Morgunblaðið - 18.05.2015, Síða 29

Morgunblaðið - 18.05.2015, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2015 ÍSLENSKT TAL POWERSÝNING KL. 10:30 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus Opnunarsviðsverk Listahátíðar var verkiðSvartar fjaðrir eftir Sigríði SoffíuNíelsdóttur og var miklu tjaldað til.Sigríður fékk til liðs við sig stóran hóp listamanna úr ólíkum listgreinum og ekki var annað að sjá en að valinn maður væri í hverju rúmi. Nafn sýningarinnar vísar til samnefndrar bók- ar ljóðskáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagra- skógi, en sýningin byggist á ljóðum Davíðs. Upp- setningin er kaflaskipt. Hver kafli byggist á einstöku ljóði eða þema úr textum Davíðs. Hug- myndafræðin við vinnslu verksins er nokkuð áhugaverð. Gerð er tilraun til þess að nálgast ljóðin úr ólíkum áttum. Þannig er ekki einungis notast við túlkun hins ritaða máls, heldur er upp- spretta hreyfiformsins fengin frá bragarháttum. Hrynjandi ljóðsins er þannig nýtt sem taktur eða ryþmi og tónlistin sem fyrirfinnst innan ljóðsins flutt í dansi. Þessi heillandi hugmynd skilaði sér þó ekki til fulls þar sem dansasmíðinni sjálfri var að sumu leyti ábótavant, auk þess sem hefði mátt fá fleiri sterka dansara á sviðið. Verkið hófst á magnþrunginn hátt með ein- leiksdansi Hannesar Egilssonar, þar sem bún- ingar og önnur umgjörð gerðu mikið fyrir heild- arupplifunina. Framvindan varð þó fljótlega nokkuð klisjukennd sem gerði það að verkum að áhorfendur misstu áhugann. Það er þó ekki annað að sjá en að mikil vinna hafi legið að baki þessa verks, þar sem öll umgjörð þess leit út fyrir að vera þaulhugsuð niður í minnstu smáatriði. Gall- inn var þó sá að það vantaði töluvert upp á sjálft innihaldið auk þess sem aðferðir dans og leikhúss runnu ekki nógu ljúflega saman. Má þar nefna magnþrunginn leiklestur Ingvars E. Sigurðs- sonar sem endaði með klaufalegum línudansi og hópsenur þar sem dansinn gekk ekki upp. Kafla- skipting verksins ýtti enn frekar undir sundur- leitni, þar sem nokkur atriði voru vel heppnuð, en önnur síður. Í sumum atriðum leið uppbyggingin, sem annars var vel hugsuð, fyrir slakan dans eða máttlausan söng. Það skrifast á að þátttakendur í sýningunni þurftu að gera allt og það segir sig sjálft að hver og einn veldur best sinni sérgrein og varð útkoman því nokkuð misjöfn. Umgjörð verksins var unnin af miklum metn- aði, tónlistin þjónaði verkinu nokkuð vel og dýpk- aði heildarupplifun þess. Þó var söngurinn heldur kraftlítill. Búningar Hildar Yeoman voru mjög vel gerðir sem og ljós og sviðsmynd þar sem meðal annars voru notaðar lifandi dúfur. Verkið hefði mátt vera styttra og þéttar uppbyggt. Sú hug- mynd að fella saman ljóð, leikhús og dans er frá- bær, en sennilega hefði kostað meiri yfirlegu að tefla saman þessum listgreinum þannig að út- koman hefði skapað eina sterka heildarmynd þar sem sameiginleg áhrif þessara listgreina hefjast upp í nýja vídd. Metnaðarfull og oft falleg og áhrifamikil sýning með ágætis sprettum, en nokkuð sundurlaus með ýmsum bláþráðum sem spilla nokkuð fyrir upplif- uninni. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Ágætis sprettir „Metnaðarfull og oft falleg og áhrifamikil sýning með ágætis sprettum, en nokkuð sundurlaus,“ segir m.a. í dómnum um Svartar fjaðrir. Þjóðleikhúsið Svartar fjaðrir bbbnn Opnunarsviðsverk Listahátíðar í Reykjavík. Frumsýn- ing, 13. maí 2015. Danshöfundur og listrænn stjórn- andi Sigríður Soffía Níelsdóttir. Dansarar og leikendur: Atli Rafn Sigurðarson, Dóra Jó- hannsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Hannes Egils- son, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Tónlist: Jónas Sen og Valdimar Jóhannsson. Búningar: Hildur Yeoman. Leikmynd: Daniel Björnsson og Helgi Már Kristinsson. Texti: Davíð Stefánsson. Sýningarstjórn: María Dís Cilia. MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR DANS Sinfóníuhljómsveitin í Minneapolis kom fram á tónleikum í Havana í Kúbu á föstudagskvöldið, undir stjórn Osmo Vänskä, aðal-gesta- stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands, og varð þar með fyrsta slíka sveitin frá Bandaríkjunum til að kom þar fram eftir að bandarísk stjórnvöld slökuðu á ferða- og við- skiptaþvingunum gagnvart Kúbu í desember. Á efnisskrá tónleikanna var Eroica-sinfónía Beethovens, sem hljómsveitin lék síðast þegar hún var í Havana, fyrir 85 árum. Fjallað var um ferð hljómsveitar- innar í The New York Times og fylgst með því þegar hljóðfæraleik- ararnir heimsóttu tónlistarskóla í Havana, léku fyrir nemendur, hlýddu á þá leika og veittu tilsögn. Sinfóníuhljómsveitin í Chicago hafði stefnt að því að vera sú fyrsta sem kæmi nú fram á Kúbu en Vänskä og hans fólk varð á undan. Stjórnandinn Osmo Vänskä leiddi sitt fólk frá Minnesota á tónleikum á Kúbu. Minnesota-hljóm- sveitin á Kúbu Bandaríski leikstjórinn Woody Allen sagði á kvikmyndahátíðinni í Cannes að hann gefði gert afdrifarík mistök þegar hann tók að sér að skrifa og leikstýra sjónvarpsþáttaröð fyrir Amazon. Allen, sem er orðinn 79 ára gam- all, tók að sér að skapa sex þátta röð. „Ég er að gera mitt besta en hefði aldrei átt að fallast á þetta,“ sagði hann, sýnilega argur. „Ég hélt að sex hálftímar væri auðvelt en sú er alls ekki raunin. Þetta er mjög erf- itt.“ Leikstjórinn Woody Allen í Cannes. Sjónvarpsformið erfitt fyrir Allen » Á föstudags-kvöld var slegið upp fjör- ugu frumsýning- arpartíi að lok- inni sýningu kvikmyndarinn- ar Hrútar, sem vakti mikla lukku í Cannes. Bændur Ráðherrann Ragnheiður Elín og Grímar Jónsson, framleiðandi Hrúta, sprella. Hressir Þórir Snær Sigurjónsson, einn af framleiðendum mynd- arinnar, ásamt Árna Samúelssyni sem kenndur er við Sambíóin. Heillandi hugmynd en vantaði innihaldið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.