Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 11
eina í bókaröð sinni um gönguleiðir
hér á landi.
Reyndist hann þó ekki heppinn
með veður á meðan hann vann efnið í
bókina en síðustu tvö sumur hafa
einkennst af mikilli rigningu. „Það lá
við að ég hlypi á milli skúranna til að
ná myndum,“ segir hann en samtals
tók það hann um sex mánuði að
klára bókina um Þingvallasvæðið.
Í þetta sinn var hann ekki einn
á ferð í könnunarleiðöngrum sínum
um Þingvelli en göngufélagi hans og
leiðsögumaður til margra ára, Sig-
urður Kristjánsson, gekk honum til
samlætis. „Ég var kominn með
gangráð og skynsemin sagði mér að
vera ekki að þvælast þetta einn.
Göngufélagi minn, Sigurður,
tók því að sér að passa upp á
mig,“ segir Reynir léttur í
bragði. „Það er svo líka
þannig að betur sjá augu en
auga.“
Myrk saga Þingvalla
skoðuð
Aðspurður hvaða leið
fólk ætti alls ekki láta fram
hjá sér fara af þeim 25 leið-
um sem kynntar eru til
leiks, segir Reynir það vera
gönguleið númer átta, sem
ber heitið Aftökustaðir á
Þingvöllum. „Við höfum gott
af því að kynnast líka
myrkri sögu Þingvalla en
þarna er hægt að ganga á
milli staða þar sem fólki var
ýmist drekkt, það hengt,
hálshoggið eða brennt.“
Gangan er stutt, eða rúm-
lega tveir kílómetrar.
Spjöld sögunnar geyma
gjarnan atburði á Þingvöll-
um eins og stofnun Alþingis,
kristnitökuna, lagasetningu
þjóðveldis og ótal aðra
merka atburði. Minna er
skráð um hinar dimmu mið-
aldir þar sem þessar fjórar tegundir
dauðarefsinga voru við lýði. Örnefn-
in sem verða á veginum bera þess
einnig glögglega merki. „Konum var
drekkt í Drekkingarhyl, eins og
flestir þekkja, síðan voru Gálga-
klettar þar sem þjófar voru gjarnan
hengdir fyrir glæpi sína. Í Brennigjá
var fólk brennt, aðallega þegar það
var sakað um galdra. Á Höggstokks-
eyri voru hæst settu afbrotamenn-
irnir í afbrotaheiminum svo háls-
hoggnir,“ segir Reynir.
Allar leiðirnar eru áhugaverðar
í sögulegu samhengi og erfitt að
gera upp á milli þeirra. „Það er nú
bara þannig að maður verður hug-
fanginn af þeirri leið sem maður er
að skoða og ganga hverju sinni. Þeg-
ar henni sleppir þá fer maður næstu
leið og sagan endurtekur sig.“
„Komast burt úr hávaðanum“
„Þetta land er svo einstakt og
fjölbreytt að þú finnur hvergi annars
staðar í heiminum sambærilegt
svæði,“ segir Reynir og það séu
hrein forréttindi að fá að vinna
svona verkefni og skoða land sitt,
ganga um og sjá í sífellu eitthvað
nýtt. Þingvallasvæðið sé fremst í
flokki yfir náttúruperlur Íslands en
þar er meðal annars að finna Þing-
vallavatn sem er með merkilegustu
vötnum í heimi. „Vatnakerfið þar er
alveg ótrúlegt. Það er sáralítið yf-
irborðsvatn sem fellur í
Þingvallavatn, heldur
streymir vatn neðanjarðar
eftir sprungum. Hluti þess
vatns er úrkoma sem fallið
hefur á Langjökul fyrir um
5-600 árum og hefur á öll-
um þeim tíma seytlað niður
í gegnum jökulinn, undir
hraunið og rennur svo tært
og hreinsað í Þingvalla-
vatn. Algjört einsdæmi.“
Segir hann því fulla ástæðu
fyrir fólk að ganga þarna
um enda sjái maður ekki
bara til botns í kristaltæru
Þingvallavatni heldur sé
víðsýnin á svæðinu öllu
mjög áhrifamikil.
„Galdurinn við að fara
út í náttúruna er að komast
burt úr þéttbýlinu, hávað-
anum og stressinu. Þú finn-
ur að það slaknar á öllu og
stressið er skilið eftir fyrir
utan,“ segir hann.
Ekki þurfi svo að
mikla fyrir sér að taka
fyrsta skrefið í góðum
göngutúr því það þurfi bara
að opna útidyrnar og stíga
út. Kristaltært Hellugjá á innanverðum Lambhaga.
Ljósmynd/Kristján Pétursson
Göngur Reynir Ingibjartsson t.v. gekk ótrauður um Þingvallasvæðið í um 6 mánuði og kortlagði 25 nýjar göngu-
leiðir ásamt Sigurði Kristjánssyni göngufélaga sínum og leiðsögumanni til margra ára. „Betur sjá augu en auga.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Ólöf Nordal opnar myndlistarsýningu
sína, Musée Islandique, í Bryggjusal
Edinborgarhússins á Ísafirði í dag kl.
17.00. Í sýningunni er tekist á við
tengsl vísinda og lista þar sem mál-
efni eins og kynþáttahyggja, ný-
lendustefna, þekkingarfræði og
merkingargildi arkívsins koma við
sögu. Listakonan verður með
sýningarleiðsögn á opnunardaginn.
Á sýningunni í Bryggjusal eru tvær
ljósmyndaraðir, Musée Islandique og
Das Experiment Island, og er umfjöll-
unarefnið mannmælingafræði
tveggja tíma. Í Musée Islandique eru
fyrirmyndirnar gifsafsteypur af Ís-
lendingum sem varðveittar eru í
Mannfræðisafninu í París, en í Das
Experiment Island eru myndir af vís-
indagögnum sem Jens Pálsson
mannfræðingur safnaði á seinni
hluta 20. aldrar.
Bryggjusalurinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
Morgunblaðið/Golli
Listakonan Ólöf Nordal spyr ýmissa
áleitinna spurninga í verkum sínum.
Tekist á við
tengsl vísinda
og lista
Oft er fyndið hvernig tilfinn-ingarnar leika á okkur, einsóvæntar og þær geta veriðóþægilegar. Raunar hef ég
alltaf talist til stöðuglyndari manna,
jafnvel svo furðu þykir sæta ef ég læt í
ljós hina minnstu geðshræringu. Þess
vegna er þessi forláta fjölskylduferð í
IKEA, sem nú skal rakin, í frásögur
færandi, en ég lít á hana sem ákveðinn
vendipunkt í lífi mínu. Uppgjör við
æsku og uppruna, fortíð jafnt sem
framtíð.
Kynslóðin sem nú er farin að láta á
sér kræla er kölluð mörgum mis-
skemmtilegum nöfnum.
Klámkynslóðin er kannski hið
þekktasta, tölvukynslóðin er annað,
Þjóðverjar kalla okkur „generation
maybe“ sökum meints framtaks- og
dugleysis og svo mætti lengi telja. Það
nýjasta sem ég heyrði okkur uppnefnd
var „kjallarakynslóðin,“ sem vísar til
ákveðins trega til að flytja úr Hótel
mömmu og breiða út vængina, en það
nafn á kannski best við þessa sögu.
Þarna vorum við sem sagt komin
saman, foreldrarnir, örverpið systir
mín og ég, kjallarabarnið, í þeim
tilgangi að púsla saman hinu
fullkomna eldhúsi. Ferðin var
einn liður af mörgum í að skilja
loksins að vistarverur mínar og
hjónanna á efri hæðinni. Þann-
ig stendur til að gera mig að
sjálfstæðum búanda og
kenna mér á torvelt
líf hinna fullorðnu,
en á sama tíma
forða mér frá
blóðsjúgandi víg-
tönnum leigu-
markaðarins
með niðurgreitt
leiguverð að
vopni.
Það sér hver í
hendi sér að þetta er
gott plan. Allir græða.
Þess vegna fannst mér
geðshræringarnar, sem
ég fann móta fyrir innra með mér
strax þegar við vorum byrjuð að skoða
eldhúsplöturnar, svo óskiljanlegar.
Ég reyndi að bæla þessar óvel-
komnu tilfinningar niður en þær
ágerðust bara enn frekar þegar konan
í búðinni sýndi okkur allar ólíku skápa-
hurðirnar, og loks þegar ofnarnir
blöstu við okkur varð ég að forða mér.
Hefði ég getað komist strax heim í
rúmið mitt eða inn í bíl, einn míns liðs,
hefði ég kannski getað náð áttum og
sloppið við að brotna gjörsamlega nið-
ur í einni fjölförnustu húsgagnaversl-
un landsins, en allt kom fyrir ekki.
Fullkomlega innréttuð eldhús í öllum
stærðum og gerðum tóku þess í stað á
móti mér, hamingjusöm pör að skoða
glansandi spaneldavélar og alls staðar
dundi þessi óumflýjanlega Eurovision-
tónlist. IKEA gaf mér hvergi grið.
Veröld mín hrundi.
Að sjálfsögðu var fjölskyldan
ekki lengi að koma ríðandi á
hvítum hesti mér til huggunar,
og í vel völdum sófa gat ég snökt-
andi reynt að útskýra hvað lá mér
á hjarta, sem þó var illút-
skýranlegt. Þegar ég lít
til baka sé ég að ég stóð
á tímamótum. Ég gekk
inn í IKEA barn sem
hafði ekki hugmynd
um hvað það þýddi
að innrétta sitt eigið
eldhús, en þegar við
sátum í mötuneyt-
inu með fullan munn
af sænskum bollum
var ég annar, fullorðn-
ari maður.
»Alls staðar dundi þessióumflýjanlega Eurovis-
iontónlist. IKEA gaf mér hvergi
grið. Veröld mín hrundi.
Heimur Matthíasar Tryggva
Matthías T. Haraldsson
mth@mbl.is
www.lyfja.is
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
Lyfjaauglýsing
20% afsláttur
af 100g og 150gVoltarenGel í júní