Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 14
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lokaáfangi viðræðna framkvæmdanefndar um afnám hafta við helstu kröfuhafa hófst í mars og eftir um það bil mánuð virtust menn að vera ná saman um uppgjörið. Á þennan veg lýsir Lee Buchheit, lögmaður hjá lög- fræðistofunni Cleary Gottlieb Steen & Hamilton í New York, upplifun sinni af lokaáfanga viðræðnanna. Hann tekur fram að ekki hafi verið um samninga að ræða. Fremur hafi báðir aðilar skipst á skoðunum og kröfuhaf- ar fengið að sjá hugmyndir að útfærslum við uppgjörið. Að lokum hafi verið búið að draga upp sviðsmynd sem kröfuhafar voru sáttir við. Helstu kröfuhafar í slitabúun- um þremur hafi átt þrjá til fjóra fulltrúa við borðið. Þeir hafi sýnt því skilning að uppgjörið yrði að fara fram með þjóðhagslega hagsmuni Íslands í huga. Spurður um ábata kröfuhafanna af uppgjörinu segir Buchheit að ekki muni allir ríða feitum hesti frá því. Þeir sem keyptu kröfurnar snemma í ferlinu hafi margir hverjir selt þær og innleyst hagnað. Þeir sem komu inn á síðari stigum hafi hins vegar ekki allir haft hag af því. Buchheit segir slitastjórnir nú munu sækja um undan- þágur frá höftunum sem Seðlabankinn muni taka af- stöðu til. Hann reiknar með að kosið verði um áætlunina á fundum kröfuhafa síðar í sumar og að uppgjörinu geti lokið fyrir árslok. Hann segist aðspurður kunna að verða kallaður til ráðgjafar í þessum samskiptum á næstunni. Snúa sér að næstu þjóðríkjunum sem eru í vanda Hann segir engan hafa átt von á því að höftin á Íslandi yrðu við lýði í svo langan tíma og metur hann það svo að óþreyju hafi verið farið að gæta hjá sumum kröfuhöfum. Þeirra bíði ýmis tækifæri hjá þjóðríkjum sem eru í vanda stödd vegna skuldavanda, á borð við Venesúela, Úkraínu og eyríkið Púertó Ríkó, sem tilheyrir Bandaríkjunum. Það er við þessa upptalningu sem Buchheit gerir hlé á máli sínu og segir svo með áherslu: „Ég hef unnið með Írökum síðan 2004 og þekki til vandamála margra ríkja. Íslendingar hafa notið mikillar blessunar og hafa ástæðu til bjartsýni. Þið hafið svo mörg tækifæri og komið svo vel út úr miklum erfiðleikum. Á sama tíma og Ísland er að fara úr fjármagnshöftum gætu önnur lönd verið að fara inn í höft,“ segir Buchheit sem mun næst starfa fyr- ir yfirvöld í Púertó Ríkó. Þau glími við mikinn skulda- vanda eftir að hafa notið lánskjara á við sveitarstjórnir í Bandaríkjunum. „Staðan þar er mjög flókin,“ segir hann. Spurður hvort reynslan af viðræðunum við kröfuhafa fyrir hönd Íslendinga muni gagnast honum í viðræðum við kröfuhafa í öðrum ríkjum segir Buchheit að ekki sé hægt að bera viðræðurnar hér saman við viðræður kröfu- hafa við stórskuldug ríki. Á Íslandi hafi enda ekki verið um að ræða ríkisskuldir eftir hrunið. Buchheit er nú sá Bandaríkjamaður sem hvað best þekkir til innanlandsmála á Íslandi en hann kom hingað fyrst haustið 2008, nokkrum vikum eftir efnahagshrunið. Hann segir aðspurður að hvorki hafi ríkt glundroði né borið á ótta hjá Íslendingum á þessum örlagatíma. „Fremur myndi ég segja að Íslendingar hafi verið í losti. Það virtist enginn trúa því að þessi staða gæti komið upp á fáeinum mánuðum,“ segir Buchheit og rifjar upp að 85% af íslenska bankakerfinu hafi horfið, nánast á einni nóttu. Fyrir því séu fá, ef nokkur fordæmi. Undir lok samtalsins leynir sér ekki að Buchheit er ánægður með haftauppgjörið. Hann segist hafa bundist Íslandi traustum böndum og bendir á veiðistangir á bindi sinu. Hann geti hugsað sér að fara hér á veiðar. Byrjuðu að sjá til lands í aprílmánuði  Lee Buchheit segir ekki alla hagnast á kröfum í slitabúin Morgunblaðið/Golli Glaður í bragði Lee Buchheit er sáttur við uppgjörið. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 35.900,- Verð Kr. USG CNIP4 Yfirskápur 4 skúffur. Sterkur skápur með lás. 88.900,- Verð Kr. USG FIRP7B Verkfæraskápur 7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. 115.900,- Verð Kr. USG FIRP7B-FOAM Verkfæraskápur 7 skúffur með frauðefnisbökkum. 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. 172 verkfæri í sterkum vagni með lás. 15.900,- Verð Kr. USG B5094M 1/2“ & 1/4" Topplyklasett 94 stk Skrall 72 tanna, framlengingar, hjörluliður, átaksskaft, djúpir- toppar, kertatoppar, bitajárn. USG GWB2045M 1/4“ Topplyklasett 45 stk Skrall 72 tanna, framlengingar, hjörluliður, átaksskaft, bitar, sexkantar, bitajárn, 4.990,- Verð Kr. USG GWB3029M 3/8“ Topplyklasett 29 stk Skrall 72 tanna, hjöruliður, djúpir & grunnirtoppar, kertatoppar, framlengingar. 7.990,- Verð Kr. Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899 Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði og forstöðumaður rannsóknarseturs um kerfislæga áhættu við London School of Economics, segir marga sérfræðinga utan Íslands hafa notað reynslu Íslendinga af höftunum til stuðnings tilteknum sjónarmiðum. Nóbelsverðlaunahafarnir í hag- fræði, Paul Krugman og Joseph Stiglitz, séu í þeim hópi. „Ísland hefur verið notað af ákveðnum aðilum erlendis. Má þar nefna fræga hagfræðinga og Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn sem hafa notað Ísland til að réttlæta skoðanir á því hvernig fyrirkomulag á fjár- málamörkuðum á að vera. Þess vegna hefur verið alþjóðlegur vilji til þess að viðhalda höftunum. Ísland er þá notað sem kennslubókardæmi um nýja hugsun varðandi fyrir- komulag fjármálamarkaða og eftir- lit. Maður rekst á mikið af svona fólki í akademíunni og líka innan stofn- anageirans. Það er mikið deilt um fyrirkomulag reglugerða til að tryggja kerfislægan fjármálastöðug- leika. Hvað eiga að vera miklar regl- ur um fjármálamarkaði? Margir vilja hafa meiri stjórn á flæði pen- inga, enda geti flæði peninga inn og út úr löndum valdið óstöðugleika. Þetta er hug- myndafræði til jafns við að vera hagfræði. Að Ís- land skuli hafa sett á höft og að nú sé farið að ganga svona vel efnahagslega eft- ir hrunið er, sam- kvæmt þessari túlkun, haft til sannindamerkis um að höftin hafi verið rétt. Ísland hefur fengið meira vægi vegna þessa,“ segir Jón. Ranghugmyndir um Ísland „Það hefur áhrif á þessa umræðu að mikil andstaða sé við höftin á Ís- landi. Margir hafa haft ranghug- myndir um höftin og Ísland og það vekur því athygli að svo mikil sam- staða sé um að afnema þau … Hrun- ið vakti mikla athygli á sínum tíma. Lönd sem setja höft eru yfirleitt í mikilli krísu. Losun hafta sendir því jafnan þau skilaboð að tekist hafi að ná tökum á vanda. Aftur á móti af- létti Kýpur höftum um daginn og það tók enginn eftir því. Því skyldi ekki gera of mikið úr því hvað áætl- unin á Íslandi þykir merkileg.“ bald- ura@mbl.is Notuðu höftin sem rök fyrir íhlutun  Prófessor vísar til umræðunnar ytra Jón Daníelsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Eðli netárása og -innbrota hefur tekið allmiklum breytingum und- anfarin ár. Er nú svo komið að skipulögð glæpasamtök og jafnvel ríki standa að baki slíku athæfi í stað einstaklinga líkt og áður þekktist. Geta þetta verið glæpir, svo sem blekkingar eða stuldur, sem í eðli sínu mega teljast hefðbundnir en aukast í umfangi vegna internetsins. Er þetta meðal þess sem fram kemur í skýrslu innanríkisráðherra um net- og upplýsingaöryggi. Aðal- verkefni skýrsluhöfunda er að móta stefnu stjórnvalda um net- og upp- lýsingaöryggi og vernd upplýsinga- innviða sem varða þjóðaröryggi, þ.e. upplýsingakerfa mikilvægra innviða samfélagsins. Er því í skýrslunni sett fram ákveðin framtíðarsýn, til 2026, og meginmarkmið stefnu svo ná megi takmarkinu. Framtíðarsýnin kveður á um að Íslendingar búi við internet „sem þeir geti treyst og þar séu í heiðri höfð mannréttindi, persónuvernd ásamt frelsi til athafna, efnahags- legs ávinnings og framþróunar. Örugg upplýsingatækni sé ein meg- instoð hagsældar á Íslandi, studd af öflugri öryggismenningu og traustri löggjöf. Jafnframt sé samfélagið vel búið til að taka á netglæpum, árás- um, njósnum og misnotkun persónu- og viðskiptaupplýsinga,“ segir í skýrslu starfshópsins sem settur var á fót árið 2013. Fjórir lykilliðir Meginmarkmið stefnunnar er í fjórum liðum. Sá fyrsti snýr að efldri getu og kveður á um að „almenn- ingur, fyrirtæki og stjórnvöld búi yf- ir þeirri þekkingu, getu og tækjum sem þarf til að verjast netógnum“. Í öðrum lið er mikilvægi bættrar getu til greiningar, viðbúnaðar og viðbragða sagt lykilþáttur. „Áfalla- þol upplýsingakerfa samfélagsins og viðbúnaður verði aukinn þannig að hann standist samanburð við áfalla- þol upplýsingakerfa á Norður- löndum.“ Verður það m.a. gert með bættri getu við greiningu á ógnum, samvinnu og með því að öryggi verði gert að órjúfanlegum þætti við þró- un og viðhald net- og upplýsinga- kerfa. Þá er kveðið á um bætta lög- gjöf og mikilvægi þess að íslensk lög séu „í samræmi við alþjóðlegar kröf- ur og skuldbindingar á sviði net- öryggis og persónuverndar.“ Fjórða atriðið er svo traust löggæsla sem býr yfir eða hefur aðgang að „fag- legri þekkingu, hæfni og búnaði til að leysa úr málum er varða net- og upplýsingaöryggi.“ Til að hrinda stefnunni í fram- kvæmd er lögð til skipan netörygg- isráðs, með fulltrúum opinberra að- ila, og myndun samstarfshóps um net- og upplýsingaöryggi þar sem hagsmunaaðilar eiga einnig fulltrúa. AFP Internetið Hættur tengdar netinu hafa breyst nokkuð að undanförnu og hefur starfshópur hér á landi unnið að mótun aðgerðaáætlunar. Netógn kallar á aukin viðbrögð  Framtíðarsýn sett til ársins 2026

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.