Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Page 48
n Sævar Ciesielski var gestur
þeirra Frosta og Mána í úvarps-
þættinum Harmageddon á X-inu á
fimmtudag. Í viðtalinu kom margt
áhugavert fram en athygli vakti frá-
sögn Sævars af sjúkra-
húsvist sinni í Kaup-
mannahöfn. Sævar
sagði að þar hefði
læknir ráðlagt hon-
um að hætta alls
ekki að drekka áfengi.
Slíkt gæti verið stór-
hættulegt heilsu
hans. Ennfrem-
ur sagði Sævar að
þessi sami læknir
hefði gefið honum
einn bjór og tvö
skot með hverri
máltíð á sjúkra-
húsinu, honum til
mikillar ánægju
og yndisauka.
Can‘t Walk Away!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Um sextíu þúsund manns hafa skrif-
að nafn sitt á undirskriftalista á veg-
um dagblaðsins Manchester Evening
News til að bjarga hinum heims-
fræga Christie-spítala í Manchest-
er. Spítalinn tapaði 6,5 milljón-
um punda, eða rétt rúmlega einum
milljarði íslenskra króna, í banka-
hruninu. Stærstur hluti fjárins kom
frá styrktaraðilum spítalans í gegn-
um góðgerðarsöfnun og var fjárfest
í dótturfélagi Kaupþings í Bretlandi,
Kaupþing Singer and Friedlander.
Meðal þeirra sem skrifað hafa
undir eru Manchester United-stjörn-
urnar Nemanja Vidic og Dimitar
Berbatov ásamt þjálfara Manchester
City, Mark Hughes.
„Krabbamein hefur áhrif á svo
margt fólk að það er mikilvægt að við
styðjum Christie-spítalann svo hann
fái peninginn aftur,“ segir Berba-
tov í samtali við Manchester Even-
ing News en málið hefur vakið reiði
meðal íbúa Manchester-borgar enda
er Christie-spítalinn leiðandi á sviði
krabbameinsrannsókna.
Rúnar Ívarsson, varaformaður
stuðningsmannaklúbbs Manchester
United á Íslandi, skilur vel reiði Vid-
ics og Berbatovs út í íslenska bank-
ann.
„Það er ekkert óeðlilegt við það að
menn séu argir. Ég held ekki að fólk
á Íslandi sé ofboðslega sátt við bank-
ana og ég geri ráð fyrir að þessir úti
séu alveg jafn ósáttir.“
liljakatrin@dv.is
Öl og skot
með matnum
Manchester United-stjörnur vilja endurheimta fé sem íslenskir útrásarvíkingar töpuðu:
Hreinsa upp eftir kaupþing
n Athafnamaðurinn Andrés Pétur
Rúnarsson elskar fátt meira í þess-
um heimi en Appelsín í gleri. Keyrir
þessi hressi partípinni oft langar
leiðir til að næla sér í eina ískalda
Appelsín í gleri þar sem þær fást
alls ekki á hverju götuhorni. Andrés
Pétur hefur í nógu að snúast þessa
dagana en eins og DV sagði frá fyr-
ir stuttu skipuleggur hann nú teiti
fyrir Borgfirðinga. Þar sem hann er
afar lunkinn í veisluhöld-
um þá ákvað hann
að skipuleggja ann-
að teiti sem er eins
konar endurfundir
fyrir þá sem stund-
uðu skemmtistaðinn
Astro hér í eina tíð.
Teitið verður hald-
ið á NASA í maí og
allir gömlu Astro-
plötusnúðarnir
munu þeyta skífum
ásamt því að Atli
skemmtanalögga og
Svali láta sjá sig.
n Svala Guðbjörg Haraldsdótt-
ir, fyrrverandi eiginkona Herberts
Guðmundssonar tónlistarmanns,
segir það hafa haft mikil og þrúg-
andi áhrif á heimilið þegar Herbert
frelsaðist til kristinnar trúar. Það
gerðist eftir að Herbert fór í með-
ferð og kynntist AA-samtökunum.
Svala segir að eftir þetta hafi trúin
átt hug Herberts allan og bæna-
hópur farið að venja komur sínar
á heimilið. Hún segir að það hafi
verið „skelfilega óþægilegt að vakna
upp við að Herbert stóð
við rúmið að þylja bænir
yfir mér og signa mig.
Hann sagði við mig að
ég „gengi með þeim
dökka“ þar sem ég
væri ekki jafn-
áköf í trúnni og
hann. Mér leið
stundum eins
og ég væri
stödd í miðri
hryllings-
mynd.“
Í Hryllingsmynd
með Herberti
andrés elskar
appelsÍn
Hjartahlýir fótboltamenn
berbatov og Vidic vilja bjarga
Christie-spítalanum sem er leiðandi á
sviði krabbameinsrannsókna.