Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Blaðsíða 33
Föstudagur 12. júní 2009 33Helgarblað
Mér líður stundum eins og við séum stödd í draumi. Eftir þetta vitum við að það getur allt gerst
í þessu lífi svo það er um að gera að
fara varlega,“ segir Svava Johansen
framkvæmdastjóri þegar hún er spurð
hvernig hún upplifi atburðarásina frá
því að bankarnir hrundu síðasta haust.
Svava bætir við að hún hafi aldrei haft
jafnmikinn áhuga á hagfræði og heim-
speki líkt og núna. Hún drekki í sig all-
an fróðleik á þessu sviði.
„Það á örugglega við um fleiri. Við
sjáum hlutina mjög gegnsætt í dag og
sjálf hef ég lært mikið á undanförnu
ári. Ég held að margt slæmt hafi gerst
en það sé ekki alslæmt þegar upp er
staðið. Mér finnst til dæmis fólk vera
orðið eðlilegra aftur. Það myndað-
ist einhver dýrkun á „ofurhetjum“
sem margfölduðu félög sín á stuttum
tíma. Við hin sem vorum í rekstri á
eðlilegum hraða vorum ekki alveg að
skilja þetta enda kom í ljós að mikið af
þessu var bara loftbólur. Þetta skekkti
mjög þjóðfélagið hvað varðar laun og
virðismat og margir höfðu örugglega
upplifað sig sem lúsera fyrir að hafa
ekki náð nema brotabroti af launum
gömlu skólafélaganna,“ segir Svava og
bætir við: „Um daginn heyrði ég í tví-
tugri stúlku sem sagðist mun ánægð-
ari með líf sitt núna en fyrir hrunið.
Hún sagði að fólkið úti á götu væri
allt vinalegra og eðlilegra. Ég held að
margir finni fyrir þessu. Við höfðum
misst tengslin við raunveruleikann –
öll þjóðin.“
Erfitt að manna verslanirnar
Eins og flestir vita rekur Svava tísku-
verslanakeðjuna NTC. Hún segir erfitt
að vera í rekstri í dag en er ákveðin í að
standa upprétt í gegnum kreppuna.
„Þetta er viss áskorun en maður verð-
ur bara að standa sig. Finna lausnir
og halda áfram. NTC er rótgróið fyrir-
tæki, við rekum 18 verslanir sem allar
selja fatnað og skó. Við höfum haldið
okkur innan þess ramma og höfum
verið staðráðin í að halda okkar rekstri
einungis á Íslandi.“
Svava segir bankana hafa verið
duglega við að bjóða henni til sölu
fjöldann allan af verslunum í hin-
um og þessum löndum. Gylliboðin
hafi vissulega heillað en þau hafi ver-
ið ákveðin í að halda sig á Íslandinu
góða. „Við sjáum ekki eftir því í dag,“
segir hún brosandi og bætir við: „Við
höfum þurft að semja upp á nýtt við
alla erlendu birgjana og upplýsa þá
um ástandið en það hefur tekist vel í
flestum tilfellum. Það hjálpar að hafa
verið góður viðskiptavinur í yfir tut-
tugu ár. Það má ekki gleyma því að
kreppan er alstaðar og erlendu birgj-
arnir þurfa á okkur að halda því salan
hefur líka minnkað hjá þeim.“
Þrátt fyrir hækkandi tölur á at-
vinnuleysisskrá segist Svava eiga í
vandræðum með að finna starfs-
fólk í verslanir sínar. Nóg sé af ung-
um krökkum sem vilji vinnu en erf-
iðara sé að finna reynslumiklar eldri
konur. „Margar konur sem misst hafa
vinnuna virðast hafa ákveðið að vera
heima í sumar. Þær segjast ekki vilja
vinnu fyrr en í haust, að þær ætli að
nýta sér atvinnuleysisbæturnar fyrstu
þrjá mánuðina. Að mínu mati eru þær
að misnota sér ástandið allsvakalega
því á meðan þær eru á bótum þurf-
um við hin að borga brúsann og það
gengur hratt á atvinnuleysisbótasjóð.
Þetta er ekki alveg í takt við það sem
er að gerast og ég tel að þarna vanti
meira eftirlit.“
Neikvæðar fréttir
slæmar fyrir sálina
Aðspurð segist Svava finna fyrir
breyttu verslunarmunstri hjá við-
skiptavinum sínum. Í dag leiti fólk
að ódýrari fatnaði í meira mæli en
fyrir hrun. „Við erum að vinna í að
gera betri samninga og lækkum verð-
ið strax og við náum betra verði. Við
erum líka að leita fyrir okkur á ódýrari
markaði en viljum halda gæðunum,“
segir hún en ítrekar að kreppan sé al-
staðar svo innkaupaverð fari lækk-
andi. „Í raun er verðið okkar lægra
en á hinum Norðurlöndunum og fólk
er að kveikja á því og verslar frekar
hér heima sem er gott. Þannig náum
við að halda hjólum atvinnulífsins
gangandi sem er undirstaða þess að
ná okkur upp úr efnahagslægðinni,“
segir hún en bætir við að það sé erfitt
að gera sér grein fyrir stöðunni. Hver
sérfræðingahöndin sé upp á móti
annarri og ýmsar kenningar á lofti,
loforð um nýtt og betra samfélag eða
hörmungarspár svartsýnismanna.
„Eitt er þó víst að endalausar
slæmar fréttir eru ekki góðar fyr-
ir sálarlífið og mér finnst undar-
legt hvernig fjölmiðlar mála alltaf
dekkstu mögulegu myndina. Okk-
ar eiginlegi fjársjóður er andleg og
líkamleg heilsa og geta okkar til að
standa sterk á erfiðum tímum. Með
það í huga er örugglega ekki best að
kasta fram stöðu mála eins og hún
gæti hugsanlega verið verst. Þessum
hristingi sem við lentum í má líkja við
að sitja í flugvél í mikilli ókyrrð. Þá er
mikill styrkur í að flugáhöfnin kunni
til verka og á sama hátt eiga ráða-
menn þjóðarinnar og fjölmiðlar að
upplýsa án þess að yfirbuga fólk með
neikvæðum fréttum,“ segir Svava sem
er bjartsýn á framtíðina og viss um að
við náum okkur upp úr lægðinni.
„Spurningin er frekar hvernig
stöndum við eftir? Í hvaða andlega
ástandi verðum við sem þjóð? Ég
held að við getum komist hratt frá
erfiðleikum með því að nota orkuna
sem myndast þegar á móti blæs,
snúa henni á jákvæðan hátt og gefa
allt í botn. Maður fer nefnilega ótrú-
lega langt á jákvæðni,“ segir hún og
brosir og bætir við að henni þyki
hrein unun að hitta jákvætt, kraft-
mikið fólk. „Eitt lítið bros getur gert
kraftaverk – það á sko við í dag. En
því miður er allt of mikið af svart-
sýnu fólki, jafnvel heilsuhraustu
og fjárhagslega öruggu, sem spú-
ir neikvæðum orðum um ástand-
ið og fólkið í kringum sig. Þegar ég
hitti þannig fólk langar mig mest að
henda öllu frá mér og lyfta því upp –
hjálpa því. Mér finnst ofsalega sorg-
legt þegar fólk kann ekki að njóta
þess sem það hefur. Svona nei-
kvæðar manneskjur verða að gera
sér grein fyrir hvers konar byrði það
kemur yfir á þá sem hlusta því nei-
kvæðni getur verið keðjuverkandi,“
segir hún ákveðin.
Skilnaðir bitna á börnunum
Fyrir nokkrum vikum komust deilur
NTC og aðstandenda E-label í fjöl-
miðla en þeir síðarnefndu sökuðu
NTC, með Svövu í fararbroddi, um
að koma í veg fyrir að samningar við
verksmiðjur næðust. Svava harm-
ar hvaða stefnu málið tók í blogg-
heimum en þar var hún sökuð um að
beita sér gegn íslenskri fatahönnun.
„Það gæti ekki verið meira fjarri lagi
því ég er mjög stolt af íslenskri hönn-
un og hef lagt mitt af mörkum henni
til liðs auk þess sem við höfum marg-
oft selt íslenska hönnun. Við eigum
þekkta góða hönnuði en það eru líka
ungir og flottir krakkar þarna úti sem
eiga mikla möguleika. Dönsk fata-
hönnun veltir 500 milljörðum á ári
og er fjórða stærsta útflutningsgrein
þeirra en íslensk 5 milljörðum og ég
held að við gætum tífaldað þessa tölu
með réttri markaðssetningu. Tónlist
og fatahönnun geta verið spennandi
tekjulindir ef rétt er haldið á spilun-
um,” segir hún og er mikið niðri fyr-
ir.
Svava tekur undir að álagið sé
mikið á mörgum heimilum vegna
efnahagshrunsins. Margar fjölskyld-
ur berjist í bökkum sem skili sér oft
í andlegri vanlíðan. „Skilnaðarhrin-
an er þegar hafin, því miður og það
fylgir þessu ástandi víst. Ég vildi
samt að fólk myndi ekki hlaupa til og
skilja þótt erfiðleikar blasi við í ann-
ars góðu sambandi. Fólk verður að
vera þolinmótt, gefa eitthvað eftir og
prófa að setja sig í spor makans, vera
skilningsríkara. Það eru svo margar
manneskjur sem þurfa að líða fyrir
einn skilnað, sérstaklega öll börnin,“
segir hún en Svava og athafnamað-
urinn Ásgeir Bolli Kristinsson eiga
saman soninn Ásgeir Frank.
Skilnaður þeirra Bolla vakti mikla
athygli á sínum tíma en fjallað var
um málið á síðum slúðurblaða. „Ís-
land er svo lítið að hér eru nánast
allir þekktir. Blöðin hafa sýnt manni
áhuga í viðskiptum og öðru og svo
getur maður fengið það í bakið þeg-
ar eitthvað gerist hjá manni per-
sónulega og það getur verið sær-
andi. Þetta var svo sem í lagi fyrir
mig sjálfa en ég á ungan son og um-
fjöllunin fór fyrir brjóstið á honum
og það særði mig. Það verður að
vera skilningur á þessu hjá blaða-
mönnum. En sem betur fer gróa öll
sár og mótlætið styrkir mann.“
Sonurinn biður
fyrir efnahagnum
Ásgeir Frank verður þrettán ára í ág-
úst og gengur í Flataskóla í Garðabæ.
Svava segist ánægð með það hvern-
ig skólanum hafi tekist að halda
krökkunum í andlegu jafnvægi þeg-
ar allt hrundi í vetur. „Þau hafa verið
upplýst á réttan hátt, þannig að þau
geti tekist á við hlutina og svo að
þetta verði þeim lærdómur en dragi
ekki úr þeim kjark eða hræði. Þessir
krakkar eru yfirleitt mjög glaðir og
kraftmiklir og kennararnir eiga skil-
ið hrós fyrir hlýju og kærleika, sér
í lagi þegar allt dundi yfir í haust,“
segir hún og bætir við að sonurinn
hafi bætt íslenska efnahagnum inn
í kvöldbænirnar sínar. „Mér finnst
það svo sætt hjá honum. Hann bið-
ur fyrir öllum sem hann þekkir og
bætir efnahagnum við í lokin og
segist viss um að allt fari vel. Þetta
segir mér að hann sé meðvitaður en
glaður og brattur. Það eina sem slær
hann út af laginu er ef Manchester
United tapar leik. Það höndlar hann
ekki alveg,“ segir hún og brosir.
Svava hefur verið viðloðandi
tískubransann frá unglingsaldri
þegar hún kom inn í fyrirtæki Bolla.
Þegar þau skildu keypti Svava hans
hlut og hefur rekið sístækkandi fyr-
irtækið síðan. Hún segir starfsval
sitt þó ekki tilviljun háð. Áhugi á
rekstri hafi kviknað í gegnum pabba
hennar sem rak heildsölufyrirtæk-
ið RJC í 50 ár. Faðir Svövu, Rolf Jo-
hansen, lést fyrir tveimur árum en
Svava segir þau feðgin hafa átt vel
skap saman.
Horfir
björtum
augum
á framtíðina
„Að mínu mati eru þær
að misnota sér ástandið
allsvakalega því á meðan
þær eru á bótum þurfum
við hin að borga brúsann
og það gengur hratt á
atvinnuleysisbótasjóð.“
Framhald á
næstu síðu
Svava Johansen spilar á spil við
kærastann þar sem þau leggja
jafnvel eitthvað undir.
MYNDir HEiða HElgaDóttir