Læknablaðið - 01.09.2015, Qupperneq 11
LÆKNAblaðið 2015/101 399
Inngangur
Offita hefur aukist um allan heim á undanförnum ára-
tugum og er nú orðið alvarlegt heilbrigðisvandamál,
meðal annars vegna aukinnar hættu á ýmsum lang-
vinnum sjúkdómum.1, 2 Áhrif offitu hjá börnum hér á
landi eru ekki jafnvel þekkt og hjá fullorðnum en er-
lendar rannsóknir gefa til kynna að börn sýni í auknum
mæli frávik í efnaskiptum og hafi jafnvel þegar þróað
með sér ýmsa lífsvenjutengda sjúkdóma. Snemma í
æsku getur offita haft áhrif á flest líffærakerfi líkam-
ans.1,3,4
Nokkrir mælikvarðar eru notaðir til að meta offitu.
Algengastur er BMI (Body mass index, líkamsþyngdar-
stuðull) sem reiknaður er samkvæmt reikniformúlunni
þyngd/hæð2 (kg/m2).5-7 Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO, World Health Organization) skilgreinir of-
þyngd fullorðinna einstaklinga sem BMI ≥25 kg/m2 og
offitu sem BMI ≥30 kg/m2.8 Dreifing fitu um líkamann
er mikilvægur þáttur þegar áhætta fyrir sjúkdómum
er metin. Mittismálsmæling er aðferð notuð til að
meta kviðfitu einstaklings, en sýnt hefur verið að
kviðlæg fitudreifing er óhagstæðari en önnur með til-
liti til áhættuþátta kransæðasjúkdóma hjá börnum og
unglingum.9,10 Hlutfall og dreifing líkamsfitu barna
er breytilegt eftir kyni, aldri og líkamsþroska. BMI
hækkar hratt hjá ungbörnum en fellur svo á milli eins
og sex ára aldurs þegar hann tekur að hækka á ný fram
á fullorðinsár.11-14 Því er nauðsynlegt að meta BMI út frá
kyni og aldursstöðluðum línuritum. Cole og samstarfs-
inngangur: offita barna er vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum.
Gegnum tíðina hefur líkamsþyngdarstuðull (body Mass Index, bMI)
verið helsti mælikvarði á offitu en ágæti hans hefur verið dregið í efa hjá
börnum. Heilsuskólinn var stofnaður árið 2011 þegar þverfaglegt teymi
var sett saman á barnaspítala Hringsins til að aðstoða börn og fjölskyldur
þeirra við að bæta lífsvenjur sínar. Markmið rannsóknarinnar var að finna
þann mælikvarða á offitu barna sem hafði mest forspárgildi um frávik í
blóðgildum auk þess að fá heildstæða mynd af frávikum í efnaskiptum
barna með offitu í Heilsuskólanum.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn, lýsandi og náði til
allra barna sem leitað höfðu til Heilsuskóla barnaspítalans á tímabilinu 1.
janúar 2011 til 15. mars 2013 (n=181). Upplýsingatæknisvið Landspítalans
tók saman upplýsingar um hæð, þyngd, bMI, mittismál og niðurstöður
blóðrannsókna.
niðurstöður: Frávik í einu eða fleiri blóðgildum fundust hjá 54 börnum
(47%). Af þeim börnum sem upplýsingar voru til staðar um höfðu fjögur
(4%) staðfesta fitulifur og 28 (28%) höfðu insúlínhækkun, þar af átta (8%)
að því marki að þörf væri á inngripi (hyperinsulinemia). Eitt barn hafði
bæði fitulifur og marktæka insúlínhækkun.
Ályktun: Frávik í blóðgildum barna með offitu eru algeng. Mittismál
virðist hafa meira forspárgildi um frávik í efnaskiptum tengdum offitu en
bMI-SDS. Mittismál mætti nota til að skima fyrir þeim börnum sem þurfa
á reglulegu eftirliti að halda með tilliti til frávika í efnaskiptum. Mittismál
bætir mikilvægum upplýsingum við í áhættumati á börnum með offitu.
Rannsóknin sýnir því mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsfólk mæli mittis-
mál barna sem þeir hafa til meðferðar og eftirlits.
ÁgrIp
menn hans14 unnu viðmiðunarlínurit fyrir offitu barna
í samstarfi við International Obesity Taskforce (IOTF)
út frá landsmeðaltali 6 þjóða. Á Íslandi er ýmist miðað
við viðmiðunarlínuritið frá Cole og samstarfsmönnum
eða SDS (sænsk staðalfráviksstig) sem reiknuð eru út frá
hæð, þyngd og aldri barns og eru annaðhvort jákvæð
eða neikvæð tala eftir því hvort BMI barnsins er yfir
eða undir meðaltali jafnaldra. Offita miðast við 2,5 BMI
staðalfráviksstig ofan við meðaltal fyrir aldur og kyn.7,14
Árið 2011 birtust í norskri rannsókn15 nýjar tölur yfir
aldurstaðlað mittismál (staðalfráviksstig mittismáls) og
aldursstaðlað hlutfall mittismáls og hæðar (staðalfrá-
viksstig mitti/hæð). Niðurstöður sýna að 1,6 staðalfrá-
viksstig mittismáls er sambærilegt 95. hundraðshluta
fyrir BMI (95th percentile) sem eru viðmiðunarmörk
offitu. Heilsuskóli Barnaspítalans var stofnaður í nú-
verandi mynd árið 2011 en hlutverk hans er að aðstoða
börn með offitu og fjölskyldur þeirra við að bæta lífs-
venjur sínar. Til Heilsuskólans geta börn á aldrinum 1-18
ára leitað hafi þau aldursstaðlað BMI yfir 25 kg/m2 og
lífsvenjutengd vandamál. Frá stofnun hafa yfir 200 börn
leitað til skólans að ósk foreldra eða fagaðila. Börnin
hafa ýmist tekið þátt í einstaklings- eða hópmeðferð,
hvoru tveggja með mikilli þátttöku foreldra. Teknar eru
blóðprufur hjá þátttakendum þar sem skimað er fyrir
áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki af
tegund 2 og fitulifur.
Greinin barst
29. janúar 2015,
samþykkt til birtingar
13. ágúst 2015.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Mikilvægi mittismáls við
eftirlit barna með offitu
Alvarleg frávik í blóðgildum hjá íslenskum börnum með offitu
Ásdís Eva Lárusdóttir, læknanemi1 Ragnar Bjarnason, læknir1, 2 Ólöf Elsa Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur2
Berglind Brynjólfsdóttir, sálfræðingur2 Anna Sigríður Ólafsdóttir, næringarfræðingur2,3 Tryggvi Helgason, læknir2
1Læknadeild
Háskóla Íslands,
2Barnaspítala Hringsins,
3menntavísindasviði
Háskóla Íslands.
Fyrirspurnir
Tryggvi Helgason:
tryggvih@landspitali.is
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.09.40
Rannsókn unnin við
læknadeild Háskóla
Íslands og Barnaspítala
Hringsins.
R a n n S Ó k n
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
5
1
8
0
0
2
Virkt innihaldsefni: Hver freyðitaa inniheldur 400 mg af dísúlfíram. Ábendingar: Áfengissýki. Skammtar og
lyagjöf: Fullorðnir: Byrjunarskammtur 800 mg daglega í 2–3 daga. Viðhaldsskammtur: 100–200 mg daglega eða
600–800 mg tvisvar í viku. Frábendingar: Ómeðhöndlaðir hjartasjúkdómar, háþrýstingur, staðfest geðrof, alvarlegar
vefrænar heilaskemmdir, alvarlegar persónuleikatruanir, áfengisneysla, ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju
hjálparefnanna. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í
sérlyaskrá – www.serlyaskra.is. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (ágúst 2015): 400 mg, 50 stk: 10.538 kr.
Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: G. Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. Frekari upplýsingar: www.actavis.is,
s: 550 3300. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika lyfsins: 14. febrúar 2012. Ágúst 2015.
– 400 mg freyðitöurAntabus
Við áfengissýki