Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Page 26
föstudagur 17. apríl 2009xx Helgarblað
mál, menntamál og pólitík og það
er ekki fyrr en ég byrja að kynna mér
viðskiptalífið almennilega í ágúst-
september 2008 að ég átta mig á því
hvurs lags skelfing þetta er. Skömmu
fyrir hrun hitti ég heimildamann
sem sýndi mér gögn sem voru þess
eðlis að ég trúði ekki eigin augum. Þá
áttaði ég mig á því að fjölmiðlar sváfu
algjörlega á verðinum. En ég vona að
ég hafi verið nokkuð gagnrýninn eftir
bankahrunið.“
Engar pólitískar tilfinningar
Talið berst að stjórnmálum, þeirri
pólitísku krísu sem upp kom í vet-
ur eftir bankahrunið og hvar Sölvi
stendur í stjórnmálum.
„Ég ætla ekki að segja hvað ég hef
kosið í gegnum tíðina, en ég hef ekki
alltaf kosið það sama. Ég get aftur á
móti sagt með afskaplega góðri sam-
visku að ég tek viðtöl við fólk úr öllum
stjórnmálaflokkum og mér líður ná-
kvæmlega eins. Það er að segja, það
kvikna engar tilfinningar hjá mér um-
fram aðrar eftir því hvort ég er að tala
við einhvern í Sjálfstæðisflokknum,
Samfylkingunni, Vinstri grænum eða
í öðrum flokkum. Mér finnst það líka
eiginlega galið að tengja mitt „ident-
ity“ við einhvern stjórnmálaflokk af
því að þau vandamál sem koma upp
eru, að mínu mati, langoftast kerf-
islæg frekar en að þau snúist um að
einhver flokkur sé betri eða verri en
annar.
Um leið og einhver flokkur eða
hópur hefur verið við völd í áratugi
er hætta á að ákveðnir hlutir fari úr-
skeiðis og þá skiptir ekki máli hvort
um er að ræða vinstrimenn eða
hægrimenn. Þetta hefur líka mann-
kynssagan kennt okkur. Það er alveg
sama hvort það eru kommúnistar,
kapítalistar eða eitthvað annað; þeir
sem hafa völd of lengi tapa sér yfir-
leitt.“
Mamma mokaði skurði fyrir
Kastró
Fólk litast ósjaldan af þeim stjórn-
málaskoðunum sem við lýði eru á
æskuheimilinu. Ef tekið væri mið
af því ætti Sölvi líklega að vera
kommúnisti. „Mamma er allavega
gallharður kommúnisti. Það gekk
svo langt að hún fór til Kúbu á átt-
unda áratugnum og mokaði skurði
fyrir Kastró. Það hefur hins vegar að-
eins sljákkað í henni, hún er ekki al-
veg jafnhörð og í gamla daga,“ segir
Sölvi og hlær.
Spurður nánar út í mokstursferð-
ina til Kúbu segir Sölvi þetta hafa
verið ferð með einhverjum hópi Ís-
lendinga sem stóð yfir 3–4 vikur.
Móðir Sölva er Elsa Guðmunds-
dóttir, sérkennari í Öskjuhlíðarskóla,
og faðir hans heitir Tryggvi Sigurðs-
son og er barnasálfræðingur.
„Pabbi er mjög líkt þenkjandi og
ég, er gagnrýninn á alla. En bæði
mamma og pabbi voru upp á sitt
besta á hippatímabilinu. Ég held að
ég hafi fengið mjög frjálslegt uppeldi.
Það voru ekki allt of stíf borgaraleg
gildi í hávegum höfð.“
Stóri bróðir lést í eldsvoða
Af foreldrum sínum kveðst Sölvi hafa
lært að vera meðvitaður um þá sem
minna mega sín í samfélaginu. „Ég
vil meina að það hafi skilað sér að-
eins inn í fréttamannsstarfið, að ég
finn til með þeim eiga bágt. Ég segi
ekki að ég geti sett mig í spor fólks
sem hefur ekki til hnífs og skeiðar en
þegar ég tek viðtöl við fólk sem hef-
ur lent í erfiðum hlutum þá virkilega
finn ég til með því. Það mótast bæði
af þessu og hlutum sem ég hef lent í
í lífinu.“
Í því sambandi segir Sölvi frá því
þegar eldri bróðir hans lést í elds-
voða aðeins tíu ára að aldri. „Það var
gífurlega sorglegur atburður. Hann
dó aðfaranótt aðfangadags árið 1982,
þegar ég var fjögurra ára. Ég var nátt-
úrlega rosalega lítill en ég man að við
vorum mjög nánir eins og eðlilegt er
hjá bræðrum. En ég man alltaf eftir
þessum aðfangadagsmorgni þegar
foreldrar mínir vöktu mig, mjög al-
varlegir, og sögðu: „Hann Högni litli
er dáinn.“
Sölvi og Högni voru samfeðra
og var stóri bróðir hans heima hjá
mömmu sinni þegar slysið varð.
Að sögn Sölva eru jólin alltaf svolít-
ið sérstakur tími hjá fjölskyldunni
vegna andláts Högna. „Svona hlutir
hafa vitanlega áhrif á alla. Og svona
lagað hefur áhrif á mann á einhverju
leveli sem maður áttar sig kannski
ekki á þrátt fyrir að börn séu fljót að
jafna sig og halda áfram.“
Sölvi á eina systur, samfeðra, sem
er fjórum árum yngri og halda þau
góðu sambandi.
Í depurð mánuðum saman
Í sambandi við samkenndina með
þeim sem minna mega sín segir Sölvi
tvær virkilega erfiðar krísur seinna á
lífsleiðinni hafa mótað sig enn frek-
ar. Þeirri fyrri stóð hann frammi fyr-
ir rúmlega tvítugur að aldri. Þá fór
hann í utanlandsferð þar sem hann
nældi sér í mjög slæman vírus sem
endaði með því að hann fékk snert af
heilahimnubólgu.
„Í kjölfarið fór ég mjög langt niður
andlega,“ segir Sölvi. „Í marga mán-
uði upplifði ég hreinlega depurða-
rástand. Eftir á að hyggja sé ég hvað ég
þroskaðist gríðarlega mikið á þessu
tímabili. Það var eins og ég hefði elst
um mörg ár. Upp frá þessu lít ég svo
á að þjáningin sé besti kennarinn.
Maður þroskast fyrst virkilega þegar
maður upplifir eitthvað erfitt. Í mín-
um huga er þjáning líka afstæð. En
ég finn sérstaklega til með ungu fólki
sem þarf að glíma við geðsjúkdóma.
Þegar ég heyri um eða hitti fólk sem
glímir til dæmis við geðhvörf eða
geðklofa finn ég gífurlega til með því.
Ég fæ hreinlega sting í hjartað. Það
kemur kannski til af þessu að ég hef
áttað mig á því hvernig það er að vera
gífurlega langt niðri.“
Sölvi segir vírusinn hafa lýst sér
eins og langvinn flensa sem hann
losnaði aldrei við. Hann fór í fjöld-
ann allan af rannsóknum þar sem
læknarnir sáu aldrei neitt.
„Á endanum sáu þeir að ég hafði
fengið vírus sem er þekktur fyrir að
skilja eftir sig þessi einkenni, hafa
þessi áhrif á taugakerfið, og togar
fólk svona langt niður andlega. Ég
þurfti að taka lyf á tímabili og svo
vann ég bara mikið í sjálfum mér.
Það er meðal annars af þessum sök-
um sem ég fór að læra sálfræði uppi í
Háskóla. Eftir þessa lægð upplifði ég
mig sterkari en nokkru sinni fyrr. Ég
hefði alls ekki viljað missa af því að
ganga í gegnum þetta því mér fannst
ég hafa þroskast svo og lært svo mik-
ið af þessu,“ segir Sölvi og leggur
áherslu á orð sín með handapati.
Grét klukkustund fyrir viðtal
Seinni krísuna sem Sölvi nefndi gekk
hann í gegnum fyrir örfáum árum
þegar slitnaði upp úr sambandi sem
hann hafði verið í í fimm og hálft ár.
„Það fékk gríðarlega á mig, þó ég
hafi haldið haus, mætt alltaf í vinnu
og svoleiðis. Það sem gerði þetta
miklu erfiðara en ella er sýnileikinn
við starfið. Mig langaði að vera með
úfið hárið á inniskónum allan dag-
inn, en það var ekkert í boði.
Ég man sérstaklega eftir einu
skipti í mars fyrir rúmu ári þegar
mér leið gjörsamlega ömurlega síð-
degis og fór heim að ná í jakkafötin.
Klukkutíma áður en ég var að fara að
taka langt viðtal við forsætisráðherra
í beinni útsendingu sat ég grátandi í
sófanum heima. En viðtalið tókst vel
og ég efast um að einn einasti kjaftur
hafi séð að nokkuð amaði að mér. Ég
er mjög stoltur af mér að hafa hald-
ið höfði, vinnandi þessa krefjandi
vinnu. Mælikvarðinn á styrk manna
er ekki hve vel þeir fela erfiðleikana
eða bæla þá niður heldur hvernig
þeir vinna úr þeim. Lífið er blanda af
sorg og sigrum og það er ekki síður
sorgin sem gerir fólk dýpra, vitrara
og heilsteyptara. Mér finnst hund-
leiðinlegt að umgangast fólk sem
þykist aldrei eiga erfitt.“
Tapaði skírnargjöfinni frá afa
Sumarið 2007 kynntust Sölvi og Silvia
og búa þau saman á Laugateignum
í dag. „Hún er frábær félagi, ég kann
alltaf betur og betur að meta hana.
Yndisleg stelpa með hjartað á réttum
stað og okkur líður mjög vel saman,“
segir Sölvi. Það hýrnar yfir honum við
þessi orð og hann fær sér sopa af kaff-
inu.
Sölvi og Silvia eru ekki „í skítnum“
fjárhagslega eins og sumir eru eftir
hrunið, svo það sé orðað á beinskeyttri
íslensku.
„Nei, nei, við erum það ekki. Ég
keypti reyndar bíl á myntkörfuláni,
það voru mín stóru mistök í góðær-
inu,“ segir Sölvi og skellir upp úr. „Að
vísu bara venjulegan fólksbíl og það
er betra að læra af bíl en íbúð. En ég
hef aldrei misst mig. Ég átti hins veg-
ar peninga í peningamarkaðssjóði og
30-40 prósent af þeim töpuðust. Það
má því segja að ég sé skynsamur mað-
ur, en þó ekki svo ýkja skynsamur því
maður hefði betur eytt þessum pen-
ingum.“ Hann vill ekki segja hversu há
upphæð þetta var en segir að grunnur-
inn að sjóðnum hafi verið skírnargjöf
frá afa hans. „Þetta er því harmsaga úr
bankahruninu,“ segir Sölvi og hlær.
Með lífsspekibók í maganum
Sölvi hefur nú starfað í fjölmiðlum í
fimm ár. Aðspurður hvort hann sjái
fyrir sér að halda áfram í fjölmiðla-
geiranum um ókomna tíð kveðst
hann aldrei hafa ákveðið líf sitt langt
fram í tímann.
„Það var mjög mikil tilviljun að
ég byrjaði í fjölmiðlum því ég ætl-
aði aldrei að starfa við þá. Mér finnst
þetta afskaplega skemmtilegt starf og
ég nýt þess sem ég er að gera í dag. En
ég er bæði opinn fyrir því að mennta
mig meira í sálfræði, hef bæði gaman
af því og tel mig hafa ágætis hæfileika
í það, og síðan er margt annað sem
kemur til greina. Mig hefur til dæm-
is alltaf langað að búa í útlöndum og
alltaf langað til að skrifa bók. Síðustu
ár hef ég lesið mjög mikið af bókum
um lífsspeki og mig hefur alltaf lang-
að til að skrifa bók um eitthvað slíkt.
Ég hef viðað að mér mikilli þekkingu
á þeim málum og er ánægður með
það sem ég hef náð að tileinka mér í
mínu lífi. Ég hefði því mjög gaman af
að deila því.“
Sölvi nefnir í því samhengi að
hann stundaði japanskar skylmingar
í rúmlega fimmtán ár, keppti meðal
annars á heimsmeistaramóti í íþrótt-
inni í Japan. Reynslan af skylming-
unum kenndi honum aga og fleira
sem hafi reynst honum vel í lífinu.
„Ég er algjörlega heillaður af
Japan. Mig hefur alltaf langað til að
rækta þessi tengsl betur og gera eitt-
hvað með þau. Ég hef kynnt mér
mjög vel Japan og japanska menn-
ingu og gæti vel hugsað mér að vinna
eitthvað meira með það í framtíðinni
þótt ég sé ekki svo snjall að kunna
japönsku ennþá,“ segir Sölvi en hann
vann meðal annars fyrir japanska
sendiráðið fyrir nokkrum árum.
Sölvi segir þau Silviu vissulega
hafa rætt það að búa erlendis og það
komi vel til greina. „En okkur líður
samt mjög vel á Íslandi eftir hrun.
Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand og
óvissuna í atvinnumálum og fleiru er
þjóðfélagið orðið rólegra. Fólk virð-
ist aftur byrjað að átta sig á því hvað
raunverulega skiptir máli í lífinu.“
kristjanh@dv.is
„Mannskepnan er þannig að ef hún hefur
vonda samvisku er hún mjög léleg í að fela það.
Ég fékk svo mikið óbragð í munninn eftir þessa
tölvupósta og símtöl að ég hugsaði um leið:
Þetta er mál sem verður að fjalla um.“
Á Stöð 2 sölvi ásamt láru Ómarsdóttur,
fyrrverandi samstarfskonu sinni á stöð 2.
MYND EGGErT JóhaNNESSoN