Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2015, Síða 23

Læknablaðið - 01.09.2015, Síða 23
LÆKNAblaðið 2015/101 411 S J Ú k R a T i l F E l l i Inngangur Talið er að á milli 22-64% ferðalanga sem ferðast til vanþróaðra ríkja veikist á ferðalaginu. Þar af þurfi um 8% einstaklinga að leita sér læknismeðferðar.1 Oftast er um að ræða niðurgangspestir og útbrot. Í allt að 36% til- vika koma sjúkdómseinkenni ekki fram fyrr en mánuði eftir heimkomu.2 Fjölmargir smitsjúkdómar í þróunar- löndum geta herjað á ferðamenn.3 Sjúkratilfelli 24 ára gömul kona kom til heimilislæknis vegna út- brota á innanverðu hægra læri. Útbrotin voru upp- hleypt, línuleg og þeim fylgdi mikill kláði, jafnvel sárs- auki, sem var verstur á nóttinni. Konan var nýkomin úr þriggja vikna ferðalagi um Kambódíu og Tæland og tók fyrst eftir útbrotum á innanverðu lærinu síð- ustu daga þeirrar ferðar. Hún skrifaði útbrotin fyrst á moskítóbit en þegar heim var komið og um það bil 10 dögum eftir upphaf einkenna fóru útbrotin að aukast og mikill kláði fylgdi. Útbrotin voru í einni röð á lærinu og fóru að verða fleiri og mynduðu eina hlykkjótta 10 cm lengju (mynd 1). Unnusti konunnar, sem var með í sömu ferð, fékk einnig svipuð útbrot á öxlina en þó með minni kláða og ekki á jafn stóru svæði og hjá henni. Við skoðun fundust ekki fleiri útbrot á konunni og engin önnur einkenni fylgdu nema erfiðleikar með svefn vegna kláðans. Einkennin bentu til að um húðsýkingu væri að ræða og var þeim vísað til smitsjúkdómalæknis vegna gruns um húðskriðlirfusýki eða schistosomiasis. Konan var greind með Cutaneous larva migrans eða húðskriðlirfusýki og var greiningin byggð á hinu dæmigerða útliti sjúkdómsins. Ein algengasta ástæða þess að fólk leitar til læknis eftir ferðalög til hita- beltislanda eru útbrot. Meðal helstu orsaka þessara útbrota eru sólbruni og skordýrabit. Hér er lýst sjúkratilfelli þar sem tveir ferðamenn í Asíu fengu útbrot og voru síðar greindir með húðskriðlirfusýkingu (Cutaneous larva migrans). Erlendis er húðskriðlirfusýking algeng orsök útbrota eftir ferðalög til svæða þar sem lirfan er landlæg. Þessi sýking er tiltölulega sjaldgæf hér á landi en mun þó að öllum líkindum verða tíðari á komandi árum með auknum ferðalögum. Greining sjúkdómsins er gerð með sögu og skoðun og fengu viðkomandi einstaklingar meðferð með albendazole og læknuðust alveg. ÁgrIp Ein algengasta ástæða þess að fólk leitar til læknis eft- ir ferðalög til hitabeltislanda eru útbrot á húð. Samkvæmt franskri rannsókn frá árinu 1995, þar sem 269 sjúklingar leituðu á sjúkrahús vegna húðvandamála eftir ferðalag, voru 53% þeirra að koma frá hitabeltislöndum. Algeng- asta greiningin var húðskriðlirfusýki en af þessum 269 Greinin barst 11. maí 2015, samþykkt til birtingar 12. ágúst 2015. Höfundar hafa útfyllt eyðublað um hagsmunatengsl. Útbrot og kláði eftir Asíuferð – sjúkratilfelli Guðmundur Dagur Ólafsson1 læknanemi, Emil L. Sigurðsson2, 3 læknir, Bryndís Sigurðardóttir4 læknir 1Læknadeild Háskóla Ís- lands, 2Heilsugæslustöðinni Sólvangi, Hafnarfirði, 3heim- ilislæknisfræði Háskóla Íslands, 4smitsjúkdómadeild Landspítala. Fyrirspurnir: Emil L. Sigurðsson emilsig@hi.is http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.09.42 Mynd 1. Útbrot innanvert á læri, línuleg og hlykkjótt. Myndir: Guðmundur Dagur Ólafsson

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.