Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 17
Föstudagur 12. júní 2009 17Helgarblað Krefjandi verK að breyta veruleiKanum mín sagði mér að á Íslandi væri ástæða til að taka málin föstum tök- um og hefja skipulega rannsókn. Um mál Sigríðar er það að segja að hún hefur í samræmi við það sem ég hef sagt tjáð almennar grunsemdir sínar og skoðanir. Það sem ekki má í þessu sambandi er að halda fram sekt til- tekinnar persónu. Sem rannsakandi hefur hún aðeins tjáð grunsemdir sínar almennum orðum. Hugtakið um mannréttindi hefur verið mis- notað í þessu sambandi. Margir virð- ast líta svo á að grunnreglan um að allir séu saklausir uns sekt er sönnuð eigi með einhverjum hætti að koma í veg fyrir rannsóknir.“ Gegn meginstraumnum Eva hefur reynt allt þetta sjálf í hlut- verki saksóknara í stórfelldum efna- hagsbrota- og spillingarmálum í Frakklandi. Málum þar sem hún hef- ur með áþreifanlegum hætti tekist á við úrvalshópa sem fara með völd í stjórnmálum og viðskiptum. „Hætt- an stafar ekki af orðum þessa fólks heldur því sem það gerir, tekur sér fyrir hendur. Að tjá sig um slíkt er einfaldlega spurning um mannrétt- indi. Það gerðist fyrir nokkrum dög- um að Bongo, einræðisherra í Gab- on í Afríku, féll frá en hann og Gabon komu við sögu í Elf-málinu sem ég rannsakaði. Heima í Frakk- landi hylltu menn Bongo. Ég sá ekki ástæðu til þess þegar ég var beðin um að tjá mig um fráfall hans í fjöl- miðlum. Ég sagði aðeins að Bongo hefði verið maður sem ekki hefði miðað athafnir sínar við hag þjóðar sinnar. Hann hefði verið framleng- ing á hendi franskrar nýlendustefnu og Frökkum bæri að skila þjóðinni þeim peningum sem þeir hefðu haft af íbúum Gabon. Mér er það óskilj- anlegt hvernig menn geta leitt hjá sér hvernig farið hefur verið með þessa þjóð.“ Þeir sem hafnir eru yfir lögin Í bók Evu Joly, Justice under Siege eða Réttlæti í herkví, er að finna orðið refsileysi. Vert er að fá nán- ari útskýringar Evu á þessu hugtaki. „Að vera hafinn yfir lögin er merk- ing þessa orðs. Þetta er stétt manna sem telur sig ekki þurfa að lúta regl- um réttarkerfisins. Hún lítur svo á að lögin séu ekki ætluð þeim held- ur öðrum. Í spilltum löndum mútar þessi stétt dómurum. Meðal þróaðra þjóða á Vesturlöndum mynda menn bræðrareglu innan þessarar stéttar. Lendi einhver þeirra bak við lás og slá koma reglubræður á vettvang og vitna um sakleysi eða sjúkdóma og þar með er viðkomandi sleppt. Ég hef tekið þátt í fjölþjóðlegu starfi lög- fræðinga. Við tökum þessu sem meg- inreglu og viljum berjast gegn þessari mismunun, refsileysi hinna ríku og voldugu. Við höfum eitt nýlegt dæmi frá Frakklandi. 15. maí var kveðinn upp dómur yfir Charles Pasqua, fyrr- verandi innanríkisráðherra, en hann er nú 82 ára. Hann hafði verið ákærð- ur fyrir spillingu og fyrir að hafa kom- ið undan sem svarar 170 milljónum króna. Þetta var hafið yfir allan vafa. Ríkislögmaður krafðist eins árs skil- orðsbundins fangelsis. Í næsta rétt- arsal var verið að dæma 19 ára mann. Hann hafði stolið sem svarar 40 þús- und íslenskum krónum í matvörum. Viltu giska á hvaða dóm hann hlaut? Jú, eins árs fangelsi óskilorðsbund- ið. Íslenska þjóðin er sködduð og ég finn til samstöðu með henni og finn til með henni þegar ég hugsa til af- leiðinganna af bankahruninu. Byrð- arnar sem henni er ætlað að bera eru eins og eftir mikla styrjöld. Það er því mjög mikilvægt fyrir fram- tíðina að ábyrgðin sé dregin fram í dagsljósið og að menn verði dregnir fyrir rétt. Meira get ég ekki sagt um Ísland og hugsanlegt refsileysi að sinni þar sem ég á hlut að rannsókn- inni. En ekkert er mikilvægara fyrir Íslendinga nú en að þessi rannsókn gangi alla leið.“ Gagnsæi undirstaða lýðræðis „Segja má að ég hafi komið mér upp rökstuddri kenningu um það hvern- ig málum sé háttað út frá reynslu og þekkingu fjölda fólks. Hún er sú að dómskerfinu í öllum löndum reynist auðveldara að dæma niður fyrir sig en upp fyrr sig ef svo mætti að orði komast.“ Sjálf hefur Joly sett fram þrjár grundvallarreglur um réttlátt réttar- kerfi. Hin fyrsta er sú að gagnsæi er eðlileg fylgiregla frelsis; gagnsæi án frelsis brýtur í bága við mannrétt- indi. Frelsi og ógagnsæi greiðir leið til lögbrota. Önnur reglan er sú að hnattvæð- ing í lagalegum skilningi er lífsnauð- synleg hnattvæðingu viðskiptanna. Löndum sem hylma yfir lögbrot og fjársvik ætti að meina um forréttindi í bankastarfsemi. Þriðja regla Evu er á þá leið að lögbrot valdamanna skaða mikil- væga hagsmuni þjóða. Hert viðurlög, heimild til eignaupptöku og aðgætni í bankastarfsemi eru varnir sem grípa verður til gegn slíkri samfélagsógn, segir Eva í áðurgreindri bók sinni. „Þetta með frelsið og gagnsæið er áhugavert og jafnframt afar þýð- ingarmikill grunnur lýðræðisins. Þar sem gagnsæi er ekki til að dreifa þar er heldur ekkert lýðræði. Það er mik- ilvægt að borgararnir axli ábyrgð, bæði sem einstaklingar og í sínu fé- lagsstarfi. Þeir eiga að spyrja spurn- inga. Við sjáum til dæmis í Frakk- landi hversu illa stjórnvöld taka gagnrýni. Þar er reynt að þagga nið- ur gagnrýnisraddir. Það er afar mik- ilvægt að standa gegn tilraunum valdhafa til þess að ná yfirráðum yfir upplýsingaflæðinu. Þetta er vitanlega eitt af skilyrðum lýðræðisins. Í Nor- egi eru lög sem kveða á um aðgang fjölmiðla að flestum gögnum innan sólarhrings. Borgarar eiga rétt á að fá afrit af bréfum sem berast hinu op- inbera og bréfum sem það sendir frá Framhald á næstu síðu Sannleikurinn „Maður setur ekki á fót sannleiks- nefnd í réttarríki. Þar er stuðst við réttarkerfið sjálft. “
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.