Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Page 16
„Þetta er í fyrsta skipti sem teknar eru af mér ljósmyndir síðan ég var kjörin á Evrópuþingið fyrir síðustu helgi,“ segir Eva Joly brosandi þegar ljósmyndari DV mundar sig til verka í upphafi viðtals. Eva Joly, ráðgjafi sérstaks sak- sóknara í bankahruninu, kom eins og stormsveipur inn í þjóðlífið og tjáði sig í Silfri Egils í Sjónvarpinu síðla vetrar um mikilvægi þess að hugsanleg efnahagsbrot í tengsl- um við bankahrunið, markaðsmis- notkun bankanna eða undanskot á miklum fjármunum yfir í skattaskjól yrðu rannsökuð í þaula og gefnar út ákærur ef svo bæri undir. Eva talar af reynslunni. Hún gaf sig ekki í stærsta fjársvika- og mútumáli sem farið hef- ur fyrir dómstóla í Frakklandi á síð- ari áratugum, Elf-málinu svonefnda, þótt henni væri hótað og fjölmiðlar og herskarar lögfræðinga reyndu að skaða málatilbúnaðinn. Eva Joly kjörin á Evrópuþing Eva var um síðustu helgi kjörin á Evrópuþingið fyrir flokk græningja og óháðra borgara í París sem berj- ast fyrir lýðræðisumbótum og auknu gagnsæi. Flokkurinn náði góðum ár- angri í Frakklandi. „Þetta er rökrétt framhald af 15 ára starfi mínu. Eins og fram hefur komið í bókum mín- um og greinum hef ég afhjúpað spill- ingu, skattaskjól og peningaþvætti og svo hitt hversu alvarleg spillingin er fyrir fátæk þróunarlönd. Utanríkis- stefna Frakka snýst til að mynda ekki um þróunaraðstoð heldur að vinna gæði frá þróunarlöndum. Þetta hefur valdið mér hugarangri. Ég er búin að fjalla um þessa hluti í hálfan annan áratug. Ég hef unnið að réttarfarsbót- um að þessu leyti. Auður safnast á fáar hendur á kostnað fjöldans. Ég hef komist að því hversu illa gengur að uppræta eða stemma stigu við spill- ingu. Þá baráttu er erfitt að vinna. Ég hugsaði með mér að ég gæti þó reynt að halda málstaðnum á lofti með því að gefa mig að stjórnmálum. Ég sé fyrir mér verkefni eins og að bæta bókhaldsreglur fyrirtækja innan Evr- ópusambandsins og auka gagnsæi í þeim efnum. Ég lít til Obama, for- seta Bandaríkjanna, og óska þess að Evrópusambandið og Bandaríkin geti komið sér saman um breytingar sem taka á undanskotum fjármuna í skattaskjól og auka gagnsæi.“ Skuldbundin fólkinu Margir telja að bankahrunið á Íslandi sé eitt hið mesta og alvarlegasta sem dunið hefur yfir nokkra vestræna þjóð áratugum saman. Því sé mik- ilsvert fyrir samfélag þjóðanna að rannsaka aðdraganda þess og rætur gaumgæfilega. Undir þetta tekur Eva Joly og segir mikilvægt að komast að því hver gerði hvað og hver beri ábyrgð. En að því sögðu eru einnig raddir sem segja að Eva fari fram af harðfylgi og geri kröfur. „Það er satt. Ég lít svo á að ég hafi ekki gert samn- ing við stjórnvöld heldur við þjóðina. Kveikjan að þessu var Fésbókarsíða sem sett var upp eftir að ég hafði set- ið fyrir svörum í sjónvarpsþætti Egils Helgasonar. Um 2.500 manns skor- uðu á mig þá þegar nóttina eftir að leggja þjóðinni lið við að rannsaka möguleg brot í tengslum við banka- hrunið. Ég upplifði það býsna sterkt að ég gæti gefið þessu fólki einhverja von um réttlæti. Og ég er þeirrar skoðunar að það sé einmitt í krafti almenningsálitsins sem unnt er að fylgja eftir rannsókninni á banka- hruninu. Þegar ég gaf kost á mér í mars sagði ég við fjölmiðla hér að ég myndi einungis leggja málinu lið ef ég teldi að það skilaði árangri.“ Tjáning og vald Ýmsir hafa orðið til þess að vefengja hæfi Evu til þess að taka að sér ráð- gefandi verkefni vegna orða sem hún hefur látið falla opinberlega um möguleg fjársvikamál í tengslum við bankahrunið. Benda má á grein sem Brynjar Níelsson hæstaréttarlög- maður skrifaði í Morgunblaðið á sín- um tíma þar sem hann vakti athygli á þessu. Nú hafa einnig verið bornar brigður á hæfi Sigríðar Benedikts- dóttur hagfræðiprófessors í rann- sóknarnefnd Alþingis eftir orð henn- ar um óhóflega græðgi og glæfralegt gáleysi þeirra sem hafa áttu eftirlit með rekstri bankanna og tryggja áttu fjármálastöðugleika. Hvað skyldi Eva hafa um þetta að segja? „Það er reynt að gera rannsókn- arstarfið tortryggilegt og grafa und- an því. En það hefur reynst þýðing- arlaust til þessa. Það er ekki hægt að skipa borgurum að þegja. Og alls ekki ætti að þagga niður í þeim sem búa yfir reynslu og þekkingu. Tjáningar- frelsið er grundvallarmannréttindi. Það að mega tjá skoðanir sínar opin- berlega eru grundvallarréttindi. Og það má alltaf gera ráð fyrir því að þeir sem mögulega hafa framið efnahags- brot og eiga hagsmuna að gæta haldi uppi vörnum með ógnunum og til- raunum til þöggunar. Þeir óska þess, sem eru vitanlega draumórar, að reglan um að allir séu saklausir uns sekt er sönnuð komi í veg fyrir grun- semdir og rannsókn mála. En þannig er þetta ekki í raunveruleikanum. Hafir þú minnsta grun um brot getur verið ástæða til frekari rannsóknar. Það getur enginn lögfræðingur kom- ið í veg fyrir það. Það sem ég tjáði mig um í sjónvarpsviðtali forðum var að- eins um það sem var aðgengilegt um íslenska bankahrunið í fjölmiðlum eins og í The Economist. Og reynsla Föstudagur 12. júní 200916 Helgarblað Eva Joly finnur til samkenndar með íslensku þjóðinni og telur mjög mikilvægt fyrir framtíð hennar að ábyrgðin verði leidd fram í dagsljósið. Joly er vinnuþjarkur og hef- ur unnið tvöfalda vinnu frá 16 ára aldri. Sem nýkjörinn þingmaður á Evrópuþinginu þykir henni ágætt að vera í tengslum við raunveruleikann í rannsóknum á íslensku bankahruni. Lýðræðið er henni heilagt eins og fram kemur í spjalli hennar við Jóhann Hauksson. En það blómstrar ekki nema gagnsæi sé haft að leiðarljósi. Krefjandi verK að breyta veruleiKanum JóHann HaukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is „Þeir óska þess, sem eru vitanlega draum- órar, að reglan um að allir séu saklausir uns sekt er sönnuð komi í veg fyrir grunsemdir og rannsókn mála. En þannig er þetta ekki í raunveruleikanum.“ Þingmaðurinn „sem þingmaður á Evrópu- þinginu finnst mér að það geri mér gagn að vera tengd ákveðinni rannsóknarvinnu og geta fylgt eftir rannsókninni hér.“ myndir hEiða hElgadóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.