Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Miðstjórn Alþýðusambands Íslands krefst þess að allur mjólkuriðnaður- inn, frá framleiðendum til smásölu- dreifingar, verði felldur undir ákvæði samkeppnislaga og lúti sömu reglum og önnur atvinnustarfsemi. ASÍ og BSRB tilkynntu í gær að samtökin myndu ekki tilnefna oftar fulltrúa í verðlagsnefnd búvara. Verðlagsnefnd búvara verðleggur búvörur í heildsölu og einnig lág- marksverð til bænda ef þess er sér- staklega óskað. Hún er skipuð sex fulltrúum. ASÍ og BSRB hafa það hlutverk samkvæmt lögum að til- nefna fulltrúa launþega. Á móti eru fulltrúar bænda og afurðastöðva og formaður tilnefndur af landbúnaðar- ráðherra. Fulltrúar ASÍ og BSRB nefndu ekki fulltrúa sína á síðasta ári, vildu bíða eftir heildarúttekt á framleiðslukerfinu. Nú liggur skýrsla Hagfræðistofnunar Íslands fyrir og tilkynntu samtökin þá að þau myndu ekki tilnefna fulltrúa framar. Samkvæmt lögum ber land- búnaðarráðherra að sjá til þess að nefndin sé fullskipuð og skipar þá fulltrúa án tilnefningar, ef þörf er á. Endurskoða þarf kerfið Í sameiginlegri yfirlýsingu ASÍ og BSRB kemur fram það álit að óhjá- kvæmilegt sé að endurskoða allt skipulag mjólkurframleiðslunnar, þar með talda verðlagninguna. Vísað er til ályktunar kúabænda um að hverfa frá núverandi kvótakerfi og opinberri verðlagningu á mjólkuraf- urðum verði hætt. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, ítrekar að ASÍ sé á móti núverandi kerfi í mjólkurframleiðslunni. Alltaf talið að það leiði til óhagræðis og fá- keppni og skili ekki neytendum og mjólkurframleiðendum nauðsynleg- um ábata. Hann nefnir sérstaklega undanþágur sem Alþingi veitti mjólkuriðnaðinum frá samkeppnis- lögum. Það hafi leitt til einokunar. „Við teljum affarasælla að stýra þessu með samkeppnislöggjöfinni. Krefst ASÍ þess að mjólkurgreinin verði að öllu leyti felld undir ákvæði samkeppnislaga,“ segir Gylfi. Í ályktun miðstjórnar er bent á að aðhald í formi erlendrar samkeppni sé á sama tíma í algeru lágmarki og í reynd nánast ekkert. „Við teljum að brjóta þurfi upp þetta fyrirkomulag og endurskoða,“ segir Gylfi og nefnir reynsluna að breytingum á starfs- umhverfi garðyrkjunnar þar sem innflutningur var gefinn frjáls og tollar lækkaðir. „Þá héldu menn að við myndum hætta að framleiða grænmeti. Reynslan varð önnur. Það urðu til nýjar afurðir með vöruþró- un, gæði jukust, framleiðslan hefur tvöfaldast og verð lækkað. Jafn- framt er afkoma bænda miklu betri en hún var,“ segir Gylfi. Mjólkin verði felld undir samkeppnislög  ASÍ og BSRB draga fulltrúa sína úr verðlagsnefnd búvara Morgunblaðið/Árni Sæberg Færiband Landbúnaðarráðherra þarf að skipa fulltrúa í verðlagsnefnd bú- vara, í stað fulltrúa launþega sem ASÍ og BSRB eru hætt að tilnefna. Bandaríska hjólreiðakonan Katie Comtpon er komin til landsins til að taka þátt í Bláa lóns hjólreiðakeppn- inni á laugardag. Comtpon er marg- faldur heimsmeistari kvenna í Cyc- locross. Í Cyclocross eru hjólaðir nokkrir hringir um 2,5 til 3,5 km langa braut. Hindranir eru á brautinni og þurfa hjólreiðamennirnir því að fara reglu- lega af hjóli sínu og bera það yfir hindranirnar. Keppnisveður fyrir Compton Þó svo að Íslendingar bíði eftir fyrstu hitabylgju sumarsins er Compton mjög ánægð með veð- urskilyrðin þar sem nú stendur yfir undirbúningstímabil í Cyclocross en keppnistímabilið sjálft er frá sept- ember til febrúar. Íslenska sum- arveðrið er því kjörið fyrir und- irbúninginn þar sem veður er svipað á keppnistímanum. „Ég athugaði með veðrið áður en ég kom hingað og það minnti mig á veðrið á keppnistímabilinu í Cycloc- ross. Ég kann betur við kalt veður, helst 10 gráður eða minna,“ sagði hún í samtali við mbl.is í gær, en bætti við að hún vonaðist til þess að það færi ekki að rigna. Vill bara eiga góða stund Compton er hógværðin uppmáluð ef marka má það sem fram kom í við- tali hennar við mbl. Þegar blaðamað- ur spurði hana í hvaða sæti hún héldi að hún myndi lenda, svaraði hún um hæl: „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég vil bara njóta keppninnar og vona að hún verði skemmtileg.“ Meistari Katie Compton er margfaldur heimsmeistari kvenna í Cyclocross. Margfaldur heims- meistari tekur þátt  Katie Compton í Bláa lóns þrautinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.