Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 39
» Það var líf og fjör á opnunsýningarinnar Ég og móðir
mín í i8 í gær. Á sýningunni má
sjá fjögur vídeóverk eftir
Ragnar Kjartansson, unnin
með fimm ára millibili, af
gjörningi hans og móður hans,
Guðrúnar Ásmundsdóttur.
Gjörningurinn felst í því að
Guðrún hrækir látlaust á son
sinn. Nýjasta verkið, frá þessu
ári, var frumsýnt í gær.
Sýningin Ég og móðir mín, á vídeóverkum Ragnars Kjartanssonar, var opnuð í galleríinu i8 í gær
Stemning Börkur Arnarson eigandi i8 kampakátur með Guðrúnu Ásmundsdóttur móður listamannsins Ragnars.
Mæðgin Ragnar og móðir hans eru glöð í þessu myndbandi.
Gaman Anna Sigríður Arnardóttir skemmti sér hið besta á opnun sýningarinnar eins og aðrir sem þangað mættu.
Andagt Gestir virða fyrir sér þegar Guðrún hrækir á Ragnar son sinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Myndlistarmaðurinn Snorri Ás-
mundsson heldur fyrstu sólótónleika
sína í menningarhúsinu Mengi á
laugardaginn, 13. júní, kl. 21. Snorri
mun leika af fingrum fram og
syngja, fremja gjörning og milli at-
riða verður boðið upp á dansatriði
leynigesta. Snorri hvetur alla til að
mæta í sínum bestu skóm.
„Þetta verður sennilega svolítið
súrt, en ég hef verið að koma út úr
skápnum sem tónlistarmaður,“ segir
Snorri. Tónlistin sem hann muni
flytja í Mengi verði frumsamin og
meira leikin eftir tilfinningu. Snorri
segist ætla að leika á orgel og spinna
tónlistina á staðnum.
Spurður að því hvort eitthvert
konsept sé á ferðinni, einhver
grunnhugmynd að baki verkinu,
segir Snorri svo ekki vera. „Ég læt
bara tilfinningarnar algjörlega ráða
þessu, það má kannski segja að ég
muni tjá tilfinningar mínar þetta
kvöld, í garð listgyðjunnar, Íslands
og ástandsins í lífinu,“ segir Snorri.
„Yfirleitt þegar ég er að syngja út
frá tilfinningum syng ég á tungumáli
sem ég kalla þesslensku. Það er
tungumál sem ég bjó til sem ung-
lingur,“ segir Snorri.
Á ferðalögum
En hvað hefur Snorri verið að
gera undanfarið? „Ég hef svolítið
mikið verið að láta lífið leiða mig
hingað og þangað. Ég var í Kali-
forníu í allan vetur og Mexíkó og síð-
an hef ég verið svolítið í Evrópu
núna,“ svarar Snorri og nefnir að
hann hafi setið fyrir hjá einum
þekktasta skúlptúrista Póllands,
Pawel Althamer, og styttu af honum
megi nú finna í Varsjá. Snorri segist
hafa fengið svo góðar móttökur í
Póllandi að hann ætli að dvelja þar í
júlí. „Ég er bara á einhverju flæði
þar sem ég læt lífið teyma mig hing-
að og þangað og nýt þess að vera
jarðarbúi,“ segir Snorri. Honum líði
best á ferðalögum.
Tónlistarmaðurinn Snorri
kemur út úr skápnum
Tónelskur Snorri syngur og leikur á orgel af miklum ákafa.
Snorri Ásmundsson heldur sólótónleika í Mengi
Þesslenska er tungumál sem
Snorri fann upp sem unglingur
og sendi hann blaðamanni
textabrot á þesslensku til dæm-
is: Ilano agendora fertina sel-
inara onale. Andana ota selog-
anda neso setnaso. Abrande
eftara tornala elanaia.
Í íslenskri þýðingu er textinn
á þessa leið: Lífið er fallegt og
fullkomið og við erum öll full-
komlega ófullkomin. Við skulum
gleðjast og vera þakklát því þá
fyllist bikarinn okkar góði af
andlegu veganesti.
Ilano agen-
dora fertina
ÞESSLENSKA