Læknablaðið - 01.09.2015, Qupperneq 27
LÆKNAblaðið 2015/101 415
Þegar undirrituð var á leið í sumarfrí barst
tölvupóstur frá Læknablaðinu um að hafa
tilbúinn pistil strax að loknu sumarleyfi.
Ákveðið efni fangaði hugann, en þegar
sest var við tölvuna í þeim tilgangi að afla
heimilda, tók víðhyglin öll völd. Ferðalag
um netheima og athyglisfrestur skall á
af fullum þunga. Ýmislegt vakti athygli,
svo sem auglýsing um að einhver ákveðin
litabók væri komin út í íslenskri þýðingu.
Ég minntist litabókar með teikningum
Sigurðar Þóris við ljóð Steins Steinars
„Tíminn og vatnið“ sem ég keypti í nokkr-
um eintökum hér um árið og gaf börnum
og nokkrum fullorðnum í fjölskyldunni.
Ég skoðaði hina þýddu bók, en í henni var
hvorki ljóð né nokkur texti, bara myndir til
að lita. Seinna komst ég að því að eitthvert
litabókaæði hafi gripið landann – það er
þá fullorðnu. Annað æði rak á fjörur mín-
ar í fréttaflutningi netheima, en það var
biðröð eftir amerískum kleinuhringjum í
miðborg Reykjavíkur! Þarna náði athyglis-
fresturinn hámarki og hugurinn hvarf 29
ár aftur í tímann til Sovétríkjanna sálugu,
nánar tiltekið verslunarmannahelgarinnar
í Leníngrad árið 1986. Þar var löng röð
væntanlega sársvangs fólks sem beið við
bakarí eftir að geta keypt brauð. Sama
fólkið í röð allan daginn. Ég skellti mér
í röðina eftir skoðunarferð einn daginn,
svona til að prófa. Ég komst að eftir svo-
litla stund, þar sem kurteisir Sovétmenn
hleyptu útlendingnum fram fyrir röðina.
Brauðið var gott, en ég skammaðist mín
eftir á fyrir að hafa ruðst fram fyrir og haft
brauð af fólkinu.
Loksins náðist jarðsamband þegar ég
rak augun í pistil á visir.is (16.8.2015) þar
sem Ásdís Hjálmsdóttir afreksíþróttakona
með meiru hvetur til kurteisi. Hún segist
vera þreytt á að heyra að líkami hennar sé
stór og karlmannlegur.
Þarna voru tvær flugur slegnar í einu
höggi. Almennir mannasiðir og áhrif
þjálfunar. Ég hef verið hugsi um tjáskipti
manna á milli í netheimum, þar sem
allt er látið fjúka. Svokölluð hreinskilni
og það að segja sína meiningu hefur að
mínu mati verið hafið til skýjanna. Oft er
meintri hreinskilni kastað fram af full-
komnu ábyrgðarleysi og án þess að hirt sé
um afleiðingarnar. Í mörgum tilvikum er
of vægt til orða tekið að segja að tjáskipti á
samskiptamiðlum og í athugasemdakerf-
um jaðri við yfirgang og ofbeldi, enda hafa
mörg dæmi um einelti og annað ofbeldi á
netinu ratað í fjölmiðla. Oft snúast slíkar
meinfýsnar athugasemdir um útlitsdýrkun
og staðlaðar ímyndir (kvenlíkamans), eins
og fram kemur í skrifum Ásdísar.
Það sem ég ætlaði upphaflega að fjalla
um tengist þjálfun, hreyfingu og íþróttum
almennings. Það þarf ekki að fjölyrða
um mikilvægi hreyfingar hvað varðar
almenna vellíðan. Sá hópur sem hreyfir
sig til að bæta líðan og liðleika virðist ekki
vera hávær í þjóðfélaginu. Hins vegar eru
meira áberandi þeir sem þjálfa af miklum
móð eins og þeir séu afreksíþróttamenn,
oft án leiðsagnar fagfólks og hljóta jafn-
vel skaða af. Þjálfunin virðist einnig vera
orðin töluverður streituvaldur og gleðin
sem fylgir góðri hreyfingu hverfur í
skugga kappsins og kröfu um árangur.
Fólk rífur sig upp um miðjar nætur (eins
og flestir vita er klukkan röng hér á landi)
og fer í hámarksáreynslu þegar líkams-
starfsemin á að vera í lágmarki, svo
sem púls og blóðþrýstingur. Það eru til
fjölmargar rannsóknir sem hafa sýnt fram
á neikvæð heilsufarsáhrif vaktavinnu, en
ég fann enga rannsókn um heilsufarsáhrif
þjálfunar að næturlagi. Sem læknir og
áhugamanneskja um lífeðlisfræði horfi
ég björtum augum til annasamrar elli við
rannsókir á því hvort þjálfun um nætur
geri manni gott. En ég ætla að sofa um
nætur og láta aðra um að púla.
Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í
Þorbjörn jónsson, formaður
orri Þór ormarsson, varaformaður
Magnús baldvinsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
björn Gunnarsson
Hildur Svavarsdóttir
Tinna Harper Arnardóttir
Þórarinn Ingólfsson
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Stjórn lÍ 2015
Æði og árátta
masgeirsdottir@me.com
Magdalena
Ásgeirsdóttir
lungnalæknir á
Reykjalundi
Njóttu hlunninda fyrirtækjasamningsins. Þar má nefna:
n Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
n Neyðarnúmer er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
n Afsláttur sem Icelandair býður er veittur af öllum fargjöldum á því
farrými sem fyrirtæki óska eftir hverju sinni.
n Hægt er að nálgast nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar má finna á www.icelandair.is/fyrirtaeki
Eins má senda fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ER ÞITT FYRIRTÆKI
Á FLUGI?
Regluleg ferðalög á vegum fyrirtækisins eru
oft nauðsynleg. Það getur því borgað sig að gera
fyrirtækjasamning við Icelandair.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
57
70
0
8
/1
5
Practical og Congress Reykjavík hafa nú sameinað
krafta sína undir merkjum CP Reykjavík. Við erum
frísklegt og skapandi þjónustufyrirtæki sem skipu-
leggur viðburði, ferðir og ráðstefnur fyrir innlenda
og erlenda viðskiptavini.
RÁÐSTEFNUR / VIÐBURÐIR / HVATAFERÐIR
Við gerum
atvinnulífið
viðburðaríkara
www.cpreykjavik.is