Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er óþarfi að láta hugfallast þótt
aðrir hafi ekki alltaf þann tíma fyrir þig sem
þú vilt. Þú ert áreiðanleg/ur og góð mann-
eskja.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að koma skikki á hlutina og
skila því starfi sem þér er ætlað. Varastu að
láta hugmyndaflugið hlaupa með þig í gönur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Auðveldasta leiðin til að komast
klakklaust í gegnum daginn er að gera ekki
svona miklar kröfur til annarra. Sumt verður
maður bara að gera sjálfur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú munu hlutirnir gerast hratt í lífi
þínu. Þú áttar þig á því hversu mikil áhrif þú
hefur á aðra og því sýnir þú kurteisi og
persónutöfra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sýndu öðrum tillitssemi og umburðar-
lyndi og þú munt fá þá framkomu endur-
goldna þúsundfalt. En gakktu hægt um gleð-
innar dyr og mundu að á morgun er nýr
dagur sem krefst þín.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt þú berir ábyrgð þýðir það ekki að
þú þurfir að gera allt sjálf/ur og megir ekki
þiggja aðstoð. Framkoma þín fer ekki framhjá
augum yfirmanns þíns.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ekki er ólíklegt að fyrrverandi elskhugar
og/eða ástkonur verði á vegi þínum á næst-
unni. Nú er kominn tími til að bera sig eftir
því sem þú óskar þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að halda ró þinni hvað
sem tautar og raular. Einbeittu þér að styrk-
leikum þínum, þú býrð yfir mörgum. Aðgát
skal höfð í nærveru sálar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að vinna í því að ná tök-
um á tilfinningum þínum. Taktu þér frí frá
amstri dagsins og láttu aðra um þau verk
sem þú þarft ekki að sinna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt aðrir sjái þig ekki í réttu ljósi
núna mun verða breyting á því þegar árangur
verka þinna kemur í ljós. Vertu einlæg/ur í
hugsun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það sem þig langar til þess að
gera virðist glórulaust. Ekki láta smáatriðin
gleypa þig, taktu þér stund til þess að skoða
málið í heild, í ró og næði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er góður dagur til að velta fyrir
sér hvernig eigi að bæta samskiptin við aðra.
Vertu opin/n fyrir nýju fólki því að ókunnugir
eru í raun vinir sem þú hefur ekki enn kynnst.
Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðií Leirinn á mánudaginn: „Nú
þegar fyrsta haustlægðin herjar á
okkur leiði ég hugann enn og aftur
að alvöru sumarnóttum (eins og við
fengum á laugardag) og nauðsyn
þess að vaka að minnsta kosti eina
fram yfir sólarupprás.
Húmblá nótt er gegnsæ eins og gler
af gætni sinnir börnum fiðruð móðir
dottar lítið lamb sem markað er
það leggur næsta dag á fjallaslóðir
jafnvel vindblær virðist hægja á sér
þó vaka sumir, stundar njóta hljóðir
því innan skamms mun dagsbrún knýja
á dyr
draumræn andrá, veröld stendur kyrr.
Tveim dögum síðar skrifaði Ólaf-
ur Stefánsson í leirinn: „Nú eru allir
að tala um bankamál, útgönguskatt,
stöðugleikaskatt og nauðasamninga
et cetera og álitið sjálfsagt að allir
séu með á nótunum, bæði Jón og dr.
Jón. Arionbanki er mikið nefndur en
það er nýjasta nafnið á gamla Bún-
aðarbankanum, og tekið úr grískri
goðafræði, ef rétt er munað. Áður
hét hann Kaupþing-banki, og enn
áður Búnaðarbanki Íslands. Það
þótti mér mest traustvekjandi og
sérstaklega myndin af sáðmann-
inum sem stóð styrkum fótum í ís-
lenskri jörð og lét jörðina gefa arð-
inn með hjálp guðs og góðra vætta.
Ég sé eftir Búnaðarbankanum
og blessa hann sífellt í þankanum.
Hann gafst vel í sveitum
var góður í leitum,
en fremstur í Yenum og Frankanum.“
Hallmundur Kristinsson hefur
gaman af því að leika sér að orðum
og er þá ekki allt sem sýnist:
Lifði á drafla, mysu og mjólk
og munaðarfullum syndum.
Það sem brallaði þetta fólk:
Það var með ól í kindum!
Hjálmar Freysteinsson veit hvað
klukkan slær:
Engin gerir axarsköftin
okkar frækna stjórnarlið.
Nú er verið að herða höftin
og hefja þannig afnámið.
Tíðin hefur verið rysjótt. Fía á
Sandi getur ekki orða bundist:
Fátt er hér sem fréttmætt er
fíflast úti rokið.
Lítið sólbað, lokið er
því lognið, það er fokið.
Eftir korter, upp hann rauk
aldrei nokkur friður.
Sólstóllinn til Fjandans fauk
næst festi ég greyið niður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af alvöru sumarnóttum
og Arionbanka
Í klípu
,,AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ RÁÐA ÞIG
AFTUR? SEINAST ÞEGAR Á REYNDI, ÞÁ
HOPPAÐIRU AF SKIPINU.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
,,ÞETTA ER SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ ÞITT.
EF ÞÚ SKALLAR ÞENNAN, ÞÁ ERTU REKINN.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að komast að því
að hann er líka góður
dansari!!
EF ÞÚ BORÐAÐIR MINNA, ÞÁ
VÆRIRÐU LÉTTARI.
ÁHUGAVERÐ
KENNING...
BARA EF ÞAÐ VÆRI LEIÐ
TIL AÐ REYNA Á ÞAÐ.
HVERSU LENGI ÆTLARÐU
AÐ LÁTA ÞETTA RUSL FYLLA
HÚSIÐ AF FÝLU?!
HMMM... ÞETTA HLJÓMAR
EINS OG
BRELLUSPURNING...
Þó að rignt hafi eldi og brennisteiniþessa vikuna og blásið úr öllum
áttum hefur Víkverji ekki tekið eftir
því heldur horft bjartsýnn fram á
veginn. Aðgerð ríkisstjórnarinnar
um losun hafta, sem greint var frá í
vikubyrjun, og það sem henni hefur
fylgt hefur haft þessi áhrif.
x x x
Það blés ekki byrlega fyrirskömmu, útlit fyrir að flug
stöðvaðist, veitingahúsum og hót-
elum yrði lokað og ástandið yrði í
raun eins og á steinöld. En skyndi-
lega birti til og svo mikil var birtan
að enginn tók eftir því að Seðlabank-
inn hækkaði vexti um miðja viku.
x x x
Það er sumar í lofti og gaman aðvera til. Nokkrar gráður til eða
frá núllinu draga ekki úr gleðinni
frekar en nokkrir dropar úr lofti eða
blástur frá vinstri eða hægri, að
framan eða aftan, ofan eða neðan.
Hvað sem á dynur gengur Víkverji
sinn breiða veg og árangur lands-
manna lætur ekki á sér standa.
x x x
Sumir halda að lífið snúist um mið-bæjarhringinn í 101 og enginn sé
maður með mönnum nema hann
setjist þar niður og fái sér kaffi.
Það er fjarri sanni og eins og Guð-
mundur Hallvarðsson benti á í spjalli
við Moggann í vikunni er besta kaffið
að fá í Skoruvík á Langanesi. Te-
drykkjumenn þurfa samt ekki að
fara yfir lækinn til þess að ná í vatn-
ið.
x x x
Handboltalandslið karla sinntiskylduverki sínu í Ísrael í fyrra-
kvöld og er nú aðeins einu stigi frá
úrslitakeppni Evrópumótsins í Pól-
landi í janúar á næsta ári. Stigi sem
það ætlar að sækja á móti Svart-
fjallalandi í Laugardalshöll á sunnu-
dagskvöld fyrir fullu húsi.
x x x
Karlalandsliðið í fótbolta hefuraldrei staðið betur og tekur í
kvöld á móti Tékklandi í riðlakeppni
Evrópumótsins á Laugardalsvelli.
Þar verður fjörið og Víkverji leyfir
sér að vera bjartsýnn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Hvern þann sem kannast við mig fyrir
mönnum, mun og ég við kannast fyrir
föður mínum á himnum. (Mt. 10:32.)
VARAHLUTIR Í
RACER OGMTB TAX
FREE
DAGAR!
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
SKOÐAÐUÚRVALIÐOGVERÐINÁGAP.ISEÐAKÍKTU ÍHEIMSÓKN ÍFAXAFEN7!
LÉTTARIGREIÐSLUR
VAXTALAUST Í ALLT AÐ 6MÁNUÐI
Þegar þú verslar fyrir 75.000 eðameira getur þú dreift
greiðslunni vaxtalaust í allt að 6mánuði
FLEIRI HJÓL - HÆRRI AFSLÁTTUR
Ef fleiri en einn í fjölskyldunni kaupa sér
hjól þá eykst afslátturinn.
FJÖLSKYLDUDÍLLINN