Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Síða 35
föstudagur 17. apríl 2009 39Lífstíll
Lifðu í núinu Þann 21. apríl býður velgengni.is upp
á skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið, þar sem
farið verður í sjálfsskoðun og áleitnum spurningum um
hvernig hindranir, aðstæður og viðhorf hamla okkur í að
njóta hamingjunnar verður svarað. Einnig verða gildi þess
að lifa í núinu og skapa aðstæður sem veita okkur gleði
og hamingju skoðuð á námskeiðinu. skráning fer fram á
min@velgengni.is.
umsjón: kolbrún pálína hElgadóttir, kolbrun@dv.is
Margir þættir
hreinsunar
Það er engri manneskju nóg
að státa af hraustum líkama.
maður lifir ekki á brauði einu
saman, jafnvel ekki þriggja-
kornabrauði. skýr og jákvæð
hugsun er ómetanleg til þess
að byggja upp sjálfstraust og
vellíðan og því er hreinsun
hugans mikilvæg. Ef við
kunnum ekki að meta sjálf
okkur, hvernig eigum við þá
að meta aðra? Ef við erum
þreytt, viðskotaill, utangátta
eða döpur spillum við öllu
samneyti við samstarfsfólk,
fjölskyldu, elskhuga og maka.
kannski er tími til kominn að
hreinsa til í mannlegum
samskiptum – leggja
fortíðina að baki og líta til
framtíðar. hreinsun á líka við
heimilið, að losa sig við það
gamla, úrelta og óþarfa,
hreinsa til í skápum, skúffum
og kommóðum.
n líkamleg vellíðan segir ekki alla
söguna – hreinsun snýst líka um að
að byggja upp sjálfstraust og innra
jafnvægi.
n Þegar hreinsa skal líkamann þarf
að huga að fjórum þáttum: fæðu og
vökva, hreinsandi efnum, uppbyggj-
andi æfingum og nýjum lífsvenjum.
n Ekkert er eðlilegra en að velja þær
leiðir og áherslur sem henta sérstak-
lega hverjum og einum og leitast
þannig við að mæta persónulegum
þörfum. í bókinni hreystin kemur
innan frá má finna góðan fróðleik
um hreinsun líkamans.
Vorlína Esteé Lauder er nú komin í verslan-
ir og er óhætt að segja að línan sé einstak-
lega glæsileg að þessu sinni. Litirnir sem
Esteé Lauder valdi fyrir vorið einkenn-
ast af miklum kvenleika, þokka og
dýpt. Tónarnir eru vínfjólubláir og
heillandi og ættu að vera skyldu-
eign hverrar konu þetta sumarið.
Vorið er komið
hjá esteé Lauder
Einn klassískur
svona varalit er nauðsynlegt að eiga í
snyrtitöskunni. liturinn er náttúrulegur
en hægt er að breyta honum með ýmsum
varalitablýöntum eða setja fallegt gloss yfir.
Flott dúó
Þessi fallega augnskugga-
blanda er kvenleg og klassísk.
Sumar í dós
Þetta fallega púður má nota eitt og sér sem
og yfir farða. púðrið er blanda af ferskum
bleikum lit og náttúrulegum gljáa sem
gefur húðinni einstaklega fallega áferð og
minnir okkur á að veturinn er að baki.
Bleikar neglur í sumar
Vertu flottust með bleikar
og sumarlegar neglur
þegar sólin lætur sjá sig.
Vertu í stíl
Ekki sakar að vera
með bleikan varalit
í stíl við neglurnar.
Varalitirnir frá laud-
er eru einstaklega
þéttir og góðir og
endast vel og lengi.
KOMDU Í ÁSKRIFT
Hringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is