Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Side 16
föstudagur 17. apríl 200916 Fréttir
Stóru Spurningarnar
sigmundur davíð gunnlaugsson, formaður framsóknarflokksins,
er vonsvikinn yfir örlögum áforma um stjórnlagaþing og vonast til
þess að sjálfstæðismenn verði ekki í aðstöðu eftir kosningar til þess
að koma í veg fyrir stjórnarskrárbreytingar.
Bráðavandinn – ríkisfjármál
„Það er satt að segja hæpið að hægt sé að ná hagkerfinu aftur á
flot með niðurskurði. Verulegur niðurskurður fæli í sér uppsagnir
starfsmanna í heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfinu og slíkar
uppsagnir munu ekki aðeins skaða okkur í framtíðinni heldur
jafnvel ýta undir efnahagshrun. Það þarf þá að greiða fleirum
atvinnuleysisbætur, færri greiða skatta og það eru færri til að halda
uppi neyslu og þar með fyrirtækjum gangandi. Það kallar á fleiri
gjaldþrot og enn meira atvinnuleysi og svo koll af kolli. Þess vegna
verður öll áherslan að vera á að lágmarka þörfina fyrir niðurskurð.
allar tillögur framsóknar í efnahagsmálum ganga einmitt út á
það. Það er að koma hjólum atvinnulífsins aftur í gang og auka
skatttekjur með þeim hætti. Það er ekki hægt að auka tekjur
ríkisins með skattahækkunum ef fyrirtækin og heimilin eru ekki
með tekjur til að standa undir rekstri, hvað þá auknum skattgreiðsl-
um. tækifæri íslendinga liggja í skuldaleiðréttingu. tækifærið er til
staðar vegna þess að lán til íslands teljast að miklu leyti töpuð. svo
verðum við að komast hjá því að taka á okkur meiri skuldbindingar
en okkur ber lagaleg skylda til. Bara vextirnir af Icesave-láninu
gætu hæglega numið nærri 50 milljörðum króna. Ef við sitjum uppi
með slíkar skuldbindingar mun okkur reynast erfitt að ná okkur á
strik. Það má ekki gerast.“
Evrópusambandið
„stefna framsóknarflokksins í Evrópumálum er skýr enda var hún
meginumræðuefni flokksþingsins í janúar. stefnan er sú að fara í
aðildarviðræður en skilgreina fyrirfram hvað við værum ekki tilbúin
til að gefa eftir. Það er hins vegar ljóst að ferlið allt tæki langan
tíma og að með því yrðu málin ekki leyst í hvelli. Það hefur reyndar
verið nefnt að umsókn ein og sér mundi skapa aukið traust en eftir
stendur að gjaldmiðillinn er mjög viðkvæmur fyrir sveiflum. um-
sóknin mundi ekki breyta því. aðild póllands og margra annarra
landa kom ekki í veg fyrir hrun og miklar sveiflur á gjaldmiðlum
þeirra landa. Við getum því ekki slegið út af borðinu möguleikann
á einhliða upptöku erlendrar myntar, líklega evru. upplýsingarnar
sem láku úr alþjóðagjaldeyrissjóðnum um að sjóðurinn legði til
að Mið- og austur-Evrópuríki tækju einhliða upp evru og gerðust
ef til vill nokkurs konar aukaaðilar að myntbandalaginu voru afar
áhugaverðar. Vel kann að vera að slík leið væri fær fyrir okkur með
réttum stuðningi.“
Lýðræðisumbætur
„Þingmenn framsóknar urðu fyrir miklum vonbrigðum og voru
raunar undrandi á framgöngu sjálfstæðismanna í stjórnlagaþings-
málinu. steininn tók svo úr með nýjasta útspili sjálfstæðisflokksins
um að í stað stjórnlagaþings setji alþingi pólitískt skipaða nefnd í
málið. Þótt leiðinlegt sé að ekki hafi verið hægt að klára stjórn-
lagaþingsmálið fyrir kosningar er skaðinn ekki óbætanlegur því
að það er ekkert því til fyrirstöðu að taka málið upp fljótlega eftir
kosningar. Þá skiptir þó máli hvernig skilið er við 79. greinina sem
segir til um hvernig stjórnarskrá er breytt. að öðru leyti er líklega
fátt annað að gera en sætta sig við að þingflokkur sjálfstæðis-
flokksins getur komið í veg fyrir afgreiðslu stjórnarskrárbreytinga
fyrir kosningar og vona að þeir verði ekki í aðstöðu til þess eftir
kosningar.“
Harmar örlög
stjórnlagaþings
sigmundur davíð gunnlaugsson
forMaður fraMsóknarflokksIns
Illugi gunnarsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins, segir að EsB-
málið sé ekki einfalt og Evrópuþjóðir hafi misjafna reynslu af aðild og
upptöku evrunnar á erfiðum tímum.
Bráðavandinn - ríkisfjármálin
„Þarna er stóri ágreiningurinn milli hægri- og vinstrimanna. Þetta er
gamall ágreiningur og nýr. Við segjum að eina leiðin til að stoppa upp í
gatið hjá ríkinu sé að endurvekja skattstofnana og koma atvinnulífinu
aftur af stað. koma þeim í vinnu sem nú eru atvinnulausir. Það að
hækka skatta á atvinnulíf þegar samdráttur þjóðarframleiðslunnar er
upp undir 10 prósent, þúsundir að verða gjaldþrota og eftirspurn að
dragast saman eykur ekki sem neinu nemur tekjur ríkisins og dregur
úr því að menn ráðist í ný verkefni á almennum markaði og drift
komist á efnahagslífið. Þetta er í hrópandi þversögn við þá hugsun
að reyna að koma atvinnulífinu aftur af stað og að með þeim hætti
myndist tekjur fyrir ríkissjóð.
um skatta á almenning er þetta að segja: Þegar lán hafa hækkað og
fasteignaverð og laun lækkað og vinna dregist saman er ekki skyn-
samlegt að auka skatta heimilanna. Það eykur aðeins vanda þúsunda
heimila. skattar á heimili draga úr eftirspurn eftir vöru og þjónustu.
færri störf myndast og það dregur úr drift í hagkerfinu. neysla eins er
vinna annars.
Það sem mestu máli skiptir er að lækka stýrivexti. Það er óskiljanlegt
að seðlabankinn haldi þeim svona háum. Hvergi í veröldinni eru
menn með stýrivexti í þessum hæðum. Það lifnar ekkert yfir íslensku
atvinnulífi fyrr en þeir lækka. Þeir áttu að fara niður strax fyrir áramót.“
Evrópusambandið
„Við sögðum á landsfundinum eftir að hafa skoðað allar hliðar málsins
og metið hagsmunina að ekki væri ástæða til að sækja um aðild að
Evrópusambandinu að svo komnu. Það kom líka fram hjá okkur að
fyrr eða síðar verði þjóðin að taka afstöðu til málsins í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Ekki má gleyma því að næstu árin erum við þrátt fyrir allt með EEs-
samninginn og erum þátttakendur þar. Það sem við höfum ekki er
evran. Menn verða að horfa á þetta þannig að til þess að sækja evruna
sé nauðsynlegt að ganga í EsB. En þá sé einnig óhjákvæmilegt að
gangast undir sjávarútvegsstefnu EsB og gefa eftir full yfirráð yfir
fiskveiðunum. Þetta dæmi er ekki ókeypis. síðan er hitt að næstu
árin liggur fyrir að við tökum ekki upp evruna þótt við gengjum í EsB
innan tíðar. Við verðum líka að horfa til annarra landa. Evran hefur
ekki bjargað spánverjum frá 15 prósenta atvinnuleysi. Hún hefur
ekki bjargað írska bankakerfinu sem írsk stjórnvöld hafa þurft að
ábyrgjast. austurríksimenn eiga í erfiðleikum. Þjóðir, sem gengið hafa í
sambandið eins og Eystrasaltsríkin en hafa ekki tekið upp evru búa við
mjög versnandi efnahag. Við verðum að leysa málin með þeim spilum
sem við höfum á hendi. Það felast líka tækifæri í því að hafa krónuna. í
fyrsta lagi gefur það útflutningsgreinum tækifæri, það eykur líkur á ný-
sköpun og gefur innlendri framleiðslu vernd í samkeppni við erlenda
vöru og getur þess vegna verið tæki til þess að vinna okkur hraðar út
úr því atvinnuleysi sem plagar þjóðina. Á írlandi eru vandamálin mikil í
útflutningi vegna styrkrar evru. Þeir eiga erfitt með að koma vöru sinni
til Bretlands og Bandaríkjanna vegna styrkingar evrunnar. Þetta er
með öðrum orðum ekki svo einfalt að töfralausn sé í boði.“
óskiljanlega
Háir stýrivextir
illugi gunnarsson
ÞIngMaður sjÁlfstæðIsflokksIns
guðjón a. kristjánsson, formaður frjálslynda flokksins, segir brýnt
að lækka stýrivextina fljótt og örugglega og að sett verði þak á
verðtryggingu veðskuldbindinga heimilanna.
Bráðavandinn - ríkisfjármál
„Það er betra fyrir hag fjölskyldna en margt annað að setja þak
á verðtrygginguna um tíma umfram 5 prósent. allt umfram það
yrði sett inn á biðreikning. svo geta menn metið það síðar þegar
verðbólgan er farin að nálgast 5 prósent hvað komið er inn á
biðreikning og hver þróun fasteignaverðs verður. Ef þetta liggur
fyrir er um leið komin forsenda fyrir afskriftum sem þurfa að eiga
sér stað gagnvart almenningi. lánardrottnar hefðu hvort eð er ekki
fengið fullt endurgjald eins og ástatt er.
síðan er mest um vert að hækka atvinnustigið, auka tekjur þjóð-
arheimilisins. Við höfum lagt til að tekinn verði 260 þúsund tonna
þorskafli í þrjú ár; árlegur þorskafli verði með öðrum orðum aukinn
um 100 þúsund tonn. Það gæfi okkur 40 milljarða inn í þjóðarbúið
á ári. staðreyndin er sú að frá 1920 til 2000 veiddu menn að jafnaði
385 þúsund tonn af þorski á ári. að halda því fram að hægt sé að
setja þorskstofninn í bráða hættu við þau skilyrði sem eru í sjónum
er fráleitt. Þeir sem halda slíku fram eru ekki með öllum mjalla.
Við eigum að nota allt með köldu höfði það sem getur aukið at-
vinnu í landinu án þess þó að ganga of hart fram gegn náttúrunni,
til dæmis með stóriðju. Við komumst ekki í gegnum 150 milljarða
ríkissjóðshalla nema með því að auka tekjurnar. Ég held að það sé
mjög erfitt að ná meiri niðurskurði en 35 milljörðum í ríkisútgjöld-
um, hvað þá 55 milljörðum króna.
Það getur komið til greina að lækka laun opinberra starfsmanna.
Það er alltaf erfitt að lækka laun. Það er miklu betra að nota
persónuafsláttinn til að verja tekjur láglaunafólksins.“
Evrópusambandið
„Er staða okkar þannig að við séum á leiðinni inn í EsB? Ég tel að
svo sé ekki. í fyrsta lagi er skuldastaða okkar með þeim hætti að
við erum ekki einu sinni gjaldgeng þar innanbúðar. og varðandi
gjaldmiðilsvandann er staðan sú að við verðum að koma okkur út
úr þessari stöðu með krónuna að vopni. Við höfum hins vegar ekki
hafnað neinu. staðreyndin er sú að við eigum enga góða kosti. Við
höfum ekki möguleika á að taka upp evru í hvelli. Við eigum ekki
möguleika á að fara inn í EsB nú þegar. Ef þjóðin vildi veita aðgang
að auðlindum sínum mundi Evrópusambandið vafalaust sækjast
eftir okkur.
Við styðjum að sett verði auðlindaákvæði í stjórnarskrána. Við
heyrum á máli sjálfstæðismanna að auðlindirnar eigi að vera
einkaeign manna og erfast eftir erfðalögum. Meirihluti sjálfstæðis-
manna vill viðhalda þessu óbreyttu eins og kom fram á landsfundi
þeirra. Þetta þýðir að smátt og smátt festast séreignarréttindi yfir
auðlindunum í sessi; hefðarrétturinn vinnur með þeim.“
Kvótakerfið
„Við bendum á að nú er megnið af skuldum sjávarútvegsins í
ríkisbönkunum. Það er því tiltölulega einfalt að innkalla aflaheim-
ildirnar þótt við gerum okkur grein fyrir að það verði ekki gert á
þessu ári. Það hefur lengi verið okkar skoðun að útgerðarmenn eigi
að hafa vissu fyrir nýtingarrétti og aðgang að aflaheimildum innan
ríkjandi fiskveiðikerfis. En það eigi skilyrðislaust að taka af þeim
veðsetningarréttinn, söluréttinn og leiguréttinn á óveiddum fiski í
sjó. Þessir réttur á að vera hjá þjóðinni. Þjóðin á að fá arð af auðlind
sinni. Það er mjög óeðlilegt að meginauðlind þjóðar geti verið háð
reglum séreignarréttar.“
auknar veiðar -
meiri atvinna
guðjón a. kristjánsson
forMaður frjÁlslynda flokksIns