Fréttablaðið - 09.07.2015, Blaðsíða 24
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði,
stórafmæli og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR BERG GUNNARSSON
prentari,
Skessugili 21, Akureyri,
lést 17. júní sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna. Fjölskyldan
þakkar þann mikla hlýhug sem henni hefur
verið sýndur vegna andláts Gunnars og Ástu
eiginkonu hans er lést fyrir þremur mánuðum.
Gunnar Berg Gunnarsson Elín Björg Ingólfsdóttir
Björn Berg Gunnarsson Zhanna Suprun
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓR VIGNIR STEINGRÍMSSON
fv. yfirvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni,
Hlíðarhúsum 3, áður Arahólum 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 12. júní. Útförin verður gerð frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Kristín Þórsdóttir
Rannveig Þórsdóttir
Þorsteinn Ólafs Lára Kristjánsdóttir
Ólafur Kristinn Ólafs Soffía G. Jóhannesdóttir
Andri Már Bjarnason
Daníel Þór Valdimarsson, Rebekka Rún Hjartardóttir
Þór Steinar Ólafs, Björg Magnea Ólafs, Kristján Már Ólafs
Halldóra Sigurlaug Ólafs, Magnea Jónína Ólafs
og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
SIGÞÓR PÉTURSSON
Kotárgerði 15,
sem lést 4. júlí, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju miðvikudaginn 15. júlí kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Colleen Mary Pétursson
Katrín Mary Sigþórsd. Faulkes
Anna Sigþórsdóttir Coughlin
Okkar ástkæra
ARNDÍS HANNESDÓTTIR
Álftamýri 32, Reykjavík,
er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Barnauppeldissjóð
Thorvaldsensfélagsins.
Fjölskylda hinnar látnu.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SIGURVEIG ERLINGSDÓTTIR
frá Ásbyrgi,
Lundi 1, Kópavogi,
lést á heimili sínu þann 6. júlí. Jarðarför
verður auglýst síðar.
Sigrún Jónasdóttir Björn E. Johannessen
Helga Jónasdóttir Tómas Þór Tómasson
Jón Erlingur Jónasson Védís Jónsdóttir
Úlfhildur Jónasdóttir Þorsteinn S. Karlsson
og barnabörn.
Kær frændi okkar og vinur,
BJARNI VALTÝR GUÐJÓNSSON
organisti frá Svarfhóli á Mýrum,
er látinn. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 11. júlí kl. 14.00. Jarðsett
verður á Ökrum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórólfur Árnason
MERKISATBURÐIR
1357 Hornsteinn er lagður að Karlsbrúnni í Prag.
1816 Argentína lýsir yfir sjálfstæði.
1916 Vopnaður enskur togari tekur farþegaskipið Flóru á leið
frá Reykjavík til Siglufjarðar með 100 farþega innanborðs og er
því siglt til Bretlands. Farþegarnir voru sendir heim með öðru
skipi síðar í sama mánuði.
1940 Mikið haglél í Hrunamannahreppi og stíflast lækir af aur-
burði.
1946 Skemmtigarðurinn Tívolí í Reykjavík er opnaður. Þar
eru meðal annars bílabraut, hringekja, Parísarhjól og dans-
pallur.
1976 Hitamet í Reykjavík, 24,3°C.
2011 Suður-Súdan fær sjálfstæði frá Súdan.
Skemmtistaðnum Dolly verður lokað á
sunnudag og í tilefni þess ætla aðstand-
endur að halda kistulagningu í kvöld.
Á morgun verður jarðarför og erfi-
drykkjan er á laugardaginn. Alls munu
20 plötusnúðar þeyta skífum á staðnum
um helgina. Húsið verður opnað fyrr
en vanalega um helgina og mikið af til-
boðum á barnum.
Það munu eflaust margir sakna
Dolly en hann var opnaður fyrir
tæpum þremur árum og hefur alltaf
verið vinsæll. Nú er þó komið að enda-
lokum og munu nýir rekstraraðilar
taka við og breyta staðnum. Eignar-
haldið helst óbreytt.
Þura Stína hefur verið rekstrarstjóri
Dolly seinasta árið en hefur þó unnið
þar frá upphafi.
„Maður á auðvitað eftir að sakna
Dolly en það sem kemur í framhald-
inu í húsinu er mjög spennandi. Það
er ekki hægt að segja frá því að svo
stöddu. Ég er bara ánægðust með að
húsið mun hýsa svipaða starfsemi og
er núna í gangi sem er mikill léttir
í ljósi þess sem hefur verið í gangi í
nágrenninu.“
Það kom fram í vikunni að skemmti-
staðirnir Húrra og Gaukurinn munu
hugsanlega þurfa að víkja fyrir versl-
unum fyrir ferðamenn. Húsið sem
hýsir Dolly er gamalt en það stendur
í Hafnarstrætinu á besta stað. Ýmis
starfsemi hefur verið starfrækt í hús-
inu seinustu ár.
Breytingar fara strax af stað eftir
lokun Dolly. Jón Gunnar Geirdal er
einn af þeim sem koma að rekstri nýrr-
ar starfsemi í húsinu.
„Ég veit að þeir eru að stefna á að
opna nýja staðinn í ágúst. En við ætlum
að nýta helgina vel og við eigum von
á fullt af fólki. Það verður tekið vel á
móti öllum á þessari kveðjustund og
það verður auðvitað frítt inn, eins og
það hefur alltaf verið.“
gunnhildur@frettabladid.is
Seinasta helgi Dolly
haldin hátíðlega
Skemmtistaðurinn Dolly skellir í lás á sunnudaginn og munu næstu dagar fara í það að
halda upp á seinustu helgina. Alls munu 20 plötusnúðar spila og húsið verður opið lengur.
ÞURA STÍNA Hefur unnið á Dolly frá upphafi, síðasta árið sem rekstrarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
Ég er bara ánægðust
með að húsið mun hýsa
svipaða starfsemi þar og er
núna í gangi í ljósi þess sem
hefur verið í gangi í
nágrenninu.
Mikill spenna var fyrir úrslita-
leik Ítalíu og Frakklands á HM.
Heimsmeistarakeppnin var
haldin í Þýskalandi og úrslita-
leikurinn fór fram á Ólympíu-
leikvanginum í Berlín. Þetta var
einnig seinasti leikur Zinedine
Zidane sem var einn öflugasti
leikmaður franska landsliðsins.
Eins og frægt er var Zidane
rekinn af velli eftir að hafa
skallað ítalska leikmanninn
Marco Materazzi í bringuna
eftir að hann kallaði að honum
blótsyrði. Því hefur verið
haldið fram að Materazzi hafi
kallað móður Zidane ljótum
nöfnum og þess vegna hafi
hann brugðist svona við. Móðir
hans var mjög veik á þessum
tíma og því hefur það verið
viðkvæmt málefni.
Eftir venjulegan uppbótar-
tíma stóð leikurinn í 1-1. Ítalía
sigraði í vítaspyrnukeppni 5-3.
Sagt er að markvörður Ítala,
Gianluigi Buffon, hafi bjargað
leiknum með því að verja mjög
margar erfiðar vítaspyrnur.
Úrslitaleikurinn er talinn einn
af þeim dramatískustu á síðari
árum.
ÞETTA GERÐIST: 9. JÚLÍ 2006
Ítalia sigraði Frakkland í úrslitaleik HM
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
7
-5
D
0
C
1
7
5
7
-5
B
D
0
1
7
5
7
-5
A
9
4
1
7
5
7
-5
9
5
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K