Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 20

Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 er leiðandi framleiðandi LED lýsingar og stýringa og býður heildarlausnir fyrir hótel og ráðstefnusali Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum, lýsingarhönnuðum og arkitektum Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi. www.reykjafell.is Skúli Halldórsson sh@mbl.is Tony Abbott, forsætisráðherra Ástr- alíu, hvatti í gær Kyrrahafsþjóðirnar í Asíu til að berjast gegn Ríki íslams og sagði að samtökin vildu ná ítökum á heimsvísu. Féllu ummælin á ráð- stefnu í Sydney um aðgerðir gegn hryðjuverkaáróðri. Á ráðstefnunni, sem lýkur í dag, eru ráðherrar 25 landa, þar á meðal Malasíu, Singapúr, Japans, Laos, Ví- etnams og Nýja-Sjálands. Þá eru þar einnig fulltrúar frá Google, Facebo- ok og öðrum samfélagsmiðlum. Meira en hundrað ástralskir borg- arar berjast fyrir íslamista í Mið- Austurlöndum samkvæmt upplýs- ingum frá Ástralíu. Yfirvöld þar í landi hækkuðu á síðasta ári viðbún- aðarstig í þriðja stig af fjórum og hafa ráðist í töluverðar aðgerðir gegn hryðjuverkum síðan þá. „Ríki íslams mun ráðast gegn sér- hverri manneskju og sérhverri rík- isstjórn, með einföld skilaboð: „Gefðu þig okkur á vald eða deyðu.“ Þú getur ekki samið við slíkan aðila heldur aðeins barist gegn honum,“ sagði Abb- ott í opnunarræðu sinni. Koma ummælin í kjölfar ákvörðunar Baracks Obama Bandaríkja- forseta um að senda aukinn herafla til Íraks til að þjálfa herlið ríkisstjórnar- innar. Tony Abbott varar ná- grannalönd við Ríki íslams  Segir skilaboðin vera: „Gefðu þig okkur á vald eða deyðu“ Grikkir aftur í loftinu Gríska ríkissjónvarpið hóf aftur út- sendingar í gær eftir að þær höfðu legið niðri síðastliðin tvö ár. Var út- sendingum hætt í sparnaðarskyni en þáverandi ríkisstjórn hafði meðal annars kallað rekstur sjónvarpsins „eyðsluparadís“. Eitt helsta kosn- ingaloforð Syriza-flokksins sem vann kosningarnar í janúar var að opna fyrir útsendingar sjónvarpsins á ný. Segir flokkurinn að öllum 2.600 fyrrverandi starfsmönnum hafi ver- ið boðin vinna við stöðina. AFP Útsending Aftur eftir 2 ára hlé. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Yfirstandandi þurrkur í Norður-Kóreu gæti vald- ið því að uppskera landsins skerðist um allt að tuttugu prósent. Kemur þetta fram í tilkynningu frá svokölluðu sameiningarráðuneyti Suður-Kór- eu, sem fylgist grannt með málefnum hins ein- angraða nágranna í norðri. Áætlar ráðuneytið að fæðuframleiðsla í Norð- ur-Kóreu, undir stjórn einræðisherrans Kim Jong-Un, muni minnka um allt að tíu prósent í ár, en sú tala mun hækka haldi þurrkarnir áfram, að því er segir í tilkynningunni. Fjölmargir bændur í landinu hafa horfið frá hrísgrjónaræktun og gróðursetja þess í stað hveiti, þar sem vatn er af sífellt skornari skammti. Yfirvöld hafa nú einnig brugðið á það ráð að skipa öðrum bændum að gera sömu ráð- stafanir, en þau hafa lýst þurrkunum sem þeim verstu hingað til og kvatt almenna borgara og herlið til aðstoðar. Vatnsbirgðirnar minnkað frá síðasta ári Sameiningarráðuneytið segir að ef vatnsskort- urinn vari fram í næsta mánuð sé líklegt að kart- öflu- og hrísgrjónauppskera muni fara ört dvín- andi, auk þess sem hveitivöxtur geti einnig orðið fyrir áhrifum þurrksins. Norður-Kórea þurfti einnig að kljást við mikla þurrka á síðasta ári, en þá var vandinn leystur með því að notast við vatn frá stíflum og uppi- stöðulónum. Þurrkurinn í ár hefur þó ógnað þeim birgðum og ekki er sama vatnsmagn til staðar og fyrir þurrkinn í fyrra. Á þeim tíma hafði úrkoma í landinu aðeins náð 61% af meðalúrkomu árin 1981 til 2010. Nú í maí var hlutfallið ennþá lægra og hafði aðeins rignt 56,7% af úrkomu meðalárs. Magn framleiddrar fæðu í landinu nálgast það sama og var í hungursneyðinni á árunum 1994 til 1998 þegar rúm hálf milljón manna lét lífið, sam- kvæmt upplýsingum frá bandarískum stjórnvöld- um. Gögn Sameinuðu þjóðanna sýna að sjötíu prósent íbúa landsins búa við óöryggi hvað varð- ar fæðu. Suður-Kórea samþykkti í apríl að senda fimm- tán tonn af áburði auk landbúnaðartækja norður yfir landamærin, í fyrsta skipti í fimm ár. Rík- isstjórnin í Seúl hefur hins vegar neitað að út- vega mataraðstoð nema stjórnvöld í Pjongjang samþykki að ganga að samningaborðinu á ný. Óttast hungursneyð í N-Kóreu  Fjölmargir bændur hafa horfið frá hrísgrjónaræktun  70% íbúa landsins búa við fæðuóöryggi  Suður-Kórea sendi 15 tonn af áburði auk landbúnaðartækja AFP Glaðbeittur Þessari mynd af Kim Jong-Un var dreift í byrjun júní. Indónesískur bóndi sinnir bústörfum á meðan eldfjallið Sinabung spýr ösku yfir nærliggjandi svæði. Á þriðja þúsund manns hefur verið gert að rýma heimili sín eft- ir að stjórnvöld Indónesíu færðu varúðarstig vegna eld- fjallsins í það hæsta mögulega. Eldfjallið, sem er á norðurhluta eyjunnar Súmötru, hefur gosið oft og með reglulegu millibili síðan í ágúst árið 2010. Hafði fjallið þá legið í dvala í rúmar fjórar aldir. AFP Bóndinn lætur gosið ekki á sig fá Þrjú þúsund manns verið gert að rýma heimili sín á Súmötru Í september á síðasta ári höfðu um þúsund manns farið frá Kyrrahafssvæði Asíu og gengið til liðs við Ríki íslams, sam- kvæmt upplýsingum frá Banda- ríkjaher. Meira en 500 hafa far- ið frá Indónesíu, fjölmennasta múslimalands heims, auk tuga fólks frá Malasíu. Hafa samtökin ákveðið að stofna heila deild utan um þennan fjöl- menna hóp sökum þessa. Þúsund manns NÝLIÐUN Í KYRRAHAFI Tony Abbott

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.