Fréttablaðið - 09.07.2015, Blaðsíða 32
Miðbær Selfoss
verkefnislýsing (skipulagslýsing)
Samkvæmt 1. Mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt
tilaga að verkefnislýsingu (skipulagslýsingu) deiliskipulags fyrir
miðbæ Selfoss.
Skipulagsreiturinn nær til samliggjandi svæða sem skilgreind eru
í aðalskipulagi Árborgar 2010-2030 sem miðsvæði og blönduð
landnotkun, opið svæði til sérstakra nota og svæði fyrir þjónustu-
stofnanir. Svæðið afmarkast af Eyravegi og Austurvegi til norðurs
og aðliggjandi íbúðalóðum við Tryggvagötu til austurs, Sunnuvegi
til suðurs og Kirkjuvegi til vesturs. Skipulagssvæðið er alls um 6 ha
að flatarmáli.
Viðfangsefni væntanlegrar endurskoðunar eru frekari markmið
um lifandi miðbæ. Það hefur löngum verið litið á miðbæjargarðinn
og hið ónýtta svæði næst hringtorginu við Ölfusárbrú sem mikið
tækifæri fyrir Selfoss. Nú eru áform á vegum Sigtúns þróunarfélags
með nýja sýn fyrir svæðið og skipulag þess í heild, annarsvegar
fyrir alhliða miðbæjarstarfsemi og ferðaþjónustu og hinsvegar
útivist, fjölskyldusamveru og fjölmennar bæjarhátíðir með
endurhönnun bæjargarðsins. Í hugmyndum þróunarfélagsins er
áhersla lögð á lága en þétta og táknræna byggð með sunnlenskar
hefðir í fyrirrúmi, eins og segir í kynningu sem nú þegar hefur farið
fram m.a. í Tryggvaskála og á heimasíðu þróunarfélagsins www.
midbaerselfoss.is Viðkunnanlegt pláss í gömlum stíl með nýstárlegu
sýningarsvæði sem tengist útivistargarði bæjarins, er talið munu
hafa mikið aðdráttarafl fyrir heimamenn jafnt sem aðkomufólk.
Verkefnislýsingin (skipulagslýsingin) liggur frammi á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi og í
Ráðhúsi Árborgar að Austurvegi 2 Selfossi á skrifstofu tíma frá kl.
8-15. Skriflegum ábendingum er hægt að koma á framfæri á sama
stað og á netfangið bardur@arborg.is fyrir 27. Júlí 2015. Einnig er
hægt að kynna sér lýsinguna á heimasíðu Sveitarfélagsins
http://www.arborg.is
Selfossi 7. júlí 2015
Bárður Guðmundsson
Skipulags og byggingarfulltrúi Árborgar.
Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi
Skúmstaða-, Eyfakots- og Háeyrarhverfis
Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir
bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar tillögu að deiliskipulagi
Skúmstaða-, Eyfakots- og Háeyrarhverfis Eyrarbakka.
Um er að ræða deiliskipulag á 9,5ha svæði innan Eyrarbakka.
Skipulagsreiturinn nær yfir Skúmsstaðahverfi, Eyfakotshverfi og
Háeyrarhverfi. Það afmarkast af Bakarísstíg til vesturs, Túngötu
til norðurs, Háeyrarvegi til austurs og af sjóvarnargarði til suðurs.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir reitinn í heild né hluta hans.
Tildrög deiliskipulagsgerðarinnar eru þau að lengi hefur staðið til að
fara í endurbætur á götum og torgum innan reitsins; við aðalgötuna
og einnig í kringum kirkjuna, Miklagarð og Húsið. Endurbætur á
gangstétt og götulýsingu eru þegar hafnar austar í þorpinu og ná
þær heim að Skjaldbreið. Á árunum kringum 2000 vann Landform
greiningu á vegum sveitarfélagsins á svæðinu milli Hússins,
kirkjunnar og Miklagarðs. Rýmið milli húsanna og götumyndin
var meðal þess sem skoðað var og hefur greiningin verið höfð til
hliðsjónar við gerð deiliskipulagstillögunnar.
Svæðið innan skipulagsreitsins er að stórum hluta íbúðarbyggð, en
þar er einnig safnasvæðið á Eyrarbakka, með Byggðasafn Árnes-
inga ( Húsið, Assistentahúsið, Kirkjubær ) og Sjóminjasafnið. Innan
reitsins er jafnframt sjóvarnargarðurinn við ströndina og er hann á
forræði Siglingamálastofnunar.
Fyrir byggðina innan skipulagsreitsins gildir „ hverfisvernd í byggð „
en hún byggir á húsakönnun sem gerð var 1989 á vegum Þjóðminja-
safns Íslands.
Teikning ásamt greinagerð og skilmálum, vegna tillögunnar munu
liggja frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austur-
vegi 67, Selfossi frá og með fimmtudeginum 9. júlí 2015 til og með
fimmtudeginum 20. ágúst 2015.
Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila athugasemdum rennur út 20. ágúst 2015, og skal
þeim skilað skriflega til skipulags – og byggingarfulltrúa á skrifstofu
hans að Austurvegi 67, 800 Selfossi.
Á sama tíma er teikning, greinagerð og skilmálar til kynningar á
heimasíðu Árborgar http://www.arborg.is þar sem hægt er að
skoða tillöguna og senda athugasemdir til skipulags- og byggingar-
fulltrúa í netfangið bardur@arborg.is.
Virðingarfyllst
Bárður Guðmundsson
Skipulags og byggingarfulltrúi Árborgar.
- með þér alla leið -
569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Nánari upplýsingar veitir
Helgi Jónsson
sölufulltrúi
sími: 780 2700
helgi@miklaborg.is
99,5 millj.Verð:
Stórglæsilegt 274,3fm einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt 38,0 fm,
samtals : 312,3 fm. 4 stór svefnherbergi.
Mjög rúmgóðar stofur. Glæsileg sólstofa
með útgangi út í fallegan garð.
Einstök staðsetning.
Stigahlíð 84
105 Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG
fimmtudaginn 9.júlí kl.17:00-18:00
Eignin verður til sýnis frá kl. 17.15 – 17.45
Glæsilegt og einstaklega vel staðsett 214,6 fm. parhús að meðtöldum 27,2 fm. bílskúr á frábærum útsýnisstað í suðurhlíðum Kópavogs. Útsýnis
nýtur til Keilis, Bláfjalla og víðar. Húsið er hannað af ARKHD arkitektum og stendur á 736 fm. lóð innst í botnlanga. Rúmgóðar stofur. Sjónvarps-
hol. Þrjú herbergi. Stórar og breiðar svalir liggja meðfram húsinu á tvo vegu. Stórar viðarverandir og skjólgirðingar með tröppum á milli svæða.
Garður er mjög gróðursæll. Verð 72,5 millj. Einstök staðsetning í suðurhlíðum Kópavogs með frábæru útsýni. Stutt er í skóla á öllum stigum og
íþróttasvæði ásamt útivistarsvæði og hjólreiðastígum. Verið velkomin.
ÓÐINSGÖTU 4
SÍMI 570 4500,
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, lögg. fast.sali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
HEIÐARHJALLI 32 - KÓPAVOGI
PARHÚS Á EINSTÖKUM ÚTSÝNISSTAÐ.
OP
IÐ
HÚ
S
Í D
AG
HÚSNÆÐI
Húsnæði í boði
TIL LEIGU AÐEINS Á
AÐEINS 950 KR FM!
129 - 280 fm bil með allt
að 10 m lofthæð, stórar
innkeryrsluhurðir, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
www.lundurfasteignir.is
S. 690 3031 / 661 7000
WWW.LEIGUHERBERGI.IS
Dalshraun 13 Hafnarfirði
Funahöfða 17a-19, Reykjavík
Smiðjuvegi 68-72 Kópavogi
VERÐ FRÁ 55.000 á mán. Rent a
room price from 55.000 kr. per
month.
gsm 777 1313
leiga@leiguherbergi.is
Húsnæði óskast
Vantar íbúð til leigu í 101 RVK f.
150þús per mán. Uppl. í s. 821 5600
Geymsluhúsnæði
FYRSTI MÁNUÐUR FRÍR
WWW.GEYMSLAEITT.IS
Og ódýrt eftir það. Stærðir 1 til 17 m2.
Nýtt, upphitað og vaktað. S: 564-6500
SUMARTILBOÐ
GEYMSLULAUSNIR.IS
Verð frá 2900kr.mán Sækjum og
sendum. S: 615-5005
GEYMSLUR.COM
Frá kr. 3990 hjá Ikea í Garðabæ og
Fiskislóð í Reykjavík. S. 555 3464
WWW.BUSLODAGEYMSLA.IS
Búslóðageymsla Olivers frá 3000 kr
mán. Langtímasamningur í boði. S.
567 4046 & 892 0808.
ATVINNA
Atvinna í boði
FRAMTÍÐARSTARF!
Pökkun hjá Jóa Fel Holtagöðrum.
Vinnutími frá kl. 05-13:00 +
laugardaga, íslensku kunnátta
skilyrði.
Vinsamlega sendið umsókn á
linda@joifel.is og í s. 863 7579
115 SECURITY AUGLÝSIR
EFTIR
ÖRYGGISVÖRÐUM Í
VERSLUNARÞJÓNUSTU
Skilyrði:
-Hreint sakavottorð
-Íslenskukunnátta
-20 ára lágmarksaldur
-Góð þjónustulund.
Umsókn með mynd og ferilskrá
sendist á 115@115.is Nánari
upplýsingar um starfið eru veittar
í síma 5 115 115
HOUSEKEEPERS
Apartment Hotel in 101 Reykjavik
seeks full time and part time
housekeepers. Please send
applications to: headhousekeeper@
apartmentk.is
Verktakafyrirtæki óskar eftir að ráða
smiði, vana glugga-og lekaviðgerðum.
S: 6973592
Garðyrkjufyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
duglegu starfsfólki í sumarvinnu.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist á
netfangið hreinirgardar@gmail.com
Atvinna óskast
VANTAR ÞIG SMIÐI,
MÚRARA EÐA
JÁRNABINDINGAMENN?
Höfum á skrá menn sem óska
eftir mikilli vinnu. Geta hafið
störf nú þegar.
Proventus starfsmannaþjónusta
- Proventus.is S. 782-8800
TILKYNNINGAR
Einkamál
HOMMAR.EU
Íslendingar.eu er frjálslyndur vefur
með magnaða friðhelgi. Smelltu á
„hommar.eu” til að kynna þér málið.
fasteignir
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
| SMÁAUGLÝSINGAR | 9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR8
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
7
-0
E
0
C
1
7
5
7
-0
C
D
0
1
7
5
7
-0
B
9
4
1
7
5
7
-0
A
5
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K