Morgunblaðið - 18.05.2015, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2015
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skemmtilegt síðdegi er í vændum
með vinum og fjölskyldu. Njóttu líðandi
stundar betur og ekki reyna að halda í neitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að troða sem fæstum um tær.
Hafðu augun opin fyrir nýjum tækifærum og
gættu þess bara að vera ekki of vandlátur.
Gefðu þér tíma til að kynnast öllum mála-
vöxtum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að þú lendir í deil-
um við vini þína eða hóp fólks í dag. Leyfðu
listhneigð þinni að njóta sín.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sambönd þarfnast sinnar athygli
núna. Ef þú neitar hjálpinni mun það koma í
veg fyrir möguleika þessarar persónu að
láta gott af sér leiða. Hugsun þín er ekki
traust.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Við sönkum svo oft að okkur ýmsum
hlutum sem við höfum enga raunverulega
þörf fyrir. En það er ekkert að óttast, ekki
láta ímyndaraflið hlaupa með þig í gönur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ábyrgð þín á börnum liggur þungt á
þér enda er einhver svartsýni að angra þig í
dag. Stundum fara hugmyndir þínar ekki
saman við raunveruleikann.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það þýðir ekkert að berja höfðinu við
steininn og ætla að breyta hlutum sem eru
löngu liðin tíð. Farðu þér hægt því tækifærin
hlaupa ekkert frá þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert eitthvað viðkvæmur og
þarft umfram allt að halda sjálfsstjórn innan
um aðra. Ræddu við yfirmenn eða aðra yfir-
boðara um hvernig þú getur bætt vinnuað-
stöðuna og hagnast á vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er góður dagur til að fegra
heimilið. Að minnsta kosti er fjör, ánægja og
skemmtanir í spilunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samskipti við ástvini eru eilítið
fjarlæg og stirð í dag og tjáskipti dálítið
þvinguð. Láttu hann njóta vafans, því enginn
er sekur uns sekt hans er ljós.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að leggja sérstaka
áherslu á að bæta útlit þitt og framkomu við
aðra, ekki síst á vinnustað þínum. Vítamínrík
fæða og andríkar tilvitnanir hjálpa þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur stórbrotnar áætlanir varð-
andi heimilið á prjónunum. Reyndu að fara
fram af varkárni. Njóttu þess að leika þér við
börnin og vera með skemmtilegu fólki.
Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-aði í Leirinn fyrir helgi; „Sjón-
varpið stendur sig vel um þessar
mundir og er í örri þróun. Það sýnir
ljósmóðurþættina þar sem börnin
spýtast í heiminn eins og fiskar af
færibandi og nú á að sýna sauðburð-
inn í beinni útsendingu í sólarhring.
Þeir sýna burð hjá konum og hjá
kindum
og keppast við að ná sem bestum
myndum
og fyrr en varir fara menn að góna
á fengitíma í kró og rúmi hjóna.“
Þetta eru skemmtilegar vangavelt-
ur hjá Hallmundi Kristinssyni á
Boðnarmiði: „Það sakar ekki að geta
þess að eftirfarandi vísukorn er upp-
fullt af táknrænum gildum og mynd-
líkingum og úttroðið af mein-
ingum…..
Trauðlega rennandi strauminn við
stíflum
á staðnum hvar beljan skeit.
í mólendi þar sem er mikið af fíflum
er mjög gjarna léleg beit.
………..eða þannig.“
Kristján Ólason var meðal snjöll-
ustu hagyrðinga, fædddur í Kílakoti,
af ætt Hallbjarnarstaða-Sveins og
frændi Kristjáns Fjallaskálds og
Nonna. Hér eru nokkrar vísur eftir
hann, sem Karl Kristjánsson birti í
Dvöl. Fyrst „Andinn og holdið“:
Þess hef ég einatt orðið vís,
og alvarlega stundum goldið,
eina leið að ekki kýs
andinn skyggn og fávíst holdið.
Tekið er í og togazt á,
— tölum ekki hér um fleira, —
verður oft að vægir sá,
er vitið hefur fengið meira.
Til sláttumanns:
Heldur urðu hey þín smá
hér í þessu lífi;
eins og þú barst þó lipran ljá
í lyga og bragða þýfi.
Ættlerinn.
Sjúkleg þrá að svíkjast frá
sóknar-áreynslunni,
gerði hann ávallt öðrum hjá
eins og strá í runni.
Orðsins list.
Ekki er bjart, ef þurrt og þyrst
þrumir svartaskar á kveiknum.
Eins er margt um orðsins list
eftir að hjartað skerst úr leiknum.
Þegar líður á daginn.
Lífið sína líknsemd ber:
Ljúfi happafengur,
þú ert ekki orðinn mér
ómissandi lengur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sjónvarpstíðindi
og vísur að norðan
Í klípu
„ÞAÐ ER MIKIL ÓVISSA ÞARNA ÚTI
ÞESSA DAGANA. EÐA EKKI. HVER VEIT?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERS VEGNA VILTU VIKUFRÍ? ÞÚ HEFUR
NÆGAN TÍMA TIL AÐ GIFTA ÞIG OG
FARA Í BRÚÐKAUPSFERÐ Í EINNI AF
KAFFIPÁSUNUM ÞÍNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem hjálpar
lyfinu að fara niður.
Í ALVÖRUNNI?...
ÞÚ MUNT?
ÞETTA ERU
ENDALOK
ALHEIMSINS
EINS OG VIÐ
ÞEKKJUM HANN!
ÉG ER AÐ FARA Á
STEEFNUMÓÓT!!
STANS!
HVER FER ÞAR?
VINUR EÐA
ÓVINUR?!
ERTU
VOPNAÐUR?
ÞÁ ER ÉG
VINUR ÞINN!
JÁ, SVO
SANNARLEGA!!
Vandamál hins daglega lífs semVíkverji hefur verið að brjóta
heilann um síðustu daga þurfti að
leysa. Ákvarðanir þær sem taka þarf
eru sannarlega ekki flóknar, en svo
röðin sé rétt og ekki rekist hvað á
annars horn þarf þokkalega skýra
mynd af málum. Hvernig er best að
stilla af lántöku vegna bílakaupa?
Hvert á að fara í sumarfríinu? Hvern-
ig mun börnunum vegna á vorprófum
og hvernig er best að hjálpa þeim við
undirbúning? Með þessar pælingar í
kollinum sá Víkverji ekki önnur ráð í
stöðunni en að binda á sig göngu-
skóna og halda til fjalla.
x x x
Í frægri barnabók segir frá Pallasem var einn í heiminum, það er
framandi veröld sem var draumur
einn. Gönguferðin síðastliðið laugar-
dagskvöld hefði svo getað leitt af sér
fínan bókartitil, Víkverji var einn á
fjallinu. Sá var léttur í spori og tók
hverja brekkuna á fætur annarri með
góðu tilhlaupi. Náði á rúmum hálf-
tíma upp á efstu bungu Úlfarsfells og
hvergi er betra útsýni yfir eyjarnar á
Kollafirði, Grafarvogshverfi; Sunda-
höfn, Laugarnestanga, Örfirisey og
Gróttu á Seltjarnarnesi sem er ysti
tanginn. Veðrið var yndislegt og allt
niðri á jafnsléttunni friðsælt að sjá.
Umferðargnýrinn hljóðnaður, en far-
fuglarnir sungu og sól gyllti sundin
blá. Á þessari stund sannfærðist Vík-
verji um að Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur hefði haft ýmislegt til
síns mál þegar hann orti svo eftir-
minnilega að ekkert væri fegurra en
vorkvöld í Reykjavík.
x x x
Rigningarklakkar sem komu úrsuðri sögðu að ekki væri til set-
unnar boðið. Blýgrá ský færðust nær
og nær, þau bar við Kópavog, því
næst Breiðholtið og ekki leið á löngu
uns dropar fóru að detta á nefbrodda
göngugarps. Sá var þá farinn að nálg-
ast jafnsléttuna, enda alltaf auðveld-
ara að fara niður brekkurnar en upp í
mót. Og eftir góðan göngutúr var
Víkverji búinn að hreinsa huga sinn,
leysa öll vandamál og forma í huga
sér þennan stutta pistil.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Sjá, Guð er hjálp mín, ég er öruggur
og óttast ekki. Því að Drottinn er vörn
mín og lofsöngur, hann kom mér til
hjálpar. Þér munuð með fögnuði vatni
ausa úr lindum hjálpræðisins.
(Jesaja 12:2)