mann-
eskju sem þeir höfðu heyrt svo
mikið um. Ekki hafa börnin mín
fengið verri móttökur og þau
sakna hennar mikið.
Ég á margar góðar minningar
um ömmu sem ég ylja mér við
núna þegar hún er farin frá okkur.
Allar helgarnar sem við vorum hjá
þeim afa og ömmu þegar við
bjuggum í Borgarnesi og ég tala
nú ekki um heimsóknirnar þeirra
til okkar, eftirvæntinguna þegar
við biðum eftir að sjá bílinn þeirra
koma inn götuna okkar og
skemmtilegu jóla- og páskafríin
sem við eyddum saman.
Mér er þakklæti efst í huga og
þakka fyrir að hafa fengið að njóta
þeirra forréttinda að eiga hana
ömmu Lölu að í næstum 40 ár og
hversu vel hún hefur reynst mér
og fjölskyldu minni. Hvíldu í friði,
elsku amma mín.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Gunnar Sigurjónsson.
Valgerður
Stefánsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Amma, þú varst svo góð
við okkur og við söknum
þín. Það verður skrýtið að
heimsækja afa og þú verð-
ur ekki þar.
Pálmi Hrafn og Árni Valur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
BERGS V. JÓNSSONAR
verslunarmanns,
Skildinganesi 54,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Sælubæ á hjúkrunarheimilinu
Mörk fyrir einstaka alúð og umhyggju.
.
Rut Árnadóttir,
Kári Bergsson,
Kolbrún Bergsdóttir,
Rakel Hlín Bergsdóttir, Þórir Júlíusson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, systir og mágkona,
KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR,
Svöluhöfða 22,
Mosfellsbæ,
lést mánudaginn 11. maí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
21. maí kl. 13.
.
Valur Oddsson,
Ingibjörg Valsdóttir, Þorsteinn Hallgrímsson,
Ásdís Valsdóttir, Úlfar Þorgeirsson,
Sigurjón Stefánsson, Hjördís Anna Hall,
Kristín María, Valur, Ragna Sif,
Saga og Egill Orri.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Syðsta-Mó í Fljótum,
lést sunnudaginn 10. maí á Sjúkrahúsi
Akureyrar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls hennar.
.
Svana Zophoníasdóttir, Hallgrímur Valsson,
Hilmar Þ. Zophoníasson, Svanfríður Pétursdóttir,
Sveinn H. Zophoníasson, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Gunnar Valur Zophoníasson,
Harpa Zophoníasdóttir, Páll Jónsson,
Hlynur Örn Zophoníasson, Helga Sigmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURLAUG HEIÐRÚN
JÓHANNSDÓTTIR,
Vallholti 17, Ólafsvík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. maí.
.
Jón Guðmundsson,
Jóhanna Sólrún Jónsdóttir, Guðjón Harðarson,
Fjóla Björk Jónsdóttir, Hjördís Úlfarsdóttir,
Sóley Jónsdóttir, Þröstur Albertsson,
Heiðar Arnberg Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
stjúpmóðir, amma og langamma,
ÁSA (LILLA) JÓNA JÓNSDÓTTIR,
Hjúkrunarheimilinu Mörk,
Reykjavík,
lést föstudaginn 15. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
.
Jón Friðrik Jóhannsson Guðrún Geirsdóttir
Gunnlaugur Helgi Jóhannsson Áslaug Einarsdóttir
Gunnar Einar Jóhannsson Linda Björk Bentsdóttir
Ingi Valur Jóhannsson Ragnheiður Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVAVA JÓNSDÓTTIR
frá Gunnlaugsstöðum,
Stafholtstungum,
lést að hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
miðvikudaginn 13. maí.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 22. maí kl. 13.
.
Skúli Guðmundsson, Jóhanna S. Guðbjörnsdóttir,
Sonja Guðmundsdóttir, Jón Hjaltalín Guðmundsson,
Lilja Guðmundsdóttir, Reynir Kristinsson,
barnabörn og langömmubörn.