Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Hrunamannahreppur er langt kom- inn með lóðar- og verksamninga við félagið Fannborg ehf. vegna upp- byggingar ferðaþjónustu og hálendis- miðstöðvar í Kerlingarfjöllum. Sveit- arstjórnin samþykkti samningana á fundi sínum sl. miðvikudag og fól sveitarstjóra að undirrita þá. Lóðarsamningurinn mun vera sá fyrsti sem sveitarfélag gengur frá vegna lóðar í þjóðlendu, en hann er gerður með samþykki forsætisráðu- neytisins. Fleiri sambærilegir samn- ingar eru í bígerð hjá sveitarfélögum vegna afnota ferðaþjónustufyrir- tækja og annarra aðila af þjóðlendum, m.a. hjá Rangárþingi ytra og Sveitar- félaginu Hornafirði. Sjá um eftirlit og landvörslu Samið er um leigu á 6,14 hektara lóð undir hálendismiðstöð í Kerlingarfjöllum til næstu 25 ára. Greiðir Fannborg ehf. rúmar 5 millj- ónir króna á ári til Hrunamanna- hrepps en einnig er gerður uppgjörs- og verksamningur vegna verkefna Fannborgar við eftirlit og landvörslu í Kerlingarfjöllum. Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Hrunamannahrepps, segir þessa samninga unna samkvæmt þjóð- lendulögum. Samkvæmt þeim lögum eiga sveitarfélögin að gera samninga um not af landi og mannvirkjum inn- an þjóðlendna, að undanskildum samningum um auðlindir og vatns- og jarðhitaréttindi. Nái frumvarp for- sætisráðherra um breytingu á þjóð- lendulögum fram að ganga bætist nýting vindorku og náttúrumyndana við réttindi ríkisins. Áform um uppbyggingu Hrunamannahreppur auglýsti eftir tilboðum í landnýtingu í Kerlingar- fjöllum og skilaði Fannborg eitt inn umsókn, enda sami aðili og hefur rek- ið starfsemi á svæðinu á undanförn- um árum. Hefur félagið uppi margs konar áform um uppbyggingu á þess- um slóðum. „Hrunamannahreppur mun ekki fara í neinar framkvæmdir þarna á eigin vegum heldur semur við Fann- borg um þau verkefni sem félagið tek- ur að sér,“ segir Jón og nefnir sem dæmi að rekstraraðilar geti ekki rek- ið þetta sem einkalóð og -fram- kvæmd, heldur séu þeir skuldbundnir til að taka á móti því fólk sem fer um svæðið. Fannborg hafi ákveðnum skyldum að gegna. Samið um nýtingu Kerlingarfjalla Morgunblaðið/Árni Sæberg Kerlingarfjöll Náttúruperla innan þjóðlendu sem semja þarf um afnot á.  Hrunamannahreppur gerir samninga við félagið Fannborg  Fyrstu samningar sem sveitarfélag klárar vegna lóðar í þjóðlendu  Samið til 25 ára með ríflega 5 milljóna greiðslu á ári til hreppsins Mikið stuð hefur verið innan vallar sem utan á Pæjumóti ÍBV sem haldið er í samvinnu við TM. Fótbolti er spilaður í þrjá daga frá morgni til kvölds en einnig er bátsferð, rútuferð, kvöld- vaka, diskósund og landsleikur svo eitthvað sé nefnt. Veðrið lék við keppendur og gesti í gær með góðum skammti af sólskini og hreyfði varla vind. Mörg falleg tilþrif hafa sést á mótinu en hér eru það Þróttarar og Víkingar sem etja kappi. Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson Tilþrif í sól og blíðu Pæjumót TM í Vestmannaeyjum fer vel af stað Viðræðum Fé- lags leiðsögu- manna og SA hjá ríkissáttasemj- ara var slitið í gær og hefur ekki verið boðað til nýs fundar. „Það ber tölu- vert á milli. Það eru ákveðnir þættir sem við erum að vinna í sem ný stétt innan SA. Það vantar aðeins upp á skiln- ing hjá SA um eðli starfsins og að við séum komin út úr því að vera áhugamenn í það að vera vel menntaðir 150-200 starfsmenn sem vinna ekki við neitt annað,“ segir Snorri Ingason, formaður Félags leiðsögumanna. Hann segir að starfið sé alls ekki nógu vel launað og það sé komið að því að leið- sögumenn fái bita af kökunni. Samninganefnd Blaðamanna- félags Íslands og viðsemjendur þess mættu einnig til sáttasemjara í gær og hefur annar fundur verið boð- aður í næstu viku. Í dag eru mjólk- urfræðingar boðaðir á fund. Leiðsögu- menn á leiðarenda  Ekki boðað til nýs fundar í kjaradeilu Ferðalangar Leið- sögumenn við störf. Óbyggðanefnd hefur lokið málsmeðferð á 76% af landinu öllu og 92% af miðhálendinu. Eftir er að úrskurða á fjórum svæðum, þ.e. Austfjörðum, Vestfjörðum, Snæfellsnesi og í Dölum og í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu. Næstu úrskurða er að vænta á síðasttalda svæðinu. Þar sem þjóðlendur liggja fyrir á Suður- og Norðurlandi eru sum sveitar- félög farin að semja um lóðar- leigu og landnýtingu við þá aðila sem hyggjast reka ein- hverja starfsemi innan þjóð- lendu. Þannig er Hornafjörður með samning í bígerð um nýt- ingu Fjallsárlóns. 4 svæði eftir ÓBYGGÐANEFND Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ellefu ára gamall flyt ég í Borgarnes en hann flytur á Hvanneyri ári síðar svo við bjuggum nú aldrei þarna á sama tíma,“ segir Benedikt Gíslason, ráðgjafi efnahags- og viðskiptaráð- herra, og vísar til Sigurðar Hann- essonar, varaformanns fram- kvæmdahóps um losun fjármagns- hafta. Þeir kynntu saman áætlunina um losun haftanna á blaðamannafundi sl. mánudag. Heimamenn á Hvanneyri hafa að undanförnu vakið athygli á því að Benedikt, sem einnig er varaformaður framkvæmdahópsins, og Sigurður hafi báðir hafið skólagöngu sína í Andakílsskóla þar í bæ. Leiðir þeirra beggja lágu þó ekki saman fyrr en árið 2008 þegar þeir störfuðu báðir hjá Straumi Fjárfest- ingarbanka. „Við Benedikt höfum lengi unnið saman. Fyrst vorum við hjá Straumi, svo MP banka og nú í þessu,“ segir Sigurður og vísar þar til framkvæmdahóps fjármála- og efna- hagsráðuneytisins um losun fjár- magnshafta. Spurður hvort þeir hafi sótt saman gamla þorpið sitt heim kveður Sig- urður já við. „Fyrir nokkrum árum skelltum við okkur saman í bíltúr að Hvanneyri. Fengum alveg stórfínt veður, skoðuðum okkur um og kíktum á Frúargarðinn.“ Sá sem leiddi skólastarfið í Anda- kílsskóla á þessum tíma var Gyða Bergþórsdóttir frá Fljótstungu, systir Páls fyrrverandi veðurstofustjóra. Er hún lét af störfum sem skólastjóri var það faðir Sigurðar, Hannes Baldurs- son, sem tók við keflinu og sinnti þar einnig almennri kennslu. Mikilvæg menntastofnun Andakílsskóli var árið 2005 samein- aður Grunnskóla Borgarfjarðar og eru nú uppi hugmyndir um að leggja af grunnskólastarf á Hvanneyri. Myndu nemendur þá fara í aðra skóla. Spurður hvort þjóðin megi við því að missa þessa gömlu menntastofnun þeirra félaga svarar Sigurður: „Það held ég að blasi við hverjum manni að þjóðin má ekki sjá af þessum skóla.“ Aðspurðir sögðu Benedikt og Sig- urður fleiri þekkta menn koma úr sömu sveit. Nefndu þeir Hjálmar Gíslason, stofnanda Datamarket, og hönnuðinn Leif Welding. „Svo er þetta líka einn veðursælasti staður landsins,“ segir Sigurður. Grunnurinn var lagður í Andakílsskóla  Heimamenn á Hvanneyri státa sig af tveimur lykilmönnum við afnám hafta Morgunblaðið/Golli Höft Sigurður Hannesson (t.v.) og Benedikt Gíslason (t.h.) kynna aðgerðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.