Morgunblaðið - 12.06.2015, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 12.06.2015, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 helgina, að sögn Kára. Viðhafnar- útgáfan mun innihalda ljós- myndabók, aukalög og aukaútgáfur af lögum sem ekki hafa heyrst áður, sögu Ágætis byrjunar í máli og myndum o.fl., að sögn Kára. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarss 1999 Syfjuð Sigur Rós á milli trommara árið 1999. Kjartan fremstur, Jónsi sitjandi og Georg standandi. Orri tók við sem trommari sumarið 1999. Kjartan Már Ómarsson kmo@mbl.is „Þetta er sem sagt um flugslys sem verður í stríðinu árið 1941, í Kol- grafafirði. Það farast þarna sex breskir flugmenn. Eyrarsveit er mjög einangruð sveit á þessum tíma. Mannlífið fremur rólegt og stríðið hafði í rauninni ekkert kom- ið inn á gafl hjá þessu fólki, en þá verður þetta flugslys,“ segir Hjálmtýr Heiðdal um umfjöllunar- efni heimildarmyndar sinnar, Svartihnjúkur – Stríðssaga úr Eyr- arsveit, sem sýnd verður í kvöld í Bíó Paradís. „Bretarnir koma á staðinn og allt í einu fyllist sveitin af hermönnum. Þeir vissu að vélin hefði farist þarna í fjöllunum en vissu ekki hvar. Nema það að Bretarnir voru það illa búnir að það endar með því að íslenskir bændur eru skipaðir í leitarflokka og þeir finna vélina við Svartahnjúk, sem er innst í Kol- grafafirði. Það var hrikaleg að- koma. Það fundust bara fjögur lík af þeim sex sem áttu að vera þarna og út af þessu öllu hafa lifað sögur. Það er í raun þannig að við tökum þennan atburð og skoðum hann eins mikið og hægt er. Við finnum út hverjir mennirnir voru sem fór- ust, við tölum við ættingja þeirra, við tölum við flugmenn sem voru hér í stríðinu, sem segja okkur hvað þeir voru að gera og hvernig aðbúnaður þeirra var.“ Þrjár ferðir til Englands „Við fórum þrjár ferðir til Eng- lands til að ná í þetta fólk. Síðan erum við búnir að taka viðtal við fullt af fólki úr Eyrarsveit sem man þennan atburð, eins og hann hefði gerst í gær. Hún hefur lifað mjög sterkt, þessi saga. Þetta var nefnilega stór atburður þá. Stríðið skall svolítið allt í einu inn í veru- leika þess, en fólk hafði í raun ekki orðið mikið vart við stríðið fram að þessu. Þarna voru engir vegir. Það var aðeins einn sími í allri sveitinni og fólk var bara að stunda sinn venjulega búskap. Það er rifið upp úr sínum störfum, fer á fjöll og finnur þessi lík. En það finnast aldrei tveir, og þá spinnast sögur um hvað varð um þessa tvo. Það fundust hins vegar tvær fallhlífar, útspenntar, skammt frá slys- staðnum. Menn fóru strax að fabúl- era um það hvort einhverjir hefðu komist af úr slysinu. Svo gengur ís- lenska þjóðtrúin lengra og það eru alltaf að sjást tveir menn á gangi þarna, draugar. Þessar sögur eru allar í myndinni. Það er fólk sem segir þessar sögur og það segir það blákalt: Við sáum þessa menn og þeir gengu fram fyrir bílinn hjá okkur. Svo fer það að leita að spor- um í snjónum en ekkert finnst. Við erum með þrjú vitni að þessum at- burði. Það er fjöldi manns sem hef- ur orðið var við þessa tvo menn, á þessum stað þar sem líkin voru lögð til, innst í firðinum. Þetta er íslensk þjóðtrú, eða draugatrú get- um við sagt, og hún lifir þarna enn, ansi sterkt.“ Rúm þrjú ár í vinnslu - Hvernig kom þessi saga til þín? „Sá sem gerði handritið með mér, Karl Smári Sveinsson, er leið- sögumaður og er mikið á ferðinni. Hann heyrði þessar sögur og fór að rannsaka þetta. Við höfðum gert eina mynd saman áður og ákváðum að gera þessa heimildarmynd úr þessu.“ Er myndin búin að vera lengi í vinnslu? „Þrjú ár, rúm.“ Þið leituðuð ykkur styrkja í gegnum Karolina Fund, er það ekki? „Jú, það var til svolítið mikið af góðu stríðsmyndaefni sem var tek- ið hér á landi og það var dálítið dýrt að nálgast það og ég kaus líka að auka gæðin með því að uppfæra efnið. Taka gömlu myndirnar og keyra þær í gegnum tæknibúnað sem kemur þeim yfir í háskerpu. Það var allt saman lagað, en það er langt ferli og dýrt. Það lukkaðist hins vegar mjög vel. Söfnunin gekk ágætlega og við náðum þessari hálfu milljón sem við stefndum að.“ - Hafði þetta mál verið rann- sakað áður? „Það hafa nú bara lifað þessar sögur. Það eru til dagbækur þarna líka, eins og kemur fram í mynd- inni. Einn bóndinn sem var í leitar- hópnum hélt til dæmis dagbók. Annar sem var í leitarhópnum hafði sent bróður sínum bréf þar sem hann sagði frá þessu, þannig að það voru til heimildir af fyrstu hendi.“ - Heldurðu að þessir tveir muni einhvern tíma finnast? „Það er í sjálfu sér engin von. Það er búið að hrynja grjót þarna niður í sjötíu ár. Við fórum í neðri hluta gilsins, eins og er sýnt í myndinni, þar sem við erum að leita. En það er faktískt alveg bor- in von að nokkuð finnist.“ - Hvernig hafa sýningar gengið hingað til? „Við frumsýndum hana á Skjald- borgarhátíðinni á Patreksfirði og svo erum við búin að vera með tvær sýningar á Grundafirði, svo er það þessi frumsýning í Reykjavík í Bíó Paradís. Það er bara búið að semja um þessa einu sýningu enn sem komið er. Ef það verða fleiri sýningar verður það bara auglýst þegar þar að kemur. En við erum enn að ræða þau mál. Hún fer svo í sjónvarpið. En myndin er það ný að maður er ennþá bara í starthol- unum með þetta flestallt,“ segir Hjálmtýr. Stríðssaga úr Eyrarsveit  Íslensk heimildarmynd um flugslys breskra hermanna í Kolgrafafirði  Talið er að tveir gangi aftur Morgunblaðið/RAX Stóratburður „Hún hefur lifað mjög sterkt þessi saga. Þetta var nefnilega stóratburður þá,“ segir Hjálmtýr um umfjöllunarefni heimildarmyndar sinnar, Svartihnjúkur – Stríðssaga úr Eyrarsveit. FRÁ FRAMLEIÐANDANUM STEVEN SPIELBERG KEMUR EIN FLOTTASTA MYND SUMARSINS POWERSÝNING KL. 10:35 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus Ódýrt í bíó TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS SÝND KL. 5 SÝND KL. 5 Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.