Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Síða 14
föstudagur 17. apríl 200914 Fréttir
Sjóræningjar
í hefndarhug
Þrátt fyrir að fjöldi þjóða hafi gripið til þess ráðs að senda herskip til gæslu undan ströndum Sómalíu
og á Aden-flóa láta sjóræningjar engan bilbug á sér finna. Bandarískir og franskir hermenn björguðu
um síðustu helgi gíslum úr klóm sjóræningja, sem hafa heitið hefndum.
Bæði Bandaríkin og Frakkland
státa af áberandi björgunaraðgerð-
um undanfarið vegna sjórána und-
an austurströnd Afríku. Ráðist var
til atlögu til bjargar gíslum sem sjó-
ræningjar höfðu haft í haldi sínu
svo dögum skipti og féllu fimm sjó-
ræningjar í aðgerðunum. Reynd-
ar féll skuggi á aðgerðir Frakka því
einn gísla sjóræningjanna lét lífið í
björgunaraðgerðinni.
En aðgerðir Bandaríkjamanna
og Frakka kunna að vera dropi í
hafið og sérfræðingar segja að al-
þjóðlegs samstarfs sé þörf til að tak-
ast á við árásir sjóræningja sem hef-
ur fjölgað verulega undanfarið.
„Að okkar mati gerðu Frakk-
land og Bandaríkin nákvæmlega
það rétta, sem sjálfstæð ríki, og ef
öll slík gripu til jafnafdráttarlausra
aðgerða gegn sjóræningjum glímd-
um við ekki við jafnumfangsmik-
ið vandamál af völdum sómalskra
sjóræningja og við gerum í dag,“
sagði Pottengal Mukundan, kaf-
teinn og forstjóri hjá miðstöð um
sjórán hjá Alþjóðlegu siglingamála-
stofnuninni.
Kokhraustir sjóræningjar
Sjóræningjar réðust gegn banda-
rísku skipi að kvöldi þriðjudags
en höfðu ekki erindi sem erfiði og
þurftu frá að hverfa án þess að hafa
komist um borð. Þegar herskip
Bandaríkjanna bar að höfðu sjó-
ræningjarnir haft sig á brott.
Örfáum klukkustundum síð-
ar hafði franski sjóherinn hendur
í hári ellefu manna sem grunaðir
voru um aðild að sjóránum, undan
ströndum Kenía.
En gæsla á hafsvæðinu er eng-
inn hægðarleikur því umrætt
svæði; undan ströndum Sómalíu
og Kenía, þar með talinn Aden-fló-
inn, er meira en 1,1 milljón fermílur
að stærð.
Áður en Bandaríkjamenn réðust
til atlögu til að bjarga bandarískum
skipstjóra, Richard Phillips, síðast-
liðinn sunnudag hétu sjóræningjar
því að berjast við sjóher Bandaríkj-
anna ef hann réðist til atlögu.
Halda ótrauðir áfram
Þrátt fyrir áföll síðustu daga halda
sjóræningjar ótrauðir áfram og á
miðvikudaginn komust þeir yfir tvö
skip, auk þess sem þeir beindu skot-
hríð að því þriðja. Sjóræningjarn-
ir réðust að næturþeli um borð í
gríska skipið Irene og tóku Sea Hor-
se, sem siglir undir fána Tógó, á sitt
vald. Innan NATO gætir sérstakra
áhyggna vegna sjóránsins á gríska
skipinu Irene, enda beittu sjóræn-
ingjar þar nýrri aðferð og réðust til
atlögu í skjóli myrkurs.
Strangt til tekið gæti fjöldi þjóða
hvenær sem er sent lið til gæslu
á hafsvæðinu, en á meðan þjóð-
ir reyna að samræma aðgerðir er
upplýsingaflæði á milli þeirra tak-
markað. Auk Bandaríkjamanna og
þjóða innan Evrópusambandsins
eru NATO, Rússland, Kína og Suð-
ur-Kórea á meðal þeirra sem látið
hafa vita af nærveru skipa sinna á
hafsvæðinu.
Allajafna er meira en tylft skipa á
svæðinu í tilraun til að sporna gegn
sjóránum og sum ríki láta einnig í té
eftirlit úr lofti. En vegna víðfeðmis
hafsvæðisins kann herskip að vera
í margra daga siglingarfjarlægð frá
kaupskipi sem verður fyrir árás sjó-
ræningja.
Áttatíu skip það sem af er ári
Nú þegar hafa sjóræningjar ráð-
ist gegn áttatíu skipum hið fæsta,
það sem af er ári, og hafa haft er-
indi sem erfiði í nítján tilfellum. Á
síðasta ári réðust sjóræningjar á eitt
hundrað og ellefu sjóför og rændu
fjörutíu og tveimur.
Í kjölfar aðgerða Bandaríkja-
manna og Frakka hótuðu tveir sjó-
ræningjanna hefndaraðgerðum
gegn löndunum. „Við höfum ákveð-
ið að drepa bandaríska og franska
sjómenn ef þá verður að finna á
meðal gísla okkar í framtíðinni,“
sagði Abdullahi Ahmed, meðlimur
sjóræningjahóps sem hefur aðsetur
í Harardhere, strandbæ í Sómalíu.
Bandaríkjaher hefur viðurkennt
að aðgerðir hans á sunnudaginn
kunni að hafa aukið hættuna á of-
beldi af hálfu sjóræningja, enda
féllu nokkrir þeirra fyrir kúlum
skyttna bandaríska sjóhersins.
Ódýrara að greiða
lausnargjald
Innan varnarmálaráðuneyt-
is Bandaríkjanna leita menn leiða
til að koma í veg fyrir sjórán í sam-
vinnu við önnur ráðuneyti á borð
við innanríkisráðuneytið og dóms-
málaráðuneytið þar sem reynt er
að finna leið til að hjálpa ríkisstjórn
Sómalíu og leiðir til að draga sjó-
ræningja fyrir dómstóla.
Nokkuð ljóst þykir að skipafélög
muni ekki reyna að hindra sjóræn-
ingjana upp á sitt einsdæmi vegna
þeirrar fjárhagslegu byrði sem slík-
ar aðgerðir hefðu í för með sér. Sé
horft til þess mikla fjölda skipa sem
fer um Aden-flóann árlega, um
30.000 skip á síðasta ári, er ljóst að
um gríðarmikinn kostnað yrði að
ræða ef skipafélög gripu til þess
ráðs að hafa vopnaðar öryggissveit-
ir um borð í skipum sínum, og jafn-
vel ódýrara að greiða lausnargjald-
ið.
Hefnd, ekki sjórán
Sem fyrr segir hafa sjóræningjar
heitið hefndum vegna aðgerða
bandaríska og franska flotans og
þeir hafa ekki setið við orðin tóm.
Síðastliðinn þriðjudag réðust sjó-
ræningjar gegn Liberty Sun, banda-
rísku flutningaskipi, sem var á leið
til Afríku með matvæli sem koma á
til sveltandi borgara álfunnar.
Sjóræningjar réðust að skipinu
á tveimur hraðbátum tæpum 300
sjómílum undan ströndum Sómal-
íu. Stjórnandi skipsins brá á það ráð
að auka hraðann og sigla þvers og
kruss og kom þannig í veg fyrir að
sjóræningjar gætu komist um borð.
Að sögn foringja sjóræn-
ingjanna, Abdis Garad, var ekki um
tilraun til sjóráns að ræða heldur
hefndaraðgerð. „Þessi árás var sú
fyrsta gegn helsta skotmarki okkar,“
sagði Garad. Hann sagði að ætlun-
in hefði verið að eyðileggja umrætt
skip, en „því miður tókst þeim með
naumindum að sleppa frá okkur“.
Engin leið er að sannreyna full-
yrðingu Garads, en hvað sem því
veldur virðast sjóræningjar hafa
yfirhöndina. Þeir hafa á sínu valdi
sautján skip og hátt í þrjú hundruð
sjómenn í gíslingu.
„Við höfum ákveðið að
drepa bandaríska og
franska sjómenn ef þá
verður að finna á með-
al gísla okkar í framtíð-
inni.“
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
snekkja á valdi sjóræn-
ingja tveir sjóræningjar
og einn gísl létust í aðgerð
franska hersins.
Frakkar reyna að
semja við sjóræningja
samningar tókust ekki og
frakkar réðust til atlögu
gegn sjóræningjunum.