Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Side 25
föstudagur 17. apríl 2009 xxHelgarblað
„Ég finn mig mjög vel og hef ofsalega
gaman af þessu. Þetta kemst líklega
næst því sem ég vil gera í fjölmiðl-
um, af því sem ég hef gert hingað til,“
segir Sölvi um nýja þáttinn, Spjallið
með Sölva á Skjá einum, eftir að við
höfum fengið okkur sæti í stofunni
heima hjá honum í kjallaraíbúð við
Laugateig í Reykjavík. Sölvi ólst upp
í þessu húsi og eftir að hafa prófað
að búa bæði í miðbænum og í Kópa-
vogi er týndi sonurinn kominn aftur
heim. Þar hefur hann búið sér nota-
legt heimili með kærustunni, Silviu
Santana Briem, sem býður blaða-
manni upp á dýrindis smákökur.
Látum liggja á milli hluta hvort þær
séu heimabakaðar. En gómsætar eru
þær.
„Maður fær algjört frelsi á Skjá
einum,“ heldur Sölvi áfram, augljós-
lega ánægður með lífið, tilveruna
og vinnuna. „Það er ekkert verið að
skipta sér af því sem maður er að
gera en um leið nógur tími til þess
að ræða málin. Öðruvísi en þetta
„dedlæn“-umhverfi sem maður hef-
ur verið í. Maður er því ekki alltaf í
þessum svakalega mokstri og þetta
gefur þér tækifæri til þess að fara
dálítið dýpra með viðmælendurna.
Viðbrögðin hafa líka verið ofsalega
góð,“ segir hann og lyftir brúnum.
Trúðskrafan erfið
Sölvi segir það hafa komið honum
svolítið á óvart hvað fólk sé ánægt
með þessa þætti. Sú staðreynd að
Skjár einn hafi ekki verið með neina
þjóðmálaþætti í nokkurn tíma, og
áhorfendahópur stöðvarinnar því
svolítið mikið bara að horfa á af-
þreyingu, valdi því að það taki tíma
að venja fólk við þennan þátt á þess-
ari stöð, svo ekki sé talað um á þeim
tíma sem þátturinn er sendur út á,
föstudagskvöldum klukkan 21.
„Kannski mesta dílemmað sem
ég hef verið í með þennan þátt er
að mér er mjög eðlislægt að taka al-
vörugefnar umræður,“ segir Sölvi.
„En þegar maður er með þátt á föstu-
dags- eða laugardagskvöldi finnst
manni komin svolítil krafa að mað-
ur sé dálítill trúður, dálítill skemmti-
kraftur. Ef ég ætti að meta mig sem
fjölmiðlamann er það þar sem ég
þarf mest að bæta mig. Það er kúnst
að vera „entertainer“.“
Sölvi hefði kosið að hafa þáttinn
á öðrum tíma, til dæmis á miðviku-
dagskvöldum. En þegar Skjár einn
hafði samband við hann, nánast um
leið og honum var sagt upp á Stöð
2 í kringum áramótin, var búið að
ákveða dagskrána fram á vor. Einu
tímarnir sem voru lausir voru föstu-
dags- og laugardagskvöld.
„Öll hin kvöldin eru með fasta
dagskrárliði sem eru búnir að vera
lengi á dagskrá og eru með gott
áhorf. Það er því mjög skiljanlegt að
ekki sé verið að færa þá til eða slaufa
þeim. En sígandi lukka er best og
mér sýnist áhorfið vera á réttri leið,“
segir Sölvi en auk Spjallsins, sem er
vikulega á dagskrá, stýrir hann þætt-
inum Málið ásamt Gunnhildi Örnu
Gunnarsdóttur en hann er á dagskrá
einu sinni í mánuði.
Ótti á Stöð 2
Spurður um muninn á því að vinna
á Stöð 2 og Skjá einum segir Sölvi að
mörgu leyti erfitt að bera það saman
því á Stöð 2 hafi hann verið í fastri
vinnu.
„Ég mætti í vinnuna og var á
staðnum alla daga. Á Skjá einum er
ég verktaki og viðvera mín þar því í
engri líkingu við það sem var á Stöð
2. Þetta er því töluvert öðruvísi. Segja
má að það eina sem ég sakna frá Stöð
2 sé frábærir samstarfsfélagar, en að-
búnaðurinn á Skjá einum er síst slak-
ari. Stúdíóið sem ég er til dæmis í
jafnast alveg á við það sem ég hafði
í Íslandi í dag,“ segir Sölvi og tekur
fram að hann sé auðvitað ekki eini
starfsmaðurinn á bak við Spjallið.
Útsendingarstjórinn Kolbrún Jarls-
dóttir sé til að mynda ómetanleg í
dagskrárgerðinni, sem og fleira gott
fólk á Skjá einum.
„Að mörgu leyti er jákvæður og
góður mórall á Skjá einum þrátt fyr-
ir erfiða tíma. Maður finnur að það
eru allir að vinna að sama markmiði.
Stöð 2 er frábær vinnustaður en það
sem var orðið leiðinlegt undir það
síðasta, og er leiðinlegt við stöðina
ennþá, er að fólk er óttaslegið þarna
inni. Óttaslegið um framtíð sína. Við
getum orðað það þannig að það sé
búið að sýna það að hver sem er geti
lent í fallöxinni.
Uppsagnirnar þarna hafa ekki
farið eftir einhverjum lögmálum um
hver sé búinn að vera styst, hver sé
minnst hæfur eða eitthvað slíkt. Hver
sem er getur bara lent í þessu. Ég get
náttúrlega ekkert dæmt um sjálfan
mig en strákarnir í Kompás eru gott
dæmi um frábæra blaðamenn sem
lentu undir fallöxinni. Þótt þátturinn
hafi vissulega verið dýr finnst manni
að fjölmiðlafyrirtæki ætti að geta
fundið einhver störf fyrir svona hæfa
menn. Það er aðallega það sem gerir
aðra óttaslegna.“
Ljót kveðjugjöf
Hvernig hugsarðu til stjórnenda
Stöðvar 2 núna?
„Ég er sem betur fer þannig úr
garði gerður að ég horfi fram á veg-
inn og þess vegna hafa komið tæki-
færi upp í hendurnar á mér frá því ég
hætti,“ segir Sölvi. „Ég hef fengið fleiri
en eitt og fleiri en tvö atvinnutilboð
frá því mér var sagt upp og ég skrifa
það á þá staðreynd að ég er mjög
pósitífur. Ég dvel ekki í fortíðinni. En
ég neita því ekki að ef ég hugsa um
brottreksturinn frá Stöð 2 finnst mér
hann gífurlega ósanngjarn.
Ég var meira og minna í einn til
tvo mánuði búinn að halda þessum
þætti uppi. Allir þeir sem hafa unn-
ið í sjónvarpi vita að það getur tek-
ið verulega á að taka alvarleg viðtöl
í beinni útsendingu á hverju einasta
kvöldi, með korters til tuttugu mín-
útna langan þátt. Þetta var ekki eins
og í Kastljósinu þar sem hægt er að
skipta þessu á milli fólks. Ég var með
frábæra samstarfskonu, Sigurlaugu
M. Jónasdóttur, en hún var bara í
fimmtíu prósent starfi og hennar
styrkleiki er í annars konar innslög-
um en pólitík og efnahagsmálum.
Ég var því alveg með þann flokk eft-
ir hrunið mikla og vissulega finnst
mér það frekar mikið vanþakklæti af
hálfu stjórnenda Stöðvar 2 að þegar
ég mæti í vinnuna 30. desember og
held að ég sé að fara að vinna, að mér
sé í staðinn sagt upp.“
Þessi tiltekni dagur á milli jóla
og nýárs var eðli málsins samkvæmt
afar skrítinn fyrir Sölva.
„Freyr Einarsson [yfirmaður
„opna gluggans“ svokallaða á Stöð
2 sem Ísland í dag heyrir undir] kall-
ar mig inn á skrifstofu til sín og seg-
ir: „Við erum óánægðir.“ Ég spyr með
hvað þeir séu óánægðir og þá seg-
ir hann að þeir vilji „hreint blað“. Ég
þurfti að spyrja hann hvort það væri
verið að segja mér upp. Og hann svar-
aði því játandi. Ég hef enn ekki kom-
ist að því hvernig blaðið var hreinsað
með því að sparka mér. Svo var lokað
fyrir tölvupóstinn minn, með öllum
gögnum til fimm ára, daginn eftir að
ég hætti. Þetta fannst mér verulega
ljót kveðjugjöf. Ég hafði gert mitt
allra besta á þessum vinnustað og
oftar en einu sinni hafnað störfum
annars staðar þar sem mér var tal-
in trú um að ég væri þarna framtíð-
armaður sem ætti að fá fullt af tæki-
færum.“
Varðhundar fara af stað
Uppsögnin kom Sölva algjörlega á
óvart, enda hafði ekki verið minnst
á það einu orði við hann að ónægja
ríkti með störf hans. „Þvert á móti
hafði ég frá flestöllum eingöngu
heyrt af ánægju með mín störf.
Ákveðnir menn þarna innanhúss
gefa manni hins vegar aldrei „feed
back“ á störfin manns,“ segir Sölvi og
setur í brýrnar. „En ég hafði haft veð-
ur af því að samband hefði verið haft
við stjórnendur Stöðvar 2 út af minni
umfjöllun, en annað eins gerist nú.“
Hvaða umfjöllun var það?
„Hitt og þetta. Allir fréttamenn
sem sinna einhverri alvöru frétta-
mennsku lenda auðvitað í því að
það eru ekkert allir ánægðir með
fréttirnar þeirra. Ef það eru alltaf all-
ir ánægðir með fréttirnar þínar ertu
ekki að gera mjög erfiðar fréttir.“
Sölvi sagði frá því á blogginu sínu
á dögunum að eftir að hann spurði
Geir H. Haarde, þáverandi forsæt-
isráðherra, í viðtali í Íslandi í dag
skömmu fyrir jól hvort hann vissi til
þess að lífeyrissjóðsmönnum hefði
verið mútað hefðu alls konar varð-
hundar farið af stað. Aðspurður
hvort hann líti svo á að tengsl séu á
milli þessa viðtals og uppsagnarinn-
ar segist Sölvi hafa öruggar heimildir
fyrir því að eftir þessa umfjöllun hafi
verið haft samband inn á æðstu staði
á Stöð 2.
„En ég vil ekki fullyrða að þetta
hafi verið ástæðan fyrir því að ég var
rekinn því ég hef horft á fjölmiðla-
menn hafa uppi of stór orð. Ég gæti
komið með mikil gífuryrði en ég bara
vil það ekki. En ég hef fengið mjög
margar meldingar um hluti sem eru
þannig að ef ég fæ þá staðfesta get-
ur verið að þurfi að segja frá því. Þar
á meðal er ástæða þess hvers vegna
mér var sagt upp. En ég vil ekki fara
með neitt í loftið nema það sé stað-
fest.
Til er önnur skýring á þá leið að
mér hafi verið sagt upp af því að þeir
sáu mig ekki í plönunum að þeim
þáttum sem þeir eru að vinna að
núna. Það er alveg mögulegt, en mér
finnst þá mjög skrítið að þeir hafi
ekki sagt mér frá því. Mér hefur verið
sagt af fólki úti í bæ að þetta hafi ver-
ið orðað þannig að þeir væru að fara
af stað með þátt sem væri Sölva ekki
samboðinn. Ég hefði sætt mig við
þessa skýringu en hún hefur aldrei
verið lögð á borð fyrir mig.“
„Hvernig ætlar þú að koma þér
út úr þessu?“
Eftir viðtalið við Geir fékk Sölvi fleiri
en einn tölvupóst frá almanna-
tengslaskrifstofu þar sem reynt var
að fá hann til að hætta að fjalla um
þessi mál og allsérstakt símtal frá
yfirmanni í lífeyrissjóði.
„Þú finnur það sem fjölmiðla-
maður þegar einhver maskína fer af
stað sem vill ekki að þú haldir áfram
að fjalla um eitthvert mál. Ég fékk
tölvupósta frá einhverri almanna-
tengslaskrifstofu þar sem fullkom-
lega eðlileg spurning er gerð að ein-
hverju tortryggilegu. Svo er hringt í
mig daginn eftir og spurt: „Hvernig
ætlar þú að koma þér út úr þessu?“
Þetta er mjög þekkt aðferð hjá al-
mannatenglum, stjórnmálamönn-
um og öðrum sem kunna á samskipti
við fjölmiðlamenn, að þeir reyna að
hræða þá. Þeir láta fjölmiðlamann-
inn halda að hann sé að gera eitt-
hvað sem sé svo slæmt að hann gæti
fengið kæru út af því, misst vinnuna,
fengið sekt eða eitthvað annað. Ef
það tekst ekki er svo næsta skref að
reyna að rýra trúverðugleika frétta-
mannsins.“
Sölvi segir að samskipti sín við
umrædda almannatengslaskrifstofu
og þau símtöl sem hann fékk hafi
verið þess eðlis að hann sé sann-
færður um að það þurfi að fjalla um
þessi mál.
„Mannskepnan er þannig að ef
hún hefur vonda samvisku er hún
mjög léleg í að fela það. Ég fékk svo
mikið óbragð í munninn eftir þessa
tölvupósta og símtöl að ég hugsaði
um leið: Þetta er mál sem verður að
fjalla um. Það herti mig í þeirri trú að
það væri örugglega eitthvað til í því
sem ég spurði um.“
Sölvi segir þáttinn sinn á Skjá
einum hins vegar vera þess eðlis að
hann geti ekki með góðu móti fjall-
að um lífeyrissjóðsmálin þar. „Form-
ið á þættinum er þannig að ég er
ekki með myndatökumann og vinn
því ekkert efni áður. Þetta eru bara
viðtöl í setti. Augljóslega takmark-
ar það svona umfjöllun vegna þess
að þetta er umfjöllun þar sem gríð-
arlega erfitt er að fá menn til þess að
tala í mynd. Ef þú ætlaðir að fjalla um
þessi mál af einhverju viti myndirðu
þurfa að gera það með því að safna
að þér upplýsingum og værir jafn-
vel ekki með neinn sem kæmi fram
undir nafni því það er mikil hræðsla
til staðar.“
Ofbauð lúxusinn
Margir gagnrýna starfsfólk fjölmiðl-
anna harðlega fyrir að hafa ekki stað-
ið vaktina betur í góðærinu. Sölvi
segist algjörlega taka sinn skerf af
þeirri gagnrýni.
„Eftir á sér maður hvaða ábyrgð
fjölmiðlamenn bera. Fjölmiðlaum-
hverfið á Íslandi er mjög vont og það
er endalaust hægt að skýla sér á bak
við það. Það er erfitt að vinna hlut-
ina almennilega, þar hefur áhrif fjár-
skortur á fjölmiðlum og að frétta-
menn þurfa að skila mjög miklu af sér
og eins smæð landsins út af tengsl-
um og öðru. En í senn var ég mjög
gagnrýnislaus,“ segir Sölvi og nefnir í
þessu sambandi ferð sem hann fór í
fyrir hönd fréttastofu Stöðvar 2 í boði
Glitnis í tilefni af opnun nýs útibús í
New York.
„Ég þáði boðið um að fara í þessa
ferð, en alla ferðina var ég samt að
hugsa með mér: Er ég eini maðurinn
hérna sem finnst þetta vera bilun?
Þarna sá ég að mörgu fólki fannst
það sjálfsagt að gista á fimm stjörnu
hótelum, borða flottasta matinn og
þar fram eftir götunum. Því fannst
eins og það væri yfir annað fólk haf-
ið. Mér ofbauð alveg svakalega.
Ég tók viðtal við Lárus Welding
þarna úti og ég tók líka viðtöl sama ár
úti í London við til dæmis Ólaf Ólafs-
son í Samskipum, Lýð í Bakkavör, Jón
Ásgeir og Gunnar Sigurðsson, for-
stjóra Baugs, og mér er ljúft og skylt
að biðjast afsökunar á því að hafa
ekki verið gagnrýnni á þessum tíma.
Það eina sem ég hef mér til máls-
bóta er að mín sérgrein var aldrei
viðskiptafréttir. Fyrir utan þessi við-
töl sem ég fer til útlanda til að taka
fjalla ég nánast ekkert um viðskipti.
Mín sérsvið hafa verið heilbrigðis-
Framhald á
næstu síðu
„Stöð 2 er frábær
vinnustaður en það
sem var orðið
leiðinlegt undir það
síðasta, og er leiðinlegt
við stöðina ennþá, er
að fólk er óttaslegið
þarna inni.“
„Í marga mánuði
upplifði ég hreinlega
depurðarástand. Eftir á
að hyggja sé ég hvað ég
þroskaðist gríðarlega
mikið á þessu tímabili.
Það var eins og ég hefði
elst um mörg ár.“
Hamingjusöm sölvi og silvia kynntust fyrir tæpum
tveimur árum. „Hún er frábær félagi, ég kann alltaf betur
og betur að meta hana.“ MYND SigTrYggur Ari JÓHANNSSON