Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
VIÐTAL
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
„Það þarf að gefa íslensku bönkunum
eins mikið frelsi og mögulegt er en á
meðan Ísland er með krónu sem
gjaldmiðil á ekki að heimila að ein-
staklingar og minni fyrirtæki fái lán í
erlendri mynt ef innkoma þeirra er í
krónum,“ segir Rafael Martínez Fer-
reira, prófessor í fjármálum við IE-
viðskiptaskólann í Madrid en hann
var staddur hér á landi til að halda
erindi á fundi hjá spænsk-íslenska
verslunarráðinu í gær. Hann segir að
stór fyrirtæki sem eru með tekjur í
erlendri mynt geti tekið slík lán en
þar sem sveiflur í gengi geti verið of
miklar sé ekki skynsamlegt fyrir
rekstrareiningar eins og heimili og
smærri fyrirtæki sem eigi viðskipti á
íslenskum markaði með íslenskum
krónum að taka lán í erlendri mynt.
Jafnvel þó að það væri freistandi þar
sem vextir á lánum eru mun lægri er-
lendis en hér á landi.
Á Spáni eru annars vegar hefð-
bundnir bankar og svo sparisjóðir og
segir Rafael að bankakerfið hafi virk-
að mjög vel. „Það hefur enginn banki
orðið gjaldþrota á Spáni sem er ann-
að en það sem gerðist með marga
banka í Þýskalandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum.“ Hann segir að
helsta ástæða þess að bankar á Spáni
lifðu af fjármálahrunið sé að þeir hafi
verið mjög vel reknir í gegnum tíð-
ina. „Vandamálin verða til þegar
verðmæti eigna verður lægra en
verðmæti skulda. Lánastarfsemi
þarf að stjórna mjög vel til að ekki
fari illa. Markmiðið á að vera að fá
lánið endurgreitt með ávöxtun. En
fólk þarf að geta borgað lánin til baka
því það er ekki hægt að sækja pen-
inga til fólks sem á þá ekki til.“ Hann
nefnir að verðtryggð lán og lán í er-
lendri mynt geti breyst fyr-
irvaralaust og fólk geti þá jafnvel
ekki greitt þau til baka þar sem þau
hafi hækkað of mikið. „Að endingu
þarf að afskrifa hluta eða jafnvel allt
lánið sem er mjög sársaukafullt.“
Viðskiptaafgangur í fyrsta sinn
Rafael segir að efnahagslífið á
Spáni hafi breyst heilmikið til batn-
aðar að undanförnu. Hann nefnir
sem dæmi að viðskiptajöfnuður hafi
verið í fyrsta skipti jákvæður í
marga áratugi. „Á minni ævi hef ég
aldrei áður séð jákvæðan við-
skiptajöfnuð og er þetta því í fyrsta
skipti sem er viðskiptaafgangur með
meiri útflutningi en innflutningi.“
Hann segir að síðustu 6 árin hafi
efnahagslífið farið batnandi þó að
enn sé mikið atvinnuleysi. „Atvinnu-
leysi er ennþá vandamál á Spáni og
líklega eitt af stærri vandamálunum í
efnahagslífinu.“ Atvinnuleysið
mældist fyrir nokkrum árum 26%,
núna mælist það 22% og áætlanir
gera ráð fyrir að atvinnuleysið kom-
ist undir 20% í lok árs 2016. Rafael
segist mundi vilja sjá atvinnuleysið
vel undir 10% og þó að það hafi tekist
að minnka það töluvert þá sé það
ekki nægilega mikil lækkun. Hann
segir að yfirvöld hafi komið með nýja
vinnulöggjöf fyrir um 2 árum sem
átti að liðka til á vinnumarkaði en tel-
ur að það nægi ekki. „Það þarf að
ganga miklu lengra í því að gera
kerfið einfaldara milli atvinnurek-
enda og launþega.“
Evran á að tryggja stöðugleika
Hvað evruna varðar telur Rafael
að það sé nauðsynlegt að bæði Spánn
og Grikkland haldi sig við þann
gjaldmiðil. „Það leysir engan vanda
að yfirgefa evruna. Það vilja allir búa
við stöðugleika í efnahagslífinu og
hún á að tryggja það. Ef við tækjum
upp annan gjaldmiðil værum við ekki
að skapa slíkt umhverfi.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rafael Hann segir að efnahagslífið á Spáni hafi tekið jákvæðum breytingum að undanförnu. Atvinnuleysið sé með-
al annars að minnka og í fyrsta skipti í mjög langan tíma hafi útflutningur landsins verið meiri en innflutningur.
Bankar láni í sömu
mynt og innkoma
Enginn banki á Spáni gjaldþrota Atvinnuleysi minnkar
Spánn – Ísland
» Íbúafjöldi á Spáni er 47
milljónir.
» Landsframleiðsla á hvern
íbúa Spánar er 29.000 dollarar
eða 3,9 milljónir króna.
» Íbúafjöldi á Íslandi er 325
þúsund.
» Landsframleiðsla á hvern
íbúa Íslands er 47.000 dollarar
eða 6,2 milljónir króna.
„Ég hef væntingar um að Apple
muni gera ApplePay-greiðsluleið
sína aðgengilega hér á landi áður
en langt um líður.“ Þetta segir Við-
ar Þorkelsson, forstjóri Valitor, en
fyrirtæki hans var ásamt fimm öðr-
um valið úr hópi 150 færsluhirða
sem starfa á Evrópumarkaði til að
þjónusta ApplePay sem nú hefur
hafið innreið sína á Bretlandsmark-
að. Þjónustan verður veitt af Val-
itor í nánu samstarfi við bandaríska
fyrirtækið Stripe en það starfar
meðal annars með Twitter og Face-
book auk Apple. Þannig munu
breskar verslanir og þjónustuaðilar
geta frá og með 1. júlí næstkomandi
geta boðið viðskiptavinum sínum
upp á greiðsluleið í gegn ApplePay.
Samhliða þessu nýja samstarfi
hefur Viðar átt samtöl við tengiliði
samstarfsins hjá Apple og hvatt þá
til að kanna möguleikann á því að
opna fyrir þjónustu sína á Íslandi,
ekki síst vegna þess hversu hátt
hlutfall Íslendinga notast við
greiðslukort og hversu mikil far-
símanotkun er í landinu.
Tekjur Valitor erlendis hafa tvö-
faldast á einu ári og nema þær nú
um 40% af heildartekjum þess. Við-
ar segir að hann búist við áþekkri
aukningu á næstu misserum.
„Tekjuaukningin erlendis hefur
verið mikil enda eru sóknarfærin
hér heima ekki mjög mörg. Við ger-
um ráð fyrir því að innan fárra ára
verði erlendar tekjur Valitor um
70-80% af heildartekjum fyrirtæk-
isins.“
Vonar að ApplePay
komi senn til Íslands
Morgunblaðið/Ómar
Kort Viðar Þorkelsson er ánægður
með nýjan samning við Apple.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
ÍSLENSKAR BÆKUR
VIKAN 03.06.15 - 09.06.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Risaeðlur í Reykjavík
Ævar Þór Benediktsson
Breyttur heimur
Jón Ormur Halldórsson
Skutlubók Villa
Vilhelm Anton Jónsson
Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
Hilma
Óskar Guðmundsson
Hamingjuvegur
Liza Marklund
Blóð í snjónum
Jo Nesbø
Tapað fundið
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Auga fyrir auga
Roslund & Hellström
Skuggadrengur
Carl-Johan Vallgren