Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Lögreglan leitar þriggja kvenna 2. „Verst að greyið er enn lifandi“ 3. Myndband af árekstri skólaskips 4. Dónalegt að fækka fötum á fjalli »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Söfnun Bíós Paradísar fyrir bættu aðgengi fatlaðra að kvikmyndahús- inu, sem fram fór á hópfjármögn- unarsíðunni Karolina Fund, tók held- ur betur kipp í fyrradag. Yfir 50% fjárins söfnuðust á síðasta sólar- hring söfnunarinnar og er það met í hópfjáröflun á síðunni. „Bíó Pardís hefur unnið með Ferilnefnd fatlaðra hjá Reykjavíkurborg að greiningu og tillögum að úrbótum og er áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga 6,7 millj- ónir króna. Verkefnið er mun stærra en húsið ræður við með reglulegum rekstri og var því ákveðið að ráðast í söfnunina. Öllu söfnunarfénu verður varið í að tryggja aðgengi að sal 1 og millisal og koma fyrir salerni sem er aðgengilegt þeim sem eru í hjólastól- um. Verkfræðistofan Mannvit vinnur með húsinu og annast undirbúning, kostnaðarmat og eftirlit með fram- kvæmdunum,“ segir í tilkynningu frá Bíó Paradís. Starfsfólk og stjórn kvik- myndahússins sé djúpt snortið yfir ótrúlegum viðbrögðum íslensks sam- félags við söfnuninni, sem eigi sér fjölda bakhjarla. Morgunblaðið/Júlíus Söfnunarmet slegið  Hvalfjörður, stuttmynd Guðmundar Arnar Guðmundssonar, sankar enn að sér verðlaunum. Ágúst Örn B. Wig- um, sem leikur í myndinni, var valinn besti leikarinn á Brooklyn Film Festi- val og myndin var auk þess valin besta myndin á Cinema dal Basso – Caserta Independ- ent Film Festival í Caserta á Ítalíu, 7. júní sl. Hvalfjörður hefur nú unnið til 21 alþjóðlegra verðlauna. Hefur hlotið 21 alþjóðleg verðlaun Á laugardag Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og þurrt og bjart að mestu, en heldur hvassara austanlands. Hiti 7 til 14 stig. Á sunnudag Hægviðri og víða léttskýjað. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á NA-landi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 3-10, bjart með köflum vest- antil, dálitlar skúrir sunnan- og austanlands, annars úrkomulítið. VEÐUR Íslenska landsliðið í knatt- spyrnu karla, skipað leik- mönnum 21 árs og yngri, fór vel af stað í undankeppni Evrópumeistaramótsins í gærkvöldi þegar liðið vann landsliðs Makedóníu, 3:0, á Vodafone-vellinum. Eftir markalausan fyrri hálfleik röðuðu íslensku leikmenn- irnir inn mörkum í þeim síð- ari og gáfu tóninn fyrir eldra landsliðið sem mætir Tékkum í kvöld. »4 Þeir yngri gáfu tóninn í gærkvöldi „Ég er bjartsýnn en við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum að spila við hörkugott lið. Jafntefli væri mjög góð úrslit fyrir okkur en sigur væri frábær. Ef við náum að halda boltanum betur en við gerð- um í Tékklandi, og verðum að- eins grimmari í sóknarleiknum, þá held ég að við getum vel unnið,“ sagði Ólafur Jóhann- esson, fyrrver- andi landsliðs- þjálfari, þegar hann spáði í leik Íslendinga og Tékka í samtali við Morgunblaðið í gær. »2 Fyrrverandi landsliðs- þjálfari er bjartsýnn Sigur eða jafntefli gegn Svartfell- ingum í lokaleik riðlakeppninnar á sunnudaginn er besti kosturinn fyrir íslenska landsliðið í handknattleik til þess að tryggja sér keppnisréttinn á Evrópumeistaramótinu sem haldið verður í Póllandi í janúar. Enn er þó góður möguleiki að engu máli skipti hvernig leikurinn á sunnudaginn fer, Ísland verður alltaf með á EM. »1 Stig á sunnudag er besti kosturinn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Miðar á landsleik Íslands og Tékk- lands í riðlakeppni Evrópumótsins í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld seldust upp á nokkrum mínútum, en engu að síður þarf Karólína Jóns- dóttir miðasölustjóri að standa vakt- ina með starfsfólki sínu. „Við þurf- um alltaf að vera til taks á leikdegi,“ segir Karólína, sem hefur séð um miðasöluna í 18 ár. Sala á landsleiki og bikarúrslita- leiki fer fyrst fram á netinu og síðan við innganginn, ef ekki er uppselt. Miðar á aðra leiki eru einkum seldir við innganginn á leikdegi. „Þó að fólk hafi keypt miða á netinu hafa ekki allir aðstöðu til að prenta þá út og þá komum við til hjálpar,“ segir Lína. Hún bendir líka á að margir séu ókunnugir á Laugardalsvelli og þeim þurfi að liðsinna við miðakaup. Eins og smurð vél Lína hljóp í skarðið í miðasölunni á leik í Reykjavíkurmóti á gervigras- vellinum í Laugardal fyrir um tveim- ur áratugum, tók að sér vinnu við söluna í kjölfarið og þegar miðasalan var boðin út árið 1997 gerði hún til- boð í hana fyrir hönd meistaraflokks kvenna í KR. Tilboðinu var tekið og síðan hafa leikmennirnir undir stjórn Línu séð um miðasöluna í sjálfboðavinnu, en tekjurnar hafa alla tíð runnið óskertar til reksturs meistaraflokks þeirra. „Þetta er mikil binding og ekki eftirsótt starf en ég kann vel við þessa vinnu, félagsskapurinn á Laugardalsvelli er góður og þegar landsliðinu gengur vel eins og núna gefst mér meiri tími en ella til þess að fara í golf og það er bara gaman,“ segir Lína. Hún bætir við að Þrótt- arar sjái um veitingasöluna á leikj- um Þróttar og á landsleikjum en Framarar á sínum heimaleikjum, sem fara fram á Laugardalsvelli. „Þetta er alltaf sama fólkið og hlut- irnir ganga eins og smurð vél,“ segir Lína um starfsfólkið í Laugar- dalnum. Um níu til tólf konur sjá um miða- söluna hverju sinni. „Ég keyri á níu stelpum fyrir bikarúrslitaleik,“ segir Lína og vísar til þess að mikilvægt sé að geta skipt út starfsmönnum, því það sé erfitt að sitja við söluna í marga klukkutíma í einu. Áhorfendametið á Laugardalsvelli er ríflega 20.000 manns, var sett á vináttuleiknum við Ítali sumarið 2004. „Það er eftirminnilegasti leik- urinn,“ rifjar Lína upp. „Eggert Magnússon, þáverandi formaður KSÍ, ákvað að setja 2.000 miða til viðbótar í sölu einum og hálfum tíma fyrir leik og þeir fóru á innan við klukkutíma. Það var atgangur.“ Miðasölustjóri í 18 ár  Sjálfboðaliða- starf kvenna á Laugardalsvelli Morgunblaðið/Golli Laugardalsvöllur Karólína Jónsdóttir kann vel við sig í miðasölunni, sem hún hefur stýrt í nær tvo áratugi. Morgunblaðið/Ómar Uppselt Áhorfendur styðja vel við bakið á landsliðinu á Laugardalsvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.