Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 ✝ Jóhanna fædd-ist á Sjónarhæð á Ísafirði 20. júlí 1940. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 6. júní 2015. Hún var dóttir hjónanna Guðjóns Elíasar Jónssonar, f. 20. febrúar 1895, d. 11. febrúar 1980, og Jensínu Sig- urveigar Jóhannsdóttur, f. 5. ágúst 1907, d. 15. júní 1995. Systkini Jóhönnu eru bræðurnir Skúli, f. 17. júlí 1942, og Friðrik, f. 11. apríl 1945. Einnig þau El- ísabet, f. 28. janúar 1922, d. 21. janúar 2009, og Baldur, f. 23. febrúar 1929, d. 7. nóvember 2003, samfeðra, og svo Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir, f. 23. febrúar 1935, d. 24. desember 2008, sammæðra. Hinn 1. sept- ember 1973 giftist Jóhanna eft- irlifandi eiginmanni sínum Dav- íð Péturssyni, f. 2. apríl 1939, Grund í Skorradal. Foreldrar hans voru Pétur Bjarnason, f. 8. desember 1903, d. 10. desember 1944, og Guðrún Davíðsdóttir, f. 6. október 1914, d. 10. október 1995. Jóhanna og Davíð eign- uðust fjögur börn, þau eru 1) stundaði nám í Austurbæjar- skóla, síðan var hún í einn vetur í Héraðsskólanum á Laug- arvatni en lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austur- bæjar vorið 1957. Ævintýraþrá hennar gerði það að verkum að hún fór til London til að læra ensku og gekk í heimavist- arskóla fyrir stúlkur er hét The Bridge House. Við heimkomu fékk hún vinnu hjá Axel í Nesti, sem rak kaffihús í kjallaranum á Uppsölum. En 1. apríl 1958 sagðist hún hafa stigið eitt af mestu gæfusporum í lífi sínu þegar hún hóf störf í Bókabúð Lárusar Blöndal. Þau hjón, Lár- us og Þórunn Kjartansdóttir, reyndust henni ávallt sem aðrir foreldrar. Hjá Lárusi starfaði hún hátt í 16 ár. Eftir að þau Davíð kynntust og gengu í hjónaband fluttist Jóhanna að Grund í Skorradal þar sem þau bjuggu síðan. Jóhanna var virk í félagsstörfum í sveitinni. Var fé- lagi í Kvenfélaginu 19. júní, sat þar í stjórn í mörg ár og einnig í stjórn Sambands borgfirskra kvenna. Þá var hún virk í starfi Félags eldri borgara í Borg- arfjarðardölum þar til hún veiktist í vor. Þá starfaði hún sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í Borgarfjarðarhér- aði síðustu árin. Jóhanna unni mest fjölskyldu sinni, börnum og barnabörnunum. Útför Jóhönnu fer fram frá Reykholtskirkju í dag, 12. júní 2015, og hefst athöfnin kl. 15. Pétur, f. 27. júní 1974, giftur Þór- hildi Ýri Jóhann- esdóttur, f. 30. júní 1973, og eiga þau þrjú börn, Mel- korku Sól, f. 2000, Davíð, f. 2003, og Erlu Ýri, f. 2009. 2) Jens, f. 25. febrúar 1976, giftur Sig- rúnu J. Steindórs- dóttur, f. 19. des- ember 1970, og eiga þau tvö börn, Anna Birta, f. 2009, og Ester Elísabet, f. 2013. 3) Guð- rún, f. 16. júní 1978, gift Nirði Stefánssyni, f. 4. október 1977, og eiga þau þrjú börn, Dagmar, f. 2005, Heiður, f. 2009, og Þor- björn, f. 2012. 4) Guðjón Elías, f. 16. ágúst 1981, í sambandi með Þuríði Kr. Sigurðardóttur, f. 6. ágúst 1974, og eiga þau eina dóttur, Thelmu Rut, f. 2015. Fyrir á Guðjón þrjú börn úr fyrra sambandi, en þau eru Jó- hanna, f. 2004, Hrafnhildur Brynja, f. 2006, og Þorsteinn Gylfi, f. 2008. Jóhanna ólst upp á Ísafirði til 11 ára aldurs er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Bjuggu þau fyrst á Flókagötu 45 og síð- ar í Álfheimum 29. Jóhanna Elsku mamma mín. Þá er komið að því. Eitt það erfiðasta sem ég hef gert og kveið fyrir en það er að kveðja þig. Maður er það sjálfselskur að maður vill hafa foreldra sína hjá sér alltaf en þetta er eitt af því sem eng- inn getur flúið, það er dauðinn. Söknuður og minningarnar koma yfir mig þessa daga. Held að flestir séu sammála mér að gengin er ein stórkostlegasta manneskja sem hægt var að kynnast. Vinir mínir hafa dásamað hana og hrósað fyrir skemmtilegheit, stundum þann- ig að maður hugsaði að það væri jafnvel best að hafa hana alltaf með sér á alla viðburði; full af fróðleik, vel máli farin og sagði oftar en ekki skemmti- legar sögur af sér. Held að flestir séu farnir að þekkja dekkjasöguna þegar hún og pabbi kynntust. Bílar voru kannski ekki alltaf í uppáhaldi hjá henni og var oftar en ekki þannig að hún pirraðist yfir því að endalaust væri hægt að tala um bíla og skoða bíla. Veit nú ekki hvort ég hafi valdið henni vonbrigðum með að velja bif- vélavirkjun sem vinnufag, en það kom henni engan veginn á óvart, enda með bíladellu. Var ég nú duglegur að minna hana á það að það hefði nú verið bíll sem kom henni og pabba sam- an, eða hluti af bíl. Þá var gam- an að sjá svipinn á henni og fljót að brosa og samþykkja það. Held að henni hafi ekki þótt leiðinlegt að aka um á góð- um og flottum bíl. Eitt af því sem einkenndi mömmu var traust en hún gat nú gleymt sér stundum þessi elska, eins og eitt skipti þegar ég var að skipuleggja óvissuferð með vinnunni minni. Ég hafði skipu- lagt ferð í sveitina mína sem átti að vera á Hvanneyri, í Skorradal og enda svo með kvöldverði í Borgarnesi. Kom mamma inn á verkstæði til mín og spurði mig svo þannig að nánast því allir heyrðu. „Varstu búinn að heyra í honum Guð- mundi á Hvanneyri út af ferð- inni ykkar?“ Ég varð náttúrlega hundfúll og svaraði „Ohhh mamma, það er ástæða fyrir að þetta heitir óvissuferð!!“ Greyið mamma var í rusli yfir þessu en þetta er eitt af því sem kætir mig í dag og veitir mér góða minningu. Ég gæti í raun haldið áfram endalaust en með þessum fáu orðum vil ég þakka mömmu minni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig, stuðninginn í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur og vandamálum, ásamt pabba. Betri foreldra hefur ekki verið hægt að hugsa sér. Elsku mamma mín, ég vona að þú sért komin á góðan stað og sért komin í faðm foreldra þinna. Missir okkar er mikill en enginn er missirinn eins og pabba. Ég lofa að sjá um pabba eins og ég lofaði þér. Þinn sonur, Guðjón Elías Davíðsson. Elsku amma. Það var svo gaman að koma í sveitina á Grund til þín og afa og vera með ykkur. Þið tókuð okkur alltaf opnum örmum. Sérstak- lega var skemmtilegt fríið okkar til Flórída og að fá að fara í Disney World. Með þessu ljóði kveðjum við þig með þökk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili.) Við elskum þig og söknum þín mikið, elsku amma. Jóhanna, Hrafnhildur Brynja, Þorsteinn Gylfi og Thelma Rut. Jóhanna Guðjónsdóttir var nokkurs konar stóra systir okk- ar „barna“ Þórunnar og Lár- usar Blöndal. Jóhanna vann hjá föður okkar í Bókabúð Lárusar Blöndal og var sú eina af fjölda starfsstúlkna sem bar titilinn verslunarstjóri, enda fór aldrei á milli mála að hún var sú starfsstúlka að öllum hinum ólöstuðum sem hann bar mesta traust til og stóð honum næst. Þeirra samstarf stóð lengi og var óvenjutraust og farsælt enda Jóhanna gædd mörgum kostum sem ekki aðeins faðir okkar mat mikils, heldur öfund- uðu flestir kaupmenn á svæðinu pabba af Jóhönnu. Hún var glæsileg stúlka, glaðlynd og hafði þennan sjarma sem ekki er áunninn heldur einungis sumum gefinn. Hún var hörku- dugleg, dagfarsprúð og kurteis, góð tungumálamanneskja og kunni að geðjast og þjóna fólki. Faðir okkar var í þekktum kaffiklúbb kenndum við Pfaff og þar voru kaupmenn, listamenn, þingmenn og ráðherrar sem all- ir þekktu Jóhönnu og þeir báru allir lotningarfulla virðingu fyrir Jóhönnu og trúlega voru margir þeirra skotnir í þessari glæsi- legu dömu sem Lárusi Blöndal lukkaðist að fá sér við hlið í svo mörg ár. Fyrir okkur börn Lárusar sem öll unnum í öllum okkar frí- stundum frá skóla í bókabúð- inni, var Jóhanna sá karakter sem aldrei var mótmælt og allt- af hlýtt umyrðalaust, enda virð- ing okkar og væntumþykja slík að hún var algjörlega hafin yfir krítík. Jóhanna var þannig per- sóna að það var fullkomin sátt um hana. Aldrei vorum við ósammála Jóhönnu, það var einfaldlega ekki í boði, hún vissi upp á hár hvernig átti að koma fram við okkur, hennar hlýja viðmót til okkar og væntumþykja setti hana á ákveðin stall hjá okkur. Á öllum myndum í gegnum tíð- ina sem teknar voru í bókabúð- inni, á bókamarkaðnum og/ eða við hátíðlegar athafnir í þessum hóp var Jóhanna brosandi eins- konar „logo“ fyrir hópinn, því öllum líkaði vel við Jóhönnu enda sá hún um að öllum liði vel í hennar návist. Svo kom sá dagur að ástin tók völdin hjá Jóhönnu og Skorradalur fékk að deila henni með okkur og loks að nema hana á brott. Það var kannski dálítið erfitt fyrst en við gerðum okkur grein fyrir því að Jó- hanna átti sig sjálf. Á Grund hófst síðan hennar fegursta skeið með sínum indælis manni Davíð á Grund og börnum þeirra. Stundirnar saman urðu færri en samt var alltaf gott samband og aldrei skyggði á þessar fal- legu minningar og artasemi hennar við foreldra okkar alla tíð, fyrir það erum við ævinlega þakklát og munum sakna henn- ar hlýju og fallegu framkomu. Það vill svo til að sælureitur foreldra okkar, sumarhúsið þeirra í Mosfellssveit, var skírt Grund löngu áður en Jóhanna fluttist að Grund í Skorradal og þegar hún kom í heimsókn þangað vegna 50 ára afmælis bókabúðarinnar gaf hún foreldr- um okkar veglega útskorið skilti þar sem á stóð Grund og þar hefur það verið um áratuga- skeið. Guð blessi Jóhönnu húsfrú á Grund í Skorradal, við sendum innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Börn Þórunnar og Lárusar Blöndal, Steinn, Guðmundur, Kjart- an, Ragnheiður og Kristín. Kveðja frá Félagi aldraðra í Borgarfjarðardölum. Jóhanna á Grund er fallin frá. Fyrir nokkrum vikum kom Jó- hanna á aðalfund Félags aldr- aðra í Borgarfjarðardölum. Hún hafði verið gjaldkeri um árabil og leysti það verkefni af hönd- um af röggsemi og myndugleika eins og allt annað sem Jóhanna tók sér fyrir hendur. Hún var nýkomin úr krabbameinsmeð- ferð er hún mætti á aðalfund fé- lagsins, var hress og horfði björtum augum til framtíðar. En skjótt skipast veður í lofti og áfallið dundi yfir skömmu seinna. Jóhanna var kraftmikil kona, greind og glæsileg og hafði góða nærveru. Hún var kona athafna. Jóhanna setti svip á starf félagsins, með glaðværð og fjörlegri framkomu. Fyrir hönd Félags aldraðra í Borg- arfjarðardölum þökkum við Jó- hönnu starf hennar fyrir félagið og ánægjulegt samstarf á und- anförnum árum. Við hjón viljum þakka góð kynni og ánægjulegar samveru- stundir á liðnum árum. Davíð og fjölskyldunni á Grund sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Jóhönnu verð- ur sárt saknað. Hvíl í friði. Gerður og Sveinn Hall- grímsson, Vatnshömrum. Fregnin kom ekki á óvart, en nísti samt gegnum merg og bein. Andlát húsmóðurinnar á Grund í Skorradal er ótíma- bært. Eiginkona, móðir, amma, systir, mágkona, frænka og vin- ur er horfin á braut með alltof stuttum fyrirvara. Margir eiga um sárt að binda. Hún kom inn í líf og störf Grundarfjölskyldunnar eins og ferskur andblær nýrra tíma árið 1973. Hvernig gat þessi stór- glæsilega borgarstúlka sagt skilið við þægindi og félagslíf borgarinnar og tekið til við mjaltir, heyskap, sláturgerð og allt sem búskap í sveit tilheyrir, eins og ekkert væri? Það skilst betur þegar hugsað er til for- eldra hennar og uppruna. Guð- jón Elías Jónsson bankaútibús- stjóri Landsbankans, lengst af á Ísafirði, var yfirvegaður, góð- gjarn og ábyrgur maður, sönn fyrirmynd. Hann var traustur eins og bankinn. Jensína Jó- hannesdóttir frá Auðkúlu við Arnarfjörð var kornung „í vist“ eins og þá var títt, hjá Dóru Þórhallsdóttur og Ásgeiri Ás- geirssyni í Laufási við Laufás- veg. Allt sem viðvék heimilisstörf- um og handavinnu lék í höndum hennar og frú Dóra treysti henni fyrir öllu á gestkvæmu heimili. Jensína saumaði mikið um sína daga og lét sig ekki muna um að sauma glæsilegan brúðarkjól dóttur sinnar. Hand- tökin kunni hún vel. Þá hæfi- leika tók Jóhanna í arf. Það var ekki auðvelt að verða unga konan á Grund, því fyrir var Guðrún Davíðsdóttir frá Arnbjargarlæk, tengdamóðir hennar, og stóð enn fyrir búi. Hún hafði ung orðið ekkja lagt mikinn metnað í að bjarga sér og búa börnum sínum örugga framtíð. Jóhanna ávann sér samt fljótt sinn sess með dugn- aði sínum, áhuga og glaðværð. Hún óx með hverju verki. Það var vitaskuld aðeins lífsins gangur að ábyrgðin fluttist smám saman til hennar, eftir því sem sveitastörfin urðu henni töm og árin liðu. Jóhanna var eins og Davíð virk í félagsmál- um byggðarinnar. Fyrr en varði voru fjögur börn komin í hlað- varpann. Þeim fylgdi líf og fjör, enn á ný var framtíðin tryggð. Á sama hátt er það lífsins gang- ur að Jóhanna varð í fyllingu tímans sjálf „amma á Grund“ sem 12 barnabörn, sem kornung bera nú mörg svipmót hennar, fengu ást og skjól hjá. Það hlut- verk leiddist henni ekki. Það er gott að geta sagt ungum spyrj- andi börnum að amma sé komin til Guðs. Hlutverk Jóhönnu var víðtækara því hún var ættingj- um sínum stoð og stytta, ekki síst systur sinni Guðlaugu, eftir að hún missti mann sinn Guðjón B. Ólafsson. Við Áslaug munum og þökkum þá umönnun sem hún veitti tengdaforeldrum mín- um á efri árum. Góðar eru minningarnar um hennar öruggu handtök. Það er skarð fyrir skildi. Davíð mágur minn þarf að sjá á eftir ástríkum lífsförunaut, börnin kærri móður og barna- börnin ömmu sem alltaf var til staðar fyrir þau. Bræður Jó- hönnu og frændfólk hafa misst mikið. Synir okkar Áslaugar hafa eins og við notið Grundar og fólksins þar. Þakklæti og samúð er okkur öllum efst í huga. Það er gott til þess að vita að Grund verður áfram fastur punktur í tilveru fólksins þeirra Jóhönnu og Davíðs og að þar verður áfram heitt á könn- unni. Sumir hlutir breytast sem betur fer ekki. Ragnar Önundarson. Stuttu eftir að fjölskyldan flutti í Hvamm í Skorradal, var ég á leið í Borgarnes en orðin bensínlítil. Var mér þá bent á að ég gæti nálgast bensín á Grund. Bruna ég í hlað á hvítri Lödu Sport og banka á dyr. Á móti mér kemur há – og grannvaxin kona með skarpan svip og kvik- ar hreyfingar, húsmóðirin Jó- hanna. Það var nú ekki málið að fá að kaupa bensín, en kaffi skyldi ég líka fá og það var ekki gefið eftir. Mér var skipað til borðs við stóra eldhúsborðið og Jóhanna ræddi um landsmálin og hreppsmálin á svo kjarnyrtri íslensku, að orðin flugu í gegn- um eyrun og inn í heila. Ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að taka þessari orðræðu en síð- an snéri hún sér að mér og fór að spyrja um mína hagi, þá kom annar tónn í röddina og við átt- um gott spjall. Ekki fékk ég að fara án þess að fá að vita að þyrfti ég á aðstoð að halda gæti ég leitað til hennar. Það gerði ég ári síðar þegar Axel Máni fékk að vera í „pössun“ á Grund þá daga sem hann var ekki á leikskólanum. Síðan eru liðin mörg ár og við Jóhanna í sjálfu sér í ekkert miklu sambandi. En hún var trygglyndari en flestir sem ég þekki og við höfum átt einlægt og gott spjall um raun- verulegan tilgang þessa lífs. Það var gott að við gátum heimsótt hana á spítalann á Skaganum, þá ætlaði hún svo sannarlega að sigra þetta stríð, sem hún nú hefur þurft að lúta í lægra haldi fyrir. Axel og mamma fóru til hennar á líknardeildina og gáfu henni frá mér ljóðabókina „Agn- arsmá brot úr eilífð“ eftir Ólaf Ragnarsson sem tengist Skorradal sterkum böndum. Þetta ljóð úr bókinni sendi ég elsku Davíð, Pétri og fjölskyld- unni allri sem nú hafa misst mikið. Megi góður Guð styrkja ykkur á sorgarstund. Hann er sífellt innan seilingar þegar syrtir í álinn kaleikur bölsýni og kjarkleysis, fleytifullur af myrkri. Fjær stendur bikar vonar og bjart- sýni, barmafullur af ljósi. Teygðu þig í hann. (Ólafur Ragnarsson.) Helena Guttormsdóttir. Jóhanna Guðjónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEFANÍA JÓRUNN SIGURÞÓRSDÓTTIR frá Kollabæ, verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð mánudaginn 15. júní kl. 11. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. . Sigríður Þóra Yngvadóttir, Katrín Yngvadóttir, Guðjón Guðnason og fjölskyldur. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA ÁRNADÓTTIR frá Hjalteyri, Tjarnarbóli 2, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 5. júní. Útför hennar fer fram frá Neskirkju mánudaginn 15. júní kl. 13. . Þóra Sigurbjörnsdóttir, Þórður Valdimarsson, Snjólaug Sigurbjörnsdóttir, Magnús Guðmundsson, Valrós Sigurbjörnsdóttir, Halldór Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGLJÓT BALDVINSDÓTTIR, Strikinu 12, áður Fífuhvammi 37, lést mánudaginn 1. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á samtökin Heilaheill. . Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.