Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2015, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 09.07.2015, Qupperneq 42
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR NAFN: Robyn Rihanna Fenty LISTAMANNSNAFN: Rihanna FÆÐINGARDAGUR: 20. febrúar 1988 HVAR: Saint Michael á Barbados FRÆGIR Í NÆRMYND RIHANNA Mál málanna í stjörnuheiminum vestanhafs er án nokkurs vafa sambandsslit Kourtney Kardashi- an og Scotts Disick. Nú hafa þau bæði bundið enda á samfélags- miðlabannið sem þau settu sér fyrir nokkrum dögum. Tók Kourtney sig til og birti þrjár myndir í röð, en minntist ekki einu orði á téðan Scott. Tók hann þann pól í hæðina að birta þá af sér mynd á næturklúbbi sínum í Las Vegas, og stingur upp á að aðdáendur mæti og skemmti sér með honum. Munurinn á endurkomum Kourtney og Scott var afgerandi, en hughreystandi og upplífgandi athugasemdum rigndi yfir hana en holskefla ókvæðisorða helltist yfir Scott. Eru aðdáendur þessa raunveruleikaþáttapars afar von- sviknir með Scott, sem hefur verið afar sýnilegur í þáttunum Keeping up With the Kardashian. Hafa áhorfendur því beðið í ofvæni eftir yfirlýsingum frá þessu fyrrverandi pari og því umrætt samfélagsmiðlabann mörgum óbærilegt. Ástæða sambandsslitanna er framhjáhald Scotts, sem hann fór ekki sérlega leynt með og fyllti alla helstu slúðurmiðlana í síð- ustu viku. Herma fregnir að hann hafi skilið Kourtney eftir eina með börnin þeirra þrjú og ekki látið í sér heyra eða svarað símtölum, heldur dundað sér við skemmtana- hald og stelpustand í Las Vegas. - ga Kourtney og Scott rjúfa upplýsingabann Eft ir nokkra þögla daga á samfélagsmiðlunum láta þau loks í sér heyra en minnast ekki á framhjáhaldið. EINU SINNI VAR Parið hefur verið saman í níu ár og á þrjú börn. Söngkonan Rihanna er einhver alheitasta poppprinsessa okkar tíma, en hún var á dögunum fyrst til að selja stafrænt efni fyrir meira en hundrað milljón dali og skaust yfir stjörnur á borð við Taylor Swift og Katy Perry. Tónlist Rihönnu er því eftirsóttasta efnið á alnetinu. Rihanna er elst í sínum systkinahópi en hún á tvo yngri bræður. Móðir hennar er hálfafrísk og faðir hennar hálfur Íri í bland við barbadoska blóðið, svo blandan er ansi góð og þykir Rihanna með fallegustu konum heims. Árið 2004 var hún einmitt valin fegurðardrottning Combermere High School, þar sem hún stundaði nám. Hin unga Rihanna var uppgötvuð þegar hún var aðeins fimmtán ára, þá af plötuframleiðandanum Evan Rogers sem var í fríi á Barbados. Varð hann samstundis heillaður. Hjólin fóru að snúast og hefur hún gefið út hvern smellinn á fætur öðrum og hlaut til að mynda Grammy-verðlaun fyrir plötuna Good Girl Gone Bad og er nú marg- verðlaunuð og hefur unnið með öllum helstu tónlistarmönnum samtímans, líkt og Madonnu, Jay-Z, og Kanye West. „Við vildum gera eitthvað öðru- vísi. Eitthvað sem hefur aldrei verið gert á Íslandi áður og hrista upp í einsleitri flóru skemmti- staða í Reykjavík,“ segir Unnar Helgi Daníelsson, sem í slagtogi við Arnar Finn Arnarsson stend- ur á bak við Dúfnahóla 10, nýjasta skemmtistað miðborgarinnar sem opnaður verður á föstudag. Um er að ræða skemmtistað sem innrétt- aður er eins og heimili. Dúfnahól- ar 10 eru í Hafnarstræti, þar sem Kaffi Simsen var áður til húsa, en nú ganga gestir inn af Lækjartorgi og þaðan beint inn í sjónvarpsher- bergið. „Við einsettum okkur að búa til heimilislega stemningu og grípa þessi dæmigerðu íslensku heima- partí, sem oftast eru langskemmti- legust,“ segir Unnar og spyr hvort til sé betri fyrirmynd en partíið í Dúfnahólum 10 sem fyrir löngu er orðið að klassík í íslensku skemmt- analífi eftir myndina Sódóma Reykjavík. Má hæglega gera ráð fyrir að sérstaða skemmtistaðarins sé margbrotin, en þar geta gestir hvílt sig í rúminu, kíkt í garðskál- ann, gleymt sér yfir gullfiskunum í baðkerinu, grillað sér samlokur inni í eldhúsi og gluggað í bækur svo eitthvað sé nefnt. Þeir Unnar og Arnar hafa verið vinir síðan þeir voru tveggja ára og fengu þá flugu í höfuðið að opna saman skemmtistaðinn þegar hús- næðið kom upp í hendurnar á þeim fyrir um tveimur og hálfum mán- uði. Má sannarlega segja að þeir hafi ekki setið auðum höndum síðan. „Við erum búnir að gera þetta allt saman sjálfir, hanna allt og innrétta. Það má sannarlega segja að við séum búnir að leggja dag við nótt til að koma Dúfnahólum 10 af stað,“ útskýrir Arnar og Unnar skýtur því að að kærastan hans sé farin að sakna hans, þar sem lítið hafi sést til hans síðan ákvörðun um skemmtistað var tekin. „Hing- að ættu allir að geta komið og fund- ið eitthvað við sitt hæfi. Á daginn verður hér kaffihúsastemning þar sem gestir geta fengið sér vöfflu eins og í eldhúsinu hjá ömmu. Svo verða hinar ýmsu uppákomur á kvöldin,“ bendir Unnar á. „Svo verður ferskur djús hjá okkur, köll- um það djús í bús,“ skýtur Arnar að og hlær. Drengirnir lofa því að þeir muni brjóta allar reglurnar og stanslaust stuð muni einkenna Dúfnahóla 10, áður en þeir demba sér í undirbún- ing á opnun morgundagsins. - ga Partíið í Dúfnahólum 10 er að byrja Arnar Finnur og Unnar Helgi hafa unnið baki brotnu undanfarna mánuði og munu nú bjóða upp á sögufrægasta partí Íslandssögunnar. KLÁRIR Í SLAGINN Félagarnir lofa mikilli upplifun öll kvöld, en á daginn geta gestir fengið sér vöfflur eins og hjá ömmu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÍFIÐ 9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 6 -2 5 F C 1 7 5 6 -2 4 C 0 1 7 5 6 -2 3 8 4 1 7 5 6 -2 2 4 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.