Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.06.2015, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 Eftir barnaskóla fór Sigríður Auður í Kvennaskólann í Reykja- vík: „Hann var þá gagnfræðaskóli, eingöngu ætlaður stúlkum, og þar var haldið uppi aga.“ Sigríður Auður lauk stúdents- prófi af náttúrufræðibraut frá MR, stundaði nám í lögfræði við HÍ og lauk þaðan embættisprófi 1991: „Árin í lagadeildinni voru krefjandi en skemmtileg. Þar eignaðist ég góða vini. Við erum sjö vinkonur úr lagadeildinni sem höfum haldið hópinn og hittumst alltaf einu sinni í mánuði. Þetta eru yndislegar og öflugar stelpur.“ Sigríður Auður var m.a. lögfræð- ingur Neytendasamtakanna um skeið. Hún hefur starfað í umhverf- is- og auðlindaráðuneytinu frá 1998, var skrifstofustjóri á nokkr- um sviðum þess, staðgengill ráðuneytisstjóra í sjö ár og svo skipuð ráðuneytisstjóri í mars sl. Þar með urðu í fyrsta skipti fleiri konur ráðuneytisstjórar en karlar. Sigríður Auður var stundakenn- ari í umhverfisrétti við lagadeild HR um skeið: „Ég hef mjög gaman af því að sinna umhverfismálum, þau eru svo fjölbreytt og tengjast mjög daglegu lífi okkar.“ Sigríður Auður hefur setið í og stýrt fjölda nefnda vegna starfa sinna. Hún er m.a. formaður stjórnar Ofanflóðasjóðs. Áhugamál Sigríðar Auðar tengj- ast útivist og ferðalögum: „Við fjöl- skyldan ferðumst töluvert, bæði innanlands og utan og með vinum okkar. Skíðaferðirnar eru ekki síst í miklu uppáhaldi. Það er þessi frelsistilfinning, að vera á fjöllum á skíðum, njóta víðáttunnar og út- sýnis og geta tæmt hugann. Svo er ég að fikra mig áfram í golfinu. Félagsskapurinn og útiver- an eru helsti kostirnir við golfið, færnin og keppnisandinn hljóta svo að fylgja í kjölfarið.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar Auðar er Vilhjálmur Örn Sigurhjartarson, f. 16.3. 1962, viðskiptafræðingur og forstöðumaður hjá Samskipum. Foreldrar hans: Sigurhjörtur Pálmason, f. 29.1. 1926, d. 28.4. 2001, byggingarverkfræðingur, Reykjavík, og Unnur G. Vilhjálms- dóttir, f. 2.7. 1935, skrifstofumaður í Reykjavík Dóttir Sigríðar Auðar og Vil- hjálms Arnar er Unnur Svala Vil- hjálmsdóttir, f. 4.11. 1996, nemi í Verslunarskóla Íslands. Systkini Sigríðar Auðar eru Stef- án Már Arnarson, f. 19.6. 1957, verslunarmaður í Reykjavík; G. Svala Arnardóttir, f. 16.11. 1959, leikhúsfræðingur og listgreina- kennari í Reykjavík, og Helgi Arn- arson, f. 7.3. 1970, sérfæðingur hjá Nýherja, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Sigríðar Auðar eru Örn Helgason, f. 21.5. 1932, sál- fræðingur í Reykjavík, og Val- gerður Þóra Benediktsson, f. 8.5. 1935, bókasafnsfræðingur í Reykja- vík. Úr frændgarði Sigríðar Auðar Arnardóttur Sigríður Auður Arnardóttir Elín Guðmundsdóttir húsfr. í Botni Bjarni Aron Þorláksson b. í Botni í Mjóafirði við Djúp Gunnfríður Bjarnadóttir húsfr. á Björk Helgi Daníelsson b. á Björk í Eyjafirði Örn Helgason sálfr. í Rvík Kristbjörg Helgadóttir húsfr. í Eyjafirði Daníel Tryggvi Þórðarson b. á Björk í Eyjafirði Finnboga Árnadóttir húsfr. í Reykhólasveit Oddur Jónsson héraðslæknir í Reykhólasveit Sigríður Oddsdóttir Benediktsson húsfr. í Rvík Stefán Már Benediktsson kaupsýslum. í Rvík Valgerður Þóra Benediktsson bókasafnsfr. í Rvik Valgerður Einarsdóttir Zoëga húsfr. í Rvík Einar Benediktsson skáld og athafnam.í Rvík Einar Benediktsson sendiherra Pétur Einarsson framkvæmdastj. í Rvík Katrín Einarsdóttir framkv.stj. þýðingarmiðst. utanríkisráðuneytisins Ragnheiður Kristín Benediktstson uppeldisfr. og kennari Orri Hauksson forstjóri Símans Þórdís Hauksdóttir kennari Katrín Svala Benediktsson Daly viðskiptafr. í Bandaríkjunum Margrét Svala Benediktsson cand. med. frá Berlín Oddur Benediktsson prófessor í tölvunarfr. við HÍ Guðrún Oddsdóttir sálfr. í Rvík Katrín Oddsdóttir lögm. í Rvík Auður Helgadóttir húsfr. á Húsavík Hreinn Hjartarson verkfr. á Húsavík Gaukur Hjartarson verkfr. og skipulags- og byggingarfulltr. í Þingeyjarsýslu Hólmdís Hjartardóttir hjúkrunarfr. í Rvík Kjartan fæddist á Völlum íSvarfaðardal 12.6. 1894.Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson, bóndi og barnakennari, og Jórunn Jóhannsdóttir húsfreyja. Þau fluttu síðar að Ytra-Kálfskinni á Árskógsströnd en þar lést Jórunn er Kjartan var fjögurra ára. Hann ólst síðan upp hjá föðursystur sinni, Sesselju Jónsdóttur, og manni henn- ar, Guðmundi Magnússyni bónda í Arnarnesi. Eiginkona Kjartans var Kristjana Blöndhl er lést 1972 og eignuðust þau þrjú börn, Áslaugu Cassata, Magnús Blöndahl, og Gunnar Dofra. Kjartan lauk prófum frá Gagn- fræðaskólanum á Akureyri, stúd- entsprófum frá MR 1915, embættis- prófi í læknisfræði frá HÍ 1920, varð Member of Royal College of Surg- eons í Bretlandi 1922, licentiat of Roylal College of Physicinas í Lond- on, nam við St. Bartholomews Hospital í London 1921-22 og við Royal Infirmary í Edinborg 1922. Kjartan var héraðslæknir í Borg- arneshéraði 1923 en fór til Vínar sama ár og lauk þar prófum í augn- lækningum við Üniversitats Augen- Klinik 1925. Hann var augnlæknir í Reykjavík 1928-45 og einhver fær- asti sérfræðingur á því sviði hér á landi á þeim tíma, þótti sérlega traustvekjandi læknir og var auka- kennari í augnlækningum við lækna- deild HÍ 1927-54 með hléi 1944-48 er hann fór til Bandaríkjanna. Hann sinnti lækningum fyrir Bandaríkja- menn á stríðsárunum og í framhaldi starfaði hann í New York í tvö ár. Kjartan var tæplega meðalmaður á hæð, spengilega vaxinn og grann- holda, samsvarði sér vel. Hann var knár og lipur í hreyfingum, enda stundaði hann íþróttir á yngri árum. Kjartan þótti sérlega handlaginn og fær skurðlæknir, hafði þægilega barítón rödd, talaði skírt og rólega og bjó yfir miklum orðaforða. Hann var meistari samræðulistar, enda vel menntaður og hugmyndaríkur, víð- lesinn, glaður og reifur og jafnan með spaugsyrði á vörum, mikill ferðamaður, brá sér oft upp til dala og fjalla og tók þá fallegar ljós- myndir. Kjartan lést 25.6. 1956. Merkir Íslendingar Kjartan Ólafsson 90 ára Elín Ágústsdóttir Margrét Ólafsdóttir 85 ára Gísli Felixson Katrín Marteinsdóttir 80 ára Guðmundur Þórisson Gunnar Gunnlaugsson Hadda Árný Hálfdanardóttir 75 ára Ingibjörg Sigurðardóttir Sigurður Þórarinsson Skúli Svanberg Engilbertsson Steinunn Guðmundsdóttir Örn Herbertsson 70 ára Fjóla Guðbjartsdóttir Sigrún Magnúsdóttir Unnur Jónsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson 60 ára Brynjólfur Gíslason Eufemia Berglind Guðnadóttir Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir Guðrún Sveinsdóttir Hulda Hafdís Helgadóttir Jón Björnsson Ólöf Gerður Helgadóttir Stefán Ásgeirsson Stefán Eðvald Stefánsson 50 ára Anna Margrét Hauksdóttir Björgvin Árni Gunnarsson Edvard Dan Eðvarðsson Halla Jóhannesdóttir Helga Eygló Hilmarsdóttir Helgi Kristinn Hannesson Jaroslaw Marek Swic Kristín B... Reynisdóttir Ólöf Björg Hjaltalín Jónsdóttir Valgarð Ingibergsson Yongxiang Li 40 ára Andri Már Jóhannsson Björg Guðmundsdóttir Carsten Petersen Densie Lebumfacil Soleminio Guðmundur Geir Björnsson Guðmundur Óli Sveinsson Jón Eiríkur Jóhannsson Muhammad Azfar Karim Nína Hildur Oddsdóttir Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Þórunn Elsa Bjarnadóttir 30 ára Atli Freyr Marteinsson Ásgeir Ingi Einarsson Dóra Björk Magnúsdóttir Friðjón Árni Sigurvinsson Guðmundur Geir Einarsson Halla Bryndís Jónsdóttir Ívar Kristinsson Ívar Örn Marteinsson Kristín Stefánsdóttir Kristján Ingvi Einarsson Kristrún Guðmundsdóttir Marta Maria Wiacek Regína Ósk Óðinsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sigurður býr á Suðurnesjum, lauk próf- um í megatróník – há- tæknifræði frá HÍ, rekur fyrirtækið Mekano og fékk nú nýverið viður- kenningu sem besti nýliði í rekstri sprotafyrirtækja frá Íslandi á vegum Nord- ic Startup Awards. Foreldrar: Hannes Sölvi Valsson, f. 1954, við- skiptafræðingur og Hulda Hreindal Sigurðardóttir, f. 1959, listakona. Sigurður Örn H. Hannesson 30 ára Sigmar býr í Kópavogi, lauk BSc-prófi í tölvunarfræði frá HR og er hugbúnaðarsérfræð- ingur við Landsbankann. Maki: Helena Rós Hrafn- kelsdóttir, f. 1982, starfs- maður hjá Símanum. Synir: Hjörtur Hilmar, f. 2003, og Magnús Ingi, f. 2012. Foreldrar: Jóhanna I. Sig- marsdóttir, f. 1944, og Kristmundur M. Skarp- héðinsson, f. 1955. Sigmar Ingi Kristmundsson 30 ára Ragnheiður ólst upp í Háholti í Gnúpverja- hreppi, lauk BS-prófi í bú- vísindum frá LbhÍ og er bóndi í Akurnesi I. Maki: Sveinn Rúnar Ragnarsson, f. 1987, bóndi í Akurnesi I.. Dætur: Björg, f. 2010, og Auður, f. 2013. Foreldrar: Már Haralds- son, f. 1953, d. 2004, bóndi, og Margrét Stein- þórsdóttir, f. 1946, leik- skólakennari og bóndi. Ragnheiður Másdóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Laugavegi 34, 101 Reykjavík Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N Buxur 14.900,- stk. Buxur frá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.