Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Qupperneq 2
Grínistinn Pétur Jóhann er mikið á skjánum þessa
dagana í auglýsingum símafyrirtækisins Vodafone. Þar bregður
Pétur Jóhann sér í hlutverk Lykla-Péturs og tekur á móti hinum
látnu í himnaríki. DV tók þrjá presta tali sem allir eru yfir sig
hrifnir af auglýsingunni og sannfærðir um að Guð hafi húmor
fyrir þessu góðlátlega gríni.
föstudagur 17. apríl 20092 Fréttir
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
keyrir í boði
fréttastofu
Sigmundur Ernir Rúnarsson
keyrir um á jeppa á vegum 365 á sama
tíma og hann stendur í kosningabar-
áttu fyrir Samfylkinguna. Bifreiðahlunn-
indin eru hluti af kjarasamningi Sig-
mundar Ernis og nýtur hann þeirra enn
á uppsagnarfresti. „Ég nota hann bara
í samræmi við mína samninga,“ segir
Sigmundur Ernir. Ari Edwald, forstjóri
365, segist ekki hafa gert athugasemd við
þetta. „En menn verða náttúrlega að eiga það við sína dómgreind ef
þeir eru komnir í önnur störf eða önnur verkefni. Þá er ekki gert ráð
fyrir stórnotkun á þessum tækjum og það á allt öðrum vettvangi.“
„hann hafði allt“
Milljarðamæringurinn Gísli
Þór Reynisson lést aðfara-
nótt sunnudags, aðeins 43 ára
gamall. Hann skilur eftir sig
eiginkonu og fjögur börn. Gísli
var einn af auðugustu mönn-
um landsins og átti meðal annars hið
sögufræga danska lúxushótel d´Anglet-
erre. Faðir Gísla Þórs, Reynir Þorgríms-
son, segir það gríðarlega erfitt að þurfa að
jarða son sinn. „Sorg okkar er þyngri en
tárum taki,“ segir Reynir. Gísli hafði sjálfur
rætt veikindi sín í tölublaði Séð og heyrt
sem kom út í lok mars en þá taldi hann sig
hafa náð sér að fullu. Skömmu síðar var
hann látinn. Upp komst um veikindin þegar Gísli missti meðvitund í
byrjun mars.
Gefa ekkert
eftir
Engin áform eru uppi um að
breyta reglum um starfs- og
ferðakostnað þingmanna. Það vakti hörð
viðbrögð þegar DV greindi frá því á síð-
asta ári að starfskostnaður er greiddur út
óháð því hvort þingmenn leggi út í fjár-
útlát vegna starfs síns eða ekki. Verka-
lýðsforkólfar sem DV ræddi við töldu
ljóst að þarna væri um dulin laun að
ræða. Þingmenn fá 66.400 krónur mán-
aðarlega í starfskostnaðargreiðslur.
2
3
1
neytendur
fólk
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fIMMtudagur 16. apríl 2009 dagblaðið vísir 61. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
ekkI hætta
að eyða
fréttIrhræ af
hestI vIð
suMarhús
keppInautar
kynþokkafullIr
fréttIr
Sigmundur Ernir í koSningabaráttu:
ennþá Með fyrIrtækIs-
bíl eftIr brottrekstur
frá stöð 2
„þetta eru bara ósköp
eðlIleg not á bílnuM,“
segIr sIgMundur
ernIr rúnarsson
Á BÍL FRÁ
STÖÐ 2
fólk
svIðsljós
sparIsjóðIrnIr vIldu
eIgnast landsbanka
foxx
drullar
yfIr MIley
of blankur
til að gera at
í obama
miðvikudagur 15. apríl 20094
Fréttir
Guðbjartur Hannesson
HALDA FAST Í
LEYNILAUNIN
Engin áform eru uppi um að breyta
reglum um starfs- og ferðakostnað
þingmanna. DV greindi frá því á síð-
asta ári að starfskostnaður er greidd-
ur út óháð því hvort þingmenn leggi
út í fjárútlát vegna starfs síns eða
ekki. Þetta vakti hörð viðbrögð verka-
lýðsforkólfa sem DV ræddi við og
töldu ljóst að þarna væri um dulin
laun að ræða.
Reglur þingsins kveða á um að
þingmenn skuli fá greiddar 66.400
krónur mánaðarlega í starfskostn-
að en að þeir verði að greiða tekju-
skatt af upphæðinni ef þeir framvísa
ekki reikningum. Nokkrir þingmenn
hafa þó ákveðið að þiggja ekki fastar
greiðslur heldur bara fá endurgreitt
það sem þeir hafa keypt og geta lagt
fram reikninga fyrir.
Auk starfskostnaðargreiðslnanna
fá þingmenn greiddan ferðakostn-
að, sem er föst upphæð, og húsnæð-
iskostnað, sem tekur mið af því fyrir
hvaða kjördæmi menn eru kjörnir á
þing, hversu mörg heimili þeir halda
og hvort þingmenn ferðist á milli Al-
þingis og heimilis í kjördæminu dag-
lega.
Ekkert rætt
Guðbjartur Hannesson, forseti Al-
þingis, segir ekki hafa komið til tals
að breyta reglum um starfskostnað-
argreiðslur. „Þetta hefur ekkert ver-
ið rætt í þessari lotu. Það hefur ekki
farið fram nein formleg umræða um
að breyta þessu,“ segir hann. Hann
bendir á að nýverið hafi verið tek-
in ákvörðun um flatan niðurskurð á
launum þingmanna en ekkert annað
verið ákveðið varðandi launakjörin
almennt.
Guðbjarti finnst erfitt að segja til
um hvort honum finnist þörf á að
breyta reglum um starfskostnað. „Ég
hef ekki litið á þetta sem viðbótar-
launakostnað heldur tækifæri til að
greiða ýmsan kostnað sem til fell-
ur vegna þingstarfa,“ segir hann og
tekur fram að hann hafi alltaf nýtt
greiðslurnar til hlítar á þann hátt.
Karl Kristjánsson, aðstoðarskrif-
stofustjóri Alþingis, bendir á að
greiðslurnar hafi í raun lækkað að
raungildi. Venjan hafi verið sú að
ferða-, starfs- og húsnæðiskostnað-
ur hafi verið áætlaður einu sinni á ári
og þá venjulega hækkað. Nú hafi það
hins vegar ekki verið gert. Greiðsl-
urnar hafi því ekki haldið í við verð-
bólgu.
Harðlega gagnrýnt
Meðal þess sem gagnrýnt var, þeg-
ar DV greindi frá framkvæmd starfs-
kostnaðargreiðslnanna, var að þær
væru í raun duldar launagreiðslur.
Þetta sögðu meðal annars Kristján
Gunnarsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, og Vilhjálmur Birgis-
son, formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness. Kristján benti þá á að almennu
verkafólki væri gert að borga skatta af
öllum greiðslum frá vinnuveitanda
sem bætast ofan á laun. Honum
finnst að sama eigi að gilda um þing-
menn, jafnvel þótt þeir geti sýnt fram
á kostnað með reikningum. „Menn
eru að koma sér hjá því að borga af
þessu skatta og skyldur eins og aðrir í
þjóðfélaginu,“ sagði Kristján þá.
Laun og lífeyrir lækka
Á sama tíma og starfskostnaðar-
greiðslurnar haldast óbreyttar hafa
aðrar greiðslur til þingmanna lækk-
að. Það eru annars vegar launin sem
lækkuð voru eftir lagasetningu frá Al-
þingi í fyrra og hins vegar eftirlauna-
rétturinn sem var breytt til samræm-
is við eftirlaunarétt ríkisstarfsmanna
fyrr á þessu ári.
brynjóLfur þór Guðmundsson
oG ErLa HLynsdóttir
blaðamenn skrifa: brynjolfur@dv.is og erla@dv.is
uppHæð brEytinG
forsætisráðherralaun* 935.000 -15,0%
ráðherralaun* 855.000 -14,0%
Þingforsetalaun* 855.000 -14,0%
Þingfararkaup 520.000 -7,5%
50 prósent álag formanna** 260.000 -7,5%
15 prósent álag varaforseta alþingis 78.000 -7,5%
15 prósent álag nefndaformanna 78.000 -7,5%
15 prósent álag þingflokksformanna 78.000 -7,5%
10 prósent álag varaformanna nefnda*** 52.000 -7,5%
Húsnæðis- og dvalarkostnaður 90.700 Óbreytt
40 prósenta álag ef tvö heimili 36.280 Óbreytt
Húsnæðis- og dvalarkostnaður, skert 30.233 Óbreytt
Ferðakostnaður innan kjördæmis 61.400 Óbreytt
Starfskostnaður 66.400 Óbreytt
„Það hefur ekki farið
fram nein formleg um-
ræða um að breyta
þessu.“
*að meðtöldu þingfararkaupi
**sem ekki eru ráðherrar
***á aðeins við um varaformenn utanríkis- og fjármálanefndar
fimmtudagur 20. nóvember 20082 Fréttir
Allir alþingismenn geta tekið sér rúm-
ar sextíu þúsund krónur á mánuði
vegna meints ferðakostnaðar, jafnvel
þótt þeir ferðist ekki neitt. Þeir fá líka
vel yfir sextíu þúsund krónur í starfs-
kostnað, jafnvel þótt kostnaðurinn
sé enginn. Þjóðin má hins vegar ekki
vita hvaða þingmenn taka sér þessi
dulbúnu laun af almenningi, vegna
þess að þetta eru “persónuupplýsing-
ar”, eins og þingið segir.
Leynilaun þingmanna
„Þetta eru bara dulbúnar launagreiðsl-
ur,“ segir Kristján Gunnarsson, for-
maður Starfsgreinasambands Íslands,
um greiðslur til þingmanna vegna
starfskostnaðar. Hver þingmaður á
lögbundinn rétt til þess að fá mánað-
arlega 66.400
krónur
til
viðbótar við föst laun og kallast þetta
starfskostnaðargreiðslur. Þingmönn-
um er þó í sjálfvald sett hvort þeir
skila inn reikningum til að sýna fram
á kostnaðinn.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, tekur undir
orð Kristjáns. „Þetta eru ekkert annað
en launagreiðslur,“ segir hann.
Starfskostnaðargreiðslurnar eru
þó fjarri því einu föstu greiðslurnar
sem bætast við laun þeirra. Hver og
einn þingmaður fær greiddar 61.400
krónur í fastan ferðakostnað. Þetta
er óháð því hversu mikið þingmenn
ferðast vegna starfs síns og fyrir hvaða
kjördæmi þeir sitja. Við þetta bæt-
ist að þingmenn í landsbyggðarkjör-
dæmum fá greiddan húsnæðis- og
dvalarkostnað. Þær greiðslur nema
frá 30 þúsund krónum upp í 127 þús-
und krónur. Þeir sem fá hæstu greiðsl-
urnar halda tvö heimili. Þeir sem fá
lægstu greiðslurnar fá borgað
aukalega fyrir daglegar ferð-
ir milli heimilis og vinnu-
staðar.
Leynd á Alþingi
Á fjármálaskrifstofu
Alþingis fást ekki
upplýsingar um
hvaða þingmenn
skila inn reikning-
um og hverjir ekki.
Uppgefin ástæða er að
þetta séu persónuupp-
lýsingar um þing-
menn.
Kristján furðar sig á því fyrirkomu-
lagi. „Ef þetta eru kostnaðargreiðslur
getur það ekki verið neitt persónu-
legt. Ekki nema menn séu að nota
kostnaðargreiðslurnar til persónu-
legra nota,“ segir hann.
Skýrar reglur eru um greiðslur
vegna starfskostnaðar. Þeir þingmenn
sem fá þær sem fasta greiðslu borga
af þeim skatt en ef reikningar koma til
eru þær skattfrjálsar.
Vilhjálmi finnst miður að Alþingi
upplýsi ekki hvaða þingmenn nýta
sér hvora leið fyrir sig. „Slíkt á ekki
að vera neitt leyndarmál í mínum
huga. Ég myndi vilja að launagreiðsl-
ur þingmanna væru algjörlega gegn-
sæjar en ekki með þeim hætti að erf-
itt sé að átta sig á því hver laun þeirra
eru nema sökkva sér ofan í rannsókn-
arvinnu,“ segir hann.
„Hluti af launakjörum“
Vegna þeirrar leyndar sem ríkir á Al-
þingi um tilhögun greiðslna til ein-
stakra þingmanna sendi blaðamaður
DV öllum 63 þingmönnunum tölvu-
póst í fyrradag og spurði út í
þær. Aðeins níu svöruðu.
Ellert B. Schram, þing-
maður Samfylkingar-
innar, er einn þeirra.
„Starfskostnaðar-
greiðslur eru hluti
af launakjörum al-
þingismanna,“ seg-
ir hann aðspurð-
ur hvort hann líti
á greiðslurnar sem
laun. Kolbrún
Halldórsdótt-
ir, þingmaður
vinstri-grænna,
er á sama máli.
„Já, ef þing-
maður hefur
ekki kostnað af
starfi sínu sem fellur undir reglur um
starfskostnað er hann launagreiðsla,“
segir hún.
Katrín Jakobsdóttir, þingmað-
ur vinstri-grænna, segir að hjá þeim
sem þiggja fasta greiðslu án þess að til
komi reikningar hljóti starfskostnað-
argreiðslan að teljast sem laun.
Svo ég geti unnið
vinnuna mína
Jón Magnússon, þingflokksformað-
ur Frjálslynda flokksins, tekur spurn-
ingunni með meiri fyrirvara: „Það
er í sjálfu sér ekki mitt að túlka það.
Miðað við reglur skattayfirvalda er
sá starfskostnaður sem ekki er skilað
inn reikningum fyrir skattlagður sem
tekjur,“ segir Jón.
Guðbjartur Hannesson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, segir: „Ég lít á
starfskostnað sem hluta af kjörum til
að gera mér kleift að vinna mitt starf
án þess að bera af því kostnað.“
Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, segist ekki líta á starfs-
kostnaðargreiðslurnar sem launa-
greiðslur. Helgi Hjörvar, þingmaður
Samfylkingarinnar, er á sama máli.
Hans svar er einfalt: „Nei.“
Hlutabréfaeign aðgengileg
Tekið skal fram að á vefsíðu Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs má
finna upplýsingar um tekjur og eign-
ir allra þingmanna flokksins, þar með
talin hlutabréfaeign, hlunnindi og
hagsmunatengsl. Hjá hverjum og ein-
um þeirra kemur fram að þeir þiggi
66.400 krónur vegna starfskostnaðar.
Helga Sigrún Harðardóttir, sem
er nýsest á þing fyrir Framsóknar-
flokkinn, svaraði einnig DV en sagði
að þar sem hún væri aðeins búin að
sitja á þingi í viku væri hún ekki búin
að ganga frá hvernig hún myndi haga
starfskostnaðargreiðslum.
Framvísar alltaf reikningum
Helgi sker sig úr hópi þeirra fáu þing-
manna sem svöruðu DV að því leyti
að hann fær starfskostnaðargreiðsl-
urnar ekki greiddar að nokkru leyti
án þess að skila inn reikningum. Ef
reikningarnir ná ekki 66.400 krónum
yfir mánuðinn fær hann mismuninn
ekki greiddan.
Aðrir
þingmenn
segja
misjafnt
hvort
þeir skili
inn reikn-
ingum en
allir fá þeir
greiðsluna.
Helgi seg-
ir að fyrstu
árin sín sem
þingmaður hafi
hann haft ann-
an háttinn á. „Þá
fékk ég þetta
greitt sem laun
en komst að
því að nokkr-
ir þingmenn,
þeirra á
meðal Guð-
laugur Þór
Þórðarson og Pétur Blöndal, tóku að-
eins við greiðslum vegna kostnaðar.
Mér fannst fara betur á því og ákvað
að fara að þeirra fordæmi. Þetta er
nokkuð sem ég ákvað fyrir mig og fel-
ur ekki í sér gagnrýni á þá sem fara
aðrar leiðir,“ segir hann.
Flestir þeirra þingmanna sem svör-
uðu DV vísa í reglur um starfskostn-
aðargreiðslur þegar þeir eru spurðir
um hvort þeir telji greiðslurnar vera
einkamál hvers þingmanns. Kolbrún
Halldórsdóttir tekur þó alfarið fyrir að
um einkamál sé að ræða: „Nei. Þess
vegna svara ég þessum spurningum
með glöðu geði,“ segir hún í svari til
blaðamanns. Atli Gíslason, þing-
maður vinstri grænna, er henni sam-
mála: „Nei. Ég vil hafa þetta allt uppi
á borðinu og gegnsætt.“
Verkafólk borgar skatt
Kristján Gunnarsson bendir á að al-
mennu verkafólki sé gert að borga
skatta af öllum greiðslum frá vinnu-
veitanda sem bætast ofan á laun.
Honum finnst að sama eigi að gilda
um þingmenn, jafnvel þótt þeir geti
sýnt fram á kostn-
að með reikning-
um. „Menn eru
að koma sér hjá
því að borga af
þessu skatta og
skyldur eins og
aðrir í þjóðfé-
laginu,“ segir
Kristján enda
lítur hann á
greiðslurnar
sem laun.
Jón
Magnússon
varpar fram
hugmynd
að breyttu
fyrirkomu-
lagi starfs-
kostnaðar-
greiðslna.
„Þá er jafn-
vel spurn-
ing hvort
DULBÚIN LAUN ÞINGMANNA
erLA HLynSdóttir ogbrynjóLFur þór guðmundSSon
blaðamenn skrifa: erla@dv.is og brynjolfur@dv.is
Viðbótargreiðsla allir þingmenn geta
fengið 66.400 krónur mánaðarlega ofan á
föst laun. upphæðin á að nýtast í kostnað
vegna starfsins.
nýkomin Helga
Sigrún Harðardóttir er
nýsest á þing og hefur
ekki ákveðið fyrirkomu-
lag starfskostnaðar-
greiðslna.
mynd Sigtryggur Ari
ekkert einkamál
Kolbrúnu Halldórsdóttur
finnst það ekki einkamál
þingmanna hvernig
greiðslum vegna
starfskostnaðar er háttað.
mynd Vg
Hluti af launum
ellert b. Schram lítur á
starfskostnaðar-
greiðslur sem hluta af
launakjörum
þingmanna.
mynd SteFÁn KArLSSon
Sker sig úr Helgi Hjörvar
hafnar greiðslum vegna
starfskostnaðar nema hann
hafi skilað inn reikningum.
Hann segist hafa ákveðið fyrir
sig að fara þá leiðina.
mynd SAmFyLKingin
Allt aðgengilegt Katrín Jakobsdóttir
bendir á að upplýsingar um laun, eignir,
hlutafé og hlunnindi þingmanna vinstri-
grænna séu á netinu.
mynd Vg
Þingmenn og ráðherrar búa við ríflegan biðlauna- og eftirlaunarétt. Þannig eiga þeir rétt á allt að hálfs árs biðlaunum eftir
að þeir láta af störfum. Þar að auki eiga þeir rétt á eftirlaunum samkvæmt umdeildum eftirlaunalögum sem þingið
samþykkti á aðventunni árið 2003. Samkvæmt þeim geta eftirlaunin orðið hæst 879 þúsund krónur og eiga þá forsætisráð-
herrar í hlut.
ef litið er til þeirra þingmanna sem hafa hætt á þingi núna nýlega sést afdrif þeirra eru mjög ólík. guðni Ágústsson fær
þannig sex mánaða biðlaun og eftirlaun sem nema að lágmarki 580 þúsund krónum á mánuði með hliðsjón af því að hann
sat 21 ár á alþingi, var ráðherra í átta ár og nefndarformaður í nokkur ár þar á undan. bjarni Harðarson hættir hins vegar á al-
þingi eftir mun skemmri starfsferil og það hefur sín áhrif. vegna þess að bjarni sat ekki á þingi heilt kjörtímabil á hann ekki
rétt á biðlaunum. eftirlaun hans fyrir að hafa unnið eitt og hálft ár á alþingi nema 4,5 prósentum af þingfararkaupi eða 25
þúsund krónum á mánuði. talsverður munur er á hvenær bjarni og guðni geta hafið töku eftirlauna. guðni getur gert það
um leið og hann hættir á biðlaunum, eða eftir hálft ár. bjarni verður hins vegar að bíða í nítján ár eftir að geta hafið töku
eftirlauna.
eftirlaunaréttur margra batnaði til mikilla muna með samþykkt
eftirlaunalaganna. einkum batnaði hagur forsætisráðherra.
eftirlaunaréttur davíðs Oddssonar hækkaði um tæpar fjögur
hundruð þúsund krónur á mánuði. eftirlaunaréttur Halldórs
Ásgrímssonar hækkaði um 270 þúsund krónur. núverandi
forystumenn ríkisstjórnarinnar njóta báðir góðs af breytingun-
um frá 2003. vegna nýs kafla um eftirlaun forsætisráðherra fengi
geir, ef hann hætti í dag tæpar 770 þúsund krónur í eftirlaun á
mánuði, það er 205 þúsund krónum meira en hann hefði fengið
samkvæmt gömlu lögunum. ingibjörg Sólrún fengi 196 þúsund
krónur á mánuði, 29 þúsund krónum meira en gömlu lögin
hefðu fært henni. Hér er sem fyrr segir miðað við það sem þau
hafa þegar unnið sér inn. ef ríkisstjórnin situr út kjörtímabilið og
verður ekki við kröfum um að kjósa að nýja hækka eftirlaun
beggja. Þá yrði hagur geirs af lagabreytingunni 2003 um 270
þúsund krónur á mánuði.
Rífleg biðlaun
og eftiRlaun
eftiRlaunin þeiRRa hækkuðu um...
davíð Oddsson 392 þúSund
Halldór Ásgrímsson 268 þúSund
geir H. Haarde 205 þúSund
Halldór blöndal 86 þúSund
ingibjörg Sólrún gísladóttir 29 þúSund
guðni Ágústsson 27 þúSund
tómas ingi Olrich Gat farið beint á eftirlaun
„Ef þetta eru kostnaðar-
greiðslur getur það ekki
verið neitt persónulegt.“
fimmtudagur 20. nóvember 2008 3Fréttir
FALIN LAUN ÞINGMANNA
Beinar launagreiðslur
Þingfararkaup 562.020
formannsálag 281.010
varaforseti alþingis 84.301
formenn þingflokka 84.301
nefndarformaður 84.301
varanefndarformaður* 56.020
*varaformenn fjárlaganefndar
og utanríkismálanefndar fá álag fyrir störf sín.
Fastar greiðslur
Húsnæðis- og dvalarkostnaður, 2 heimili* 126.980
Húsnæðis- og dvalarkostnaður * 90.700
Húsnæðis- og dvalarkostnaður,
daglegar ferðir* 30.233
fastur ferðakostnaður 61.400
Starfskostnaður 66.400
*Þingmenn fyrir landsbyggðarkjördæmi fá greiddan húsnæðis-
og dvalarkostnað.
**Þingmenn fyrir landsbyggðarkjördæmi sem búa utan
höfuðborgarsvæðis og fá greitt sérstaklega fyrir daglegar ferðir
til þings fá greiddan þriðjung af húsnæðis- og dvalarkostnaði.
Þingmenn fá tölvu til afnota utan skrifstofu sinnar.
Þingmenn á ferðum erlendis fá greiddan hótelkostnað og
áttatíu prósent dagpeninga.
Þingmenn fá greiddan ferðakostnað fyrir ferðir á fundi og
samkomur sé ferðast meira en 15 kílómetra hvora leið.
Þingmenn fá endurgreiddan ferðakostnað milli heimilis/
starfsstöðvar og alþingis. Þó með takmörkunum ef
þingmaður fær greitt fyrir húsnæðis- og dvalarkostað.
ferðakostnaður á fundi í öðrum kjördæmum er endur-
greiddur.
ferðist þingmaður með flugi skal greitt fyrir flug og leigubíl.
ferðist þingmaður á eigin bíl er greitt kílómetragjald.
Þingmenn geta fengið bílaleigubíl ef það er hagkvæmara en
að þeir noti eigin bíl.
greiða má gistikostnað í kjördæmi við sérstakar aðstæður
þó þingmaður fá greitt vegna húsnæðis- og dvalarkostnað-
ar.
eigi þingmaður húsnæði í kjördæmi sínu sem hann leigir út
eða leyfir börnum sínum afnot af fær hann ekki greitt vegna
húsnæðis- og dvalarkostnaðar.
alþingi greiðir allan kostnað við skrifstofurekstur. Líka er
borgað fyrir farsíma og heimasíma. Þingmenn fá dagblöð
send heim eða á skrifstofu og eiga rétt á að fá greidda áskrift
að allt að þremur héraðsfréttablöðum. brynjolfur@dv.is
lægstu Föstu greiðslur
Þingfararkaup 562.020
fastur ferðakostnaður 61.400
Starfskostnaður 66.400
samtals: 689.820
Hæstu Föstu greiðslur
Þingfararkaup 562.020
flokksformaður 281.010
Húsnæðis- og dvalarkostnaður,
2 heimili 126.980
fastur ferðakostnaður 61.400
Starfskostnaður 66.400
samtals: 1.097.810
689.820
1.097.810
ekki sé eðlilegra að hafa þann hátt á
að afnema starfskostnaðargreiðsl-
ur en taka tillit til áætlaðs starfs-
kostnaðar í þingfararkaupi,“ segir
hann.
Þingmenn fengu í ágúst þriðju
launahækkunina á rúmu ári sam-
kvæmt ákvörðun kjararáðs. Hækk-
unin var afturvirk um fjóra mánuði.
Þá hækkuðu laun þeirra um 20.300 á
mánuði og fengu þeir eingreiðslu að
upphæð 81.200 krónur vegna aftur-
virkninnar.
DV leitaði einnig eftir upp-
lýsingum hjá Alþingi um
kostnað við aðstoðar-
menn þingmanna.
Þau svör fengust að
ekki hefði enn ver-
ið tekinn saman
kostnaður vegna
hvers og eins að-
stoðarmanns.
ekki launatengt Ásta
möller telur greiðslur
vegna starfskostnaðar
ekki vera hluta af launum.
mynd Ásgeir m. einarsson
sameinaðar launum Jón
magnússon leggur til að
greiðslur vegna starfskostnaðar
verði sameinaðar þingfararkaupi.
mynd Karl Petersson
Vel nýtt guðbjartur Hannesson
segir lítinn ef nokkurn afgang vera
af starfskostnaðargreiðslunni sem
ekki fari í beinan kostnað.
mynd Karl Petersson
D arnbjörg Sveinsdóttir 864.823
V atli gíslason 720.053
S Ágúst ólafur Ágústsson 774.123
V Álfheiður ingadóttir 689.820
D Ármann Kr. ólafsson 689.820
S Árni Páll Árnason 746.022
D Árni Johnsen 780.520
D Árni m. mathiesen 1.211.012
V Árni Þór Sigurðsson 689.820
S Ásta r. Jóhannesdóttir 774.123
D Ásta möller 774.123
D birgir Ármannsson 774.123
B birkir J. Jónsson 780.520
D bjarni benediktsson 774.123
S björgvin g. Sigurðsson 1.211.012
B björk guðjónsdóttir 720.053
D björn bjarnason 1.120.312
D einar K. guðfinnsson 1.247.292
S einar már Sigurðarson 864.823
S ellert b. Schram 689.820
B eygló Harðardóttir 780.520
D geir H. Haarde 1.226.008
F grétar mar Jónsson 720.053
S guðbjartur Hannesson 804.356
D guðfinna S. bjarnadóttir 689.820
F guðjón arnar Kristjánsson 1.061.530
D guðlaugur Þór Þórðarson 1.053.912
S gunnar Svavarsson 774.123
B Helga Sigrún Harðardóttir 780.520
S Helgi Hjörvar 707.723
D Herdís Þórðardóttir 720.053
B Höskuldur Þórhallsson 780.520
S illugi gunnarsson 689.820
S ingibjörg Sólrún gísladóttir 1.120.312
S Jóhanna Sigurðardóttir 1.120.312
V Jón bjarnason 780.520
D Jón gunnarsson 689.820
F Jón magnússon 774.123
S Karl v. matthíasson 720.053
V Katrín Jakobsdóttir 689.820
S Katrín Júlíusdóttir 774.123
D Kjartan ólafsson 864.823
V Kolbrún Halldórsdóttir 689.820
F Kristinn H. gunnarsson 864.823
D Kristján Þór Júlíusson 836.722
S Kristján L. möller 1.247.292
S Lúðvík bergvinsson 864.823
B magnús Stefánsson 780.520
D ólöf nordal 864.823
D Pétur H. blöndal 707.723
D ragnheiður e. Árnadóttir 689.820
D ragnheiður ríkharðsdóttir 774.123
D Sigurður Kári Kristjánsson 774.123
B Siv friðleifsdóttir 774.123
V Steingrímur J. Sigfússon 1.061.530
S Steinunn valdís óskarsdóttir 774.123
D Sturla böðvarsson 1.061.530
B valgerður Sverrisdóttir 1.061.530
D Þorgerður Katrín gunnarsdóttir 1.120.312
S Þórunn Sveinbjarnardóttir 1.120.312
V Þuríður backman 864.823
V Ögmundur Jónasson 774.123
S Össur Skarphéðinsson 1.120.312
LAUN ÞINGMANNA
umfjöll 20. nó r 2008
fámennt á þingi Þingmenn
eiga rétt á starfskostnaðar-
greiðslum sem eru greiddar út
óháð því hvort þeir leggi fram
reikninga eða ekki.
mynd HEiða
Séra Gunnar fær
ekki að ferma
Séra Gunnar Björnsson mun hefja
aftur störf í Selfosskirkju 1. júní
næstkomandi, ekki 1. maí eins
og áður hefur verið tilkynnt. Séra
Gunnar var í lok síðasta mánaðar
sýknaður af ákæru um kynferð-
islega áreitni eins og DV hefur
fjallað um.
Í tilkynningu frá Biskupsstofu
segir að settur sóknarprestur, séra
Óskar Hafsteinn Óskarsson, þjóni
Selfossprestakalli út maí og annist
fermingar sem áformaðar eru í
maí. Þetta er gert að beiðni for-
eldra fermingarbarna. Séra Óskar
Hafsteinn hefur annast ferming-
arfræðslu.
Ökuníðingur
handtekinnn
Lögreglumenn frá Selfossi
stöðvuðu ökumann eftir að
bíll hans hafði mælst á 146
kílómetra hraða á klukku-
stund á Suðurlandsvegi til
móts við Hellisheiðarvirkjun í
fyrrinótt. Maðurinn jók hrað-
ann eftir að lögreglumenn
hófu eftirför og er talið að
hann hafi þá verið á meira en
160 kílómetra hraða.
Ökumaður stöðvaði fljót-
lega. Með honum í bifreiðinni
var einn farþegi. Strax vaknaði
grunur um að ökumaður væri
undir áhrifum fíkniefna. Hann
og farþeginn voru handteknir
og þeir fluttir til yfirheyrslu á
lögreglustöðina á Selfossi.
Braust inn í leik-
skóla
Þjófur braust inn í leikskólann
Bergheima í Þorlákshöfn um
páskana. Hann spennti upp
glugga með sporjárni, fór inn
og hafði á brott með sér Kodak
stafræna myndavél og Canon
myndbandsupptökuvél.
Þetta var ekki eina innbrotið
í Þorlákshöfn síðustu daga. Líka
var brotist inn í verktakafyrirtæki
og tvo sumarbústaði. Tölvuturni
var stolið frá verktakanum en
í sumarbústöðunum var stolið
flatskjám og fleiri tækjum.
Formaðurinn
næði ekki kjöri
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, næði ekki kjöri til
Alþingis ef kosið yrði nú. Þetta
er niðurstaða nýrrar könnunar
sem Gallup hefur gert fyrir RÚV í
Reykjavíkurkjördæmi norður, en
hún var birt nú síðdegis. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar miklu
fylgi og fengi aðeins 22 prósent
en fylgi flokksins var 36,4 pró-
sent í kjördæminu í kosningun-
um 2007.
Samfylkingin er stærst flokka
í kjördæminu og fengi 34,3 pró-
sent ef kosið yrði nú, VG fengi
29,1 prósent og bætir mestu við
sig. Framsóknarflokkurinn er
aðeins með 5,3 prósent, mun
minna fylgi en Borgarahreyfing-
in sem mælist með 8,1 prósent.
Ekkert stjórnlagaþing að sinni
Sjálfstæðismenn fögnuðu sigri þeg-
ar stjórnarflokkarnir og Framsókn-
arflokkurinn létu undan málþófi
þeirra og andstöðu við stjórnarskrár-
breytingar og slógu af hugmynd-
ir um stjórnlagaþing. Því er ljóst að
stjórnarskránni verður ekki breytt
fyrir þingslit með þeim hætti að efnt
verði til stjórnlagaþings.
Óljóst er hins vegar um afdrif
annarra stjórnarskrárbreytinga sem
hafa verið lagðar til. Það eru tillög-
ur í þá veru að stjórnarskrárbreyt-
ingar verði samþykktar í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, að opnað verði fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslur og að þjóð-
areign á auðlindum verði bundin í
stjórnarskrá.
Sjálfstæðismenn, með Björn
Bjarnason í fararbroddi, gerðu grein
fyrir því við upphaf þingfundar að
þeir væru hvergi nærri hættir að
ræða stjórnarskrárbreytingar og ætl-
uðu sér að koma í veg fyrir að efnt
yrði til stjórnlagaþings. Björn sagði
að hann myndi ræða málið eins oft
og þörf krefði til að koma í veg fyrir
að Alþingi afsalaði sér stjórnarskrár-
valdi sínu.
Stjórnlagaþing var eitt skilyrð-
anna sem Framsóknarflokkur-
inn setti fyrir stuðningi sínum við
myndun minnihlutaríkisstjórn-
ar Samfylkingar og vinstri-grænna.
Óvíst er hver möguleikinn er á slíku
stjórnlagaþingi á næstu árum eftir
niðurstöðuna í gær. Verði samþykkt
sú breyting að þjóðin greiði atkvæði
um stjórnarskrárbreytingar verður
hægt að breyta stjórnarskrá hvenær
sem er á næsta kjörtímabili og þar
með boða til stjórnlagaþings. Verði
slík breyting ekki samþykkt yrði það
ekki fyrr en í fyrsta lagi að loknum
þarnæstu þingkosningum sem hægt
væri að boða til stjórnlagaþings.
Hlé var gert á þingfundi í gær á
meðan á borgarafundi Sjónvarps-
ins stóð í beinni útsendingu svo
þingmenn gætu ýmist tekið þátt í
umræðunum eða fylgst með þeim.
Þingfundur byrjaði aftur á tíunda
tímanum og var þá tekið aftur til við
þingstörf.
„GUÐ ER HÚMORISTI“
„Það sem ég hef séð af þessum aug-
lýsingum hefur mér litist ágætlega á.
Þetta er ekki meiðandi að mínu viti
heldur varpar öllu heldur jákvæðu
ljósi á líf að loknu þessu þar sem við
heyrum fagra tóna og fallegar mót-
tökur. Þótt hann bregði sér í gervi
Lykla-Péturs vitum við að það hef-
ur verið notað af ýmsum. Það særir
mig ekki. Trúin er partur af lífinu og
má nota í auglýsingum sem og ann-
ars staðar. Trúin er bara hluti af líf-
inu og hluti af mannlegri tilvist. Mér
finnst skírskotun til eilífra og himn-
eskra hluta vera góð í öllu tilliti ef það
er ekki um niðurlægingu eða nei-
kvæðni að ræða sem er ekki í þessu
tilviki,“ segir Gunnar Þorsteinsson í
Krossinum.
Þvær þvott fyrir Guð
Pétur Jóhann hefur aldrei ver-
ið vinsælli á Íslandi eftir frábæra
frammistöðu sína í þáttunum Næt-
urvaktinni og Dagvaktinni þar sem
hann fer á kostum í hlutverki „FM-
hnakkans“ Ólafs Ragnars. Þá hefur
grínistinn átt góðu gengi að fagna í
Borgarleikhúsinu þar sem hann flyt-
ur einleikinn Sannleikann um þessar
mundir.
Í auglýsingum Vodafone leikur
Pétur Jóhann hvítklæddan Lykla-
Pétur sem býður fólk meðal annars
velkomið í himnaríki og kynnir það
fyrir þessum himneska stað. Í einni
auglýsingunni hringir Guð í Pétur í
miðri kynningu og greinilegt að þeir
tveir eru hinir mestu mátar:
„Blessaður. Ég er bara í miðri
kynningu. Já, ég tók úr vélinni,“ segir
Pétur við Guð og heldur síðan áfram
með kynninguna:
„Eins og ég segi. Það er þrifið
hálfsmánaðarlega hérna hjá okkur.“
Guð hlýtur að hafa húmor
Gunnar hefur mikið álit á Pétri Jó-
hanni og hefði ekkert á móti því að
hafa hann í starfi Lykla-Péturs til
frambúðar.
„Mér finnst strákurinn feiknar-
skemmtilegur. Hann er snillingur. Ég
held að það væru margir mjög glað-
ir að hafa hann sem móttökustjóra
þarna. Hann tekur á móti manni
brosandi.“
Vigfús Þór Árnason, sóknarprest-
ur í Grafarvogi, er ekki síður aðdá-
andi spéfuglsins og telur Guð hafa
húmor fyrir auglýsingunum.
„Ég er voða hrifinn af stráknum
og mér finnst þetta bara húmor. Ég
hef alltaf álitið að Guð hljóti að hafa
mikinn húmor. Mér finnst þessar
auglýsingar gleði-
legar og
fal-
legar. Allt hvítt og fallegt. Þær virka
ekkert illa á mig enda eru þær
skemmtilegar.“
„Ég elska Pétur Jóhann“
Þórhallur Heimisson, sóknarprestur
við Hafnarfjarðarkirkju, telur einnig
að Guð hafi húmor fyrir símaauglýs-
ingunum.
„Það hlýtur að mega gera að
gamni sínu eins og í leikritinu
Gullna hliðið í gamla daga.
Mér finnst vera tilvísun í
það í þessum auglýsing-
um og það er skemmti-
legt. Ég er sannfærður
um að Guð er slíkur
húmoristi að hann
hlýtur að hafa gam-
an af þessu líka,“
segir Þórhallur sem
sparar ekki fögru
orðin um Pétur Jó-
hann.
„Ég elska Pétur
Jóhann. Ég er mik-
ill aðdáandi. Mér
er alveg sama hvað
hann gerir, hann er
alltaf jafnskemmti-
legur. Mér finnst
þessar auglýsing-
ar bráðsmellnar hjá
honum eins og allar
auglýsingarnar hans.
Þetta er flott hjá hon-
um.“
„Ég held að það væru
margir mjög glaðir að
hafa hann sem mót-
tökustjóra þarna. Hann
tekur á móti manni
brosandi.“
LiLJa Katrín Gunnarsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Bráðsmellið Þórhalli
finnst auglýsingarnar
bráðsmellnar eins og
allt sem pétur Jóhann
gerir.
Guð í símaauglýsingu
pétur Jóhann talar við
guð í auglýsingunum
en prestunum sem dV
talaði við finnst aug-
lýsingin ekki meiðandi
heldur skemmtileg.
Pétur í hlutverki Lykla-
Péturs gunnar telur að margir
myndu ánægðir verða ef pétur
Jóhann tæki á móti hinum
látnu á himnum.
miðvikudagur 15. apríl 200912
Fréttir
„Sorg okkar er þyngri en tárum taki,“
segir Reynir Þorgrímsson, faðir at-
hafnamannsins Gísla Þórs Reynis-
sonar sem lést á gjörgæsludeild Land-
spítalans við Hringbraut aðfaranótt
sunnudags eftir skammvinn veikindi.
Gísli hafði sjálfur rætt veikindi sín
í tölublaði Séð og heyrt sem kom út í
lok mars en þá taldi hann sig hafa náð
sér að fullu. Upp komst um veikindin
þegar Gísli missti meðvitund í byrjun
mars en út úr rannsókn lækna kom
í ljós að hann glímdi við innvortis
blæðingar.
Gísli var lífskúnstner sem brosti
fram á síðasta dag. Hann sagði menn
einungis verða ríka á því að vinna,
vinna og aftur vinna. Reynir, faðir
Gísla, er þessu sammála en þeir feðg-
ar voru mjög nánir.
Ósanngjarnt að kveðja barnið
sitt
„Okkur hjónunum finnst það afskap-
lega ósanngjarnt að þurfa að horfa á
eftir börnunum okkar. Þetta er ekki
sanngjarnt,“ segir Reynir sem nú
minnist ljúfra stunda með syni sín-
um. Tárin eru þó aldrei langt undan
þegar hugsað er til hans.
„Veistu að það er kökkur í hálsin-
um á mér. Það varð bara sprenging í
mínum líkama og það rann meira úr
augunum en sturtuhausnum. Kökk-
urinn er þarna enn og ég næ honum
ekki úr mér. Það er mikil eftirsjá að
honum Gísla Þór og heimilið verður
aldrei samt. Við verðum aldrei söm,“
segir Reynir og bætir við: „Þessi þjóð
hefur tapað meiru þessa páskahelgi
en menn í fljótu bragði grunar.“
Hugsaði og framkvæmdi
Spurður hvað situr eftir spyr Reynir á
móti hvað situr ekki eftir?
„Málið með Gísla er að hann hafði
allt. Óskaplega góða menntun en við
hjónin kappkostuðum það að hann
fengi bestu mögulega menntun. Eft-
ir að hafa menntað sig töluvert fór
hann í Harvard-háskólann og full-
komnaði þá menntun. Í öðru lagi var
hann einstaklega vel gefinn, greindur
og hugvitssamur en því fylgdi vinnu-
semi. Hann vann oft á tíðum í fjórtán,
sextán og stundum átján tíma á sólar-
hring. Hann var einn af þeim sem ekki
bara hugsuðu, hann líka framkvæmdi.
Hann var mesti framkvæmdamaður
sem ég hef nokkurn tímann kynnst.
Hann framkvæmdi allar sínar hug-
myndir og þess vegna vegnaði hon-
um svo vel. Hann gerði það af mikilli
einlægni og heiðarleika og þar af leið-
andi hefur þú aldrei lesið neitt slæmt
um Gísla Þór Reynisson,“ segir Reynir
og bætir við að sonur hans hafi átt það
svo sannarlega skilið.
Orkumikill námshestur
Gísli var vinnusamur maður og frá
unga aldri stefndi hann hátt í við-
skiptalífinu bæði hérlendis og heima.
Útlönd áttu þó hug hans allan til að
byrja með en hann réðst svo sannar-
lega ekki á garðinn þar sem hann var
lægstur.
Gísli lauk grunnnámi hér á landi
tvítugur og stefndi á Bandaríkin í frek-
ara nám. Þar lauk hann B.Sc.-gráðu í
hagfræði auk MBA-gráðu í fjármála-
fræðum og tölfræði. Eftir góða dvöl
vestanhafs flutti hann til Finnlands
þar sem hann stundaði kennslu,
rannsóknir auk þess sem hann vann
að doktorsnámi í háskólanum í Tamp-
ere. Þaðan lauk hann PH.Lic.-prófi
árið 1994 en doktorsnáminu ári síð-
ar. Gísli vann doktorsritgerðina sína í
Harvard-háskólanum í Bandaríkjun-
um þar sem hann stundaði rannsókn-
ir á einkavæðingu ríkisfyrirtækja.
Gísli sagði í viðtali við Fréttablaðið
að metnaðurinn hefði komið frá for-
eldrum hans, Guðbjörgu Gísladótt-
ur og Reyni Þorgrímssyni. Spurður af
hverju erlendir háskólar hefðu orðið
fyrir valinu frekar en Háskóli Íslands
sagði Gísli: „Ætli það sé ekki bara
uppeldið og hvatningin frá foreldr-
unum.“
Heiðarlegur útrásarvíkingur
„Hann var einn af þessum fáu útrásar-
víkingum sem aldrei hefur verið skrif-
að neitt slæmt um og hann á það svo
sannarlega skilið. Hann vann heið-
arlega og klókt en líka af kostgæfni.
Þessu fylgdi hann eftir með mikilli
vinnusemi sem reyndar fór síðan með
líkama hans,“ segir Reynir.
Gísli lét þó aldrei á sjá en hann
greindi fyrst frá veikindum sínum
í umræddu tölublaði Séð og heyrt.
Gísli sagði þá í viðtali við tímaritið að
hann hefði fengið innri blæðingar og
að hann hefði verið í tíu daga á spít-
ala vegna þess. Gísli taldi sig vera bú-
inn að ná sér að fullu og sagði við það
tilefni skælbrosandi: „Ég er sprækur
sem lækur.“
Tæpum tveimur vikum síðar hafði
Gísli kvatt þennan heim.
Vinnan fór með líkamann
„Líkaminn hans var gjörsamlega bú-
inn þegar yfir lauk. Öll líffæri hans
voru orðin ónýt út af of mikilli vinnu,
miklu vinnuþreki, löngum vinnutíma,
mikilli hugsun og mikilli framkvæmd.
Þessu fylgdi að sjálfsögðu mikið álag,“
segir Reynir.
Gísli lýsti því þannig þegar upp
komst um veikindin að það hafi ver-
ið eins og ljósin hafi verið slökkt: „Já,
það má segja það, ég fékk ekki einu
sinni verk.“
En það var ekki kreppan sem gerði
útslagið hjá Gísla, að minnsta kosti
vildi hann ekki meina það.
„Þetta getur komið fyrir hvern sem
er. Mínir lifnaðarhættir hafa ekkert
breyst. Þetta er bara eitthvað sem var
lagað og er ekkert varanlegt. Var bara
þarna í nokkra daga á spítala og mál-
ið búið,“ sagði Gísli í viðtali við Séð og
heyrt.
Góður félagi
Gísli var vinur vina sinna og vildi öll-
um vel. Foreldrar Gísla, þau Reynir
og Rósa Guðbjörg Gísladóttir, fengu
heldur betur að kynnast því en heim-
ili þeirra var oftar en ekki fullt af fé-
lögum hans. „Hann var sannur og
vildi öllum vel, reyndist öllum vel og
var vinur vina sinna. Hans heimili var
alltaf opið fyrir hann og alla hans vini.
Það var oft fullt hús hérna heima af
vinum hans og þeir kölluðu okkur for-
eldra sína og gera það meira að segja
enn í dag,“ segir Reynir.
„Þessir sömu strákar, viðskiptafé-
lagar hans sem voru hérna áður fyrr,
hafa hringt hágrátandi í mig og talað
öllum þeim bestu orðum um hann
sem íslensk tunga býr yfir.“
Viðskiptaveldið til
fjölskyldunnar
Gísli átti meirihluta í félaginu Nord-
ic Partners sem hann stofnaði ásamt
Lettanum Daumants Vitols en félag-
ið á miklar eignir bæði hér á landi og
erlendis.
Rósin í hnappagati Gísla var án efa
d’Angleterre-hótelið í Kaupmanna-
höfn en auk þess eiga félög tengd
honum Fiskisögu-verslanirnar, Osta-
búðina, Gallerý Kjöt og einkaþotu-
leiguna Icejet. Þá átti hann einnig
viðskiptagarða víða um Lettland.
Reynir, faðir Gísla, segist ekki vita
hvað tekur við hvað viðskiptaveldi
sonar hans varðar en að viðskiptafé-
lagar hans og allir þeir sem störfuðu
við hlið hans komi til með að koma
að málinu.
„Áfallið er í fyrsta lagi svo mikið,
það er svo stutt síðan þetta gerðist.
Það verða sjálfsagt ráðnir ráðgjafar
til þess að aðstoða börnin hans og
fjölskyldu. Hann átti góða viðskipta-
félaga bæði erlendis og hér heima
og þetta verður að sjálfsögðu unnið
með þeim en það er of snemmt að
segja til um það hvernig að því verð-
ur staðið.“
Sárt saknað
Það stendur ekki á svörum þegar
Reynir er beðinn um að lýsa syni sín-
um:
„Ég myndi segja að hann hafi ver-
ið einstaklega samviskusamur, dug-
legur og heiðarlegur framkvæmda-
maður. Hann var stórkostlegur
viðskiptajöfur, stórkostlegur per-
sónuleiki, hann var mikill Íslending-
ur og hans verður ákaflega sárt sakn-
að,“ segir Reynir um son sinn.
Gísli Þór Reynisson
Reynir Þorgrímsson
„Þetta er ekki
sanngjarnt“
Atli MáR GylfASOn
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
„Það er mikil eftirsjá að
honum Gísla Þór og heim-
ilið verður aldrei samt. Við
verðum aldrei söm.“
líkaminn gaf sig
„líkami hans var gjörsamlega
búinn þegar yfir lauk. Öll líffæri
hans voru orðin ónýt út af of mikilli
vinnu, miklu vinnuþreki, löngum
vinnutíma, mikilli hugsun og mikilli
framkvæmd,“segir reynir, faðir gísla.
Rósin í hnappagatið
kaupin á danska lúxus-
hótelinu d’angleterre rís
hæst í viðskiptum gísla.
Eigum pústkerfi
í flestar gerðir bifreiða
Gott verð!
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455