Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2015, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 09.07.2015, Qupperneq 38
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30 Í kvöld fer fram viðburður á Lofti Hosteli þar sem áhugasamir geta kynnt sér hvernig matreiða skal dumplings. Dumplings eru hveitibollur sem eru gufusoðnar, soðnar, steiktar eða bakaðar og ýmist bornar fram þannig eða fylltar með alls konar kjötmeti og/eða grænmeti fyrir eldun. Á Lofti verður kynnt hvernig á að matreiða dumplings og þátttakendur geta látið reyna á hæfi- leika sína við eldamennskuna og snætt svo herleg- heitin að lokum. „Viðtökurnar komu mér á óvart, það voru strax 40 búnir að skrá sig á viðburðinn klukkutíma eftir að ég bjó hann til á Facebook og núna eru þeir orðnir rúm- lega 150,“ segir Elodie Chen, sem skipulagði og heldur utan um viðburðinn en hann er hluti af verkefni í menningargreind. Vegna áhugans hefur Elodie ákveðið að halda annan viðburð þann 16. júlí næstkomandi sem fer einnig fram á Lofti Hosteli og hefst á sama tíma. Viðburðurinn hefst klukkan 19.00 og er aðgang- ur ókeypis en einungis 20 manns geta tekið þátt í matargerðinni, en öllum er frjálst að mæta og fylgjast með. - gló Geta kynnt sér dumpling-gerð Einnig verður haldinn viðburður þar sem hægt er að spreyta sig á matargerðinni. ÁHUGAVERT Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér dumpling-gerð geta gert sér ferð á Loft Hostel í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Viltu vita hvað eignin þín hefur hækkað í verði ? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Frítt verðmat og framúrskarandi þjónusta í þína þágu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 9. JÚLÍ 2015 Tónleikar 12.00 Alþjóðlegt orgelsumar stendur nú sem hæst í Hallgrímskirkju með þrennum orgeltónleikum í hverri viku auk þess sem Schola cantorum heldur vikulega hádegistónleika á miðvikudög- um. Eftir að hafa fengið innlenda og erlenda organista í heimsókn er komið að kantor Hallgrímskirkju, Herði Áskels- syni organista, að sitja við hljómborðin fjögur í Klais-orgelinu stóra, og fylla hvelfingar Hallgrímskirkju af ómum, en hann leikur á tónleikum helgarinnar. Á tónleikum fimmtudagsins verður hinn ungi og upprennandi baritónsöngvari Fjölnir Ólafsson með Herði, en þeir munu flytja fjölbreytta og fallega hálf- tíma langa dagskrá. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.00 og miðaverð er 2.000 kr. 17.00 Perlur íslenskra sönglaga verða fluttar í kvöld. Á tónleikunum í Hörpu fá áheyrendur að kynnast sígildri íslenskri tónlist. Flutt verða perlur íslenskra söng- laga, þjóðlög, sálma og ættjarðarsöngva. Tónleikar í þessari röð eru komnir á þriðja hundraðið og hafa verið fastur liður í sumardagskrá Hörpu frá opnun hússins. Listrænn stjórnandi tónleikanna er óperusöngvarinn Bjarni Thor Kristins- son. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 og kostar 4.200 krónur inn. 19.00 Hljómsveitin Lights on the Highway á Quest - Hair, Beer & Whisky Saloon, Laugavegi 178 (Bolholt). Húsið er opnað klukkan 19.00 og 1.500 kr. inn, einn bjór fylgir miðanum! 20.00 Sætabrauðsdrengirnir koma fram í Stykkishólmskirkju í kvöld. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20.00. Sæta- brauðsdrengirnir eru þeir Gissur Páll Gissurarson, Bergþór Pálsson, Hlöðver Sigurðsson og Viðar Gunnarsson ásamt Halldóri Smárasyni, útsetjara og píanóleikara. Það er alltaf stutt í glens og gaman hjá þessum Sætabrauðs- drengjum. Þéttur hljómur við fjörugar útsetningar í fyrirrúmi. Í þetta skiptið verða þeir á léttum nótum dægurlaga, sem allir kannast við, úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímabilum. Allt frá ljúf- lingslögum Fúsa Halldórs yfir í Stína ó Stína og Hæ Mambó! 20.00 Í kvöld klukkan 20.00 fara fram sumartónleikar í Skálholtskirkju. Þar kemur fram Continuum en hana skipa Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðluleikari, og Elina Albach, semballeikari. Þau flakka á milli 17. og 21. aldar og leika tónlist eftir J.S. Bach, G.A.P. Mealli, James Dillon og Sciarrino. 20.00 Í kvöld fara fram stórtónleikar í Gamla bíó. Þar munu hljómsveitirnar Mammút og Samaris leiða saman hesta sína og slá upp tónlistarveislu barmafullri af óvæntum uppákomum. Húsið er opnað klukkan 20.00 og tón- leikarnir byrja klukkan 21.00. Miðar í forsölu á tix.is. 20.00 Athygli ykkar er vakin á sér- stöku tónleikaferðalagi í sumar. Þar mun Anna Jónsdóttir, sópran, syngja íslensk þjóðlög á óvenju- legum stöðum. Hún nefnir ferðalagið Uppi og niðri og þar í miðju. Tón- leikarnir verða 16 talsins og eru með óvenjulegri viðburðum sumarsins. Anna hefur sungið nú á 6 stöðum á landinu, þar má nefna Grímsey, á báti í Klettshelli í Vestmannaeyjum, í Vatnshelli á Snæfellsnesi og í Akra- nesvita. Anna heldur áfram ferð sinni og mun í dag syngja í Svarta Pakkhús- inu á Flateyri og hefjast tónleikarnir klukkan 20.00. 20.30 Í kvöld verða haldnir djass- tónleikar í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn. Fram koma tríóið Skarkali og kvartettinn Aurora en báðar hljóm- sveitir eru skipaðar nokkrum af efni- legustu djasstónlistarmönnum Íslands. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og standa yfir í um það bil tvær klukku- stundir með stuttu hléi. Aðgangseyrir er einungis 1.500 kr. og fer miðasala fram við dyrnar, kortaposi verður á staðnum. 21.00 Bandaríska hljómsveitin Osi Ella heldur tónleika ásamt frábærum íslenskum tónlistarmönnum. Í kvöld kemur sveitin fram ásamt Axel Flóvent, Lily Of The Valley - Icelandic Band og Johnny And The Rest. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og fara fram á Gauknum við Tryggvagötu. Frítt er inn á tónleikana. 21.00 DJ Pabbi þeytir skífum á Bar Ananas í kvöld klukkan 21.00. 21.00 Sísí Ey kemur fram á Café Rosen- berg og hefjast tónleikarnir klukkan 21.00. 21.00 Young @ Heart Trio kemur fram í Björtuloftum í Hörpu í kvöld. Tónleik- arnir hefjast klukkan 21.00 og kostar 2.000 krónur inn. Sveitina skipa þeir Haukur Gröndal saxófónleikari, Ásgeir J. Ásgeirsson gítarleikari og Þorgrímur Jónsson bassaleikari. Efnisskráin er samsett af ljúfum söngvum milli- stríðsáranna sem verða leikin í léttum og og skemmtilegum útsetningum félaganna. 21.00 Soffía Björg ætlar að koma fram á tónleikum á Hlemmi Square í kvöld klukkan 21.00. 21.00 DJ Smutty Smiff þeytir skífum á Lebowski Bar og hefst skemmtunin klukkan 21.00. 22.00 Magnús R. Einarsson, Karl Pétur Smith og Tómas M. Tómasson halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka- stíg 8. fimmtudaginn 9. júlí klukkan 22.00. Aðgangur er ókeypis! Sýningar 15.00 Gallerí Gestur verður með sýn- ingu á nokkrum verka Ástu Ólafsdóttur í Iðnó í dag mili klukkan 15 og 18. Gallerí Gestur er taska sem Dr. Magnús Gestsson hefur með sér og opnar þar sem hann drepur niður fæti. Verk Ástu má einnig að finna á veggjum Iðnó. 17.00 Sirkus Íslands ferðast um landið í sumar og verður á Klambratúni í Reykjavík 9.-12 júlí og 7.-23. ágúst. Í Reykjavík sýnir sirkusinn þrjár mis- munandi sýningar: Fjölskyldusýninguna Heima er best, krakkasýninguna S.I.R.K.U.S. og fullorðinskabarettinn Skinnsemi. Sirkusinn sýnir í sirku- stjaldinu Jöklu sem verður tjaldað á Klambra túni. 19.00 HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Um er að ræða sam- bland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt verður að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Þetta er sprenghlægileg klukkustundar- löng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera íslensku þjóðinni vel kunnugt enda hefur samstarf þeirra getið af sér þrjár vinsælar sýningar; Hellisbúann, Pabbann og Afann. Sýn- ingin fer fram klukkan 19.00 í Kaldalóni í Hörpu. Leiðsögn 12.15 Boðið verður upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, fimmtudaginn 9. júli klukkan 12.15. Þar er nú til sýnis afrakstur listaverk- efnisins Rót en verkefnið hefur staðið yfir s.l. tvær vikur. Að þessu sinni sjá listamenn sem tóku þátt í verkefninu um leiðsögnina ásamt starfsmanni Listasafnsins á Akureyri. Rót sameinar listamenn úr ólíkum listgreinum í gerð verka sem eru þróuð á staðnum með ólíkum áherslum. Hver dagur hófst á hugflæði þar sem allar hugmyndir voru viðraðar þangað til rótin fannst. Hug- myndin að verkefninu kviknaði einn vetrardag á sameiginlegri vinnustofu þriggja listamanna; Freyju Reynisdóttur, Karólínu Baldvinsdóttur og Jónínu Bjargar Helgadóttur. Þær langaði að nýta margföldunaráhrifin sem gott samstarf framkallar. Nánari upplýsingar má sjá Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. FIMMTUDAGUR „Mér fannst þetta bara vera rétti tíminn til að koma með plötu,“ segir gítarleikar- inn Sigurgeir Sigmundsson en út er komin hans fyrsta sólóplata. Efni plötunnar er sótt í rokk, blús, djass og íslenska náttúru. Á plötunni eru þrettán leikin (instrumen- tal) lög, þar af eru tólf eftir Sigurgeir. Eina tökulagið er Heyr himnasmiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson. „Við byrjuðum að taka upp í desember og kláruðum í febrúar. Það er þarna eitt lag frá 1982 en margt var samið sérstaklega fyrir plötuna,“ segir Sigurgeir um plötu- gerðina. Platan var tekin upp í Stúdíói Paradís og um upptökur og hljóðblöndun sá Jóhann Ásmundsson. Á plötunni leikur úrval íslenskra hljóm- listarmanna. Jóhann Ásmundsson sér um allan bassaleik, húðirnar berja þeir Einar V. Scheving, Sigfús Óttarsson og Erik Qvik. Eyþór Gunnarsson, Kjartan Valdemars- son, Óskar Einarsson, Þórir Baldursson og Þórir Úlfarsson leika á hljómborð. Hljómsveitin Start leikur í tveimur auka- lögum sem eru annars vegar Paradís, sem samið var í minningu Péturs W. Kristjáns- sonar söngvara, og Ekkert mál, sem var titillag samnefndrar heimildarmyndar um Jón Pál Sigmarsson, sterkasta mann heims, en hefur ekki komið út á hljómplötu áður. Sigurgeir hefur um langa hríð verið einn virkasti rokkgítarleikari landsins og leikið meðal annars með Bubba Morthens, Gildr- unni, Starti, Tyrkja-Guddu, Skonrokki, Klaufunum, Gullfossi, Björgvini Halldórs- syni, Drýsli og Eiríki Haukssyni. Sigurgeir og Draumabandið leika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld, Rauðku Siglufirði 10. júlí og 11. júlí í Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20.30. - glp Loksins rétti tíminn til að koma með sólóplötu Einn helsti gítarleikari þjóðarinnar, Sigurgeir Sigmundsson, með sína fyrstu sólóplötu. Hann ætlar að fylgja plötunni eft ir næstu daga. FAGNAR Sigurgeir kemur fram á tónleikum ásamt hljómsveit í kvöld. MYND/FINNBOGI S. MARINÓSSON 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 6 -F 0 6 C 1 7 5 6 -E F 3 0 1 7 5 6 -E D F 4 1 7 5 6 -E C B 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.