Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Qupperneq 26
FÖSTUDAGUR 30. jAnúAR 200926 Fókus
u m h e l g i n a
„Þetta er mjög þekkt verk sem ég hef
stúderað og kennt sjálf niðri í Leiklist-
arskóla. Eftir að Rústað var fyrst sýnt
fór af stað ný bylgja í leikritun í Eng-
landi og fleiri skáld fylgdu í kjölfarið.
Meðal þeirra eru leikskáld á borð við
Mark Raven Hill sem skrifaði Shopp-
ing and Fucking og Anthony Nielson
sem skrifaði Penetrator. Öll eiga þessi
leikskáld það sameiginlegt að takast
á við manneskjuna í sinni nöktustu
mynd. Það er ekki verið að fegra neitt
fyrir áhorfandanum heldur er þetta
ótrúlega hrár og sterkur realismi
sem er settur á svið og kannski svo-
lítið anti-leikhús að mörgu leyti,“ út-
skýrir Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri
verksins.
Þegar Rústað var frumsýnt í Lond-
on árið 1995 þótti verkið marka
ákveðin tímamót í leiklistarsögunni
og gagnrýnendur voru orðlausir. Ým-
ist af hrifningu eða skelfingu yfir of-
beldinu sem blasti við þeim á leik-
sviðinu.
Verkið verður að forminu
Rústað er fyrsta verk Söruh Kane sem
vék fyrir eigin hendi langt um aldur
fram, eingöngu tuttugu og átta ára
gömul, en hafði þá samið fimm leik-
verk, gert eina stuttmynd og skrifað
tvær blaðagreinar í hið virta dagblað
The Guardian.
„Hún er mjög áhugaverður kar-
akter. Hún var alveg sprenglærð og
var rétt rúmlega tvítug að taka mast-
ersnám í leikritun í Englandi þegar
hún skrifaði Rústað. Hún ætlaði sér
upphaflega að endurskrifa nútímaút-
gáfu af Lé konungi eftir Shakespeare.
Sjálf segir hún að í fyrri hálfleik sé
verkið tilraun með realisma eins og í
verkum Ibsens en í blálokin er verk-
ið búið að þróast meira í átt að Beðið
eftir Godot eftir Samuel Becket.
Hún leikur sér með það að byrja í
rosalega realisku formi, svo spreng-
ir hún formin og leikritið brotnar og
brotnar í sundur. Þetta er ótrúlega
áhugaverð tilraun með formið. Inni-
haldið í verkinu verður í rauninni að
forminu. Eftir því sem meiri spenna
byggist upp á milli karakteranna í
verkinu fer verkið að brotna í eining-
ar. Sjálfsmynd karakteranna brotnar
og um leið brotnar verkið svo inni-
haldið og formið haldast í hendur,“
segir Kristín
Elskað í ómögulegum heimi
Rústað er kennt við það sem fræði-
menn hafa skilgreint sem In Yer
Face-leikhús. Kristín segir það reynd-
ar skilgreiningu sem hafi alltaf farið
frekar mikið í taugarnar á höfundin-
um sjálfum.
„Sarah sagðist alltaf einfaldlega
vera að skrifa um alvöru manneskjur
og það sem skipti mestu máli í hennar
verkum er þessi þrá eftir ást og það að
vilja elska í heimi sem er hugsanlega
ómögulegur. Hún er að skoða mjög
mikið hvar siðferðismörk manneskj-
unnar liggja og hversu langt við erum
tilbúin að ganga til þess að lifa af.
Þessi verk eiga það sameiginlegt að
það er ekki verið að hlífa áhorfand-
anum heldur er hann frekar gerður
að vitni á ákveðinn hátt.
Þú sérð ákveðna hluti á leiksvið-
inu sem þú ert ekki vanur að sjá þar
og þá er ég ekki að tala um eitthvað
splatter og hrylling því þetta snýst
engan veginn um það. Það er meira
um intense andlegt ofbeldi. Þú ferð
inn í atburðarásina og líður frekar
eins og þú sért samsekur því þú ert
að sjá hluti sem þú ert ekkert vanur
að sjá í leikhúsi. Maður er kannski
vanari að sjá svona lagað í bíó en
leikhús er náttúrlega lifandi miðill
svo það er allt allt öðruvísi að sjá of-
beldið á leiksviði.“
Ógnvænlegir atburðir á hóteli
Rústað gerist á hótelherbergi í Leeds
og fjallar um par sem hittist eftir lang-
an tíma og þegar líður á verkið flétt-
ast inn í það þriðji aðili sem gerir það
að verkum að söguþráðurinn tekur
óvænta stefnu.
„Verkið fjallar um fjörutíu og
fimm ára blaðamann sem vinnur á
tabloid-blaði og tuttugu og eins árs
stelpu úr millistéttinni í London.
Þau eru par sem á sér ákveðna for-
sögu og hafa ekki hist í svolítið lang-
an tíma þegar þau koma á hótelher-
bergið. Í kjölfarið fer af stað ákveðin
atburðarás á milli þeirra sem veld-
ur því að mjög ógnvænlegir hlutir
gerast. Þegar svolítið er liðið á verk-
ið kemur þriðji aðili inn á hótelher-
bergið og hreinlega gjörbreytir at-
burðarásinni,“ segir Kristín sem vill
þó ekki gefa of mikið upp um sögu-
þráðinn.
„Það er mjög magnað við þetta
verk hvað það er klassískt og á í raun-
inni alltaf vel við. Það tekur á hlutum
sem eiga alltaf vel við, því miður, eins
og stríði og borgarastyrjöld. Það er
núna önnur kynslóð sem er að taka
verkið aftur og setja það upp. Það
var sett upp í New York fyrir tveim-
ur mánuðum og í London í fyrra. Ég
held að ástæðan fyrir því að verkið er
sett svona oft upp er að það fjallar um
eðli manneskjunnar sem er hreinlega
tímalaust þema.“
Sjokkerar ekki til að sjokkera
Í umfjöllun um verkið inni á heima-
síðu Borgarleikhússins segir að Rúst-
að sé bannað börnum og alls ekki
við hæfi viðkvæmra. Kristín segir þó
Sjeikspírs Karnival
Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Sjeikspírs Karnival á morgun,
laugardag. Höfundur leikgerðar er Þröstur Guðbjartsson sem einnig
leikstýrir sýningunni. Unnið er upp úr þremur verkum Shakespears,
Þrettándakvöldi, Draumi á jónsmessunótt og Hinriki IV. Átján leikarar
taka þátt í sýningunni sem sýnd er í Halanum, Hátúni 12. nánari
upplýsingar á halaleikhopurinn.is.
Errósýning fyrir alla fjölskylduna
verður opnuð í Hafnarhúsi á morg-
un, laugardag. Ilmur Stefánsdóttir
listamaður á veg og vanda af sýn-
ingunni en þar bregður hún á leik
með nokkur af stærri verkum Errós.
Brýtur þau niður í stóra, hand-
hæga kubba sem hægt er að raða
aftur samkvæmt frummyndinni
sem hangir á veggnum eða skapa
ný og öðruvísi verk. Ilmur verður á
staðnum á opnuninni klukkan 11
og skoðar þá möguleika sem kubb-
arnir bjóða upp á með börnum og
fullorðnum.
Listasafn Reykjavíkur og Tríó
Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið
verið í samstarfi um hádegistón-
leika á Kjarvalsstöðum þar sem
aðgangur er ókeypis. Í dag, föstu-
dag, bjóða Listasafnið og Tríóið til
hádegistónleika þar sem klassísk-
ur léttleiki verður í fyrirrúmi. Tríó
Reykjavíkur skipa Guðný Guð-
mundsdóttir, Gunnar Kvaran og
Peter Máté. Tónleikarnir hefjast
klukkan 12.15.
Aftur í Hafnarhúsið. Þar verð-
ur listamaðurinn Ásmundur Ás-
mundsson í listamannsspjalli á
sunnudaginn klukkan 15. Hann
er vel kunnur fyrir afdráttarlausa
gagnrýni á samfélagið og sam-
ferðamenn hvort sem er á vettvangi
myndlistar eða ritlistar. Á sýning-
unni Hola í A-salnum dregur Ás-
mundur upp mynd af samfélaginu
eins og það blasir við honum í dag.
Sem fyrr er frítt á Listasafn
Reykjavíkur.
Erró fyrir fjölskylduna
OfSi til ÞýSKa-
landS
Þýska forlagið btb, sem er í eigu hins
virta Random House, hefur keypt
réttinn að þýskri þýðingu á Ofsa, bók
Einars Kárasonar sem hann hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
í vikunni. Áður hefur btb gefið út
Óvinafagnað Einars á þýsku en hún
segir frá aðdraganda þeirra atburða
sem er lýst í Ofsa. Forlagið btb er
með virtari forlögum í Þýskalandi og
hefur meðal annars á sínum snær-
um höfundana Haruki Murakami,
Doris Lessing, Kazuo Ishiguro og
J.M.G. Le Clézio. Sala á íslenskum
bókum til Þýskalands hefur gengið
mjög vel upp á síðkastið og má það
vafalaust þakka því að Ísland verður
í aðalhlutverki á bókamessunni í
Frankfurt árið 2011.
KOnur aftur í
búðir
Hin lofaða skáldsaga Steinars
Braga, Konur, er komin út í kilju
hjá Forlaginu. Bókin seldist upp
töluvert löngu fyrir jól en hún var
prentuð í þúsund eintökum. Kon-
ur fékk fullt hús, eða fimm stjörn-
ur, hjá öllum þremur dagblöðum
landsins. Sagan segir frá ungri,
íslenskri listakonu sem snýr heim
til Íslands eftir nokkurra ára dvöl í
Bandaríkjunum og reynir að raða
saman brotunum í lífi sínu. Lánið
virðist leika við hana þegar banka-
maður, einn íslensku útrásarvík-
inganna, býður henni af örlæti að
dvelja endurgjaldslaust í glæsi-
legri þakíbúð í háhýsi við Sæbraut
meðan hún sé að koma sér fyrir,
en smám saman fær hún á tilfinn-
inguna að verið sé að leiða hana
í gildru.
Jón Kalman
heillar Svía
Sumarljós, og svo kemur nóttin eftir
Jón Kalman Stefánsson heillar
sænska lesendur þessa dagana.
Gagnrýnandi HD segist hafa fallið í
stafi og séð ljósið við lestur þessarar
„stórmerkilegu skáldsögu“. Christian
Swlandier skrifar í Boras Tidning:
„Sumarljós og svo kemur nóttin er
ástríðufull og sérlega lifandi
skáldsaga. Ég vona svo sannarlega
að Jóni Kalman takist að slá í gegn
með sögunni í Svíþjóð.“ Bókin hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin árið
2005 og var tilnefnd til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Leiksýning byggð á henni er nú sýnd
í Þjóðleikhúsinu. Jón Kalman er á
leið til Svíþjóðar þar sem hann mun
fylgja útgáfu bókarinnar eftir með
upplestraferðalagi.
MYND HöSkariNN
Erró, kjarval og tríó koma við sögu í Listasafni Reykjavíkur um helgina:
Erró
Ilmur Stefánsdóttir bregður
á leik með verk listamanns-
ins á sýningunni.
Dvelur ekki í eymdinni
kristín Eysteinsdóttir leikstýrir rústað í
Borgarleikhúsinu
„Þetta er alls ekki leikhús sem gengur út á að
sjokkera bara til að sjokkera. Ég hef engan
áhuga á að gefa áhorfendum fokkmerki eða
láta þeim líða eins og ég sé að ganga eins
mikið fram af þeim og hægt er.“
MYND GuNNar GuNNarSSoN