Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.2015, Page 13

Læknablaðið - 01.09.2015, Page 13
LÆKNAblaðið 2015/101 401 við erlendar rannsóknir sem benda til að börn sýni í auknum mæli frávik í efnaskiptum.1,3,4 Næstum þrjú af hverjum 10 börnum höfðu hækkað insúlín og þar af var þörf á inngripi hjá tæplega þriðjungi þeirra. Mikilvægt er að grípa inn í áður en börn og ung- lingar þróa með sér sykursýki af tegund 2. Til að unnt sé að gera slíkt er nauðsynlegt að senda þau börn sem greinast með insúlín- hækkun reglulega í blóðrannsóknir og kenna þeim að temja sér hollari lífshætti strax í æsku. Rannsóknir á fullorðnum einstaklingum benda til þess að mittismál sé besti einstaki mælikvarðinn á áhættuþætti krans- æðasjúkdóma auk annarra sjúkdóma sem rekja má til ofþyngdar og kviðlægrar fitudreifingar.18,19 Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til að svo sé einnig í börnum með offitu. Athygli vekur að forspárgildi mittismál SDS og SDS hlutfalls mittismáls og hæðar er meira en BMI-SDS á insúlínhækkun. Þarna geta verið mikils- verðar upplýsingar sem gætu reynst gagnlegar til að ákvarða hvaða börn og unglinga er vert að skima með blóðprufum. Niðurstöðurnar benda því til þess að gagnlegt sé að nota staðl- að mittismál ásamt BMI-SDS í áhættumati fyrir efnaskiptavillu. Einnig er athyglisvert að tíðni efnaskiptafrávika eykst með aldri. Því virðist vera mikilvægara að fylgjast vel með blóðgildum ung- linga heldur en yngri barna. Börn sem höfðu greinst með alvar- leg frávik, það er fitulifur og/eða alvarlega insúlínhækkun, voru marktækt feitari en önnur börn í úrtakinu, það er þyngri, höfðu hærra BMI-SDS, og staðlað mittismál. Þessar niðurstöður koma í sjálfu sér ekki á óvart en sýna að mikilvægt er að fylgjast vel með blóðgildum þyngstu barnanna, sérstaklega hjá þeim sem eldri eru. Mittismál er einföld og ódýr leið sem réttilega mætti nýta mun betur við eftirlit barna með offitu. Hafa ber þó í huga að erfitt getur reynst að staðla mælinguna milli meðferðaraðila. Með mitt- ismælingu mætti skima fyrir börnum sem nauðsynlegt er að hafa í reglulegu eftirliti með tilliti til frávika í blóði. Nokkrar greinar tengdar mittismáli barna hafa verið birtar á undanförnum árum og viðmiðunarmörk fyrir börn og unglinga hafa að einhverju leyti verið þróuð.15,20,21 Hugsanlega mætti nýta þau viðmiðunarmörk sem þegar hafa verið þróuð við eftirlit íslenskra barna en frekari rannsóknir á þessu sviði þarf að gera hér á landi svo íslenskt heilbrigðisstarfsfólk geti, út frá ákveðnum viðmiðunargildum, ákvarðað hvenær þörf sé á frekara eftirliti. Þær rannsóknir sem hafa verið gerðar á sambandi mittismáls og blóðgilda hjá börnum benda til þess að mittismál hafi betra forspárgildi um insúlín- ónæmi og hjarta- og æðasjúkdóma en BMI.22,23 R a n n S Ó k n Tafla II. Niðurstöður og viðmiðunargildi blóðrannsókna.16, 24-30 blóðrannsókn n Miðgildi (5-95% bil) Minnstagildi stærsta gildi Efri viðmiðunarmörk Fjöldi yfir viðmiðunarmörkum (%) Gefur upplýsingar um eftirfarandi þætti: se-insúlín 100 17,9 (5-51,2) 0,2-71,4 ≥25,0 µU/L 28 (28) Insúlínónæmi, sykursýki 2, áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma24, 26 se-glúkósi 81 4,9 (4,4-5,6) 4,1-5,8 ≥5,6 mmól/L 6 (7) Insúlínónæmi, sykursýki29 se-ALAT 102 30,0 (15,1-60,5) 6,0-147,0 >45,0 U/L 9 (9) Fitulifur, hefur forspárgildi um sykursýki25, 27, 28 se-TSH 112 2,6 (1,2-5,3) 0,4-10,1 >4,2 mU/L 14 (13) Hækkað TSH og lækkað FT4 benda til vanstarfsemi skjaldkirtils.29 se-frítt T4 104 15,1 (11,8-19,2) 11,2-24,2 <12,0 eða >22,0 pmól/L 7 (7) undir mörkum, 1 (1) yfir mörkum se-kólesteról 102 4,4 (3,6-5,9) 3,2-6,3 >6,0 mmól/L 1 (1) Áhættuþáttur hjarta-og æðasjúkdóma26 se-HDL 98 1,2 (0,9-1,8) 0,7-2,2 <1,0 mmól/L 15 (15) Hlutfall HDL og LDL er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma26 se-þríglýseríð 98 1,0(0,5-2,4) 0,4-3,6 >1,6 mmól/L 12 (12) Efnaskiptavilla, fitulifur, áhættuþáttur fyrir hjarta- og æðasjúkdóma16, 30 ALAT (Alanine aminotransferase), TSH (Thyroid stimulating hormone), FT4 ( frítt týroxín), HDL (High-density lipoprotein). Tafla III. Samanburður á þátttakendum með alvarleg frávik blóðgilda og öðrum þátttakendum í Heilsuskólanum. Alvarleg frávik n=11 Aðrir n=169 Meðaltal ± SD eða % (n) Meðaltal ± SD eða % (n) Mismunur Stúlkur 36,4 (4) 57,4 (97) Hæð (cm) 168,9 ± 11,9 152,7 ± 15,5 16,2** Þyngd (kg) 103,7 ± 19,6 73,2 ± 23,9 30,5** Þyngd SDS 5,8 ± 0,8 4,4 ± 1,2 1,4** Aldur (ár) 13,2 ± 2,2 11,5 ± 2,8 1,7* bMI (kg/m2) 35,7 ± 3,7 30,4 ± 5,2 5,3** bMI-SDS 4,0 ± 0,7 3,4 ± 0,8 0,6* Mittismál (cm) 118,4 ± 7,6 101,3 ± 13,1 17,1** Mittismál SDS 3,3 ± 0,4 3,1 ± 0,4 0,2 Mitti/hæð 0,69 ± 0,04 0,66 ± 0,05 0,03 Mitti/hæð SDS 3,2 ± 0,2 3,1 ± 0,3 0,1 *p<0,05 **p<0,01 bMI (líkamsþyngdarstuðull, body Mass Index), bMI-SDS (staðalfráviksstig bMI) Tafla IV. Fylgni blóðgilda við mælikvarða offitu og aldur. Þyngd SDS r bMI- SDS r Mittismál SDS r Mittismál/ hæð SDS r Aldur r se-insúlín 0,41** 0,20** 0,25** 0,25** 0,43** se-glúkósi 0,17 0,02 0,15* 0,10 0,25 se-ALAT 0,22* 0,29** 0,12 0,14 0,12* se-kólesteról -0,22 -0,27* -0,20 -0,24 -0,02 se-HDL -0,06 0,02 -0,12 -0,22* -0,39** se-þríglýseríð 0,07 0,01* 0,09 0,17 0,34 *p<0,05 **p<0,01, ALAT (Alanine aminotransferase), HDL (High-density lipoprotein), r fylgnistuðull.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.