Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 09.07.2015, Qupperneq 6
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 SLYS Átta hafa látist í umferðinni í ár samanborið við þrjú bana- slys þar sem fjórir einstaklingar létu lífið árið áður, sem var met síðustu áratugina. 243 banaslys hafa orðið í umferðinni frá alda- mótum. Banaslysum í umferðinni hefur fækkað tölfræðilega frá alda- mótum og árið 2014 létust aðeins fjórir í umferðinni. Fara þarf aftur til ársins 1936 til að finna færri banaslys í umferðinni. í Skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á árinu 2014 segir að í alþjóðlegum samanburði útleggist árangur Íslands í fyrra sem 12 látnir fyrir hverja millj- ón íbúa. Með því séu Íslend- ingar komnir mjög framarlega í umferðaröryggi í heiminum. Þær þjóðir sem standi sig best, Norður löndin, Bretland og Holland, séu með 30 banaslys á hverja milljón íbúa. Þórhildur Elínardóttir, upp- lýsingafulltrúi Samgöngustofu, segir vissulega ánægjulegt að banaslysum hafi fækkað á síðustu árum en áfram verði að horfast í augu við það að sum svæði séu hættulegri en önnur í íslensku vegakerfi. Einnig verði að fara varlega í að skoða eitt ár sérstak- lega því eitt dauðsfall til eða frá breyti miklu þar sem við erum það fámenn. „Hins vegar segir það ekki alla söguna að bana- slysum sé að fækka. Það gæti þá þýtt að fleiri slasist alvarlega. Því skiptir máli að rýna í heildar- myndina,“ segir Þórhildur. - sa Banaslysum í umferðinni hefur fækkað á hverju ári frá aldamótum og met var slegið í fyrra: Átta látnir í umferðinni það sem af er ári BANASLYS Í UMFERÐINNI FRÁ 2000 TIL 2015 Ár Fjöldi 2000 23 2001 19 2002 22 2003 20 2004 20 2005 16 2006 28 2007 15 Ár Fjöldi 2008 12 2009 15 2010 7 2011 12 2012 9 2013 14 2014 3 2015 8 1. Hvar verður einleikslistahátíðin Act Alone haldin? 2. Hversu marga farþega fl utti Ice- landair Group í millilandafl ugi í júní? 3. Hvað heitir fangelsismálastjóri? SVÖR: 1. Á Suðureyri. 2. 363 þúsund. 3. Páll Winkel. Verðhækkanir birgja Birgir Vörur Hækkun Hvenær Skýringar birgja Norðlenska Kjöt 2-3% 22. júní Kostnaðarhækkanir, þar á meðal launahækkanir Matur og mörk Samlokur, pítsur, 3 og 6% 22. júní Nýgerðir kjarasamningar salöt og kjötbollur Sláturfélag Suðurlands Kjöt og kjötvörur 2-4% 29. júní Hækkun margra kostnaðarliða s.s. orku, nautakjöts og launa Freyja Allar vörur 2,3% 1. júlí Hækkun á umbúðum, hráefni og flutningum Góa-Linda Allar vörur 10-15% 1. júlí Hækkun á launum, hráefni og öðrum kostnaði. Fyrirtækið ekki breytt verði síðan 2009. Fjallalamb Kjöt og kjötvörur 3,50% 1. júlí Nýgerðir kjarasamningar Holt og gott Grænmeti, salöt og fleira 3,50% 1. júlí Nýgerðir kjarasamningar Kökugerð HP Flatkökur, skonsur 8% 1. júlí Hækkanir á launum og kleinur Tradex Harðfiskur 5,8% 1. júlí Nýgerðir kjarasamningar Nathan & Olsen Ýmsar vörur 2-5% 6. júlí Erlendar verðhækkanir Myllan Brauð og kökur 4,9 6. júlí Hækkanir á launum, flutningum, og 1,5% rafmagni, húsnæði og fleiru Sómi / Júmbó Samlokur 4,9% 6. júlí Hækkanir á hráefni og launahækkanir ÍSAM Ýmsar vörur 1,50% 8. júlí Hækkanir á launum, flutningum, rafmagni, húsnæði og fleiru ÍSAM Frón og Kexsmiðjan – kex 4,90% 8. júlí Hækkanir á launum, flutningum, rafmagni, húsnæði og fleiru ÍSAM Ora – allar vörur 3,90% 8. júlí Hækkanir á launum, flutningum, rafmagni, húsnæði og fleiru Brauðgerð Kr. Jónssonar Brauð og kökur 5,6% 10. júlí Nýgerðir kjarasamningar auk hækkana á aðkeyptri þjónustu Undri Hreingerningarvörur 2,0% 22. júlí Hækkanir á hráefnum, umbúðum og launum NEYTENDUR Mjög margir birgjar hafa hækkað verð hjá sér á síð- ustu dögum. Ástæðan er nýgerð- ir kjarasamningar launafólks við Samtök atvinnulífsins, hækkun á flutningskostanaði og hækkandi rafmagnsverð. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir nýgerða kjara- samninga geta haft áhrif á verðbólguna og minnkað kaup- mátt almennings. „Það er ljóst að þeir kjara- samningar sem undirritaðir voru fyrir skömmu fara talsvert út fyrir það svigrúm sem er til launahækkana og því hætt við því að af þeim hljótist áhrif á verðbólguna,“ segir Þorsteinn. Alls hafa sautján birgjar hækk- að verð hjá sér frá 20. júní. Flest- ir segja skýringuna vera hækkun launa og nýgerða kjarasamninga. Þetta kemur fram í lista Neyt- endasamtakanna. Listinn er ekki tæmandi því birgjar og verslanir þurfa ekki að senda tilkynningu á opinberan aðila þegar um verð- hækkanir er að ræða. Þuríður Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Neytendasam- takanna, segir að þessum hækk- unum hefði mátt búast við að einhverju leyti. „Menn eru að bera fyrir sig kjarasamninga og það var svo sem fyrirséð og spáð að kjara- samningarnir myndu hafa áhrif á vöruverð. Einnig höfum við verið að sjá skýringar á borð við hækk- un flutningskostnaðar og hækk- un rafmagnsverðs sem mögulega skýringu,“ segir Þuríður. Í vor lögðu tugir þúsunda launamanna niður vinnu til að krefjast hærri launa. Samtök atvinnulífsins héldu því fram að ekki væri svigrúm til svo mik- illa launahækkana. Þær myndu þýða aukna verðbólgu og hækk- un verðlags í landinu. Nú eru vís- bendingar um að þau varnaðar- orð hafi verið á rökum reist. „Síðustu vísitölumælingar hafa sýnt lága verðbólgu. Þess- ar hækkanir munu koma í ljós í lok júlí þegar næstu tölur koma frá Hagstofunni. Við spáum því að það verði meiri breytingar á verðbólgunni þá sem hefur áhrif á vöruverð og verðtryggð lán heimilanna. Þannig mun þetta vinda upp á sig og launahækkan- ir bíta í skottið á sér. Það skipt- ir máli að hagræða frekar en að hækka verð á vörum. Það mun verða þungt ef á að skella allri launahækkun út í vöruverð,“ segir Þuríður. Þorsteinn segist einnig vona að verslanir og fyrirtæki hagræði í rekstri. „Við bindum vonir til að verð- bólguáhrif verði eins lítil og kostur er og að fyrirtæki leiti allra annarra leiða en að bregð- ast við með kostnaðarhækkun- um. Þessi hætta er hins vegar mjög skýr og er fyrir hendi. Þetta bentum við á. Til þess að verðlag sé stöðugt verða kjara- samningar að vera ábyrgir og unnir innan þess svigrúms sem er til launabreytinga. Þessir samningar voru það ekki,“ segir Þorsteinn Víglundsson. sveinn@frettabladid.is Hækka verð vegna kjarasamninga Vísbendingar eru um að nýgerðir kjarasamningar á vinnumarkaði hækki verðlag í landinu. Birgjar eru að hækka verð. „Þetta bentum við á,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna biður um hagræðingu í stað verðhækkana. Það mun verða þungt ef á að skella allri launa- hækkun út í vöruverð. Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna Við bindum vonir til að verð- bólgu áhrif verði eins lítil og kostur er. Þorsteinn Víglunds- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins VEISTU SVARIÐ? MARGIR LITIR Í LEÐRI OG ÁKLÆÐI VERÐ FRÁ KR. 79.990* *ÁN SKEMILS LEVANTO hægindastóll HÆKKANIR Nýir kjarasamningar virð- ast hækka verð birgja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært tvo karlmenn á fertugsaldri fyrir fjölda lögbrota. Þeirra á meðal eru tvö innbrot, þjófnaður, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Mál þeirra verð- ur þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Innbrotin sem mennirnir eru ákærðir fyrir eiga að hafa átt sér stað á Suðurnesjum í ágúst árið 2013. Þeim er gefið að sök að hafa haft sjónvörp, tölvur, myndavélar, fatnað, verkfæri ásamt fleiru á brott með sér. Húsráðandi annarrar íbúðarinnar, Atli Már Gylfason, segir lífsýni hafa komið upp um mennina. Þeir hafi drukkið úr áfengisflösku sem hafi verið inni í vínskáp og lögregla tekið með sér til rann- sóknar. Þá er annar mannanna jafnframt ákærður fyrir brot á vopnalögum árið 2013, en á heimili hans fannst heimagerð kylfa, öxi, handjárn og hnífur. Sá er jafnframt ákærður fyrir fíkniefnalagabrot því við húsleit fundust fimmtíu kannabisplöntur sem og tæp þrjú grömm af amfetamíni. Sama manni er gefið að sök að hafa í janúar árið 2014 ekið undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Í ákæru segir að við brotið hafi maðurinn fleygt út bakpoka með tæpum þrjátíu grömmum af amfeta- míni. Maðurinn var sviptur ökuréttindum ævilangt. - sks Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákærir tvo karlmenn fyrir fjölda lögbrota: Víndrykkja felldi innbrotsþjófa INNBROT Húsráðandi segir lífsýni af áfengisflösku hafa komið upp um þjófana. MYND/EYÞÓR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 6 -D 2 C C 1 7 5 6 -D 1 9 0 1 7 5 6 -D 0 5 4 1 7 5 6 -C F 1 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.