Fréttablaðið - 09.07.2015, Síða 56

Fréttablaðið - 09.07.2015, Síða 56
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka B O S S - K O N U R M E N N K R I N G LU N N I 5 3 3 4 2 4 2 útsala 40% afsláttur af öllum vörum Allt sem þú þarft ... Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna á tölublað, 12–80 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, jan.– mar. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 64,1% 26% FB L M BL Ekkert jafnast á við tilfinn-inguna að byrja upp á nýtt. Að taka nýja tölvu eða síma upp úr pakkningunni er til dæmis athöfn sem dregur að sér þúsundir áhorfenda á Youtube á hverjum degi. Unaðstilfinninguna sem fylgir því að kaupa nýja skó og klæða sig í þá þekkja allir og fátt er betra en að fara að sofa eftir að hafa skipt á rúminu. (Rann- sóknir sýna að tæpur helming- ur þeirra sem lesa þennan pistil skiptir á rúminu eftir að hafa lesið síðustu setningu). LEIÐIN að nýju upphafi er oftar en ekki þyrnum stráð og það er engin leið torsóttari en að nýju heimili. Þegar maður ætlar að búa á nýjum stað þarf maður nefnilega að flytja fyrst og ekk- ert í heiminum er leiðinlegra en að flytja. EF flutningar væru kynntir eins og viðskiptahugmynd myndi aldrei neinn flytja. Þið sjáið fyrir ykkur fundinn. Skælbrosandi, sólbrúnn, vatnsgreiddur og ör maður gengur inn og spyr: „Hvað mynduð þið segja ef ég bæði ykkur að pakka öllu dótinu ykkar ofan í kassa og neyða alla vini ykkar til að hjálpa til við að bera það út í flutningabíl?“ ÁÐUR en þið fengjuð tækifæri til að svara myndi hann lyfta upp vísifingri, brosa og segja: „Ekki svara strax, því á hinum staðn- um þarf svo að bera allt dótið inn og það skiptir engu máli hversu þröngir gangarnir eru eða stig- arnir margir. Áður en það er hægt að taka upp úr kössunum þarf að þrífa allt á hinum staðn- um hátt og lágt og skilja íbúðina eftir eins og nýja. Þá þarf örugg- lega að mála nýju íbúðina og því fylgir alls konar „fjör“. Loks má taka upp úr kössunum og raða öllu upp – þ.e.a.s. ef þið eruð búin að þrífa penslana, henda rusli og skúra. Þrisvar.“ ÞESSUM manni yrði sagt að hypja sig. En sem betur fer eru flutningar ekki viðskipti heldur nýtt upphaf, stútfullt af tækifær- um. Og nýjum nágrönnum sem maður hefur ekki hugmynd um hvar maður hefur. Leiðinlegast í heimi BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 6 -1 C 1 C 1 7 5 6 -1 A E 0 1 7 5 6 -1 9 A 4 1 7 5 6 -1 8 6 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.