Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 4
Föstudagur 12. júní 20094 Fréttir Sandkorn n Ísfirðingar eru stútfullir af tor- tryggni eftir að auglýst var eftir forstöðumanni á Hlíf, dvalar- heimili eldri borgara. Auglýs- ingin birtist í bæjarblaðinu, BB, í fyrradag og er einungis gefinn níu daga frestur til að sækja um. Kenningar eru uppi um að Halldór Halldórs- son bæjar- stjóri og fé- lagar hans í Sjálfstæðisflokknum séu þegar búnir að ákveða að setja einn af sínum gæðingum í stöðuna. En auðvitað kann það að vera spuni einn og bæjarstjórinn sé að flýta sér af allt öðrum ástæð- um. n Efnahagshrunið og afleiðing- ar þess virðast eiga hug þjóðar- innar með öllu. Bókin Hrunið eftir Guðna Th. Jóhannesson rauk beint í fyrsta sæti bók- sölulista þessarar viku enda seldist fyrsta prentun upp hjá útgefanda á mánudaginn en nýr skammtur var væntanlegur fyrir helgi. Góð sala hefurverið í öðrum bókum um efnahags- ástandið, Sofandi að feigðarósi, Ný framtíðarsýn og Stoðir FL bresta. Tveir titlar til viðbótar eru við það að detta í verslanir, Íslenska efnahagsundrið eftir Jón F. Thoroddsen og Hvítbók Einars Más Guðmundssonar. n Nokkur hiti hefur verið í um- ræðum um afdrif ráðuneytis- stjóranna Baldurs Guðlaugs- sonar og Bolla Þórs Bollasonar sem lentu á hálfgerðum ver- gangi í kerfinu eftir að ríkis- stjórn Geirs H. Haarde hraktist frá völdum. Agnar Kristján Þorsteinsson, sem hefur látið til sín taka í mótmælum, fár- aðist yfir því á Facebook-síðu sinni að Baldur sé orðinn stjóri í mennta- málaráðu- neytinu. Lilja nokkur Bolladótt- ir gerði hressilega athugasemd við boðskap Agnars á síðunni en hún er dóttir Bolla Þórs. „Ég tek það fram að ég þekki Baldur ekkert persónu- lega, en er dóttir annars ráðu- neytisstjóra sem bara var settur frá, svo að ný ríkisstjórn gæti „meikað statement“ um að hún væri að gera eitthvað í málun- um. Svo gerðu þau þetta, settu tvo ráðuneytisstjóra í leyfi og ráku þrjá seðlabankastjóra... OG HVAÐ HAFA ÞAU SVO GERT NÁKVÆMLEGA EKKERT.“ Hafsteinn Númason bifreiðastjóri segir farir sínar ekki sléttar af sam- skiptum sínum við þjóðnýtt banka- kerfi. Hann er einn þeirra fjölmörgu sem eiga nú yfir höfði sér að fara á vanskilaskrá í kjölfar bankahruns- ins en kveðst þó yfirleitt hafa reynt að standa í skilum. Hann hafði í höndum samning og skuldabréf um greiðslu liðlega hálfrar milljón- ar króna skuldar af veltukorti hjá SPRON þegar bankinn féll og komst í hendur Kaupþings. Eftir það hefur allt gengið á afturfótunum. Að sögn Hafsteins kannast Kaupþing ekkert við samninga og skuldabréf til fimm ára og segist ekkert vilja við hann semja fyrr en hann hafi greitt upp nokkurra tuga þúsunda vanskil og lögfræðikostnað. Hafsteinn og kona hans Berglind M. Kristjánsdóttir eru því í eins konar sjálfheldu. Hallar á ógæfuhliðina „Þegar krónan féll í fyrra byrjaði að þrengja að mér eins og mörgum. Ég hafði tekið myntkörfulán til bíla- kaupa og hafði raunar verið hvattur til þess af bankanum. Ég hef reynt að standa í skilum þar til núna í vet- ur að þetta virtist orðið óyfirstígan- legt. Ég réð ekki við pakkann. Bæði var að skuldirnar jukust og atvinn- an minnkaði. Ég leitaði til Ráðgjaf- arstofu heimilanna. Ég ráðlegg öll- um að gera það. Maður réð ekki fram úr neinu og allt virtist vonlaust. Farið var yfir pakkann og gerð áætlun. Ég mætti velvilja í bönkunum og var bú- inn að fara hringinn með mín mál. Hins vegar var ég með þetta veltu- kort í SPRON sem ég missti í vanskil og innheimtu hjá lögfræðingum. Það var þá sem mér tókst að semja við SPRON um greiðslu tæpra 600 þús- unda á fimm árum með 10 til 11 pró- senta vöxtum í mars. Þetta var með innheimtu- og lögfræðikostnaði. Síðan gerðist það að þegar ég ætla að skila inn pappírunum var SPRON fallinn og búið að setja skilanefnd á vegum ríkisins yfir sparisjóðinn.“ Kaupþing tekur við verkefnum SPRON Nýja Kaupþing og skilanefnd SPRON gerðu þjónustusamning eftir fall sparisjóðsins helgina 21. og 22. mars síðastliðinn. Hann felur með- al annars í sér að Kaupþing annast alla almenna þjónustu þótt útlán og aðrar skuldbindingar heyri und- ir skilanefnd SPRON. Þannig er ætl- unin að Kaupþing annist öll útlán til einstaklinga og fyrirtækja, svo sem húsnæðislán, skuldabréf, erlend lán, víxla og rekstrarlán í þágu skilanefnd- ar SPRON. Samkvæmt tilkynningu eftir yfirtöku SPRON átti Kaupþing einnig að sjá um alla útlánavinnslu, samskipti við skuldara, breytingar á lánakjörum, greiðslufyrirkomulagi og framlengingu og úrvinnslu lána í vanskilum. Himinhár lögfræðikostnaður „Mér var vísað með skuldabréfið í Kaupþing í Mjódd. Þar könnuðust menn ekkkert við málið,“ segir Haf- steinn. „Ég gat ekki gert neitt annað en að leggja það inn hjá þeim til skoð- unar. Mér var bent á að senda bréf til skilanefndar SPRON, sem ég gerði reyndar ekki. Nokkru seinna fékk ég bréf frá lögfræðistofu. Þá er skuldin komin í innheimtu aftur og búin að hlaða á sig 90 þúsund króna viðbót- arkostnaði. Ég fór í útibúið í Mjódd í fyrradag og aftur í gær til að reyna að greiða úr þessu. Mér var á endan- um sagt að ég gæti samið líkt og ég hafði gert við SPRON en fyrst yrði ég að greiða upp yfirdrátt á greiðslukorti sem kominn væri í eindaga og borga upp lögfræðikostnaðinn upp á tæp eitt hundrað þúsund. Ég tel ekki að ég eigi að borga þann kostnað. Það var ekki mér að kenna að SPRON féll og samningur týndist sem skýtur svo aftur upp kollinum með innheimtu- þóknun og öðrum lögfræðikostnaði. Manni fallast hendur.“ „Hef lifað annað eins af.“ Hafsteinn hefur mátt þola margt um ævina og óhætt að segja að lífið hafi leikið hann með afbrigðum grátt. Hann missti þrjú ung börn í snjó- flóðinu í Súðavík í janúar 1995. Fyr- ir fáeinum árum missti hann dótt- ur sína um þrítugt úr krabbameini. Sjálfur lenti hann í alvarlegu bílslysi árið 2001og var vart hugað líf. Hann missti meðal annars sjón á öðru auga í slysinu. Vegna tekjurýrnunar í kjölfar bankahrunsins og hækkunar skulda hefur hann neyðst til að leita eftir frystingu húsnæðisskulda. „Mér er stillt upp við vegg núna. Ég berst um á hæl og hnakka og er að reyna að losa um aðrar skuldir til þess að forðast vanskil. Ég er ekki að biðja um ölmusu. Ég vil bara fá frið til að vinna mig út úr þessu. Hrunið hefur alls staðar afleiðingar. Kannski spilaði maður of djarft í góðæris- ruglinu. En ég tók bara ráðgjöf hjá mönnum í bönkunum sem virtust hafa fjármálavit og sögðu hagkvæmt að taka myntkörfulán. Þeir sögðu að þótt krónan félli um 20 til 30 prósent myndi ég ekki tapa. Allir vita hvern- ig fór. Ég reiknaði með falli krónunn- ar en gat ekki séð fyrir að henni yrði hent í klósettið og sturtað niður. Nú er þetta mál á leið fyrir dóm. Ég get ekki gert neitt meira. Ég á ekki krónu. Ég er búinn að gera allt sem ég get. Ég fer á vanskilaskrá. Ég lifi það af. Ég hef lifað annað eins af. En ég hef ekki verið vanskilamaður allt mitt líf en ég get ekkert gert núna. Ég setti ekki þjóðina á hausinn heldur bankarnir. Nú eru þetta ríkisbankar og þeir fara að manni með meira offorsi nú en áður. Þetta er hart en ég stend þetta af mér.“ Hundrað þúsund króna innheimtukostnaði lögfræðinga er velt yfir á Hafstein Núma- son bifreiðastjóra sem virðist einvörðungu vera til kominn vegna óreiðu við flutning á starfsemi SPRON yfir til Kaupþings eftir fall sparisjóðsins. Hann segist ávallt hafa reynt að standa í skilum um ævina en nú stefni í óefni. Ber kostnað af týndum samningi JóHaNN HauKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is „Það var ekki mér að kenna að SPRON féll og samningur týndist sem skýtur svo aftur upp koll- inum með innheimtuþóknun og öðrum lögfræði- kostnaði. Manni fallast hendur.“ Súðavík Fáir hafa mátt þola viðlíka raunir og Hafsteinn og eiginkona hans en þau misstu þrjú ung börn í snjóflóði í súðavík í janúar 1995. óbugaður „Ég hef lifað annað eins af. En ég hef ekki verið vanskilamaður allt mitt líf en ég get ekkert gert núna. Ég setti ekki þjóðina á hausinn heldur bankarnir,“ segir Hafsteinn númason. myNd KRiStiNN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.