Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Blaðsíða 27
Föstudagur 12. júní 2009 27Fókus
Útgáfulisti Klassíska kiljuklúbbsins lengist eftir helgi:
dularfull kona og fuglamál
Hin árlega Víkingahátíð í Hafnar-
firði hefst við Fjörukrána um helg-
ina. Á meðal þess sem þar verður
í boði eru víkingamarkaður, vík-
ingaskóli, bardagasýningar og
kraftakeppni sem tröllið Magnús
Ver Magnússon stjórnar. Þá ætlar
hljómsveitin Specials að leika fyrir
dansi bæði á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Víkingahátíðin í Hafnarfirði er
elsta og stærsta hátíð sinnar teg-
undar sem haldin er á Íslandi.
Síðan 1995 hafa Hafnarfjörður og
Fjörukráin verið leikvöllur vík-
inga sem hafa í gegnum tíðina sýnt
flesta þætti menningar víkinga-
aldar, siglingar, handverk, matar-
gerð, leiki, sagnalist, bogfimi, bar-
daga og tónlist. Hingað hafa komið
og tekið þátt í því að heiðra minn-
ingu forfeðra okkar þúsundir lista-
manna hvaðanæva úr Evrópu og
Ameríku.
Á hátíðinni í ár, sem stend-
ur til 17. júní, verður enn reynt að
kynna til sögunnar nýja og ferska
strauma, nýjar hetjur verða kall-
aðar til og reyndar ásamt gömlum
kempum sem tryggir gestir hátíð-
arinnar þekkja. Alls má gera ráð
fyrir að nú verði víkingar nær þrjú
hundruð, íslenskir sem erlendir.
Markaðurinn verður opinn alla há-
tíðardagana, frá klukkan 13 til 20,
fyrir utan næsta mánudag þegar
verður lokað. Svo verða dansleikir
flest kvöldin fram á morgun.
Nánari upplýsingar um hátíðina
á fjorukrain.is.
Víkingahátíðin í Hafnarfirði hefst um helgina:
Víkingarnir mættir í Fjörðinn
m
æ
li
r
m
eð
...
Djúpið
Langt síðan
gagnrýnandi dV
hefur staðið upp
jafndjúpt snortinn
eftir sýningu á nýju
íslensku leikriti.
Tölvu-
leikurinn
infamous
Ef valið
stendur á
milli þess að sjá grease eða spila
þennan leik: þessi.
Hrunið
skemmtilegur og
líflegur annáll um hrunið
sem að mestu er unninn
upp úr fréttaskrifum
fjölmiðla og af netsíðum
einstaklinga.
Tölvuleikurinn ufC 2009
„skugga- og
sudda-rudda-
mudda-tudda-
legur,“ segir
gagnrýnandi
dV.
THe BoaT THaT roCkeD
góðir
leikarar,
skotheldur
söguþráður
og geðveik
tónlist.
Föstudagur
n Dísel á players
Vá, það verður stemmari á Players
þetta kvöldið enda stígur sveitin dís-
el á svið. Miðasala er við innganginn
og tónleikarnir hefjast um 00.30.
n menn að fá sér kvöld á prikinu
Þessu máttu ekki missa af. Fysta
M.a.F.s.-kvöld Priksins þar sem þeir
gísli galdur og danni deluxxx koma
saman í fyrsta sinn og gera allt
brjálað ásamt Magga noem sem sér
um vídjóset. Fjörið byrjar á miðnætti.
n Gogoyoko Grapevine kvöld á
Grand rokk
Fram koma dísa, Mads Mouritz og
Bárújárn. Eitt þúsund krónur inn.
Ballið byrjar klukkan 22.
n Dj stef á Hverfisbarnum
Það þarf ekki að spyrja að því.
Maður er alveg með þetta. gunni
stef verður á Hvebbanum í kvöld
og þeytir skífunum eins og honum
einum er lagið. tryllingurinn hefst á
miðnætti.
n Dj símon á vegamótum
dídjééé símon mun gera allt vitlaust
á Vegamótum í kvöld. Hann veit
hvað stúlkurnar vilja heyra og
hvað strákarnir eru að hugsa. góða
skemmtun.
laugardagur
n addi intro á prikinu
addi Intro þeytir skífunum á Prikinu
í kvöld og hann kann sitt fag. Hann
mun skemmta gestum fram á rauða
nótt. addi byrjar að spila á miðnætti.
n afmæli fm 957 á nasa
útvarpsstöðin Fm 957 fagnar 20 ára
starfsafmæli með heljarinnar veislu
á nasa. Zúubergrúppan með Ingó
veðurguði, Einari Ágústi og fleiri
góðum mönnum mun stíga á svið
og skemmta fólki ásamt plötusnúð-
um stöðvarinnar. Húsið opnað á
miðnætti.
n swiss á players
nei, þessir eru ekki svissneskir en
sveitin ætlar samt að hressa, bæta
og kæta á Players þetta kvöldið.
Miðasala er við innganginn og byrjar
ballið 00.30.
n Træangular jacobsen
Þeir Bensol, Casanova og diddi Luv
ætla að gera allt vitlaust á jacobsen.
djúpir sálartónar í hjarta reykjavíkur.
Viðbætt hljóðkerfi og allt að gerast.
n fjáröflunartónleikar Benny
Crespo’s Gang og Bloodgroup á
Grand rokk
sveitirnar halda til Kanada seinna í
mánuðinum og þurfa því að fá smá
aur áður en haldið er vestur um haf.
Ásamt þeim koma fram sveitirnar
agent Fresco og sykur. Húsið opnað
klukkan 21 og miðaverð er 1.000
krónur.
Hvað er að
GERAST?
vígalegir víkingar tveir reffilegir á
Víkingahátíðinni í Hafnarfirði í fyrrasumar.
mYnD Gunnar Gunnarsson
sé að ná almennilegum myndum. Því
ákvað ég að nota þyrlu. Það er tölu-
vert dýrara því maður þarf að vera í
þyrlunni í fimm til sex klukkutíma í
senn en þetta er eini möguleikinn til
að taka almennilegar loftmyndir.“
Hurðin var tekin úr þyrlunni og
ól fest um Thorsten miðjan. Síðan
þurfti hann að standa nánast fyr-
ir utan þyrluna, eins og hann orð-
ar það sjálfur, og beygja sig vel nið-
ur til að ná myndunum. Aðspurður
segir hann það ekki ógnvænlegt. „Ég
er svo mikill adrenalínfíkill að fyrir
mér er þetta bara skemmtilegt,“ segir
hann hlæjandi.
Hann er mikill náttúruunnandi
og hefur ekki síður gaman af útivist.
„Ég er mikið í ísklifri, klettaklifri, kaj-
aksiglingum og öðrum jaðaríþrótt-
um. Ég tek ekki bara myndir af nátt-
úrunni og kem síðan ekki nálægt
henni.“ Gerð bókarinnar gekk vel að
mestu leyti og hann lét hvorki kolbil-
að veður né erfiðar aðstæður stöðva
sig. „Ég fékk til mín aðstoðarkonu
frá Svíþjóð. Hún var 17 ára og stödd
á Íslandi á vegum skóla í Svíþjóð.
„Stúlkuna langaði að taka myndir af
norðurljósum og ég sagði það lítið
mál,“ rifjar Thorsten upp. Þau héldu
á Skjaldbreið í 17 stiga frosti. Unga
stúlkan spurði Thorsten hvar þau
myndu nú gista og hvort það væri
hótel þarna. Hann hélt nú ekki. Þau
myndu bara gista í tjaldi. „Í tjaldi
í 17 stiga frosti?“ spurði hún gátt-
uð, en hún hafði aldrei tjaldað áður,
hvað þá í svona kulda,“ segir Thor-
sten brosandi. Þau festust í sprungu
á leiðinni og velti sænska aðstoðar-
konan fyrir sér hvað í ósköpunum
þau gætu þá gert. „Þetta var ekkert
mál. Ég hringdi í vin minn og setti
inn staðsetningu okkar í GPS-tækið
og hann var kominn innan tveggja
klukkutíma.“ Þau voru dregin upp úr
sprungunni og enduðu á því að taka
myndir langt fram eftir nóttu og gista
í tjöldum í 17 stiga frosti. „Ég held að
þetta hafi verið mjög eftirminnilegt
kvöld fyrir hana. Hún gleymir þess-
ari reynslu seint,“ segir Thorsten og
skellir upp úr.
Hann er sérstaklega hrifinn af
svæðinu í kringum Landmanna-
laugar. „Fjallabak er einn uppá-
haldsstaðurinn minn á landinu en
síðan finnst mér svæðið í kring-
um Öskju mjög fallegt. Þar má
finna landslag sem á sér enga hlið-
stæðu í heiminum,“ segir Thorsten.
Hann hefur einnig sínar skoðanir
á stóriðjustefnu Íslendinga en ein
af ástæðunum fyrir komu hans til
landsins var einmitt stórbrotin nátt-
úran.
„Mér finnst þessi stefna persónu-
lega vitlaus. Það er svo mikil einstefna
í gangi hérna í pólitík. Það er verið að
gera út á auðlindir landsins en ekki
hugsjónina og fólkið. Mér finnst að
það eigi að nota hugmyndaauðgi
fólksins í stað þess að vera í keppni
við helstu iðnaðarþjóðir heims.“
Í bókinni má ekki einungis finna
landslagsmyndir heldur einnig
portrettmyndir af venjulegum Ís-
lendingum víða um landið sem og
þjóðþekktum einstaklingum. Ein
myndanna er af Baltasar Kormáki
leikstjóra og eiginkonu hans Lilju
Pálmadóttur á sveitasetri þeirra,
Hofi á Höfðaströnd. Aðspurður seg-
ir Thorsten það hafa verið lítið mál
að fá fólk til þess að opna dyrnar. „Ég
hringdi að sjálfsögðu á undan mér,“
segir hann og skellihlær. „Ég keyrði
ekki bara norður og bankaði á hurð-
ina hjá þeim og spurði hvort ég mætti
taka mynd af þeim. En þeim fannst
þetta góð hugmynd og heiður að vera
í svona bók.“ Eins er merkileg mynd
af Magnúsi Scheving í bókinni. Þar
situr hann inni í Latabæjarstúdíóinu í
íþróttaálfsbúningnum en sem Magn-
ús Scheving. „Ég hef unnið með hon-
um um tíma. Margir kalla hann of-
virkan og geðveikan en fyrir mér er
hann bara duglegur og frábær mann-
eskja. Það er ekki til neitt sem heitir
hroki í honum,“ segir Thorsten.
Fyrir Thorsten búum við á einu
stórkostlegasta landi í heimi og því
reyndi hann að festa það á filmu til
að deila með öðrum. „Þessi gríðar-
legi kraftur sem er í landslaginu og
landinu. Þetta er einstakt land og ég
held að Íslendingar séu hægt og ró-
lega að uppgötva það sjálfir.“ Eins og
Thorsten sagði áður er hann ekki á
leiðinni í burtu þrátt fyrir bágt efna-
hagsástand. „Ég er þessi manneskja
sem hugsar að eitthvað jákvætt
komi út úr þessum erfiðu tímum og
ég lít á þetta sem tækifæri til þess
að fá að byrja upp á nýtt. Þetta var
ekki eðlilegt hvað var í gangi, eins
og árið 2007, þannig að ég lít á þetta
sem góðan hlut. Það á eitthvað gott
eftir að koma út úr þessu öllu,“ seg-
ir hann bjartsýnn og ætlar að sitja
sem fastast. „Ísland er allt of flott
land til þess að flýja. Það blæs smá
vindur og allir hlaupa í burtu. Þetta
fólk verður hlaupandi allt sitt líf.“ Og
Thorsten er svolítill Íslendingur í sér
því þrátt fyrir erfitt efnahagsástand
byggir hann einbýlishús handa fjöl-
skyldunni.
„Ég er að klára að byggja 380 fer-
metra einbýlishús. Það er kannski
svolítið 2007 en ég er svo jákvæður
og ég hef það að reglu að gera bara
hlutina. Ég er til dæmis með hug-
myndir að tveimur bókum til við-
bótar en ætli að sé ekki aðeins of
snemmt að ræða það.“
hanna@dv.is
klifrað í stuðlabergi Vð reynisfjöru í Mýrdal.
„Ég er að klára að byggja 380 fermetra
einbýlishús. Það er kannski svolítið 2007
en ég er svo jákvæður og ég hef það að
reglu að gera bara hlutina. Ég er til dæmis
með hugmyndir að tveimur bókum til
viðbótar en ætli það sé ekki aðeins of
snemmt að ræða það.“
erfið myndataka Hér sést
thorsten við tökur í þyrlunni.
mynd Guðmundur Tómasson.
magnús scheving
afslappaður í gervi
íþróttaálfsins.
loftmynd úr Mýrdal.
aDvenTurelanD
athyglisverð
og ánægjuleg
sumarmynd um
nörda sem gera
það besta úr lífinu án þess að
ganga í star trek-búningi.