Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Sigur Rós mun í dag streyma á vef sínum, sigur- ros.co.uk, myndbandsupptöku af út- gáfutónleikum hljómplötu sinnar Ágætis byrjun, sem haldnir voru fyrir sléttum 16 árum í Íslensku óperunni. Á útgáfutónleikunum skipuðu Sigur Rós þeir Jón Þór Birgisson, Georg Holm, Kjartan Sveinsson og Ágúst Ævar Gunnars- son en þeim til aðstoðar var strengjakvartett. Trymbillinn Ágúst Ævar lék með hljómsveitinni á Ágætis byrjun og útgáfutónleik- unum en sagði skilið við sveitina snemmsumars 1999 og tók þá Orri Dýrason við kjuðunum. „Konsertinn var tekinn upp á sín- um tíma og það er búið að vinna í honum öðru hvoru síðustu ár,“ segir Kári Sturluson, talsmaður sveitar- innar. Í dag verði hægt að streyma hinni endurbættu útgáfu á vefnum. „Sigur Rós sýndi og sannaði í Ís- lensku óperunni að engin sveit stendur henni framar sem stendur, engin hljómsveit hefur önnur eins blæbrigði á valdi sínu og eins skýra og mótaða hugmyndafræði. Tónlist Sigur Rósar sprettur fram líkt og sé hún hluti af þeim sem hana flytja, áreynslulaust og náttúrlega,“ sagði m.a. í umfjöllun Árna Matt- híassonar um tónleikana í Morg- unblaðinu. Í viðhafnarútgáfu Ágætis byrjun markaði upphaf sigurfarar Sigur Rósar um heiminn, vinsælustu og þekktustu hljóm- sveitar Íslands fyrr og síðar. Í til- efni af 16 ára útgáfuafmæli þess- arar merku plötu verður hægt að kaupa sérstaka viðhafnarútgáfu af henni í takmörkuðu upplagi á vef hljómsveitarinnar og verður opnað fyrir pantanir öðru hvoru megin við Sigur Rós streym- ir útgáfutónleikum  16 ára afmæli Ágætis byrjunar Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarkonurnar Harpa Rún Ólafsdóttir og Elín Anna Þórisdóttir standa fyrir merkilegum gjörningi sem framinn verður í Ráðhúsi Reykjavíkur 19. júní, þegar 100 ár verða liðin frá því að konur á Íslandi hlutu kosningarétt. Gjörningurinn nefnist „Með eld í brjósti“ og felst í því að kveikt verður á 100 kertum sem steypt voru úr gifsmótum af brjóstum jafnmargra kvenna og munu kertin brenna undir flutningi Kvennakórsins Kötlu á hinu sígilda kórlagi „Brennið þið vitar“, sem jafnan er flutt af karlakórum. Margbreytileiki og baráttubál „Kertin eru 100 talsins til að tákna þann fjölda ára sem íslenskar konur hafa haft pólitíska rödd í samfélaginu. Brjóstin eru marglita vegna fjölbreytileikans sem býr í konunni. Þau standa þétt saman og mynda saman fallega heild. Brjóstin eru einnig eins mismunandi og þau eru mörg. Loginn táknar baráttu- bálið sem við viljum kveikja í brjóst- um kynsystra okkar. Hann táknar engu síður þá viðvörun að eldurinn má alls ekki slokkna því enn er að mörgu að hyggja í málum kvenrétt- indabaráttunnar. Lagið „Brennið þið vitar“ þykir okkur tilvalið þar sem það fjallar um baráttu og hætt- ur sem auðvelt er að yfirfæra á bar- áttu kvenna. Ljósið í vitanum tákn- ar leiðarljós og það ljós sem við viljum hafa fyrir augum okkar í þessari mikilvægu baráttu. Kvenna- kórinn Katla hefur útsett þetta lag fyrir konur og er því tilvalinn í verk- ið,“ segja Harpa og Elín um gjörn- inginn í tilkynningu. „Við erum góðar vinkonur og vildum láta í okkur heyra þennan dag,“ segir Harpa, spurð út í sam- starf þeirra Elínar. En hvernig skyldi hafa gengið að taka afsteypur af brjóstum 100 kvenna? ,,Við erum frá því í febrúar búnar að gefa kon- um um allan bæ grisjur og svo bjuggum við til vídeó á YouTube sem við settum á Facebook og bjuggum þar til hóp, buðum konum að ganga í hann og konur gengu líka í hann sjálfar. Við erum búnar að gera þetta um allan bæ, gefa konum grisjur og sækja mótin,“ segir Harpa. Mögulega á markað Spurð að því hvort til standi að selja brjóstakerti segir Harpa að verið sé að athuga þau mál. ,,Við er- um að spá í að reyna að koma þessu á markað. Við ætlum að reyna að framleiða kannski þrjár stærðir af brjóstum,“ segir hún. Konur geti þá kveikt á slíkum kertum þegar tilefni sé til fagnaðar, t.d. þegar þær fái nýja vinnu eða eignist barn. Gjörningur Harpa Rún Ólafsdóttir og Elín Anna Þórisdóttir hafa staðið í stórræðum, steypt kerti eftir mótum af brjóstum 100 kvenna. Kveikja eld í brjóstum kvenna  100 brjóstakerti munu loga við flutn- ing kvennakórs á „Brennið þið vitar“ San Andreas 12 Jarðskjálfti ríður yfir Kali- forníu og þarf þyrluflug- maðurinn Ray að bjarga dóttur sinni. Metacritic 43/100 IMDB 6,7/10 Laugarásbíó 22.00 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Tomorrowland 12 Metacritic 60/100 IMDB 6,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.20 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 17.20 Spy 12 Susan Cooper í greining- ardeild CIA er í rauninni hug- myndasmiður hættulegustu verkefna stofnunarinnar. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 84/100 IMDB 7,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 17.30, 20.00, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 Good Kill 16 Herflugmaðurinn Thomas Eg- an hefur þann starfa að ráð- ast gegn óvinum Bandaríkj- anna með drónum sem hann flýgur úr öruggu herstöðv- arskjóli, fjarri átakasvæðinu sjálfu. Metacritic 65/100 IMDB 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 22.55 Avengers: Age of Ultron 12 Þegar Tony Stark reynir að endurvekja gamalt friðar- gæsluverkefni fara hlutirnir úrskeiðis og það er undir Hefnendunum komið að stöðva áætlanir hins illa Ultrons. Morgunblaðið bbbmn IMDB 9,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00. Bakk Tveir æskuvinir ákveða að bakka hringinn í kringum Ís- land til styrktar langveikum börnum. Bönnuð yngri en sjö ára. Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 20.00, 22.10 Pitch Perfect 2 12 Stúlkurnar í sönghópnum The Barden Bellas eru mættar aftur og taka þátt í alþjóðlegri keppni sem engin bandarísk söngsveit hefur hingað til unnið. Morgunblaðið bbbmn IMDB 7,2/10 Laugarásbíó 17.00, 22.00 Smárabíó 20.00, 22.30 Loksins heim Geimveran seinheppna Ó kemur til jarðar og hittir hina ráðagóðu Tátilju, sem sjálf leitar móður sinnar sem rænt var af geimverum. Metacritic 48/100 IMDB 6,7/10 Smárabíó 15.30 Ástríkur á Goðabakka Júlíus Sesar ákveður að reisa glænýja borg til að um- kringja Gaulverjabæ. IMDB 7,0/10 Smárabíó 15.30 Fúsi 10 Fúsi er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og fátt kemur á óvart. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 64/100 IMDB 7,7/10 Háskólabíó 17.30 Bíó Paradís 18.00 Wild Tales Bíó Paradís 20.00 Human Capital Bíó Paradís 18.00, 22.00 What We Do in the Shadows Bíó Paradís 20.00 The Arctic Fox- Still Surviving Bíó Paradís 20.00, 21.00 Citizenfour Bíó Paradís 22.00 París Norðursins Bíó Paradís 22.00 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Eftir að heimurinn hefur gengið í gegnum mikla eyðileggingu er hið mannlega ekki lengur mannlegt. Í þessu umhverfi býr Max, fámáll og fáskiptinn bardagamaður. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 88/100 IMDB 9,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Mad Max: Fury Road 16 Bræðurnir Gummi og Kiddi hafa ekki talast við áratugum saman. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00, 20.00 Smárabíó 17.45, 20.00, 22.10 Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 17.40 Hrútar 12 Á eyjunni Isla Nublar hefur nú verið opnaður nýr garður, Jurassic World. Viðskiptin ganga vel þangað til að nýræktuð risaeðlutegund ógnar lífi fleiri hundruð manna. Metacritic 63/100 IMDB 8,6/10 Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.35 Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.20, 20.00, 20.00, 22.40, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 15.30, 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.40, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00, 22.20 Jurassic World 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.