Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Qupperneq 10
föstudagur 17. apríl 200910 Fréttir
„Ísland er þriðja aðgengilegasta
landið fyrir erlenda fjárfesta sam-
kvæmt úttekt viðskiptatímaritsins
Forbes,“ sagði í heilsíðuauglýsing-
um Framsóknarflokksins í dagblöð-
um fyrir alþingiskosningarnar 2007.
Flokkurinn hafði þá verið í ríkis-
stjórn í tólf ár og hreykti sér mjög
af íslenska efnahagsundrinu sem
hann taldi að stórum hluta sér að
þakka.
Góðærið stóð sem hæst þegar
síðast var kosið til Alþingis. Sjálf-
stæðisflokkurinn lagði einnig ríka
áherslu á efnahagsmálin þegar kom
að kosningaloforðum og í auglýs-
ingum mátti lesa slagorð á borð við
„Traust efnahagsstjórn“ og kjós-
endur voru minntir á að hvergi væri
betra að búa en einmitt á Íslandi.
Á lista Sameinuðu þjóðanna þar
sem ríkjum heims er raðað eftir lífs-
kjörum var Ísland í öðru sæti fyrir
síðustu kosningar. Stefnan var ein-
faldlega sett á toppinn.
Sjálfstæðismenn yfirgáfu þó
framsóknarmenn það vorið og
mynduðu ríkisstjórn með Samfylk-
ingunni þar sem Geir H. Haarde og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kys-
stust eftirminnilega á Þingvöllum til
að innsigla samstarfið. Eftir það lá
leiðin niður á við.
Verðbólga í hámarki
Sjálfstæðismenn héldu fast við að
draga úr umsvifum hins opinbera
og var markmiðið að flytja verkefni
í auknum mæli frá ríki og sveitar-
félögum til einkaaðila. Í dag eru
helstu viðskiptabankar landsins
komnir aftur í ríkiseigu, öfugt við
stefnumál flokksins.
Í stefnuskrá Samfylkingar fyrir
síðustu kosningar sagði að jafnvægi
yrði tryggt í hagkerfinu enda væri
það forsenda þess að vextir og verð-
bólga lækkuðu og gengisstöðugleiki
ykist. Staðreyndin er sú að vextir og
verðbólga náðu sögulegu hámarki,
frá því fyrir þjóðarsátt, eftir að Sam-
fylkingin tók við stjórnartaumunum
og gengismál hafa verið í gríðarlegu
ójafnvægi.
Samfylkingin lagði einnig mikla
áherslu á aukið gagnsæi þegar kem-
ur að stjórnvaldsaðgerðum. Í kjölfar
bankahrunsins bárust almenningi
hins vegar afar misvísandi upplýs-
ingar frá ríkisstjórninni, ef þær bár-
ust þá einhverjar.
Ósannindi formannsins
Traust á ríkisstjórninni fór hratt
dvínandi eftir hrun bankanna. Ingi-
björg Sólrún var þá í veikindaleyfi
en Björgvin G. Sigurðsson, þáver-
andi viðskiptaráðherra, stóð vakt-
ina fyrir Samfylkinguna við hlið
Geirs Haarde, þáverandi formanns
Sjálfstæðisflokksins.
Geir var ítrekað staðinn að
ósannindum og erfitt að tengja
traust við málflutning hans. Daginn
áður en neyðarlögin voru sett í byrj-
un október þar sem Fjármálaeftir-
litinu var gefin heimild til að taka
yfir bankana sagði Geir, aðspurður
hvort Íslendingar væru í efnahags-
legum vandræðum: „Nei, nei. Ég
myndi ekki segja að við værum neitt
sérstaklega verr stödd.“
Á næstu dögum hélt formaður
Sjálfstæðisflokksins því staðfastlega
fram að gjaldeyrisviðskipti væru við
það að komast í eðlilegt horf. „Það
má vel vera að það séu erfiðleik-
ar, einhverjir tímabundnir hjá ein-
staklingum eða fyrirtækjum, og þá
verðum við bara að vona að það
greiðist úr því sem allra fyrst,“ sagði
Geir 13. október síðastliðinn. Í dag,
rúmu hálfu ári seinna, eru þau enn í
stórkostlegu ólagi.
Samfylking hefur reyndar sagt
skilið við Sjálfstæðisflokkinn og
tók þess í stað upp samstarf við
Vinstrihreyfinguna - grænt fram-
boð. Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra hefur þar talað fyrir
skattahækkunum og lækkun launa,
enda enginn góðærisbragur á kosn-
ingaloforðum nú.
BROSTIN LOFORÐ
AUGLÝSINGANNA
Erla HlynsdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Traust efnahagsstjórn var meðal helstu kosningaloforða Sjálf-
stæðisflokksins fyrir síðustu alþingiskosningar og var mikið
gert úr því í auglýsingum vorið 2007. Framsóknarflokkurinn
ítrekaði að íslenska efnahagsundrið væri engin tilviljun og
beindi því til kjósenda að leiðin til áframhaldandi viðskipta-
tækifæra væri að kjósa Framsókn. Samfylkingin hét kjósend-
um sínum því að nýju jafnvægi yrði náð í efnahagsmálum. DV
rifjar upp auglýsingar flokkanna frá síðustu kosningum.
xd.is
Þegar öllu er á botninn hvolft er
traust efnahagsstjórn
stærsta velferðarmálið
Nýir tímar - á traustum grunni
Samfylkingarfólk veit að hægt er að gera mikið betur
í menntamálum hér á landi. Sig-
urður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, virð-
ist hins vegar vera á öðru máli í
grein sinni í Fréttablaðinu 3. maí
sl. Þar lýsir hann því hvernig
allt sé í fínu standi í menntamál-
um á Íslandi og segir okkur vera
þar í fremstu röð. Sigurður Kári
skammast heilmikið út í undir-
rituð fyrir að styðjast í gagnrýni
okkar við gögn frá OECD, sem þó
sérhæfir sig í að bera saman töl-
fræði á milli landa.
Við studdumst við nýjustu
skýrslu OECD um menntamál
(Education at a Glance) frá 2006.
Þar sést að við stöndum illa í al-
þjóðlegum samanburði á stöðu
framhalds- og háskóla. Þenn-
an samanburð vill Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki heyra. Flestar
samanburðartölur OECD í þess-
ari skýrslu eru frá árinu 2004
og gefa því góða mynd af stöðu
menntamála.
Frammistaða íslenskra stjórn-
valda er að sjálfsögðu mæld
í samanburði við önnur lönd.
Vörn Sjálfstæðisflokksins virðist
hins vegar felast í að vilja bera
saman framlög mismunandi ára
milli landa. Það gengur auðvit-
að ekki að bera saman framlög-
in til framhaldsskóla eins og þau
voru á Íslandi árið 2007 við fram-
lög til framhaldsskóla í Svíþjóð
árið 2004.
Það er lenska hjá Sjálfstæðis-
flokknum að véfengja ætíð óhag-
stæðan samanburð, hvort sem
hann kemur frá OECD, Lands-
sambandi eldri borgara, ASÍ eða
öðrum aðilum.
Í töflu B2.1c á bls. 207 í skýrslu
OECD um opinber útgjöld til há-
skólastigsins sést að Ísland er að
verja 1,2% af landsframleiðslu
en meðaltalið í OECD er 1,4%.
Danir, Norðmenn og Finnar verja
1,8% og Svíar 1,5%. Ísland er í
21. sæti af 30 þjóðum.
Í sömu töflu má sjá hverju
önnur ríki verja til framhalds-
skóla en samkvæmt upplýsinga-
þjónustu Alþingis varði Ísland
1,3% til þeirra. Sá samanburð-
ur sýnir að Ísland er í 16. sæti af
30 OECD-þjóðum. Sigurður Kári
reynir ekki að hrekja þennan
samanburð í grein sinni og minn-
ist ekki á hann.
68% á aldursbilinu 25-34 ára
hafa lokið framhaldsskólanámi
en á hinum Norðurlöndunum er
þetta 86-96% skv. töflu A1 2a
á bls. 38. Meðaltalið í OECD er
77% og í ESB 78%. Við erum hér
í 23. sæti af 30 þjóðum.
31% á aldrinum 25-34 ára
hafa lokið háskólanámi hér en á
hinum Norðurlöndunum er þetta
hlutfall 35-42% skv. töflu A1.3a. á
bls. 39. Hér er Ísland í 17. sæti af
30 þjóðum. Sigurður Kári rengir
ekki þessa tölu.
Sigurði Kára tekst því ekki að
hrekja samanburðinn. Honum er
bara illa við samanburðinn sjálf-
an. Heimild sem hann vitnar
sjálfur til í greininni styður mál
okkar enn frekar. Samkvæmt töl-
fræðiskýrslu norrænu Hagstof-
unnar (Nordic Statistical Year-
book 2006) sést að hlutfall fólks
á aldrinum 15-74 sem hafði lokið
námi á háskólastigi árið 2005 var
18,9% á Íslandi en 24,7% í Nor-
egi, 23,3% í Svíþjóð, 22,2% í Dan-
mörku og 26,5% í Finnlandi.
Sigurður Kári heldur því fram
að á þessu kjörtímabili hafi fjár-
framlögin aukist svo mikið að
samanburðurinn sé úreldur.
Lítum því aðeins betur á hvað
hefur gerst í þróun útgjalda til
framhaldsskólanna frá árinu
2004.
Á vef Hagstofunnar kemur
fram að 2004-2005 hafi framlög
til framhaldsskóla lækkað um
123,7 milljónir og hlutur fram-
haldsskólans í landsframleiðsl-
unni lækkað úr 1,41% í 1,33%. Á
sama tíma fjölgaði skráðum nem-
endum á framhaldsskólastigi um
873.
Þá nemur niðurskurður til
framhaldsskóla 2007, 650 milljón-
ir króna. Það virtist koma stjórn-
völdum á óvart að þeir einstakl-
ingar sem fæddust í stórum ár-
göngum 1989 og 1990 skiluðu sér
í menntaskóla. Fjármagn hefur
ekki fylgt þessari „óvæntu“ nem-
endafjölgun.
Loks hefur reiknilíkaninu sem
nota á til að reikna út raunkostn-
að á hvern nemanda í framhalds-
skóla verið breytt þannig að nú
er það notað til að dreifa niður-
skurðinum.
Sigurður Kári getur því ekki
haldið því fram að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi tekið sig saman
í andlitinu á kjörtímabilinu nema
síður sé.
En í samanburði á heildarút-
gjöldum til menntamála komum
við þó ágætlega út í skýrslu
OECD. Sú staða er hins vegar til-
komin vegna þess að við erum
nálægt toppi þegar kemur að út-
gjöldum til leik- og grunnskóla.
Þau skólastig eru hins vegar
rekin af sveitarfélögum en ekki
ríkisvaldinu. Ríkisvaldið rekur
framhalds- og háskólana þar sem
við fáum hina alræmdu fallein-
kunn. En það hafa verið jafnað-
armenn í Reykjavík, Hafnarfirði
og víðar sem hafa rekið flesta
grunnskóla og leikskóla landsins
undanfarinn áratug.
Það er fjárfesting sveitarfé-
laga í grunnskólum og leikskólum
sem togar Ísland upp þegar litið
er til heildarútgjalda til mennta-
mála. Framlög ríkisvaldsins til
framhalds- og háskólanna toga
okkur hins vegar niður.
Ísland er jafnframt hið eina af
Norðurlöndunum sem ekki styrk-
ir sína námsmenn heldur lánar
þeim eingöngu. Sjálfstæðisflokk-
urinn er búinn að stjórna men ta-
málaráðuneytinu í 16 ár. Árang-
urinn er falleinkun í menntamál-
um. Við þessi orð stöndum við.
Varnarleikur Sjálfstæðisflokks-
ins er tilraun til sjónarspils, eins
og ofangreindar staðreyndir
sýna glögglega.
Höfundar eru alþingismenn
Samfylkingarinnar.
Falleinkunn í menntamálum
Höfundar þessarar greinar hafa sýnt með margvísleg-
um hætti á liðnum misserum að
hagur stórs hóps eldri borgara
á Íslandi hefur ekki verið með
þeim hætti sem skyldi. Lífeyris-
þegar hafa dregist afturúr öðrum
þjóðfélagshópum. Fernt hefur
ráðið mestu um það.
Í fyrsta lagi hefur sá hluti líf-
eyris frá almannatryggingum
sem flestir fá (grunnlífeyrir og
tekjutrygging eins og hún var
skilgreind til ársins 2006) ekki
aukist jafn hratt og lágmarks-
laun, meðaltekjur og hærri tekj-
ur á vinnumarkaði.
Í öðru lagi hafa tekjur úr flest-
um lífeyrissjóðum fylgt verðlagi
frá ári til árs en ekki kaupmátt-
arþróuninni í samfélaginu. Vegna
þeirrar kaupmáttaraukningar
sem verið hefur frá 1995 hefur
þessi þáttur lífeyristekna dregist
afturúr tekjum á vinnumarkaði.
Í þriðja lagi hafa skerðingará-
kvæði vegna greiðslna frá Trygg-
ingastofnun valdið því að ellilíf-
eyrisþegi heldur minna eftir af
tekjum sínum úr lífeyrissjóði en
eðlilegt getur talist.
Í fjórða lagi hefur skattbyrði
lífeyrisþega og þeirra sem lægst-
ar hafa tekjurnar aukist mun
meira en hjá öðrum tekjuhópum.
Það varð vegna rýrnunar skatt-
leysismarka að raungildi. Lífeyr-
isþegar hafa alla jafna lægri tekj-
ur en fólk á vinnumarkaði og slík-
ir hópar eru viðkvæmari fyrir
raunlækkun skattleysismarkanna
en fólk með hærri tekjur. Skatt-
leysismörk eru nú 90.000 krónur
á mánuði en ættu að vera hærri
en 140.000 krónur ef þau hefðu
haldið gildi sínu miðað við launa-
vísitölu frá 1988.
Ofangreind þróun hefur leitt til
þess að hækkun kaupmáttar ráð-
stöfunartekna dæmigerðs ellilíf-
eyrisþega með t.d. um 53 þúsund
krónur í tekjur úr lífeyrissjóði
á mánuði og greiðslur almanna-
trygginga, hefur verið mun minni
en varð hjá meðaltekjufólki og
hátekjufólki á síðasta áratug.
Þannig hafa ráðstöfunartekj-
ur hans hækkað um u.þ.b. 20%
frá árinu 1995 á meðan hækkun-
in er sögð yfir 60% fyrir heimil-
in í landinu. Þegar þessi þróun er
höfð í huga vekur furðu að stjórn-
málaheimspeki-
prófessor við
Háskóla Íslands
skuli halda því
ítrekað fram, að
kjör íslenskra
lífeyrisþega
séu betri en er
hjá sambæri-
legum hópum
í grannríkjun-
um. Það er gert
með tilvísunum
í talnaefni, m.a
frá ráðuneyt-
um, sem er ósambærilegt og vill-
andi. Við höfum í fyrri grein bent
á annað efni sem sýnir hið gagn-
stæða, en í því voru notaðar sam-
bærilegri reikniaðferðir. Fleira
mætti tína til um það.
Nýleg skoðanakönnun Gallup
um mat einstaklinga á hvort kjör
þeirra hafi batnað, staðið í stað
eða versnað styður niðurstöður
okkar fyllilega. Fólk finnur þessa
þróun á eigin skinni. Mun færri
í hópi eldri svarenda telja kjör
sín hafa batnað á sl. 4 árum en
er meðal þjóðarinnar alls og mun
fleiri úr hópi eldri svarenda segja
kjör sín hafa staðið í stað eða
versnað. Þetta er afleitur vitnis-
burður um misjafna kjaraþróun á
góðæristíma í samfélaginu.
Enginn skyldi því leggja trún-
að á tal um að lífeyriskjör eldri
borgara séu almennt betri hér á
landi en í grannríkjunum. Það er
væntanlega sagt til að fela ofan-
greinda þróun lífeyriskjara og
réttlæta áframhaldandi sinnu-
leysi stjórnvalda um hag lífeyr-
isþega.
Einar Árnason er hagfræðing-
ur Landssambands eldri borg-
ara, Ólafur Ólafsson er formað-
ur LEB og fyrrverandi landlækn-
ir og Stefán Ólafsson er prófessor
við Háskóla Íslands.
Óviðunandi hagur
Þegar öllu er á botninn hvolft er
traust efnahagsstjórn
stærsta velferðarmálið
xd.is
Nýir tímar - á traustum grunni
Það hefur aldrei verið
betra að búa á Íslandi
KG fiskverkun á Rifi., sem Hjálm-
ar Kristjánsson, stjórnarmaður í
Vinnslustöðinni, fer fyrir, keypti
hlutabréf í Vinnslustöðinni fyrir
um 61,9 milljónir króna á þriðju-
daginn.
Kaupgengið var 8,3 krónur á
hlut sem er langt umfram það til-
boðsgengi sem ráðandi hluthafar
, er vilja taka Vinnslustöðina yfir,
bjóða í bréf annarra hluthafa. Það
hljóðar upp á gengið 4,6.
Hjálmar er bróðir Guðmundar
Kristjánssonar, forstjóra Brims,
sem hefur lýst því yfir að yfir-
tökutilboðið sé of lágt. Saman eiga
þeir feðgar, Guðmundur, Hjálm-
ar og Kristján Guðmundsson, rúm
þrjátíu prósent í Vinnslustöðinni.
Að yfirtökutilboðinu standa
Eyjamenn, félag sem m.a. er
undir forystu Sigurgeirs B. Krist-
geirssonar, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar. Miðað við 30
prósenta arðgreiðslu fyrir síðasta
ár er kaupgengi KG fiskverkun-
ar 70 prósentum yfir tilboði Eyja-
manna.
Kaupir langt yfir tilboðsgengi
Orðrómur fór á kreik í gær að
bresk-ástralska námu- og álfyrir-
tækið BHP Biliton væri að undir-
búa yfirtökutilboð í landa sinn og
helsta keppinaut, Rio Tinto. Gengi
bréfa beggja félaga hækkaði mikið,
þó mest í Rio Tinto sem fór upp um
11 prósent í 99,69 dali á hlut í kaup-
höllinni í Sydney í Ástralíu og hefur
aldrei verið hærra.
Talsmaður Rio Tinto vísaði
orðrómnum á bug en Chris Lynch,
forstjóri BHP, sagði félagið ætíð
vera að skoða góða fjárfestinga-
kosti.
Greinendur sem breska ríkis-
útvarpið ræddi við telja að yfir-
tökutilboð í Rio Tinto, sem skilaði
metafkomu í fyrra, verði vart undir
100 milljörðum dala, jafnvirði 6.426
milljarða íslenskra króna.
Yfirtaka á
Rio Tinto?
Danski bjórframleiðandinn Carls-
berg skilaði hagnaði upp á 45 millj-
ónir danskra króna, jafnvirði 525,4
milljóna íslenskra króna, á fyrsta
fjórðungi ársins. Þetta er umtals-
vert betri afkoma en í fyrra en þá
skilaði fyrirtækið tapi upp á 219
milljónir danskra króna, eða rúma
2,5 milljarða íslenskra.
Bjórsala jókst um 21 prósent á
milli ára á tímabilinu. Aukning-
in dreifist nokkuð enda minnkaði
bjórsala í heimalandi Carlsberg
og í Bretlandi á meðan hún jókst
talsvert í öðrum Evrópuríkjum og
Rússlandi.
Stjórnendur Carlsberg voru
hæstánægðir með niðurstöðuna í
gær og segja horfur á árinu góðar.
Bjórinn skil-
ar hagnaði
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis (SPRON) hagnaðist um
4,7 milljarða króna á fyrstu þrem-
ur mánuðum ársins samanbor-
ið við rúman 1,1 milljarð króna
á sama tíma í fyrra. Þetta er 318
prósenta aukning frá sama tíma
í fyrra.
Eigið fé sparisjóðsins nam 30,5
milljörðum króna í lok fjórðungs-
ins en það er nokkur samdrátt-
ur frá áramótum þegar það nam
tæpum 34,8 milljörðum króna.
Guðmundur Hauksson spari-
sjóðsstjóri segir afkomuna góða
enda sé þetta næstbesta uppgjör
sparisjóðsins á einum fjórðungi í
75 ára sögu hans.
Næstbesti fjórð-
ungur SPRON
Í dag er kosið um
hverjum er best treystandi
fyrir stjórn landsins
xd.is
Nýir tímar - á traustum grunni
Öfugmæli sjálfstæðismenn
vildu meina að þeim væri
best treystandi til að stjórna.
annað kom á daginn.
snúið til botns gott var að búa á íslandi í
góðærinu en efnahagsstjórn undir forystu
sjálfstæðismanna hefur gert að verkum að
nú er hér varla búandi yfir höfuð.
Vantraust stærsta
velferðarmálið að mati
sjálfstæðismanna snerist
upp í andhverfu sína.
Blekkingaleikur geir H. Haarde lagði sig fram um að vera táknmynd traustrar
efnahagsstjórnar en varð þess í stað uppvís að því að beita landann blekkingum í
kjölfar bankahrunsins.
Enginn á þing Ómar ragnarsson lagði
áherslu á umhverfismál í íslandshreyf-
ingunni en hlaut ekki brautargengi.
Samtals 685 ofbeldis-
brot gegn lögreglumönnum voru
tilkynnt á árabilinu 1998-2005. Þá
urðu um 60 prósent lögreglu-
manna fyrir ofbeldi í vinnu sinni á
fimm ára tímabili, frá 2000-2005.
Fimm þeirra urðu fyrir ofbeldi
sem leiddi til líkamlegrar fötlun-
ar, örorku eða útlimamissis.
Þetta er meðal niðurstaðna úr
tveimur rannsóknum á ofbeldi
gegn lögreglumönnum sem emb-
ætti ríkislögreglustjóra hefur
látið gera.
Þá leiða niðurstöður í ljós, að
hótanir í garð lögreglumanna
vegna starfs þeirra eru mjög
algengar. Um 70 prósent þeirra
sögðust hafa orðið fyrir slíku í
vinnu og 26 prósent utan vinnu.
Þeim sem helst var hótað voru
karlar, yngri en 35 ára, sem
gegndu stöðu almenns lögreglu-
manns og unnu hjá minni lögreglu-
embættum.
Hótanir í garð fjölskyldna lög-
reglumanna eru einnig tíðar.
Spurningu þar að lútandi svöruðu
54 lögreglumenn játandi. Þeir
greindu allir frá því að barni
þeirra hefði verið hótað, auk fleiri
fjölskyldumeðlima. Í rúmlega 20
prósentum tilvika var hótunin
kærð eða tilkynnt til lögreglu.
Þau 60 prósent, eða 238 lög-
reglumenn, sem kváðust hafa
orðið fyrir ofbeldi í vinnunni
kváðu gerendurna ýmist hafa
sparkað, slegið eða kýlt.
Þá kemur í ljós að aukning hefur
orðið á notkun vopna gegn lög-
reglumönnum, úr fjórum prósent-
um tilvika í fjórtán á tímabilinu.
Einkum var um að ræða eggvopn,
barefli, ökutæki eða annað. Í einu
tilviki var um skotvopn að ræða.
Það var árið 2001, en þá var lög-
reglumanni ógnað með skamm-
byssu. Um fjórðungur tilkynntra
brota gegn lögreglu var framinn á
lögreglustöð eða í lögreglubílum.
Á tímabilinu 2000-2005 voru 479
einstaklingar kærðir 516 sinnum
fyrir ofbeldi gegn lögreglumanni.
Um fimmtungur þeirra mála fór í
ákærumeðferð. Af þeim enduðu
um 57 prósent fyrir dómi.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir að þegar hafi
verið gripið til aðgerða til að
styðja lögreglumenn sem hafi
verið beittir ofbeldi í starfi.
Hann bendir meðal annars á að
dómsmálaráðherra hafi í því skyni
veitt fjármagn til að auka félags-
legan stuðning við þá í starfi,
refsirammi brota gegn valdstjórn-
inni hafi verið hækkaður úr sex
ára fangelsi í átta og nýlegar
breytingar á skipan lögreglumála
auki öryggi lögreglumanna í
starfi.
Hundruð ofbeldis-
brota gegn lögreglu
Meirihluti lögreglumanna hefur orðið fyrir hótunum og ofbeldi í starfi, að
því er nýjar rannsóknir leiða í ljós. Á sjö ára tímabili voru nær 700 ofbeldisbrot
tilkynnt. Hótanir ná jafnvel til maka lögreglumanna og barna þeirra.
Nicolas Sarkozy,
verðandi forseti Frakklands, sætti
í gær orrahríð gagnrýni, viku áður
en hann tekur við embætti. Verka-
lýðsleiðtogi hótaði harðri and-
spyrnu við áformaðar umbætur
hans og pólitískir andstæðingar
kölluðu lúxussnekkjusiglingu þá
sem hann fór í strax í kjölfar kosn-
inganna „ósiðlega“.
Sarkozy, sem dreif eiginkonu
sína og son með í siglingu um
eyjar í grennd við Möltu daginn
eftir úrslitaumferð forsetakosn-
inganna á sunnudaginn, var vænt-
anlegur aftur í land á miðviku-
dagskvöld. Óvíst var þó hvenær
hann myndi snúa aftur til Parísar.
Elisabeth Guigou, sem sat um
skeið fyrir Sósíalistaflokkinn sem
dómsmálaráðherra í ríkisstjórn-
inni, kallaði siglingu hins verðandi
forseta á 60 metra lúxussnekkju
sem hann fékk að láni frá millj-
arðamæringi „hneykslanlega“ og
„ósiðlega“.
„Öll þessi fjárútlát þegar hann
þykist vera… forseti allra Frakka,“
sagði hún í sjónvarpsviðtali. Slíkt
„óhóf“ verkaði illa á þann hluta
þjóðarinnar, sem berðist við að
láta enda ná saman.
Jean-Francois Cope, talsmaður
ríkisstjórnarinnar, bað stjórnar-
andstæðinga að hætta „persónu-
legum árásum“ á Sarkozy. Hann
tók fram að ríkið hefði ekki borið
neinn kostnað af snekkjuferð
hans.
Meðal dagskráratriða í dag, 10. maí:
Hörðuvallaskóli kl. 8.30. Ruslaskrímslið og Hörðuvallanaglarnir.
Kynning á þemaverkefni og íþróttasýning.
Bókasafn Kópavogs kl. 9.30. Leikbrúðuland sýnir Númi á ferð
og flugi. Sýning fyrir öll börn.
Leikskólinn Rjúpnahæð kl. 15.30. Opið hús og kynning.
Digranesskóli kl. 16.00. Sólkerfisganga fyrir almenning.
Myndlistarsýningar • danssýning • opin hús.
Kynnið ykkur dagskrána nánar á kopavogur.is
VOR Í ÍSLENSKRI
VERKEFNASTJÓRNUN
Opin ráðstefna MPM námsins
Hótel Loftleiðum, Þingsal 1-4,
11. maí, frá kl. 13.00-17.30
Útskriftarnemendur í MPM náminu kynna
fjölbreytt og hnitmiðuð lokaverkefni tengd
verkefnastjórnun
Dæmi um viðfangsefni eru:
• Þjálfun og þekkingaruppbygging
• Verkefnastofur og skipuheildir
• Greiningartæki
• Siðfræðileg álitaefni
• Gæðastjórnun
Ráðstefnan fer fram í þremur straumum og
á hverjum tíma verða þrjú verkefni til
kynningar.
Sjá dagskrá á mpm.is.
Allir velkomnir
www.mpm.is
Ójafnvægi Hið nýja jafnvægi sem samfylkingin lofaði kjósendum sínum var í raun
hið mesta ójafnvægi sem þekkst hefur.