Fréttablaðið - 09.07.2015, Side 17
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 17
Hann er á!
Ballið var byrjað og með látum,
strax á fyrsta veiðistað. Á sama
tíma fengu þeir Mikki og Sölvi lax
á. Já! Þeir þreyttu fiska sína, og
Karl Eyjólfur náði þeim við svo
búið í háf. Þannig er að stærri fisk-
ar eru teknir í sérstaka klakkistu
og þannig reyndist fiskurinn sem
Sölvi Björn var með á. Tveggja ára
fiskur. Fiskur Mikka reyndist eilít-
ið minni, árs gamall, og hann fer í
pottinn. Skömmu síðar fékk Mikki
aftur fisk á og landaði honum með
aðstoð Karls Eyjólfs. Hann var
að taka sitthverja fluguna; þýska
snældu, sunray shadow og rauða
snældu.
Við færðum okkur á annan veiði-
stað, ofar í ánni, og þar fékk Sölvi
Björn risafisk á færi sitt. Miklu
stærri en þann sem hann náði
áður þannig að hann hafði saman-
burðinn á hreinu. En, eftir 20 mín-
útna viðureign reif hann sig laus-
an; þetta gat ekki verið betra: Við
komum í bæinn, með fisk og meira
að segja með dagsanna veiðisögu
sem enginn á eftir að trúa.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
MIKAEL MEÐ HANN Á Sölvi
Björn fylgist með viðureigninni
og Karl Eyjólfur er tilbúinn með
háfinn. FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
Veiðin í Þingvallavatni hefur verið
góð í sumar og bleikjan virðist bíta
vel á þessa dagana.
Karl Lúðvíksson, sem sér um
Veiðivísi, segir að sennilegast hafi
flestir veitt eitthvað, en þó mismik-
ið, úr vatninu í sumar. En þeir sem
þekkja það vel og nota réttu aðferð-
irnar við veiðarnar eru að gera frá-
bæra veiði dag eftir dag. Það veiðist
sem fyrr langsamlega mest á flugu
en miklu minna á beitu og spún,
sem ætti að vera hvatning fyrir þá
sem vilja ná árangri í vatninu til að
læra að kasta flugu. Algeng morg-
unveiði hjá þeim vanari við vatnið
getur farið upp í 10-15 bleikjur og
stundum meira. Veiðimaður sem var
við vatnið í fyrradag náði 32 bleikj-
um yfir daginn og allt á sama stað
og meira og minna á sömu fluguna
en hann notaði litla þykka Mobuto
númer #12. Nokkrir hafa þó farið
heim án þess að verða varir nema
þá helst einhverjar murtutökur og
skiljanlega er þolinmæðin gagnvart
vatninu ekki mikil ef árangurinn er
lítill dag eftir dag. - jhh
Algeng morgunveiði hjá þeim sem hafa verið við Þingvallavatn í sumar er á bilinu 10-15 bleikjur:
Þingvallavatn hefur gefið vel í sumar
VIÐ ÞINGVALLAVATN Algeng morgunveiði í Þingvallavatni er 10-15 bleikjur og
stundum meira. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sími 412 2500 www.murbudin.is
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
38.900
STÖNGUNUM KOMIÐ FYRIR Á
HÚDDI VEIÐIBÍLSINS Mikael þótti það
merkilegt að umsvifalaust, við það eitt
að njóta leiðsagnar Karls Eyjólfs, urðu
menn fullkomlega ósjálfbjarga.
FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
6
-7
0
0
C
1
7
5
6
-6
E
D
0
1
7
5
6
-6
D
9
4
1
7
5
6
-6
C
5
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K