Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Qupperneq 18
Ögurstund á Austurvelli Árið 1876 var hinn örvum-glaði bandaríski herforingi George Armstrong Custer borinn ofurliði af herskara indíána í sögufrægum bardaga við Little Big Horn. Custer var mikið hörkutól og ekkert á þeim brókunum að gefast upp fyrr en í fulla hnefana og barðist því vitaskuld til síðasta manns. Herforinginn og menn hans áttu þó ekki möguleika gegn meirihluta indíánanna sem sviptu Custer og alla hans menn höfuðleðrinu og sendu hersinguna til heljar sundurskotna. Áður en Custer þurfti að lúta í gras fyrir indíánunum hafði hann barist í borgarastríði Bandaríkjamanna og komst í annála fyrir vaska framgöngu og að- gangshörku á vígvellinum og auðvitað ekki síst fyrir sinn hinsta bardaga sem er yfirleitt ekki kallaður annað en „Custer´s last stand“. Hern- arðarbrölt hans og söguleg endalok þykja enn þann dag í dag svo merkileg að leitarvélin Google kannast við kauða. Sag- an hefur hins vegar ekki farið neitt sérstaklega mjúkum höndum um Custer sem þykir svona eftir á að hyggja ekkert sérstak- lega næs gæi. Eitt hundrað þrjátíu og þremur árum síðar stóð stríðsmar-skálkur Sjálfstæðisflokksins, Björn Bjarnason, í spor- um Custers. Að vísu ekki við Little Big Horn. „Last stand“ Björns var í ræðupúlti í þinghúsinu við Aust- urvöll og Björn var ekki umkringd- ur rauðskinnum heldur rauðliðum, gólandi vaðmálskommum, krataskríl og framsóknardurgum. Björn var rétt eins og Custer tættur og laskaður eft- ir borgarastyrjöld sem kennd er við búsáhöld. Björn var hins vegar ekki af baki dottinn eins og Custer. Skrælingjaskrílinn sem veitt-ist að frjálshyggjuriddaraliði Björns ætlaði sér að uppfylla eina óuppfylltu kröfu bylting- arskrílsins með pottana og pönnurn- ar, að koma á stjórnlagaþingi sem ætlað er að berja í fúna brestina í undirstöðum stjórnskipunar á Íslandi sem er fyrir löngu orðin gróðrarstía spillingar Sjálfstæðis- flokksins. Þegar indí- án- arnir gerðu Custer grein fyrir því að dagar hans væru taldir skreið hann í skjól á bak við dauðan hest í vonlausri varnarbaráttunni. Íslenski vígamaðurinn Björn Bjarnason veit að dagar hans eru taldir en leggst þó ekki flatur á ögurstundu. Minni spámenn í herliði Björns höfðu náð að halda aftur af ofurefli andstæðinganna með gamaldags íslensku tuði. Liðsmönn- um beggja fylkinga var þó farið að leiðast þófið þegar hershöfðinginn steig fram, horfðist í augu við fjendur sína og sagði: „Ég ætla ekki að láta það verða mitt síðasta verk hér á Alþingi að svipta Alþingi stjórnarskrárgjafar- valdinu. Og ég mun hér tala eins oft og ég þarf til þess að koma í veg fyrir að svo verði.“ Óneitanlega flott last stand hjá vígamanni sem axlar nú sín skinn. Vinstri skrælingj-arnir gerðu sér strax grein fyrir því að þeir myndu aldrei vinna umsátrið um Björn Bjarnason með kappann í þessum ham, lögðu niður vopn og draumur búsáhaldafólksins var settur á ís. Sagan á auðvitað enn eftir að dæma þennan sigur hins ís-lenska Custers og óneitan-lega er hætt við því að Björn og blástakkarnir muni sitja uppi með þann svartapétur í Íslandssög- unni að hafa drepið þjóðþrifamáli á dreif með leiðindum og stælum. föstudagur 17. apríl 200918 Umræða Sandkorn n Kosningabarátta Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Norðaust- urkjördæmi hefur ekki verið honum dýr. Þingmannsefn- ið ekur um á bifreið í eigu 365 og er með bensínkort fyrir- tækisins í vasanum. Mikið hefur gengið á í akstrinum ef marka má að kappinn klessti Ford Escape-bif- reið fyrir- tækisins þannig að mikið tjón hlaust af. Hann þurfti þó ekki að ganga því 365 lagði honum til bílaleigubíl á meðan á við- gerð stóð. Ekki vildi þó betur til en svo að hann olli tjóni á þeim bíl líka. Í bæði skiptin var Sig- mundur í órétti og allur kostn- aðurinn lendir á fjölmiðlinum. n Heldur bar það brátt að þegar Arna Schram ákvað að hætta sem formaður Blaðamannafé- lagsins eftir fremur litlausan feril. Þeir sem höfðu hug á embættinu urðu að bregðast skjótt við þar sem einungis nokkrar klukku- stundir voru þar til vikufrestur til að tilkynna formannsframboð rynni út. Kristinn Hrafnsson, atvinnulaus liðsmaður Kompáss, var eldsnöggur að ákveða sig og lagði inn tilkynningu. Þóra Krist- ín Ásgeirsdóttir, varaformaður félagsins, stökk svo einnig til á elleftu stundu þannig að spenn- andi kosning er fram undan hjá blaðamönnum. n Allt kapp er nú lagt á að græða þau svöðusár sem hlutust í átök- um Guðlaugs Þórs Þórðarson- ar og Illuga Gunnarssonar um efsta sætið í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykja- vík. Pásk- arnir voru Guðlaugi erfiðir enda var hann krossfestur á föstudaginn langa vegna styrkjamála Sjálfstæðisflokksins. Nú virðist hann vera uppris- inn eftir barninginn og var hinn brattasti á aðalfundi sjálfstæðis- félagsins Varðar. Sérstaklega vakti athygli að Guðlaugur og Illugi urðu samferða af fundinum. n Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra er nú í óða önn að brýna niðurskurðarhnífinn og augljóst að hún reiknar með að sitja áfram sem ráðherra eftir kosningar. Meðal þeirra verkefna sem við henni blasa er að taka til í Ríkis- útvarpinu þar sem vel aldir gull- kálfar Páls Magnús- sonar kjaga um ganga. Katrín boðar að tekið verði á launamálum innan fjöl- miðlarisans með launajöfnun að leiðarljósi. Þar ber hæst ofurlaun Páls sjálfs sem aukinheldur ekur um á lúxusjeppa í boði hrjáðrar þjóðar. lyngháls 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Árni Páll var bara úti að aka.“ n Framsóknarmaðurinn Hlini Melsted Jóngeirsson um Árna Pál Árnason, oddvita Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hann kallaði andstæðinga sína fífl á fjölmennum framboðsfundi í Fjölbrautaskóla Garðabæjar. – Visir.is „Ég á ekki inneign til þess að hringja.“ n Vífill Atlason aðspurður hvort hann ætli að reyna að gera símaat í Barack Obama Bandaríkjaforseta. Árið 2007 gerði Vífill símaat í George Bush, þáverandi forseta Bandaríkjanna. – DV „Ég held að fjölmiðlar og allir þrífist á svona fyrir- komulagi.“ n Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Eitthvað sem allir virðast hafa vitað nema HSÍ sem hefur hringlað linnulaust með fyrirkomulagið undanfarin ár. – DV. „Ég geri þetta í sumarfrí- inu mínu.“ n Katrín Jakobsdóttir aðspurð hvort hún hafi tíma til þess að kenna við Háskóla Íslands í sumar. – DV. „Eftir fáeina mánuði finnur maður fyrir því að krydd vantar í tilveruna og þá fer allt í sama farið.“ n Ingólfur H. Ingólfsson, ráðgjafi og eigandi spara.is, um að fólk verði að varast að skera of mikið niður hluti sem gefi lífinu lit. – DV. Draumóralandið Leiðari Andri Snær Magnason rithöfundur dregur upp hjákátlega mynd af hjá-kátlegu landsbyggðarfólki í heim-ildarmynd sinni Draumalandinu sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum. Andri birtir myndskeið af fögnuði Húsvíkinga og Reyðfirðinga yfir álversframkvæmdum, sem virðist fádæma heimskulegur í ljósi drunga- legs boðskapar myndarinnar. Sú skoðun að Íslendingar ættu að beita sér gegn verksmiðjum og „bara gera eitthvað annað“ skaut rótum í þjóðarsálinni á þeim tíma sem uppgangur í þjóðfélaginu var drif- inn áfram af stórfelldum lántökum. Þjóð- félagið virtist vera ósigrandi. Allt gekk upp, þótt lítið væri reynt. Þegar allt kemur til alls var það sá hæfileiki Íslendinga að taka lán, taka áhættu, stunda spillingu og veðsetja verðmætin sem olli góðærinu síðustu ár. Út frá þessari forsendu, að allt kæmi af sjálfu sér, spratt hugmyndin um að Íslendingar gætu auðveldlega sleppt því að framleiða verðmæti, án sérstakra afleiðinga. Öfgar aft- urhaldssinna spretta úr hinu firrta samfé- lagi, rétt eins og frjálshyggju- stefna Sjálfstæðisflokksins á sama tíma. Margt fólk úti á landi dreymir um að starfa við eitt- hvað annað en sjávarútveg eða sauðfjárrækt, en verður að horfa upp á drauma sína dofna út eða flytja burt. Ólíkt því sem margir náttúruvernd- arsinnar halda fram gat fólk á Reyðarfirði ekki ákveðið að vinna bara við eitthvað. Í frjálsu hagkerfi verður ein- hver að vilja borga fyrir vinn- una. Blind trú á því að álver leysi allt er skaðleg, en trúin á að sprotar spretti sjálfkrafa um víðan völl óháð mark- aðslögmálum er engu betri. Útsýnið frá Austurvelli er mjög takmark- að. Það sýnir ekki fábreytileikann í atvinnu- málum margs landsbyggðarfólks. Andri Snær hæðist að fögnuði fólksins, sem sá drauma sína rætast um að brjótast út úr ein- hæfni fiskvinnslu. Skilaboð hans til landsbyggðarfólks- ins eru í grófum dráttum: Þið getið bara gert eitthvað annað. Líkt og fólkið hafi ekki reynt það sem minnsti grundvöllur var fyrir. Við- horfið gagnvart fólkinu minnir um margt á meint viðbrögð Frakkadrottning- arinnar Marie Antoinette við bón múgsins um brauð: „Geta þau ekki bara borðað kökur?“ Öfgafullir náttúruvernd- arsinnar og frjálshyggju- menn byggja kröfur sínar á þetta-reddast- hagfræði. Nýtt Ísland verður að hreinsa sig af kæruleysinu og firringunni, hvort sem hún stafar af draumórum frjálshyggjumanna um lánadrifna velgengni eða draumórum um sjálfkrafa velferð án auðlindanýtingar. Sjálfshjálp lánlausrar þjóðar felst í ábyrgri verðmætasköpun. Þetta reddast ekki bara. Jón trAusti reynisson ritstJóri skrifAr. Hugmynd öfgasinna í náttúruvernd sprettur úr jarðvegi firringarinnar. bókStafLega Sælir eru saklausir Núna stýrir þjóðarskútunni heið- arlegt fólk, fólk sem tók við rekaldi. Núna á þjóðin von um bættan hag þrátt fyrir að ástandið sé bágt og bölið margt. En enn eru þeir til sem þykj- ast vita betur, þeir lofa jafnvel mistök sín í von um uppreisn æru. Bubbarn- ir væla hver í kapp við annan, þeir eru svo vissir um að enginn geti stjórnað landinu betur en Sjálfstæðisflokk- urinn. Þeir hræðast það einsog heit- an eldinn að núverandi ríkisstjórn stjórni eftir kosningar og svo óttast þeir að stjórnin leyfi þjóðinni að njóta þess að ríkisvaldið tók yfir húsnæðis- lán bankanna eftir að erlendir kröfu- hafar höfðu afskrifað stærstan hluta lánanna. Ríkisvaldið mun ábyggi- lega sýna þjóðinni réttlæti og afskrifa til fjöldans það sem ríkið hefur þeg- ar fengið afskrifað í útlöndum. Ef ég hef skilið rétt, þá er staðan sú í dag, að ríkið þarf ekki að greiða erlendum kröfuhöfum nema um það bil fimmt- ung þess fjármagns sem rataði til landsmanna í formi húsnæðislána á meðan bankarnir voru í einkarekstri. Við eigum eftir að upplifa rétt- læti. Við eigum eftir að horfast í augu við það að ranglæti hefur fengið að ráða hér ferðinni um langa hríð. Við eigum eftir að fá svör við spurningum þegar við heimtum að allt verði uppá borðið sett. Hvernig i ósköpunum ætli standi á því að alltaf megi finna ný hneyksl- ismál hjá þeim flokki sem kennir sig við sjálfstæði? Ætli það sé vegna þess að ríkir menn haldi að þeim hafi hlotnast sjálfstæði frá sauðsvörtum almúga? Eða er það vegna þess að sjálfstæðismenn eru upp til hópa sið- spilltir einstaklingar? Staða lýðræðisins er slæm þegar stjórnmálmenn og aðrir kjörnir full- trúar fara um með brugðinn betlist- af og biðja áhrifamenn í fyrirtækjum um að styðja stjórnmálaflokka með styrkjum uppá tugi milljóna króna. Slíkt háttarlag er glæpsamlegt. Eymd lýðræðisins er opinberuð þegar leið- togar Sjálfstæðisflokksins, kjörnir full- trúar og starfsmenn, ljúga hver um annan þveran og sverja af sér alla að- ild að máli sem teygir anga sína til auraseggja sem fengu hér að valsa um einsog landið væri þeirra einkaeign, rétt einsog þegar Árni Johnsen hélt að hann gæti fengið gólfdúkinn ókeypis. Enn einn kjáninn kemur fram og tafsar stöðugt á því að hneykslis- mál sjálfstæðismenna séu útrædd. Við hin vitum að munurinn á Árna Johnsen og öðrum sjálfstæðismönn- um er fyrst og fremst sá að Árni hef- ur nú þegar afplánað sinn fangelsis- dóm, hinir eiga eftir að taka út sína refsingu. Að Kvíabryggju gengur Geir með Gulla vini sínum og Árna Johnsen þakka þeir að þar er nóg af dýnum. kristján hreinsson skáld skrifar „Við eigum eftir að horfast í augu við það að ranglæti hefur fengið að ráða hér ferðinni um langa hríð.“ SkáLdið Skrifar Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.