Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Qupperneq 10
föstudagur 30. janúar 200910 Fréttir
Björn Ingi Hrafnsson fékk kúlulán frá KB-banka fyrir rúmar
60 milljónir króna árið 2005 til að kaupa hlutabréf í bankanum.
Hann var þá aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar forsætisráð-
herra. Björn Ingi seldi hlutabréfin í bankanum og græddi meira
en 20 milljónir. Sérfræðingur segir að Björn Ingi hafi staðið í
„hreinu braski“ og efast um siðferðilegt réttmæti viðskiptanna.
Björn Ingi segir ekkert ólöglegt við viðskiptin en viðurkennir að
spyrja megi um siðferðilegt réttmæti þeirra.
AÐSTOÐARMAÐURINN
FÉKK TUGMILLJÓNA LÁN
Björn Ingi Hrafnsson fékk rúmlega
60 milljóna króna lán frá KB-banka
árið 2005 til þess að kaupa hluta-
bréf í bankanum. Björn Ingi var að-
stoðarmaður Halldórs Ásgrímsson-
ar forsætisráðherra á þessum
tíma. Þetta kemur fram í
ársreikningi eign-
arhalds-
félagsins Caramba sem er í eigu
Björns Inga og eiginkonu hans. Skuld
Caramba við KB-banka er bókfærð
sem tæpar 62 milljónir í ársreikningi
félagsins.
Í ársreikningi Caramba fyrir árið
2006 kemur fram að Björn Ingi hafi
selt hlutabréfin í bankanum því í
lið sem heitir „eignarhlutir í
öðrum félögum“ kem-
ur fram að eign-
arhaldsfélagið
hafi aðeins
átt lítinn
hlut
í
Exista en ekkert í KB-banka. Árið
áður hafði Björn Ingi átt hlutabréf í
bankanum fyrir tæpar 60 milljónir.
Hagnaður Caramba 29
milljónir árið 2006
Á ársreikningnum fyrir árið 2006
kemur hins vegar hvergi fram að
Björn Ingi hafi keypt hlutabréf í KB-
banka fyrir rúmar 60 milljónir árið
2005. Það kemur ekki heldur fram að
hann eigi hlutinn í bankanum enn-
þá. Björn Ingi seldi eignarhlut sinn í
bankanum áður en ársreikningurinn
fyrir árið 2006 var gerður því skuldir
hans við lánastofnanir á árinu 2006
eru tæpar þrjár milljónir krónur
en voru rúmar 62 milljónir árið
áður.
Hagnaður félagsins
á árinu 2006 er bók-
færður sem tæp-
ar 29 milljón-
ir á árinu
2006
og
eigið fé félagsins var 5,5 milljónir í
árslok 2005 en rúmar 23 milljónir í
árslok 2006. Árið 2004 átti Caramba
hins vegar engar eignir samkvæmt
ársreikningum og hagnaðurinn af fé-
laginu var 0 krónur.
Björn Ingi seldi því hlutabréf
Caramba í KB-banka og borgaði lán-
ið aftur á milli þess sem hann skilaði
ársreikningi fyrir árið 2005 og 2006
og græddi félagið á því meira en 20
milljónir króna. En gengi hlutabréfa
í KB-banka hækkaði töluvert á milli
áranna 2005 og 2006. Björn Ingi stað-
festir þetta í samtali við DV.
Ekkert óeðlilegt
Björn Ingi segir að það hafi ekkert
verið óeðlilegt við þessi viðskipti sín.
Hann segir aðspurður að hann muni
ekki hvort um kúlulán hafi verið að
ræða eða ekki. Kúlulán er lán sem
veitt er til viðskiptavinar án þess að
borgað sé af því þar til undir lok láns-
tímans, en þá er höfuðstóll lánsins
greiddur út í einni greiðslu.
Hann segir Caramba hafa fengið
60 milljónirnar að láni frá KB-banka
til að versla með hlutabréf og að
hann hafi borgað lánið aftur. „Þetta
félag var í hlutabréfaviðskiptum og
það er ekkert að fela í þessum efn-
um,“ segir Björn.
Aðspurður segist hann hafa verið
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar þegar hann keypti hluta-
bréfin. „Ég hafði hins vegar verið
í hlutabréfaviðskiptum síðan árið
2001,“ segir Björn Ingi.
Aðspurður hvort lánið frá KB-
banka hafi verið veðlaust seg-
ir Björn Ingi að veð hafi verið í
hlutabréfunum sjálfum og svo
hafi að ákveðnu leyti verið per-
sónulegar ábyrgðir á bak við
eignarhaldsfélagið.
Björn Ingi segir aðspurð-
ur að vissulega megi spyrja
þeirrar spurningar hvort
það sé siðferðilega réttlæt-
anlegt að aðstoðarmaður
ráðherra eigi í slíkum viðskiptum.
„Það má eflaust velta öllu slíku fyr-
ir sér. Hins vegar gilda engar slíkar
reglur um það. Þá verða menn líka að
gefa út einhverjar reglur um hverjir
megi eiga í hlutabréfaviðskiptum og
hverjir ekki,“ segir Björn Ingi.
Björn Ingi segir að eignarhaldsfé-
lagið Caramba hafi ekki búið til nein
gríðarleg auðævi hingað til og að fé-
lagið standi ekki vel eftir efnahags-
hrunið í haust. „Allur sá sparnaður
sem var í félaginu tapaðist í efnahags-
hruninu í haust,“ segir Björn Ingi.
Aðspurður af hverju hann hafi
ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2007
segir Björn Ingi að það sé „í ferli“.
Hreint brask
Sérfræðingur í hlutabréfaviðskiptum,
sem DV hafði samband við og hefur
kynnt sér ársreikninga Caramba, seg-
ir að lánið til Björns Inga virðist hafa
verið kúlulán. „Það er alveg greini-
legt,“ segir sérfræðingurinn.
Sérfræðingurinn segir að það
áhugaverða við ársreikningana sé
hvernig Björn Ingi hefði staðið í skil-
um við bankann af láninu ef verðið
á hlutabréfunum hefði fallið. Hér er
spurningin hvort skuldin við bank-
ann hefði fallið á eignarhaldsfélagið
en ekki Björn Inga sjálfan. Eignar-
haldsfélagið hefði þá orðið gjaldþrota
en ekki Björn Ingi.
Aðspurður segir sérfræðingurinn
að hlutabréfaviðskipti Björns Inga
virðist ekki hafa verið ólögleg. Hann
segir hins vegar að um „hreint brask“
hafi verið að ræða hjá Birni Inga og
að það sé spurning hvort það sé við
hæfi að aðstoðarmaður forsætis- og
utanríkisráðherra sé að leika sér í
hlutabréfaviðskiptum á þennan hátt.
IngI F. VIlHjÁlmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Það má eflaust velta
öllu slíku fyrir sér. Hins
vegar gilda engar slík-
ar reglur um það. Þá
verða menn líka að
gefa út einhverjar regl-
ur um hverjir megi eiga
í hlutabréfaviðskiptum
og hverjir ekki.“
Björn Ingi í braski Björn Ingi
Hrafnsson fékk kúlulán til hluta-
bréfakaupa frá KB-banka árið 2005
sem færði honum tugmilljóna króna
hagnað. Björn Ingi var á þeim tíma
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar, forsætisráðherra Íslands.
mynd Karl PEtErsson
Kúlulán Kaupþings KB-banki
veitti Birni Inga Hrafnssyni 60
milljóna króna kúlulán til hluta-
bréfakaupa í bankanum. Björn
Ingi átti hlutabréfin til skamms
tíma, seldi þau svo og græddi
meira en 20 milljónir króna.
Kúlulán
Eingreiðslulán þar sem lántakand-
inn borgar ekki af láninu fyrr en
lánstímanum lýkur. Vextirnir geta
verið greiddir reglulega af láninu en
þeir geta líka verið endurlánaðir og
bætast þá við höfuðstólinn.