Læknablaðið - 01.09.2015, Qupperneq 30
418 LÆKNAblaðið 2015/101
l æ k n a n Á M Í Ö ð R U M l Ö n D U M
Sjöfn Þórisdóttir er að hefja sjötta og
síðasta árið í læknisfræði við háskólann
í Óðinsvéum í Danmörku. Hún nýtti
sumarfríið sitt til að starfa á Landspítal-
anum og segir mikilvægt að ná sér í sem
mesta verklega reynslu meðan á náminu
stendur.
Sjöfn fór í inntökuprófið í læknadeild HÍ
og var nálægt því að komast inn í fyrstu
tilraun. Hún segir að valið hafi staðið um
að bíða í eitt ár og reyna aftur eða sækja
um í Danmörku og láta reyna á það. „Ég
sendi inn umsókn um skólavist í Dan-
mörku næsta vor og í framhaldi af því fór
ég í inntökupróf og viðtöl þar úti og komst
inn þá um haustið.“
Hún segir námið byggt upp á lotum,
þar sem fyrstu þrjú árin er hverri önn
skipt í tvær átta vikna lotur. „Seinni
þrjú árin eru loturnar fleiri og styttri og
síðustu önnina á sjötta árinu eru vikulotur
þar sem farið er yfir allt sem kennt hefur
verið frá upphafi auk þess sem nýtt náms-
efni bætist við. Þetta er mjög gott sem
undirbúningur fyrir lokapróf um vorið.“
Þetta fyrirkomulag, að byggja námið
upp í lotum þar sem tekið er fyrir eitt efni
í senn og lotunni lýkur með prófi, segir
Sjöfn að sér líki mjög vel. „Mér finnst gott
að geta einbeitt mér að einu efni í senn
og finnst í rauninni að þá komist maður
betur og dýpra í efnið. Í fyrri hluta náms-
ins er talsvert mikið um hópavinnu enda
eru Danir mjög hrifnir af slíku og það
getur verið gott stundum en kannski ekki
alltaf. En læknisstarfið gengur mikið út á
teymisvinnu og þetta er góð þjálfun í því.“
Í Danmörku er læknisfræði kennd við
fjóra háskóla, í Kaupmannahöfn, Óðins-
véum, Árósum og Álaborg. Deildin í
Óðinsvéum er næststærst en þar eru
nærri 2000 læknanemar í grunnnámi.
Íslenskir læknanemar í Danmörku eru í
kringum 100, flestir í Kaupmannahöfn. Í
Óðinsvéum eru íslensku læknanemarnir á
annan tug og Sjöfn segir vissulega gott að
vita af þeim en þeir dreifast á sex námsár
og samskiptin því stopul þar sem námið
er stíft og lítill tími aflögu til félagslífs að
sögn Sjafnar.
Dönskukunnátta er nauðsynleg í
læknanáminu í Danmörku þar sem
kennslan fer öll fram á dönsku og flestar
kennslubækurnar eru einnig á dönsku.
„Það er reyndar ekki gerð krafa til Norður-
landabúa um dönskukunnáttu sérstaklega
en hér eru mjög margir Norðmenn og
Sví ar í læknanámi, sem mega skila skrif-
legum verkefnum á sínu móðurmáli, svo
kunnátta í einhverju skandinvísku mál-
anna er nauðsynleg.“
Hún segir að hluti af inntökuprófinu
í læknadeildina í Óðinsvéum hafi verið
munnlegur og ekki boðið upp á að tala
annað en dönsku. „Ég bjó í Danmörku í
tvö ár sem unglingur og hafði því sæmi-
legan grunn en þetta var samt ekkert
auðvelt.“
Hún segir námið að mestu bóklegt og
vildi gjarnan fá meiri verklega þjálfun.
„Það er nokkuð um að fólk taki sér hlé frá
náminu eina önn og vinni á sjúkrahúsi til
að verða sér úti um verklega reynslu. Ég
stefni á að vinna kandídatsárið hér heima
og tel að það muni veita mér meiri og fjöl-
breyttari reynslu en að vinna á dönsku
sjúkrahúsi.“
Töluverð áhersla er lögð á samskipti
læknis og sjúklings í náminu og segir
Sjöfn að kennslan sé lifandi og skemmti-
leg. „Læknadeildin er með samning við
félag atvinnuleikara í Óðinsvéum og
þeir koma og leika sjúklinga í samskipta-
kennslunni og einnig í verklegum prófum.
Þetta er mjög góð þjálfun enda draga leik-
ararnir ekkert af sér ef þeir eiga að leika
erfiða sjúklinga. Þetta er mjög raunveru-
legt þó maður viti að aðstæðurnar séu
tilbúnar.“
Hún nefnir dæmi um svona sviðsett
viðtal þar sem sama sjúkrasaga var til
grundvallar og sami leikarinn kom inn í
viðtalið tvisvar en sem allt önnur persóna.
„Við vorum öll sammála um að það hefði
verið mjög lærdómsríkt að mæta svona
ólíkum viðbrögðum. Það er mjög gott að fá
þjálfun í þessu þar sem aðstæðurnar eru
undir stjórn því eflaust mun maður lenda
í einhverju svipuðu þegar út í starfið er
komið.“
Eftir að hafa kynnst starfsemi Land-
spítalans í sumar segir hún að það sé
talsvert frábrugðið því sem hún hefur
kynnst á dönskum sjúkrahúsum. „Maður
er í rauninni hálfgerður útlendingur hér á
spítalanum fyrstu vikurnar. Það hljómar
kannski einkennilega en ég skil jafnvel
ekki öll orðin sem hér eru notuð þar sem
ég hef lært allt á dönsku. Svo virðast tölvu-
kerfin fleiri hér og flóknara að komast inn
í þau en eflaust eru þetta byrjunarörðug-
leikar sem flestir upplifa. Það hefur aldrei
verið neinn efi í mínum huga að koma til
starfa á Íslandi þegar náminu er lokið og
ég hlakka til að taka kandídatsárið hér
heima. Síðan eru ýmsir möguleikar á að
taka fyrri hluta sérnáms á Landspítal-
anum og þá erum við að tala um nokkurra
ára stopp áður en ég færi aftur út til að
ljúka sérnámi. Þetta leggst vel í mig.“
Sækir verklega reynslu til Íslands
Sjöfn Þórisdóttir í Danmörku
„Maður er í rauninni hálfgerður útlendingur hér á
Landspítalanum fyrstu vikurnar,“ segir Sjöfn Þóris-
dóttir sem stundar læknanám í Óðinsvéum.
Á undanförnum árum hefur það færst í vöxt að íslenskir
læknanemar sæki grunnnám sitt til annarra landa.
Læknablaðinu lék forvitni á að heyra meira af því.
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson