Fréttablaðið - 09.07.2015, Side 50
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42
FÓTBOLTI Grétar Rafn Steins-
son, fyrrverandi atvinnumað-
ur og landsliðsmaður í fótbolta,
sagði ekki skilið við íþróttina
þegar hann þurfti að hætta vegna
meiðsla fyrir tveimur árum. Hann
ákvað að skipta út treyjunni
fyrir jakkaföt og takka-
skónum fyrir lakkskó og
vera áfram í boltanum –
hinum megin við borðið.
Hann útskrifaðist úr fót-
boltastjórnunarskóla Joh-
ans Cruyff í Hollandi, tók
starfsnám hjá gamla liðinu
sínu AZ Alkmaar og var svo
ráðinn yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá
enska C-deild-
arliðinu Fleet-
wood Town fyrr
á árinu.
Evrópska leiðin
„Ég gerði kynn-
ingu sem ég
kynnti svo fyrir
félaginu fyrir
rétt rúmu ári
þegar ég var
í náminu. Ég
útskýrði hvað
ég vildi gera
og hver mínar
áætlanir væru.
Mig langaði að
fara evrópsku
leiðina á Eng-
landi þar sem
knattspyrnu-
stjórar vana-
lega ráða öllu.
Svona starf eins
og ég er í hefur
oft verið litið horn-
auga,“ segir Grétar
Rafn í viðtali við
Fréttablaðið.
„Eigandi liðsins
[Andrew Pilley, ríkur viðskipta-
jöfur, innsk. blm] er mikill aðdá-
andi þess að fara óhefðbundnar
leiðir. Fleetwood er frábær vett-
vangur til að starfa á, því hér er
mikill uppgangur og mikill metn-
aður. Þetta er líka starf sem ég
stefndi á,“ segir Grétar.
Munur á liði og félagi
Uppgangur Fleetwood hefur verið
hraður á síðustu árum, en liðið
var í utandeildinni fyrir fjórum
árum. Það fór upp um tvær deild-
ir á tveimur árum og stóð sig svo
mjög vel sem nýliði í C-deildinni á
síðustu leiktíð þar sem það hafnaði
í 10. sæti.
„Metnaður þessa félags passar
mjög vel við það sem mig langar
að gera. Hér er verið að byggja sjö
milljóna punda æfingasvæði og
eigandinn á hótel þar sem ungir
leikmenn sem koma til okkar gista
með fjölskyldu. Þótt við séum lítið
félag í C-deild er mikill uppgang-
ur,“ segir Grétar Rafn.
Þar sem bakvörðurinn fyrr-
verandi var einnig leikmað-
ur þekkir hann vel til þeim
megin og veit hvað þarf til að
lifa af í þessum harða fótbolta-
bransa.
„Fótboltalið og fót-
boltafélag er tvennt
ólíkt þótt aðalat-
riðið sé alltaf að
vinna leiki. Ef
þú vinnur ekki
leiki skiptir ekk-
ert annað máli.
Þó getur verið
með mesta
skipulagið
og allt flott-
ast á bak við
tjöldin en ef
liðið vinnur
ekki leiki
er félagið
lélegt. En
svo get-
urðu
verið
með allt
í rúst á
bak við
liðið en unnið
leiki og þá skipt-
ir það engu máli.
Við viljum gera
Fleetwood að sjálf-
bæru fótboltafélagi
og því þarf þetta allt
að haldast í hendur,“
segir hann.
Samningur í
Úsbekistan
Grétar Rafn fór í
langa ferð frá Eng-
landi til Úsbekist-
ans í síðustu viku
þar sem hann var að
ganga frá samstarfs-
samningi við félagið
Lokomotiv Tashkent.
Félagið er í eigu
járnbrautarlestafyr-
irtækis ríkisins og
hafnaði í öðru sæti í deildinni á
síðustu leiktíð.
„Þetta tengist viðskiptamögu-
leikum okkar sem og fótboltanum.
Við skoðuðum aðstæður þarna og
einnig munum við skiptast á upp-
lýsingum og þekkingu og væntan-
lega fara í æfingaferðalag þangað
í framtíðinni,“ segir Grétar Rafn.
Hann tók með sér tvo unga leik-
menn liðsins heim sem munu æfa
með varaliði Fleetwood og spila
með varaliðinu. Þeir gista á hóteli
eigandans með fjölskyldu og hafa
það því gott á erlendri grundu.
„Þarna er spilaður hörkufót-
bolti. Þetta er lið sem er að spila
í Meistaradeildinni í Asíu og upp-
gangur landsliðsins er mikill. Svo
munum við kannski í framtíðinni
vera þarna með alþjóðlegan fót-
boltaskóla eins og ég hef verið með
heima á Siglufirði og á Akureyri.
Þar kannski getum við búið til ein-
stakt prógramm þar sem því besta
frá Englandi og Asíu er blandað
saman,“ segir Grétar Rafn.
Bítast um sömu bitana
En af hverju Úsbekistan af öllum
stöðum? Jú, þegar lítið félag eins
og Fleetwood er með upp undir
20 þekkt félög á Englandi í öllum
deildum í kringum sig; lið á borð
við Blackpool, Blackburn, Wigan,
Bolton, Liverpool, Everton og
Manchester-liðin, þarf að hugsa
út fyrir kassann.
„Við erum öll að keppast um
sömu hlutina; stuðningsmenn, leik-
menn og styrktaraðila. Mörg þess-
ara stóru félaga fara í kynningar-
og æfingaferðir út í heim þar sem
fólk kemur að sjá þau og vonandi
að finna styrktaraðila,“ segir Grét-
ar Rafn og heldur áfram:
„Þetta er ekki að fara að gerast
fyrir okkur á Indlandi eða í Kína
eða Japan þannig að við þurfum
að finna markað sem tekur á móti
okkur og vill vinna með okkur. Það
kostar mikinn pening að byggja
upp fótboltafélag og því þurfum
við á góðu fólki og góðum styrkt-
araðilum að halda. Við verðum að
leita inn á aðra markaði og vonandi
getur þetta hjálpað okkur til fram-
búðar,“ segir Grétar Rafn.
Gallann segir hann auðvitað
vera að Úsbekistan er langt í
burtu. „Að því sögðu er þetta
heillandi og kannski ekki
markaður sem aðrir nenna að
fara inn á. Þetta getur líka verið
heillandi fyrir okkar leikmenn,“
segir Grétar Rafn Steinsson.
tomas@365.is
Þurfum að leita inn á aðra markaði
Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, hefur haft nóg að gera á fyrstu mánuðunum sem yfi rmaður knattspyrnu-
mála hjá Fleetwood Town. Hann fór alla leið til Úsbekistans á dögunum og gekk þar frá samstarfi við eitt besta lið landsins.
SKOÐA Forseti Lokomotiv Tashkent sýnir Grétari Rafni aðstæður hjá félaginu.
MYND/HEIMASÍÐA LOKOMOTIV
SAMSTARFIÐ KYNNT Grétar Rafn ásamt forráðamönnum Lokomotiv og fram-
kvæmdastjóra Fleetwood á blaðamannafundi í Úsbekistan. MYND/HEIMASÍÐA LOKOMOTIV
ÚR TREYJUNNI Í
JAKKAFÖTIN Grétar Rafn
er kominn hinum megin
við borðið.
Þegar Fréttablaðið ræddi við Grétar Rafn í byrjun
vikunnar var enginn Íslendingur á mála hjá Fleetwood
Town, en íslenskir þjálfarar hafa nánast undantekn-
ingarlaust leitað í menn sem þeir þekkja.
Spurður þá hvort einhver Íslendingur gæti spilað
með Fleetwood á næstunni sagði Grétar: „Það er aldrei
að vita ef réttur leikmaður finnst. Sá hinn sami þarf
að vera tilbúinn og ég þarf að vera fullviss um að hann
styrki liðið og félagið. Sá aðili þarf að vera alveg pott-
þéttur.“
Sá pottþétti fannst tveimur dögum síðar því í gær
gekk Grétar Rafn frá samningi við landsliðsmanninn
fyrrverandi Eggert Gunnþór Jónsson, sem spilaði síðast
með Vestsjælland í dönsku úrvalsdeildinni. Grétar og
Eggert spiluðu saman með landsliðinu.
„Það verður pressa á mér ef Íslendingur kemur. Það
yrði að vera einhver sem ég get algjörlega treyst og
staðið á bak við alveg upp í fjöll,“ segir Grétar Rafn.
Eggert Gunnþór alveg pottþéttur
FÓTBOLTI Íslensku liðin þrjú í Evr-
ópudeildinni; KR, FH og Víkingur,
verða öll í eldlínunni í dag þegar
þau spila seinni leiki sína í fyrstu
umferð forkeppninnar. Víkingur á
útileik gegn Koper í Slóveníu, en
Fossvogsliðið er 1-0 undir eftir
fyrri leikinn á heimavelli.
KR og FH eru í betri málum.
FH-ingar unnu finnska liðið SJK,
1-0, á útivelli og KR gerði 1-1 jafnt-
efli við írska liðið Cork ytra. Þau
eiga bæði heimaleiki í dag klukk-
an 19.15.
„Við verðum bara að mæta eins
og menn í leikinn og þá ættum við
að geta klárað þetta,“ segir Skúli
Jón Friðgeirsson, varnarmaður
KR, við Fréttablaðið um leikinn.
Cork náði forystunni í útileikn-
um á 19. mínútu en Óskar Örn
Hauksson jafnaði metin aðeins níu
mínútum síðar og kom KR-liðinu
því í góða stöðu fyrir seinni leik-
inn.
Bæði mörk leiksins komu eftir
föst leikatriði en Skúli segir að það
sé helsta sóknarvopn Íranna.
„Þetta er týpískt breskt neðri-
deildarlið. Þeir hlaupa og berjast
og sparka langt. Þeir eru sterkir
og láta finna fyrir sér og fara svo-
lítið áfram á föstum leikatriðum.“
Skúli segir leikmenn Cork erfiða
viðureignar og sérstaklega þarf
að passa upp á vængspilið því það
getur skapað hættu.
„Þeir eru með stóra menn og
sjá möguleika á að skora úr föst-
um leikatriðum líka,“ segir Skúli
Jón sem fékk höfuðhögg undir lok
fyrri leiksins en er klár í slaginn.
„Ég fékk vægan heilahristing.
Samkvæmt læknisráði átti ég bara
að hvíla. En ég hef ekkert fund-
ið fyrir þessu síðan þetta gerð-
ist þannig að ég er fínn. Ég æfði
í morgun og það var allt í góðu,
þannig ég reikna með að spila á
morgun (í dag).“
Komu á óvart
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH,
viðurkennir að finnska liðið SJK
hafi komið honum á óvart þótt þeir
væru búnir að sjá myndbönd af lið-
inu og greina það fyrir viðureign-
ina í Evrópudeildinni.
„Við vissum svo sem við hverju
var að búast en það kom mér á
óvart hversu góðir í fótbolta þeir
eru og hversu líkamlega sterk-
ir þeir eru. Þetta er virkilega
gott lið,“ sagði Davíð Þór á blaða-
mannafundi í gær.
Við ætlum okkur áfram. Ég er
sannfærður um, að ef við verðum
jafnagaðir og í fyrri leiknum og
bætum við að halda boltanum, eru
okkur flestir vegir færir í þessu
einvígi,“ sagði Davíð Þór.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
sagði bikartapið gegn KR ekki
hafa nein áhrif á undirbúninginn
fyrir þennan leik.
„Alls ekki. Við erum orðnir svo
vanir því að detta úr bikarnum á
síðustu árum,“ sagði þjálfarinn og
uppskar hlátur í salnum. „Sá leik-
ur er bara búinn.“
Þurfa fyrsta sigurinn
Víkingar þurfa að vinna upp eins
marks forystu Koper í 30 stiga hita
í Slóveníu í dag. Þeir eru í erfið-
ustu stöðunni af íslensku liðunum
þremur.
Víkingar þurfa fyrsta sigur
sinn í Evrópukeppni til að komast
áfram, en tapið gegn Koper í Vík-
inni var það ellefta í ellefu Evrópu-
leikjum í sögu félagsins í Evrópu-
keppnum. - iþs, tom
Fékk heilahristing en spilar samt
Skúli Jón Friðgeirsson er klár í slaginn með KR. FH á líka heimaleik gegn SJK.
ÍRARNIR MÆTTIR Leikmenn Cork City tóku æfingu á KR-vellinum í Frostaskjólinu í
gær. Þeir þurfa að sækja til sigurs eftir 1-1 jafntefli á heimavelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
7
-2
6
B
C
1
7
5
7
-2
5
8
0
1
7
5
7
-2
4
4
4
1
7
5
7
-2
3
0
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K