Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Blaðsíða 14
Föstudagur 12. júní 200914 Fréttir
Brynjólfur Harðarson er á leiðinni
til Noregs að starfa hjá sama jarð-
verktaka og Sturla Jónsson. Hann er
með flugmiðann í vasanum og fer út
á næstunni. „Aðstæðurnar eru bara
þannig að ég sé ekki fram á að geta
staðið við mitt, þannig að ég ætla að
reyna að bjarga því sem bjargað verð-
ur með þessu,“ segir hann. „Þegar það
er komið á skrið úti, kemur familían
út. Við ætlum að vinna eins og við get-
um,“ segir hann.
Spurður um ástæðu þess að hann
valdi Noreg, líkt og svo margir aðrir
Íslendingar, segir Brynjólfur að hann
hafi áður búið og starfað þar í landi.
„Ég hef reynslu af Noregi og bæði tala
og skrifa norsku.“ Hann segir það ekki
hafa reynst mjög erfitt að fá vinnu í
Noregi. „Nei, það er ekki mikið mál,
en ég bendi þeim sem eru að fara út
að hafa samband við Íslendingafélög-
in í löndunum, þau aðstoða mann um
hvert maður á að leita.“
Brynjólfur býst við því að fá tvöföld
laun í Noregi miðað við þau laun sem
hann fær hér á landi. „Ég er með all-
an pakkann, stóra fjölskyldu og allt.
Aðstæðurnar eru þannig að ég kæri
mig ekki um að krakkarnir mínir séu
að erfa þessar skuldir, því þau munu
koma til með að byrja að borga líka
einn daginn.“
Hann segir efnahagsástandið hér
á landi ekki hafa komið vel við sig og
fjölskyldu sína. „Það má segja að hag-
urinn hafi versnað, við vorum í smá
basli í fyrra en náðum svo að rétta úr
kútnum. Síðan þá hefur þetta hrann-
ast upp hjá okkur. Ég sé ekki fram á
að það verði nein betrun fram und-
an næstu árin. Launin hér eru ekki lé-
leg, en þau duga bara ekki til. Menn
eru að vinna í upp undir 14-15 tíma á
sólarhring og hafa ekki í sig og á. Þá er
orðið andskoti erfitt að vera hér,“ seg-
ir hann og bætir við: „Það verður of-
boðslegur barningur hjá aumingja
fólkinu hérna. Hvað á fólk eiginlega
að gera?“
valgeir@dv.is
Brynjólfur Harðarson „Ég
sé ekki fram á að það verði
nein betrun fram undan
næstu árin. “
Brynjólfur Harðarson flytur til Noregs:
Hjálplegt að leita til
Íslendingafélaganna
Svíþjóð
skattheimta á einstaklinga: 28,89-59,09%
atvinnuleysi: 8,0%
Verð á Big Mac-hamborgara: 632 íSK
Meðalhiti í stokkhólmi í júlí: 18 gráður
Noregur
skattheimta á einstaklinga 0-47,8%
atvinnuleysi: 3,1%
Verð á Big Mac-hamborgara: 805 íSK
Meðalhiti í Ósló í júlí: 17,5 gráður
DaNmörK
skattheimta á einstaklinga: 0-63%
atvinnuleysi: 5,7%
Verð á Big Mac-hamborgara: 172 íSK
Meðalhiti í Kaupmannahöfn í júlí: 18 gráður
þýSKalaND
skattheimta á einstaklinga: 0-45%
atvinnuleysi: 7,6%
Verð á Big Mac-hamborgara: 615 íSK
Meðalhiti í Berlín í júlí: 19 gráður
BretlaND
skattheimta á einstaklinga: 0-50%
atvinnuleysi: 6,6%
Verð á Big Mac-hamborgara: 484 íSK
Meðalhiti í London í júlí: 17 gráður
íSlaND
skattheimta á einstaklinga: 0-37,2%
atvinnuleysi: 8,7%
Verð á Big Mac-hamborgara: 640 íSK
Meðalhiti í reykjavík í júlí: 10,6 gráður